Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 1996 5 I>V Fréttir Umferðarþing 1996: Verið að þróa forrit sem inniheldur nýja kæruskrá - auðveldar að fylgjast með síbrotamönnum Á þingi Umferðarráðs, sem haldið var í Reykjavík 9. og 10. maí voru flutt fjölmörg erindi um umferðar- mál og einnig unnið í umræðuhóp- um. Fram kom meðal annars í erindi Ólafs Haukssonar, sýslumanns á Hólmavík, „Síbrotamenn í umferð- inni, hættulegir sjálfum sér og öðr- umferðinni. Ólafur telur vankanta á þessu kerfi, það gildi ekki á öllu landinu. Þetta þýði að maður sem brýtur af sér í Kópavogi en er bú- settur í Reykjavík er betur settur en sá sem brýtur af sér í Reykjavík og er búsettur þar. Þetta finnst Ólafi ekki viðunandi. Á vegum dómsmálaráðuneytisins er verið að þróa forrit sem inniheld- ur nýja kæruskrá. Hana á að setja upp hjá sýslumanns- og lögreglu- stjóraembættum. Stefnt er að þvi að hún gildi fyrir landið allt. Ólafur tel- ur að með henni verði auðveldara að fylgjast meö þeim aðilum sem nefndir eru síbrotamenn í umferð- inni og koma yfir þá lögum. -ÞK Frá þingi Umferðarráðs sem haldið var í Reykjavík dagana 9. og 10. maí. Þar voru flutt fjölmörg erindi og unn- ið í umræðuhópum. DV-mynd GVA um“ að vöntun á ákvæðum um ít- rekun í umferðarlögin er stærsta vandamálið til að stemma stigu við síbrotaferli manna. „ítrekunarákvæði er ákvæði sem heimilar stighækkandi refsingar eftir því sem brotun um fjölgar. í núgildandi unlferðarlögum er ein- göngu ítrekunarákvæði varðandi ölvunarakstur en auk þess er heim- ildarákvæði til handa lögreglstjór- um til að svipta mann ökuréttind- um ef þykir varhugavert vegna framferðis að hann stjórni vél- knúnu ökutæki...“ sagði Ólafur. Ökuferlisskrá í Reykjavík „í Reykjavík og víðar hefur verið færð svokölluð ökuferlisskrá. Þeir ökumenn sem fá á sig kærur eru skráðir í hana. Sú færsla er ekki i tengslum við þá afgreiðslu sem mál- in fá á endanum hjá lögreglustjóra. í Reykjavík hefur verið starffrækt svokallað punktakerfi sem vinnur samhliða ökuferlisskránni þannig að við hvert brot hlýtur ökumaður punkt. Þegar ökumaður hefur feng- ið visst marga punkta á ákveðnu tímabili þá hlýtur hann áminn- ingu,“ sagði Ólafur enn fremur. Einnig kom fram i máli hans að ef ökumaður héldi síðan áfram að safna punktum væri hann sviptur ökuleyfi í ákveðinn tíma. Punkta- kerfið hefði verið sett til höfuðs þeim sem brutu þráfaldlega af sér í ÆUMEIMIAX Þvær og þurrkar á mettíma Árangur í hæsta gæðaflokki ÆUMENIAX - engri iík Rafbraut Bolholti 4 - Sími 568-1440

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.