Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Side 33
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
37
Sýningin er samsafn Ijósmynda
af vaxtarræktarkonum.
Stálkonan í
Kringlunni
í gær var sýningin Stálkonur
opnuð í Kringlunni en sýning
þessi hefur undanfarið staðið
yfir í Listasafni Akureyrar. Á
sýningunni eru myndir af vaxt-
arræktarkonum eftir ljós-
myndarann Bill Dobbins. Óhætt
er að fullyrða að Dobbins hafi
Sýningar
ljósmyndað hverja einustu at-
vinnu- stálkonu undanfarin
fimmtán ár en hann er talinn í
hópi færustu myndasmiða á
sínu sviði og var nýlega til-
nefndur íþróttaljósmyndari árs-
ins í Bandaríkjunum.
Um myndir sínar segir Dobb-
ins: „Vaxtarræktarfólk er lista-
fólk, eins konar mennskir
skúlptúrar. En það að ljós-
mynda þaö er einnig list. TO að
fanga þrívíðan hlut eins og
mannslíkamann þarf að beita
öllum tiltækum ráðum, túlkun
og yfirvegun, svo ekki sé minnst
á margbrotna tækni.“
Bylting? -
Endurskoðun
útvarpslaga
er yfirskrift fundar sem SUS
og Menningarnefnd Sjálfstæðis-
flokksins halda í Kornhlöðunni
við Lækjarbrekku í dag kl. 17.00.
Ræðumenn: Björn Bjarnason,
Heimir Steinsson og Laufey
Guöjónsdóttir.
Fjallkonurnar
Fundur verður í Safnaðar-
heimili Fella- og Hólakirkju í
kvöld kl. 20.00. Skemmtifundur
og happdrætti.
ITC Björkin
Fundur verður í kvöld kl.
20.30 að Sigtúni 9. Allir vel-
komnir.
Kvenfélag Seljasóknar
Fundur í kirkjumiðstöðinni í
kvöld kl. 20.30. Snyrtifræðingur
kynnir snyrtivörur og býður
upp á húðgreiningu. Rætt um
fyrirhugað haustferðalag.
Samkomur
CCU-samtökin
Fræðslufundur verður í kvöld
kl. 20.30 í Félagsmiðstöðinni
Frostaskjóli á 2. hæð í KR-hús-
inu. Fjallað verður um lækning-
ar með lyfium og/eða skurðað-
gerðum og helstu nýjungar fyrir
Crohn’s og Colitis Ulcerosa
sjúklinga.
Kynning á óvenjulegum
ferðamata
1 Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld kl. 20.00 verður kynning á
ferðum á sjókajökum um Vest-
firði.
Tvímenningur
Spilaður verður tvimenning-
ur í kvöld kl. 19.00 að Gjábakka,
Fannborg 8.
Dans í Risinu
á vegum Félags eldri borgara
í Reykjavík verður dansaö í Ris-
inu í kvöld kl. 20.00. Sigvaldi
stjórnar.
Fríkirkjan í Reykjavík:
Tónlistarvor
Fríkirkjan í Reykjavík er að
fara af stað í kvöld með tón-
leikaröð sem gengur undir nafn-
inu Tónlistarvor í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir sem verða þrennir
talsins eru helgaðir hljóðfæra-
leik.
Skemmtanir
Á tónleikunum í kvöld eru
flytjendumir íjórir, Auður Haf-
steinsdóttir sem leikur á fiðlu,
Ilka Petrova Benkova sem leik-
ur á þverflautu og á orgel leika
Violeta Smid og dr. Pavel Smid.
Á efnisskránni eru verk eftir
J.S. Bach, A. Corelli, F. Schu-
bert, F. Devienne, S. Rachman-
inoff, P. Hadjiev og G. Bricci-
aldi. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 og fá eldri borgarar og tón-
listarnemar 50% afslátt af miða-
verði sem er 1000 kr.
Auður Hafsteinsdóttir er ein fjögurra tónlistarmanna sem koma fram á tón-
leikunum í Fríkirkjunni í kvöld.
Góð færð
á helstu þjóð-
vegum
Þjóðvegir á landinu eru yfirleitt
vel færir en hálka er sums staðar
þar sem vegir liggja hátt og snjóað
Færð á vegum
hefur á heiðar á Austurlandi. Mjög
víða eru hámarkstakmarkanir á öx-
ulþyngd þar sem vegir eru blautir
og viðkvæmir. Á Vestfjörðum eru
einstaka vegir mjög viðkvæmir og
er öxulþunginn þar takmarkaður
við 2 tonn á sumum vegum. Vegna
aurbleytu hefur verið auglýst lokun
á flestum vegum á hálendinu og
verða þeir fyrst um sinn lokaðir
allri umferð.
Ástand vega
O Hálka og snjór
án fyrirstööu
Lokaö
0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
m Þungfært © Fært fjallabílum
Sonur Hönnu
og Péturs
Myndarlegi drengurinn á mynd-
inni fæddist á fæðingardeild Land-
spítalans 5. maí kl. 1.06. Þegar hann
Barn dagsins
var vigtaður reyndist hann vera
4090 grömm að þyngd og mældist
53 sentímetrar. Foreldrar hans eru
Hanna B. Hreiðarsdóttir og Pétur
Óli Jónsson. Er hann fyrsta bam
þeirra.
Robert Downey jr. leikur aðal-
hlutverkið, læknanema, sem
kallaður er til þjónustu við kóng-
mn Endurreisn
Regnboginn frumsýndi fyrir
helgina Endurreisn
(Restoration), kvikmynd sem
gerist á sautjándu öld. Fjallar
hún um Robert Merivel, ungan
og hæfileikaríkan læknanema
sem óvænt er kallaður til þjón-
ustu við konunginn. Merivel
gistir í höll konungs og nýtur
allra þeirra'lystisemda sem þar
er að finna þar til konungurinn
ákveður að hjákona sín, Celia,
og Merivel skuli giftast og setur
þau skilyrði að Merivel megi
ekki undir neinum kringum-
stæðum verða ástfanginn af
henni. Að launum fær Merivel
titil og fallega eign úti rlsveit.
Þegar konungur kemst að því að
Kvikmyndir
Merivel hefur brotið skilyrðin
sem hann setti er hann gerður
brottrækur og eignalaus.
Merivel fer á flakk og leitar uppi
vin sinn úr læknaskólanum sem
nú starfar á heimili fyrir gerð-
sjúka.
Robert Downey jr. leikur
Merivel en meðal annarra leik-
ara eru Meg Ryan/ Sam Neill,
Hugh Grant, David Thewlis og
Polly Walker. Leikstjóri er Mich-
ael Hoffman.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Sölumennirnir
Laugarásbíó: Bráðabani
Saga-bió: Powder
Bíóhöllin: Last Dance
Bíóborgin: Dead Presidents
Regnboginn: Endurreisn
Stjörnubíó: Kviðdómandinn
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 90
7. maí 1996 kl. 9,15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 66,900 67,240 66,630
Pund 101,100 101,620 101,060
Kan. dollar 48,980 49,290 48,890
Dönsk kr. 11,3870 11,4470 11,6250
Norsk kr. 10,2160 10,2730 10,3260
Sænsk kr. 9,7960 9,8500 9,9790
Fi. mark 13,9090 13,9910 14,3190
Fra. franki 12,9850 13,0600 13,1530
Belg. franki 2,1350 2,1478 2,1854
Sviss. franki 53,8300 54,1300 55,5700
Holl. gyllini 39,3100 39,5400 40,1300
Þýskt mark 43,9200 44,1500 44,8700
ít. líra 0,04297 0,04323 0,04226
Aust. sch. 6,2390 6,2770 6,3850
Port. escudo 0,4269 0,4295 0,4346
Spá. peseti 0,5269 0,5301 0,5340
Jap. yen 0,63580 0,63960 0,62540
írskt pund 104,620 105,270 104,310
SDR/t 96,95000 97,53000 97,15000
ECU/t 82,4900 82,9800 83,3800
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
1 1 3 5 J
r~ L
w II
ú rr
m r r
io 1 —
ET j W~
1 Lárétt: 1 skynsemi, 8 stilla, 9 væta,
10 áköf, 11 hvinur, 13 pinna, 15 eira, 16
frá, 18 vagga, 20 grófa, 22 flökt, 23 sefi,
24 ótti.
Lóðrétt: 1 birta, 2 slökkvari, 3 brún, 4
spurðu, 5 fersk, 6 deyfð, 7 hey, 12 gat-
ið, 14 trausti, 17 skordýr, 19 skel, 20
íþróttafélag, 21 rugga.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 dúkka, 6 ró, 8 álar, 9 fól, 10
öflugt, 12 lái, 14 keti, 15 virk, 17 rán, 19
nærist, 21 nið, 22 ótta.
Lóðrétt: 1 dá, 2 úlf, 3 kali, 4 krukk, 5
afgeri, 6 rótt, 7 ól, 10 ölvun, 11 lint, 13
áin, 16 ræð, 18 ást, 20 ró.