Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Qupperneq 39
T^V LAUGARDAGUR 9. MARS 1996_______________________________________________________________________________
Friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum í uppnámi eftir sprengjutilræði Hamas-samtakanna
{útlöndr
Morðtilræði með farsima
Með íjórum sjálfsmorðsárásum á
níu dögum hefur palestínskum öfga-
mönnum tekist að hrófla heldur bet-
ur við homsteini friðarumleitana í
Mið-Austurlöndum, þ.e. samkomu-
lagi um að ísraelar geti tryggt borg-
urum sínum betra öryggi og stöðugt
samfélag velmegunar í skiptum fyr-
ir sjáifsákvörðunarrétt Palestínu-
manna á eigin landsvæðum. Þessi
einföldu skipti mörkuðu tímamót í
samskiptum þjóða sem læstar voru
í sjálfheldu yfir 100 ára blóðugra
átaka þar sem tekist var á um
hrjóstuga landskika þar sem ekki er
talið að nein auðæfi liggi í jörðu en
báðir gerðu sögulegt tilkali til.
Fréttaljós
á laugardegi
En það er ekki aðeins ofannefnt
samkomulag sem er i uppnámi held-
ur og sjálfstraust ísraelsku þjóðar-
innar. Með sjálfsmorðsárásum sín-
um, sem kostað hafa 57 manns lífið,
hafa skæruliðar Hamas-samtak-
anna, öfgasinnaðra múslíma, að
verulegu leyti náð markmiði stnu:
að koma friðarumleitunum í upp-
nám og sá fræjum tortyggni og
sundrungar meðal ísraelsmanna
sem aftur gæti þýtt að Simon Peres
forsætisráðherra tapaði þingkosn-
ingunum í maí og andstæðingar
friðarsamninga við Palestínumenn
kæmust til valda. Þvi skal ekki
gleyma að æðsta markmið öfgasinn-
aðra Palestínumanna er að tortíma
Ísraelsríki, þeir vilja ekki frið og
allra síst frið sem byggist á mála-
miðlunum.
a|i borgaranna
osningamálið
Þegar sprengjutilræði á sér stað
spyrja allir ísraelar sjálfa sig: Hvar
er fjölskylda mín? Þegar foreldrar
þurfa að óttast um öryggi barna
sinna í miðbæ stærstu borgar ísra-
els skiptir allt annað afar litlu máli.
Enda kom fram í kjölfar sprenging-
anna að margir kjósendur telja ör-
yggi borgaranna verða aðalkosn-
ingamálið í vor.
í sjálfsmorðstilræði Hamas-samtakanna fyrir utan verslunarmiðstöð í Tel Aviv fórust 12 manns og 120 særðust. Tals-
menn Hamas segja tilræðin undanfarið vera hefnd fyrir morðið á aðalsprengjusérfræðingi þeirra, Yahya Ayyash, sem
var myrtur í janúar síðastliðnum. Hafði sprengju verið komið fyrir í GSM-símanum hans. Voru forráðamenn Hamas
sannfærðir um að ísraelska leyniþjónustan hefði verið þar að verki. Símamyndir Reuter
Friðarumleitanirnar hafa gefið
ísraelum tækifæri til velmegunar
og stöðugleika, til að byggja upp
hefðbundið nútímaþjóðfélag. Síðast-
liðin fimm ár hafa verið ár stöðugs
hagvaxtar. Viðskiptahindranir af
hálfu annarra ríkja hafa hrunið og
æ fleiri tekið upp stjórnmálasam-
band.
Með endalokum kalda striðsins
þornaði aðalvopnalind arabaríkj-
anna sem umlykja ísrael, Sovétrík-
in og bandamenn þeirra. Er talið að
sú þróun hafi haft þau áhrif að
Palestínumenn fengust að samn-
ingaborðinu. Gerð friðarsamninga
hefur verið hæg og margir ísraelar
hafa haft efasemdir. En flestir töldu
að ekki yrði við snúið og voru
reiðubúnir að styðja Verkamanna-
flokk Simonar Peresar í þingkosn-
ingunum í maí næstkomandi.
En snarbætt lífsskilyrði og há-
Tilræðin hafa kallað á mótmælaaðgerðir andstæðinga Peresar sem vilja af-
sögn hans og eru á móti friðarsamningum við Palestínumenn. Peres berst
nú fyrir pólitísku lífi sínu
BARATTAN GEGN HAMAS-SAMTOKUNUM
Eftir röð sprengjutilræða í ísrael skipaði
Yasser Arafat, forseti Palestínu, lögreglu að
ráðast Inn í múslímska háskólann á
Gazasvæðinu, eitt helsta vígi hinna herskáu
Hamas-samtaka, í leit að meintum félögum í
Hamas og vopnum.
Sl-
Hebron
ísraelar loka
múslímskum skóla
og gefa út skipanir
um lokun fjögurra
annarra stofnana
Y
Damaskus E
'rland
Gazasvæðið
/
Tel Aviv
,® i
t.Vestur-
•'bakkinn
Jerúsalem
Palestínsk lögregla
ræðst inn í
músflmska
haskoian'-
EGYPTALAND
40 km
V.®
I ^auiahal
JÓRDANÍA
STAÐREYNDIR UM HAMAS-SAMTÖKIN
JJ^ Stofnuð: 1987
Stofnandi: Sheikh Ahmed Yassin
Hernaðararmur: Izz al-Qassam-
sveitimar, sem talið er að samanstandi
af nokkrum tugum valinna skæruliða.
J^fStuðningur: Frá allt að 300 þúsund
Palestínumönnum á Vesturbakkanum
J^Fjármögnun: Styrkir frá
stuðningshópum erlendis
SÍÐUSTU TILR/EÐI
25. feb: 26 drepnir í sjálfsmorðsárásum
ií_ í Jerúsalem og Ashkelon.
^ 26. feb: Kona drepin þegar bíl er ekið á
biðröð á strætisvagnastöð
^ 3. mars: Sjálfsmorðsskæruliði drepur 18
manns í strætisvagni í Jgfúsalgm
^ 4. mars:
Sjálfsmorðs-
skæruliði drepur
13 fyrir utan yfirfulla
verslunarmiðstöð
ÍTel Aviv
REUTER
tíöahöld við undirskrift friðarsamn-
inga verða hjákátleg þegar almenn-
ingi finnst öryggi sínu ógnað.
Þannig bendir einn gyðingur á mót-
sögnina sem felst í batnandi lífsskil-
yrðum, friði við nágrannaþjóðirnar
en að um leið sé öryggi einstakling-
anna í lágmarki.
Hiyðjuverk á báða bóga
í 48 ára sögu sjálfstæðs ríkis hafa
ísraelsmenn háð sex styrjaldir og
hafa þurft að takast á við hryðju-
verk um áratugaskeið. En ísraelar
hafa ekki þurft að takast á við hrinu
hryðjuverka innan landamæranna
eins og þá sem dunið hefur yfir síð-
ustu vikur, ekki síðan skæruliðar
gyðinga beittu sprengjutilræðum í
baráttu gegn Bretum og aröbum og
sprengjutilræði í kvikmyndahúsum
og á mörkuðum voru tíð.
Áður en lengra er haldið er rétt
að geta þess að margir telja að ísra-
elár geti sjálfum sér um kennt með
framkomu sinni gagnvart Palestínu-
mönnum á herteknu svæðunum á
undanfórnum árum. Hendur þeirra
séu blóði drifnar. Þar hafi áratuga
herseta og skipuleg hryðjuverk ísra-
elskra her- og lögreglusveita, sem
ísralear sjálfir túlka sem fullkom-
lega lögmætar aðgerðir, þjappað
óvinum ísraela saman í hatri og séð
samtökum eins og Hamas fyrir næg-
um liðsstyrk.
Meðan flest vestræn ríki hafa tek-
iö málstað Israela hafa þau að sama
skapi átt erfitt með aö sýna málstað
Palestínumanna, sem dreymir um
sjálfstætt ríki, samúð. Það þurfti 20
ára hersetu ísraela og uppreisn Pal-
estínumanna 1987-1990 til að sann-
færa vestræn ríki um að Frelsis-
hreyfmg Palestínumanna, PLO, ætti
sér líka málstað.
Sprengja í farsíma
Hamas-samtökunum hefur vaxið
fiskur um hrygg og hafa þau löng-
um valdið ráðamönnum í ísrael
áhyggjum. Því þurfti það ekki að
koma á óvart þegar aðalsprengju-
sérfræðingur Hamas, Yahyá
Ayyash, var myrtur í janúar síðast-
liðnum. Hafði sprengju verið komið
fyrir í GSM-símanum hans. Voru
forráðamenn Hamas sannfærðir um
að ísraelska leyniþjónustan hefði
verið þar að verki. Segja þeir
sprengjutilræðin undanfarið vera
hefnd fyrir morðið á Ayyash.
Vonir Peresar að engu?
En hvernig sem á verk stríðandi
aöila er litið eru sjálfsmorðstilræði
síðustu vikna og gífurlegt mannfall-
ið staðreynd sem valdið hefur ótta
og skelfingu meðal almennings í
ísrael. Og þar þykir tímasetningin
skipta máli. Tilræðin eiga sér stað
fáum mánuðum eftir morðið á Itz-
hak Rabin forsætisráðherra sem
leiddi ísraela í friðarsamingunum.
Og tilræðin eiga sér stað á þeim
tíma sem Simon Peres, eftirmaður
Rabins, er að skipuleggja kosn-
ingabaráttu sína í von um að tolla í
stóli forsætisráðherra eftir kosning-
ar.
Þannig telja sumir að það hafi
ekki einungis verið lík fórnar-
lambanna sem voru grafin á dögun-
Tilganginum náð. Hamas-samtökin
hafa valdið örvilnan og ótta meðal
almennings í ísrael sem hugsar um
það eitt að öryggi þeirra sé borgið
frá dcgi til dags. Er spáð að öryggi
borgaranna verði eitt aðalkosninga-
málið í þingkosningunum í maí.
um heldur og vonir Peresar um ný
Mið-Austurlönd, Palestínskt ríki
Yassers Arafats og nýja ríkisstjóm
V erkamannaflokks ins.
Tilraun til að afla fylgis
Peres naut tilfinningasveiflu
meðal kjósenda í skoðanakönnun-
um eftir morðið á Rabin en í kjölfar
sprengjutilræðanna á dögunum
hvarf 9 prósentustiga forskot hans á
Likud-bandalagið. í von um að
vinna aftur tapað fylgi og traust óá-
kveðinna kjósenda hefur Peres boð-
að aðgerðir gegn Hamas-samtök-
unum þar sem öll meðul verða leyfð
og hvetur hann Arafat til hins
sama. Hætta er á að farið veröi meö
sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna
eins og annað Líbanon þar sem ísra-
elskar hersveitir fara um að vild og
haga sér að vild. Almenningur vill
hefhd og virðist ætla að fá hana.
Peres hefur lokað landamærunum á
sjálfsstjórnarsvæðunum og kosn-
ingastjórar hans munu væntanlega
ráðleggja honum að halda þeim lok-
uðum fram yfir kjördag.
Hamas-samtökin hafa sett fram
kröfur um að gengið verði að vopna-
hlésskilyrðum þeirra og félagar
samtakanna, sem eru í haldi ísra-
ela, verði látnir lausir. Að öðrum
kosti haldi tilræðin áfram. ísraelar
hafa þegar hafnað tilboði Hamas um
vopnahlé og því má allt eins eiga
von á frekari tilræðum.
Reuter/Int. Herald Tribune
/The Economist