Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Page 64
Alla laugardaga
Vertu viðhúinln)
vinningit
a SgG)0'0®
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEMALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvért
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
i hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996
Dæmdur fýrir
kynferðisáreitni
Máli Heiðars Jónssonar snyrtis
lauk hjá Héraðsdómi Norðurlands í
gær en þar var hann dæmdur til 30
daga skilorðsbundinnar fangelsis-
—-~l'efsingar. Hann var sakfelldur „fyr-
ir kynferðisbrot gagnvart 18 ára
ungmenni", m.a. með því að hafa
sært blygðunarsemi þess.
Heiðar er jafnframt dæmdur til
að greiða piltinum 70 þúsund krón-
ur í miskabætur og 30 þúsund krón-
ur vegna lögmannsþóknunar. Að
öðru leyti ber hann 130 þúsund
króna málskostnað.
Málið tók til atburðar sem átti sér
stað á gistiheimili á Akureyri í sept-
ember 1995. Félagsmálastjóri á
Akureyri sagði m.a. fyrir dómi að
samkvæmt persónuleikaprófi hefði
pilturinn orðið fyrir áreitni sem
hefði valdið honum alvarlegri and-
legri vanlíðan. Sálfræðingur, sem
*■--kom fyrir dóminn, gerði hins vegar
athugasemdir við persónuleikapróf-
ið og lét þá skoðun sina í ljós að ef
eingöngu væri litið til prófsins
mætti ætla að pilturinn hefði verið
að ýkja vanlíðan sína og eftir atvik-
um að gera sér upp veikindi.
Ólafur Ólafsson, héraðsdómari á
Norðurlandi eystra, kvað upp dóm-
inn.
-Ótt
Tveir út af á
Mikladal
Tveir bílar lentu út af veginum á
Mikladal við Patreksfjörð í fyrra-
dag. Annar bíllinn valt og voru
fimm manns 1 honum. Voru allir
fluttir á heilsugæslustöð en meiðsli
reyndust ekki alvarleg. Enginn
þeirra var í bílbelti. Einn maður
var í hinum bílnum en sakaði ekki.
Að sögn lögreglu mun ástæðan
hefa verið sú að mikið snjóaði um
þetta leyti. Báðir bilarnir eru tals-
vert mikð skemmdir.
-ÞK
Ókeypis heimsending
1 NSK KÚLULEGUR Poulsen
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499
( 1 f PETTA ER HLUTA-\ FÉLAG SEM SEGIR ) v" J
4
1 L O K 1
Framkvæmdastjóri sem hafði verið beðinn um að víkja safnaði liði og sneri aftur:
Á annan tug manna réðst
til inngöngu á Bohem
- dyraverðir fengu kjaftshögg og rekstraraðilar hraktir í burtu - opna annars staðar
Á annan tug manna ruddist til
inngöngu á veitingastaðinn Café
Bohem á fimmtudagskvöld og kom
til mikilla slagsmála þar sem dyra-
verðir urðu að lúta í lægra haldi
fyrir framkvæmdastjóra, sem
hafði verið beðinn um að halda sig
frá rekstrinum, og mönnunum
sem hann hafði safnað saman.
Ástæður deilnanna eru ósamlyndi
í rekstri. Dan Morgan, kanadískur
rekstraraðili staðarins, og menn
sem standa á bak við hann hyggj-
ast í kjölfar atburðarins og árásar-
innar opna nýjan skemmtistað þar
sem léttklæddar stúlkur munu
dansa fyrir gesti.
Tildrög innrásarinnar á
fimmtudagskvöldið voru þau að
Guðjón Sverrisson, framkvæmda-
stjóri og stjómarformaður Bohem,
hafði á sunnudag verið beðinn um
að halda sig frá starfsemi Bohem
vegna óánægju annarra hluthafa
með störf hans. Hann kom aftur á
fimmtudag.
„Ég gerði hluti þarna sem þurfti
að gera,“ sagði Guðjón við DV í
gær.
Richard Rowlinsson dyravörður
fékk þrjú kjaftshögg um kvöldið.
„Þetta byrjaði á því að tveir pilt-
ar frá annarri krá komu og sögð-
ust eiga að hjálpa okkur við dyra-
vörsluna. Við báðum þá að fara,
sem þeir og gerðu. Klukkutíma
síðar kom Guðjón og hópur
manna með honum. Ég fékk þrjú
högg. Ég kallaði á Dan og bað
hann að hjálpa mér en við ákváð-
um að berjast ekki á móti 15
hraustum mönnum. Síðan var
kallað á lögregluna," sagði Ric-
hard.
„Þetta var eins og á orrustu-
velli,“ sagði einn viðmælenda DV
sem var á staðnum.
„Þetta var enginn hamagang-
ur,“ sagði Guðjón, aðspurður um
slagsmálin. „Þetta er bara einka-
mál og ekki útkljáð enn þá. Það
verður að ráðast á hluthafafundi.
Ég er stjómarformaður og aðal-
framkvæmdastjóri og gerði hluti
Dan Morgan, sitjandi, segist ætla að opna nýjan skemmtistað með léttklæddum sýningarstúlkum í miðborg Reykja-
vikur. Hann taldi sig reyndar búinn að finna húsnæði í gærkvöldi. Með honum á myndinni eru f.v. sýningarstúlkurn-
ar Nancy og Patricia frá Montreal og dyraverðirnir Richard Roowlinsson og Sigurður Adolf Alfreðsson.
DV-mynd BG
þarna sem þurfti að gera. Fjölmiðl-
um kemur það ekki við en staður-
inn mun hins vegar halda áfram
eins og verið hefur,“ sagði Guðjón.
Það sem eftir lifði fimmtudags-
kvöldsins stjórnaði Guðjón og
hans fólk starfsemi staðarins.
Dan Morgan segist ætla að opna
„annan klúbb“ í miðbæ Reykjavík-
ur eftir um viku:
„Meirihluti hluthafa vildi fá
Guðjón út úr rekstrinum vegna
þess að hann hefur ekki staðið að
fjármálum staðarins eins og
skyldi," sagði Dan í samtali við
DV. „Guðjón hefur ekki haldið
gögnum til haga og tekið meiri
peninga fyrir sjálfan sig en hófi
gegnir gagnvart öðrum hluthöfum
og yfirvöldum. Hann hefur líka
haldið sýningarstúlkum lengur en
þær hafa haft leyfi fyrir. Mér
finnst þessi framkoma á fimmtu-
dagskvöldið mjög slæm en hún
sýnir hvemig vinnubrögð Guðjón
viðhefur."
-Ótt
Amfetamínsmygl:
18 mánaða
fangelsi
37 ára Reykvíkingur, Emil Jó-
hannsson, hefur verið dæmdur í 18
mánaða fangelsi fyrir að hafa ætlað
að smygla 250 grömmum af am-
fetamíni, að miklu leyti i smokkum
í iðrum sínum en einnig innan-
klæða, til íslands síðastliðið sumar.
Lögreglan í Danmörku hafði af-
skipti af Emil en hluti af smokkun-
um sprakk í iðrum hans með þeim
afleiðingum að hann þurfti að
dvelja á sjúkrahúsi í Kaupmanna-
höfn.
Emil var sendur heim til Islands
eftir að lögreglan í Danmörku hafði
fundið efnin og hann hafði dvalist á
sjúkrahúsi ytra. -Ótt
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Sunnudagur
Mánudagur
Á mánudaginn verður hvöss sunnan- og suðvestanátt og él en að mestu þurrt norðaustanlands. Hiti verður 0 til 4 stig.
Veðrið í dag er á bls. 69