Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Síða 34
- vægast sagt misjafnar skoðanir á kaupum Keegans á Faustino Asprilla frá Kólombíu
Það hefur varla farið framhjá
nokkrum manni að Faustino
Asprilla, einn þekktasti knatt-
spymumaður heims, er kominn til
liðs við enska liðið Newcastle.
Kevin Keegan, framkvæmdastjóri
Newcastle, greiddi ekki neina smá-
aura fyrir Asprilla heldur snaraði
um 860 milljónum króna á borðið.
Asprilla lék áður með Parma og
undir það síðasta komst hann ekki í
aðallið félagsins. Kaupverðið kom
mörgum á óvart og eins og fram
kemur hér á eftir era þeir menn til
sem vilja meina að Keegan hafi
hreinlega hent frá sér enska meist-
aratitlinum með kaupunum á
Asprilla. Hann muni alls ekki
standa undir þeim væntingum sem
til hans eru gerðar og það muni
koma í ljós á æstu vikum að Kevin
Keegan hafi keypt köttinn í sekkn-
um.
Margir eru hreinlega á allt öðru
máli. Segja að Keegan hafi styrkt lið
sitt gífurlega og aukið hraðann í
sóknarleiknum um allan
helming og var hann nú
töluverður fyrir. Sá einn
sem getur svarað þess-
um vangaveltum er
Asprilla sjálfur og
enginn annar.
Það er hins veg-
ar ekki vist að
hann fái
'sjálfur
tækifæri
til þess
að sýna
hvað í
honum
býr á
næst-
unni, því
hann á yfir
höfði sér
langt keppn-
isbann eftir
fólskulega
árás á Keith
Curle, leik-
mann
Manchester City, á dögunum.
Asprilla missti þá algerlega stjóm á
skapi sínu, kýldi Curle viljandi með
olnboganum í andlitið svo við lá
kjálkabroti. Þetta lét Asprilla sér
ekki duga.
Þegar
leiknum var lokið gerði hann sér lít-
ið fyrir og skallaði Curle í höfuðið.
Dómari leiksins virtist ekki sjá
neitt af þessu og því var gripið til
myndbandsins þegar að leik lokn-
um. Enska knattspyrnusambandið
ákvað þegar að kæra Asprilla og eft-
ir nokkra daga rennur út frestur
sem hann fékk til að útskýra mál
sitt. Líklegast er talið að Asprilla
fái 6-7 leikja bann og þá verða
ekki margir leikir eftir fyrir
þennan milljónaleikmann til
að innbyrða titilinn fyrir
Newcastle.
Asprilla er ekki fyrsti
leikmaðurinn sem kem-
ur frá Suður- Ameríku
til að leika með
Newcastle. Árið 1987 lék
skær stjama sem margir
muna eftir með
Newcastle, Mirandinha
hét hann. Ekki náði
hann sér á strik á með-
an hann stóð við hjá
Newcastle og eftir tvö tíma-
bil var hann á fórum. Sem
aðalástæðu fyrir slakri
framgöngu Mirand-
inha hjá
Newcastle
nefndu menn
veðráttuna
sem auö-
Faustino Asprilla hefur átt frekar skrautlega daga frá því hann kom til Newcastle frá Parma á
Ítalíu. í öðrum leik sínum með félaginu gekk hann á ótrúlegan hátt í skrokk á einum leikmanna
Manchester City með þeim afleiðingum að hann á nú yfir höfði sér langt leikbann. Asprilla
kostaði Newcastle um 680 milljónir. Þeir eru margir sem efast um þetta síðasta útspil Kevins
Keegans í lokaslagnum um enska meistaratitilinn. Þeirra á meðal eru Brasilíumaðurinn Mir-
andinha, fyrrum leikmaður Newcastle, og Alan Hudson, margreyndur enskur landsliðsmaður
hér á árum áður. Gagnrýni þeirra er hörð eins og fram kemur á síðunni.
vitað var og er allt önnur en á þeim
slóðum sem þeir Mirandinha og
Asprilla hafa leikið áður. Mirand-
inha telur að Kevin Keegan hafi átt
að læra af þessum mistökum sem
gerð voru er hann var keyptur til fé-
lagsins.
Sjálfur segir Mirandinha: „Ég tel
að Asprilla muni ekki ná sér á strik
hjá Newcastle frekar en ég gerði.
Það er mín skoðun að með kaupun-
um á honum hafi Keegan misst af
titlinum í ár. Ekki misskilja mig.
Asprilla er dásamlegur leikmaður.
Það skiptir hins vegar ekki máli
hve góður leikmaðurinn er, hann
verður alltaf að fá góðan tíma til að
venjast nýjum aðstæðum. Til að
byrja með verður Asprilla að læra
nýtt tungumál. Hann verður að
venjast nýjum lífsháttum og hann
verður að venjast nýjum leikstíl
inni á vellinum. “
„Keegan hefur gert
stórkostlega hluti með
lið Newcastle United"
Mirandinha heldur áfram: „Ég
hef fylgst vel með Newcastle síðan
ég fór frá félaginu. Það er ljóst að
Keegan hefur verið að gera stórkost-
lega hluti með liðið undanfarið.
Asprilla mun hins vegar ekki nýtast
liðinu fyrr en eftir langan tíma og
ekki í baráttunni fyrir meistaratitl-
inum að þessu sinni. Asprilla kann
að vinna marga titla fyrir
Newcastle í framtíðinni en hann
vinnur ekki titil með liðinu að
þessu sinni.
Asprilla kemur til liðsins um
miðjan vetur, án fjölskyldu sinnar
og hann þekkir engan í Newcastle.
Hugsið ykkur álagið. Það mun líða
nokkuð langur timi þar til þiö sjáið
bestu hliðar Asprilla í enskn knatt-
spyrnunni. Og vegna þess er
Asprilla réðst á Keith Curle vil ég
segja: Asprilla verður að læra það
mjög fljótt að vamarmenn andstæð-
inganna koma til með að lumbra á
honum. Hann má ekki undir nein-
um kringumstæðum svara áreiti
þeirra. Þetta verður Asprilla að
læra og það sem fyrst. Ef hann
lærir þetta ekki verður hann
ekki lengi hjá Newcastle,” segir
Mirandinha.
„Mesta veðmál
Keegans frá upphafi
ferilsins"
Alan Hudson, lengst af leikmað-
ur Chelsea í ensku knattspyrnunni
og félagi Keegans með enska
landslið-inu á sínum tíma, er ekki
mjög hrifinn af kaupunum á
Asprilla og segir að Keegan hafi
aldrei tekið meiri áhættu sem fram-
kvæmdastjóri. Þetta sé mesta veð-
mál hans frá upphafi, veðmál sem
hann muni tapa.
„Ég efaðist strax um snillina á
bak við kaupin á Asprilla, leik-
manni sem er eins skapi farinn og
hann. Ég trúi því einfaldlega ekki
að hann sé allra þeirra peninga
virði sem hann kostaði. Síðan
Asprilla kom inn í liðið hefur
Newcastle tapað fyrir West Ham,
gert jafntefli gegn Man. City og tap-
að gegn Man. Utd. Fyrir tveimur
mánuðum hefði Newcastle auð-
Kevin Keegan situr undir mikilli
gagnrýni þesa dagana vegna
kaupanna á Asprilla sem kostaði
860 milljónir króna.
veldlega sigrað West Ham og Man
City. Asprilla sýndi það með fólsku-
brögðum sínum gegn Keith Curle aö
hann bognar undan miklu álagi.
Lokaslagurinn um meistaratitilinn
mun að miklu leyti snúast um það
hvaða lið þolir best álagið sem verð-
ur í lokaumferðunum. Ég hef verið
jafh lengi í þessu og Keegan og veit
vel að Man. Utd getur hæglega unn-
ið deildina. Strákcimir hans Fergu-
sons hafa orðið að mönnum með því
að glíma við það mikla álag sem
fylgir því að spila marga leiki í úr-
valsdeildinni.
„Ég held,” segir Hudson „að
Newcastle tapi af meistaratitlinum
með kaupunum á Asprilla. Kaupin
minna mig á það þegar Rodney
Marsh var keyptur frá QPR til Man.
City til að bjarga titlinum til Man.
City um árið. Man City missti hins
vegar af öllu saman og kaupin voru
ekki skynsamleg. Asprilla mun ekki
ná að aðlaga sig leik Newcastle.
Ekki einu sinni Ruud Gullit, lang-
besti erlendi leikmaðurinn sem leik-
ið hefur á Bretlandseyjum, gæti
spjarað sig með Newcastle í dag og
til loka tímabilsins. Þetta tekur allt
sinn tíma. Og ef Gullit getur þetta
ekki fæ ég ámögulega séð hvers
vegna Kólombíumaðurinn ætti að
geta þetta.”
Um kaupin á David Batty segir
Hudson: „Keegan hefur örugglega
frekar verið að kaupa hann sem
happagrip en leikmann. Batty hefur
orðið meistari með Leeds og Black-
burn en hann mun ekki ná þriðja
meistaratitlinum með Newcastle,
þrátt fyrir að Keegan hafi gert mun
betri kaup í Batty en Asprilla. -SK
Alan Hudson gagnrýnir Keegan
harðlega fyrir leikmannakaup.