Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1996, Blaðsíða 28
jí 5 Vinningstölur miðvikudaginn 112X13)^22 28X37 )(44 Í7Y24 31^5 Vinningar Fjöldl vinninga Vinningsupphxd l.tcft 3 T4.S3ö:ö0ö 2. S af t f«w1 265.130 3. S afi 1 208.320 4. * aft 157 2.110 5. 3of6” * 623 220 ítildatvinningsuÞÞh 45.431.780 'h»4 Á Islandl 941.780 Vinningstölur 24.4/96 @@©@ (20) (27) (29) KIN i 1 FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1996 Helgarblað DV: Handleggs- brotinn í hálft annaðár f helgarblaði DV á morgun verð- ur rætt við Percy Stefánsson um al- næmið, ástina og fordómana. Þá verður rætt við mann sem hefur verið handleggsbrotinn í hálft ann- að ár og ekki fengið bót meina sinna. Rætt verður við mæðgurnar Ingibjörgu Möller og Fríðu Sigurð- ardóttur sem hlutu íslensku barna- bókaverðlaunin fyrr í vikunni. Loks má finna þar yfirheyrslu yfir Guð- mundi Rafni Geirdal forsetafram- bjóðanda og fjöldamargt annað efni. Þess má geta að hverju blaði á morgun fylgir skafmiði. Norðurland vestra: Ný riöu- tilfelli staðfest DV, Sauöárkróki: Á síðustu dögum hafa verið stað- - fest ný riðutilfelli, bæði í Skagafirði og Húnaþingi. Þetta er á bæjunum Tunguhálsi II í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði og Stekkjar- dal í Svína- vatnshreppi í Austur- Húnavatns- sýslu. Á báðum þessum bæjum er um 100 kinda fjárbú. Hjörðunum verður fargað á næsta dögum. Tjón bænd- anna er tilfinnanlegt, einkum með tilliti til þess að nú er- komið fast að sauðburði og hvað erfiðasti tíminn að taka áföllum sem þessum. Erfiðlega virðist ganga að ráða niðurlögum riðuveikinnar í landinu og tilfellið í Stekkjardal er það fjórða sem kemur upp í A-Húna- vatnssýslu frá liðnu hausti. > -ÞÁ L O K I Ákæra í alsælumáli, einu stærsta og alvarlegasta ílkniefnamálinu hérlendis: Fimm menn verði dæmdir í allt að 10 ára fangelsi einn viðurkenndi að hafa selt á annað hundrað ungmennum alsælutöflur Ríkissaksóknari mun krefjast þess að fimm ungir menn sæti allt að 10 ára fangelsi í stærsta alsælu- sakamálinu sem komið hefur fram á íslandi. Réttarhöld gegn fimm- menningunum hefjast á mánudag en málið er talið mjög alvarlegt, sérstaklega í ljósi þess að alsæla er eitt hættulegasta fíkniefnið sem fram hefur komið, samkvæmt áliti vísindamanna. Einn af mönnunum hefur viðurkennt að hafa selt á annað hundrað ungmennum al- sælutöflur. Þann 20. október síðastliðinn handtók fikniefnalögreglan kaup- anda að alsælutöflum og fór þá eitt að leiða af öðru í málinu. Rann- sókn leiddi síðan í ljós að tveir af mönnunum höfðu farið til London í mars 1995 til að kaupa 350 alsælu- töflur. Þeir fluttu efnin síðan heim til íslands og komu þeim í rnnferð. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að í júlí í fyrra fóru tveir aðrir menn til London í sömú erindum. Þar hittu þeir fyrir fimmta mann- inn, íslending búsettan í Bretlandi, og seldi hann þeim 520 töflúr af al- sælu sem hinir fluttu með sér heim. Um dreifinguna á stærri sendingunni sá siðan annar af þeim sem fluttu þau inn en einnig annar mannanna sem fluttu inn og dreifðu 350 töflunum. Hann er sá eini sem á þátt í báðum málunum og hefur samkvæmt heimildum DV viðurkennt að hafa selt á ann- að hundrað ungmennum alsælu- töflur. Við rannsókn þessa máls lagði fikniefnalögreglan hald á 84 alsælutöflur. Fíkniefnalögreglan handtók síð- an hinn íslenska sölumann í London þegar hann var staddur á íslandi. Hann var síðan ákærður eins og hinir. Eins og fyrr segir er málið talið mjög alvarlegt í ljósi þess að óyggj- andi er samkvæmt áliti vísinda- manna að alsæla, eða ecstasy, er eitt hættulegasta fikniefnið sem fram hefur komið. Fimmmenning- arnir eru allir ákærðir fyrir brot á 173. grein hegningarlaganna en slíkt er aðeins gert í stórum fikni- efnamálum. -Ótt Pétur Kr. Hafstein forsetaframbjóðandi var á ferðinni í Kópavogi í gær ásamt konu sinni, Ingu Ástu, á félagssvæði hestamannafélagsins Gusts. Unglingar í Gusti voru með sýningu í blíðviðrinu á sumardaginn fyrsta og þau hjónin heilsuðu upp á Sigrúnu Auði Sigurðardóttur, efnilegan knapa. Ekki er annað að sjá en að vel hafi farið á með þeim, enda þau Pétur og Inga þaulvanir hestamenn. DV-mynd S Veörið á morgun: Létt- skýjað syðra Á morgun verður norðan- kaldi og skýjað með köflum norðanlands en léttskýjað syðra. Hiti verður 2 til 10 stig, mild- ast sunnanlands. Veöriö í dag er á bls. 44 Mál Sophiu Hansen: Allir hugsandi menn sjá að þetta er bull „Þetta eru endalausir frestir og nú til 13. júní. Þá eiga börnin að tjá sig þótt þau séu áfram í umsjá föð- urins. Það sjá allir hugsandi menn að þetta er bull. íslensk stjórnvöld verða að ganga í málið og gera tyrk- neskum yfirvöldum grein fyrir að þarna er verið að brjóta mannrétt- indi á íslenskum ríkisborgurum," sagði Sigurður Pétur Harðarson, stuðningsmaður Sophiu Hansen, í samtali við DV í morgun. Undirréttur í Istanbúl í Tyrklandi úrskurðaði i gær að enn einni með- ferð á forræðismáli Sophiu gegn Ha- lim A1 skyldi frestað fram á sumar og þá yrðu dætur Sophiu og Halims kallaðar fyrir réttinn. Sigurður sagðist reikna með að þau Sophia kæmu heim eftir helg- ina.__________________-GK Atvinnuþjófar handteknir Tveir ungir menn voru í fyrrinótt handteknir í Vestmannaeyjum grunaðir um að hafa staðið fyrir fjölda innbrota þar síðustu fjóra mánuði. Mennirnir eru 16 og 23 ára og tek- ur Héraðsdómur Suðurlands í dag ákvörðum um hvort og hve lengi þeir verði í gæsluvarðhald. Mennirnir voru gripnir eftir inn- brot í flugstöðina í Eyjum. Við hús- leit hjá þeim fannst þýfi úr fjölda innbrota en mennirnir höfðu komið sér upp lyklasafni að fjölmörgum fvrirtækjum. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.