Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1996, Blaðsíða 24
44
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1996
Kristinn Gunnarsson á hauk í
horni.
Alls ekki sá
leiðinlegasti
„Ef Kristinn Gunnarsson er
með réttu leiðinlegasti maður
þingsins - mikið rosalega hljóta
hinir þá að vera skemmtilegir."
Gunnlaugur M. Sigmundsson, í Al-
þýðublaðinu.
Halldór gerir Guðna út
„Skyldi dómsmálaráðherrann
trúa því nú að Guðni Ágústsson
hefði verið gerður út af Halldóri
Ásgrímssyni eða þingflokki
Framsóknarflokksins. “
Jón Baldvin Hannibalsson, í DV.
Ummæli
Kannski of gamall
„Þó ungur sé að árum, er Pét-
ur Kr. Hafstein kannski of „gam-
all“ tU að verða forseti."
Birgir Hermannsson, í Alþýðublaðinu.
Eru þeir komnir út úr
skápnum?
„Hafa þeir „siðferðilega" tapað
öllum áttum? Megum við eiga
von á að þeir sjálfir séu að koma
út úr „skápnum".
Daníel Þorsteinsson, í Morgunblaðinu,
um afstöðu þingmanna til laga um
samkynhneigð.
Það er árlega keppt í því hver
getur gert stærstu tyggjóblöðr-
urnar.
Tyggjó
Allt frá fyrstu tíð hefur fólk
japlað á laufum, jurtum og efn-
um úr jurtaríkinu. Árið 1848
seldi J. Curtis grenikvoðu í
fyrsta skipti í Maine í Bandaríkj-
unum. Um 1860 sneru menn sér
að balata, enda var auðveldara
að blanda ýmsum bragðefnum
við það, til dæmis myntu og
anís. Sá sem seldi balata
tyggigúmmí fyrstur manna var
að öllum líkindum Bandaríkja-
maðurinn T. Adams. Árið 1869
fékk William F. Semple í Ohio
einkaleyfi á því sem hann kall-
aði Chewing Gum en það var
blanda af gúmmímassa, sætu- og
bragðefnum í tilteknum hlutföll-
um. Notkun tyggigúmmís
breiddist skjótt út um víða ver-
öld og um síðustu aldamót var
þegar hafin stórframleiðsla á
því.
Blessuð veröldin
Skoskt viskí
Skoskt viskí er forn drykkur
og fyrstu heimildir um áfengi úr
áluðu og þurrkuðu byggi í
Skotlandi eru frá árinu 1494 en
þá eimaði munkurinn John Cor
þennan síðar vinsæla en görótta
drykk fyrir klaustur sitt. Orðið
viskí er komið úr keltnesku.
Léttskýjað í höfuðborginni
Um 350 km suðsuðaustur af land-
inu er 1000 mb lægð á hreyfingu
austnorðaustur. Yfir Grænlandi og
Grænlandshafi er víðáttumikið og
vaxandi háþrýstisvæði.
í dag verður áfram hæg norðaust-
Veðrið í dag
an- og síðan norðanátt. Á Norður-
og Norðausturlandi verður dálítil
slydda eða súld en bjartviðri sunn-
an- og vestanlands. Hiti verður 1 til
8 stig.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
austan- og norðaustangola í dag en
norðangola og kaldi í nótt og fyrra-
málið. Léttskýjað verður og hiti 1 til
6 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 21.37
Sólarupprás á morgun: 5.13
Síðdegisflóð í Reykjavík: 12.45
Árdegisflóð á morgun: 1.16
Veðrið kl. 6 í morgun:
kureyri alskýjaö 6
Akurnes skýjaö 4
Bergsstaðir léttskýjaö 0
Bolungarvík ■ léttskýjaö 1
Egilsstaóir alskýjaö 1
Keflavikurflugv. léttskýjaó 2
Kirkjubkl. alskýjaó 4
Raufarhöfn skýaó 1
Reykjavik léttskýjað -1
Stórhöfói léttskýjaö 3
Helsinki alskýjað 0
Kaupmannah. þokumóöa 8
Ósló skýaö 6
Stokkhólmur rigningD 4
Þórshöfn rigning 6
Amsterdam skýjaö 10
Barcelona alskýjaö 14
Chicago alskýjaó 12
Frankfurt léttskýkja 6
Glasgow skýjaö 10
Hamborg rigning 8
London mistur 9
Los Angeles léttskýjaó 19
Lúxemborg heiöskírt 9
París heiöskírt 7
Róm þokumóöa 15
Mallorca súld á síó.kls. 14
New York alskýjaö 13
Nice alskýjaö 14
Nuuk slydda á síö.kls. 7
Orlando léttskýjaö 22
Vín rigning 12
Washington alskýjaó 20
Winnipeg heiðskírt -4
w 2
1 f 1 • ~
QO y W /
CÍK 4o 1
• Veðrið kl. 6 í morgun
Þórunn Sigurðardóttir, kosningastjóri Guðrúnar Pétursdóttur:
Sterkasta vopnið er hún sjálf
„Ég er að koma í bæinn úr frá-
bæru ferðalagi með Guðrúnu um
Norður- og Austurland þar sem
við heimsóttum tugi vinnustaða
og stofnana, spjölluðum við
heimamenn og héldum opna kynn-
ingarfundi á stærstu stöðunum og
voru þeir mjög vel sóttir og
skemmtilegir, sagði Þórunn Sig-
urðardóttir, annar kosningastjóra
Guðrúnar Pétursdóttur forseta-
frambjóðanda.
„Ég kem beint inn í undirbún-
ing opnunar kosningamiðstöðvar-
innar, sem er í Pósthússtræti 9 á
efstu hæð, en búið verður að opna
Maður dagsins
hana með pomp og prakt og
pönnukökum þegar þetta kemur á
prent. Það er í mörg horn að líta í
upphafi kosningabaráttu en ferða-
lagið lagði okkur einmitt réttu
upphafslínurnar því það er ómet-
anlegt að heyra hvað fólkið í land-
inu er að hugsa um þetta mikil-
væga embætti."
Þórunn sagði að á kynningar-
Þórunn Sigurðardóttir.
fundina hefðu komið fleiri en þeir
sem voru ákveðnir að kjósa Guð-
rúnu en í lok fundanna hefði ver-
ið örtröð af fólki sem vildi láta
vita að nú hefði það gert upp hug
sinn. „Ég held að það sem gerði út-
slagið sé hversu snjall ræðumaður
Guðrún er, sú hlýja og húmor sem
hún hefur í framsetningu á máli
sínu og hversu gott hún á með að
nálgast fólk. Okkar starf er að
kynna hana sem best en hennar
sterkasta vopn er hún sjálf. Guð-
rún hefur mikla þekkingu á undir-
stöðuatvinnuvegum landsins, það
var gaman að heyra hana spjalla
um fitusýrur í lambakjöti við kjöt-
iðnaðarmenn á Akureyri og um
gæftirnar á steinbítsveiðunum við
trillukarlana á Djúpavogi.
Síðustu nóttina gistum við á
Hala í Suðursveit hjá vinum Guð-
rúnar og hlógum okkur í svefn af
sögum heimilisfólksins frá þeim
tíma þegar Guðrún var matvinn-
ungur þar á unglingsárunum.
Á móti mér hér við skipulagn-
inguna á kosningamiðstöðinni
vinnur Bjarni Þórður Bjarnason
verkfræðingur en mikill fjöldi af
fólki er að koma til liðs við okkur.
Við höfum einnig fengið öfluga
samstarfsmenn á nokkrum
stærstu stöðunum fyrir norðan og
austan. Við eigum eftir að fara
víðar, einkum um Suður- og Vest-
urland, að ógleymdum Vestfjörð-
um sem Guðrún ætlar að ferðast
til þegar kosningum til sveitar-
stjórnar lýkur þar í maí. Síðast en
ekki síst er mikið starf fyrir hönd-
um i Reykjavík og á Reykjanesi."
Heldur vel á spöðunum Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki
DV
Handverkssýn-
ing á Selfossi
í sumarbyrjun voru opnaðar
nokkrar listsýningar og meðal
þeirra sem opnuðu sýningu var
Snorri Snorrason. Hann sýnir í
Set-salnum, Eyrarvegi 41 á Sel-
fossi. Á sýningu Snorra eru
myndir málaðar með pastel og
olíu. Einnig eru myndir og
skúlptúrar úr tré og íslensku
móbergi. Sýning Snorra verður
opin til 5. maí frá kl. 14-18 alla
daga.
Sýningar
Níu verk á Ara í Ogri
Veitingastaðurinn Ari í Ögri
hefur víkkað út starfssvið sitt og
mun vera með listsýningar á
staðnum í bland við hinn hefð-
bundna kaffihúsarekstur. Það
var Bergur Thorberg sem reið á
vaðið og sýnir hann á Ara í Ögri
níu málverk sem öll eru unnin
með olíu og akrýllitum á striga.
Verkin byggjast á mörgum lita-
lögum sem listamaðurinn flysjar
síðan og flettir og skoðandinn á
greiðari leið inn í verkin.
Tónlistarkrossgáta
Tónlistarkrossgáta nr. 109.
Lausnir sendist til Ríkis-útvarpsins
Rás 2, Efstaleiti 105 Rvk. Merkt
Tónlistarkrossgátan.
Bridge
Er þetta ekki ein sérkennilegasta
sagnsería sem sést hefur við græna
borðið? Hún kom fyrir í „föstudags-
bridge BSÍ“ 19. apríl. En þrátt fyrir
brjálaðar sagnir leynist nokkurt vit
í þeim. Þórður Sigfússon sendi þætt-
inum þetta spil. Norður gefur og NS
á hættu:
4 G
V 632
+ ÁKD9872
* Á3
4 K986543
«4 --
♦ 1063
* D72
4 D102
* ÁKDG10875
4 G
4 8
Norður Austur Suður Vestur
14 3* 4g 64
74 pass 7» 74
7g dobl p/h
Suður ákveður að spyrja um ása,
haldandi á 8 öruggum slögum í
hjarta og vestur, sem veit að þriggja
laufa sögn austurs er hindrun,
stekkur strax í 6 spaða með sjölitinn
og þriggja spila stuðning í lauflitn-
um. Vestur taldi að spaðaliturinn
myndi nýtast verr í laufasamningi,
auk þess sem 6 spaðasögnin hafði
meira hindrunargildi (sá samning-
ur fer aðeins 3 niður). Norður taldi
að suður ætti varla fyrir ásaspurn-
ingu án þess að eiga tvo sjálfur og
greinilegt var af sögnum að suður
átti góðan hjartalit. Með þriggja
spila stuðning í litnum virtist eðli-
legt að fara í sjö tígla. Líkurnar á
því að félagi ætti tvo ása virtust
aukast þegar vestur fór í 7 spaða og
því sagði norður 7 grönd. Austur do-
blaði en niðurstaða spilsins sýnir
glöggt hve mikilvægt það er fyrir
vörnina að ræða hvað sú sögn sýnir
(annaðhvort „ég vil þinn lit út“ eða
„ég vil minn lit út“). Það misskfldist
reyndar í þessu tilviki og sagnhafi
fékk alla slagina.
ísak Örn Sigurðsson