Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 13. MAÍ 1996 Fréttir Sandkorn i>v Fyrstu íslensku skipin á landleið með fullfermi síldar: Geysilega mikil síld - því lengur sem við bíðum því betra, segir Viðar Karlsson, skipstjóri á Víkingi AK DV, Seyðisfirði: „Það er geysilega mikil síld á þessum slóðum og óskaplega stórar torfur sem standa djúpt og eru að skjótast upp ein og ein. Við erum að draga lappirnar í veiðunum eins og við þorum. Því lengur sem við bíð- um með að hefja veiðarnar því betra,“ segir Viðar Karlsson, skip- Síldarævintýri Jan Mayen lögsagan Síldarsmugan mm Síldin er komin . 30 sjómílur inn í '> Islensku lögsöguna ísland íV/Q í. í. "t Jte Færeyska lögsagan / PVI Fyrstu íslensku skipin komu til löndunar um helgina og Örn KE fyrstur - kom með fullfermi síldar til SR-mjöls í fyrrinótt. Snemma í gærmorgun kom svo Svanur RE með síld sem fékkst á mörkum lögsögunnar austur af land- inu. Hér eru skipverjar á Svani kátir með aflann. DV-mynd JJ stjóri á nótaskipinu Víkingi AK, sem í gær var á heimleið úr SUd- arsmugunni með bilaða kraftblökk. Bréf Jóns forseta milli þilja á bæ í Fljótshlíð: Gæti verið vísbending um að ég fari í framboð - segir Jón Magnússon trésmiður sem fann bréfið „Þetta var uppi á efra loftinu, í grasi og mó á milli þilja sem notað var sem einangrun. Ég var að moka út með kvísl og rótaði aðeins í þessu. Þegar ég var kominn innarlega sá ég mikið af umslögum og kaupfélagsnótum. Ég tqk eitt bréf, sem ég hélt að var kaupfélagsnóta, og opnaði það. Þá sá ég að þetta var eitt- hvað öðruvísi og brá þegar ég sá undirskriftina," sagði Jón Magn- ússon, trésmiður á Hvolsvelli, í samtali við DV en sl. fostudag var hann að vinna við endur- bætur á bænum Árkvörn í Fljótshlíð þegar hann fann bréf frá Jóni Sigurðssyni forseta. Bréfið var stílað á Pál Pálsson, bónda í Árkvöm, skrifað í Kaup- mannahöfn 10. febrúar 1874. í bréfinu til Páls segir m.a.: „Á almennum félagsfundi hins ís- lenska bókmenntafélags í gær voruð þér í einu hljóð kosinn til félagsmanns. Um leið og vér til- kynnum yður þetta af félagsins hálfu, sendum vér yðiu- hérmeð skrá félagsins og lög þess, svo sem vandi er tiL“ Undir þetta ritar Jón forseti. Af Páli er það að segja að hann fórst af slysforum tveimur árum síðar, j árið 1876, þá bráðungur. Bréfið verður að öllum líkindum varðveitt á Byggðasafhinu að Skóg- um hjá Þórði Tómassyni. Jón Magnú'sson sagði að bréfið væri frekar heillegt, þó músétið í miðjunni. Kaup- félagsnóturnar hefðu greini- lega höfðað meira til músanna. . ,Ég hef í mínu starfi ekki fundið jafn merkilegan hlut. Það gæti vel verið að þetta sé vísbend- ing um að ég eigi að fara í forseta- framboð því kon- an min heitir Ingibjörg eins og kona nafna míns,“ sagði Jón. -bjb/JB V w m Jón Magnússon trésmiður með bréf Jóns forseta sem hann fann á milli þilja á bænum Árkvörn í Fljótshlíð. Jóni brá þegar hann sá undirskrift nafna síns. DV-mynd Jón Ben. Viðar segir að þeir hafi aðeins kastað einu sinni og sáralítið fengið þegar bilunin kom í ljós. Hann er þó ekkert óánægður með það þar sem skipið hefur þó formlega byrjað veiðar sem er skilyrt í reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins til að halda leyfi til veiða úr norsk-ís- lenska síldarstofninum. Hann segir að nú sé síldin aðeins 7 prósenta feit en eftir hálfan mánuð til 3 vikur verði fituinnihald hennar væntan- lega komið yfir 20 prósent. „Síldin var í fyrra feitust og þar með verðmætust frá 1. júní tO 1. júlí. Þá er hún líka í besta ástand- inu til að veiða hana. Ég er mjög bjartsýnn á veiðar úr þessum stofni og tel að hann sé stórlega vanmet- inn miðað við það sem við höfum séð bæði í ár og á síðasta ári,“ segir Viðar. Að sögn Viðars er síldin nú um 30 sjómílur inni í íslensku lögsögunni. SOdin er á geysistóru svæði, allt frá 66 til 67 gráðum norðurbreiddar og frá 6 gráðum vesturlengdar að 0- gráðunni. í gær og fyrrinótt komu nokkur skip til löndunar og önnur skip voru á leið til hafnar. Örn KE varð fyrstur íslenskra skipa til löndunar og kom til SR-mjöls í fyrrinótt með fullfermi síldar. Áður hafði Þrándur í Götu komið. Snemma í gærmorg- un kom svo Svanur RE með sUd sem fékkst á mörkum lögsögunnar austur af landinu. Að sögn Tilkynn- ingaskyldunnar í gærkvöld var Húnaröstin meðal skipa á leið tU löndunar. Fjöldi veiðiskipa er á miðunum og afli þokkalegur en sUdin, sem er heldur stærri en áður, er full af átu. Veiðihorfur þykja góðar. JJ/rt Skrifstofuhúsgögn, stólar, borð, skápar, hillur, skermveggir og margt fleira. Enn meiri afsláttur. Kraftaverk Deilur smá- bátasjómanna og útgerðar- manna hafa ekki farið framhjá lands- mönnum í gegnum árin, ekki síst eftir samkomulag sjávarútvegs- ráðherra við þá fyrmefhdu um veiðar smábáta á næstu ver- tíð. Útgerðarmenn eru spældir og æfareiðir en ef marka má nýlega auglýsingu smábátasjómanna þá skUja þeir ekki reiði sægreifanna. Þeir minna á mUljaröa verðmæti þess afla sem önnur skip en smá- bátar hafa veitt utan kvóta, s.s. í Smugunni og SUdarsmugunni. Á auglýsingunni em þorskar hér og þar en þegar formaður smábáta- sjómanna, Arthúr Bogason, sá hana þá rak hann upp stór augu. Tár runnu úr auga eins þorsksins. Enginn skUdi hvemig tárin vom tUkomin, allra síst auglýsingastof- an, og hallast menn helst að því að hér hafi gerst kraftaverk! Hannibals synir Fátt virðist ætla að koma í veg fyrir for- setaframboð Jóns Baldvins. Ákvörðunar er að vænta næstu sólar- hringa og á meöan skjálfa hinir frambjóð- endumir. DeUt er um hvort Jón muni spUla fyrir Ólafi Ragn- ari eða mágkonu sinni, Guðrúnu Pétursdóttur, en a.m.k. tveir hag- yrðingar telja slaginn standa við mágkonuna. Sá fyrri er ónefhdur snUUngur úr Mývatnssveit en sá siðari er Stefán Valgeirsson, fyrr- um þingmaður: Þekktur er Jón fyrir snarræði og snilli og snerpu er seint viröist dvína. Nú karlinn sér ætlar um kjósenda hylli að keppa við mágkonu sína. Hannibals synir höldar tveir, heimsku er um að kenna. Um Bessastaði ef berjast þeir, að baki eiginkvenna. Klámfélag við friðargæslu DeUumar á skemmtistaðn- um Vegas hafa þótt skrautleg- ar og ekki fyr- ir heUvita mann aö setja sig inn í þær. Uppákomur hafa komist á síður blaðanna og hafa nektar- dansmeyjar komið þar við sögu. Hörð samkeppni hefur verið á mUli Vegas og Bóhem en báöir hafa þessir staðir boðiö upp á nektardansmeyjar. Gárungar telja réttast að setja öryggið á oddinn með því að fá meðlimi Hins ís- lenska klámfélags tU að taka upp friðargæslu og fylgjast með að aUt fari fram með ró og spekt á þess- um stöðum. Klámfélagsmenn munu ekki láta á sér standa held- ur setja sig inn í málið og taka út stöðuna. Eftir það veröur öUum kröfum fuUnægt um sátt og sam- lyndi. Útskiptaregla Framhalds- skólanemar í Funklistanum voru sigurveg- arar kosning- anna á ísafirði um helgina. Fengu tvo menn kjöma í bæjarstjórn tU næstu fjögurra ára. Ef gengið er út frá því sem vísu að nemamir fari í há- skóla að stúdentsprófi loknu þá þarf Funklistinn að taka upp út- skiptareglu, svona eins og hjá Kvennalistanum. BæjarfuUtrúar Funklistans verða líklega stúdent- ar næsta vor og næstu varamenn jafhvel líka. jÞetta þýöir að síðustu menn á listanum ættu að búa sig undir setu í bæjarstjóm á næstu ámm, kannski eitthvað sem þeir hafa ekki reiknað með í upphafi. Umsjón: Björn Jóhann Björnsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.