Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Síða 45
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996
m
Bjarni Einarsson að setja 44 tomma dekk á 17 tomma breiðar felgur undir Toyota LandCruiser.
Hér stillir Bjarni tveggja geisla Piia
kastara á hjálparsveitarbíl.
38 tomma breyting kostar frá 600 þúsund krónum:
Jeppanum
breytt
í fjallabíl
Handtökin eru mörg og nú er það
lokafrágangur á ísetningu á milli-
kæli. DV-mynd BG
„Við breytum öllum gerðum af
jeppum, ekki bara Toyota, til dæm-
is Nissan og Ford en fyrst og fremst
Toyota.
Algengast er að verið sé að lyfta
bílunum upp, setja lægri drif í þá,
breyta fjörðun og brettunum og
setja brettakanta. Fyrst og fremst er
verið að hugsa um að koma stærri
hjólum undir bílana," segir Freyr
Jónsson tæknifræðingur sem vinn-
ur hjá P. Samúelsson. Þar er hægt
að láta breyta jeppanum ef mann
langar að gera hann betri í ófærð
eða til að fara á fjöll eins og nýtur
sífellt meiri vinsælda hér á landi.
„Menn eru bæði að hugsa um að
komast meira í ófærð úti á landi og
til að fara í fjallaferðir og jöklaferð-
ir. Það er feikinóg að gera í þessum
breytingum hjá okkur.“
Freyr sagði að hægt væri að fara
ódýrar leiðir við að gera bílana að
fjallabílum en einnig væri hægt að
eyða milljónum í það.
„Ódýrast er að láta breyta Toyota
double cab hjá okkur, það er allt til
í hann hérna og hann er mjög vin-
sæll. Þrjátíu og átta tommu breyt-
ing, sem er mjög algeng fyrir þá sem
eru að fara á fjöll, tekur svona um
það bil viku og kostar frá 600 þús-
undum með sérskoðun og öllu sam-
an. Síðan er endalaust hægt að bæta
á, kösturum og alls konar dóti.“
Að sögn Freys er algengt að það
séu eigendur einkabíla sem láta
breyta bílunum sínum. Hann sagði
að margir væru laghentir og gerðu
þetta sjálfir, þeir leituðu oft ráðlegg-
inga hjá þeim sem vinna við breyt-
ingar. Þeir sem væru í ferðaþjónust-
unni væru mikið að láta breyta bíl-
um fyrir sig. Þetta væru þeir sem
færu með útlendinga upp á hálend-
ið.
Freyr sagði að fjórir menn ynnu
að jafnaði við breytingarnar.
„Núna erum við með Toyota
extra cab héma inni, við erum líka
með bíl frá Hjálparsveit skáta, við
breytum mikið bílum fyrir hjálpar-
sveitirnar."
Freyr sagði að stöðugt væri að
aukast að menn létu breyta bílun-
um sínum en að vísu hefði veturinn
í vetur ekki verið hagstæður fyrir
þá sem eru mikið í vetrarferðum
þar sem snjóinn hefði vantað.
„Við vinnum líka mikið fyrir
veitustofnanir, Rafmagnsveituna og
Landsvirkjun, einnig Vegagerðina,"
sagði Freyr Jónsson.
-ÞK