Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Síða 27
MÁNUDAGUR 13. MAÍ1996
39
Fréttir
Bæjarstjórnarkosningarnar fyrir vestan:
Framhaldsskólanemar unnu
stórsigur og fengu tvo menn
Funklisti framhaldsskólanema
vann stórsigur í sveitarstjórnar-
kosningunum í sameinaða sveitar-
félaginu á norðanverðum Vestfjörð-
um á laugardag. Funklistinn fékk
452 atkvasði, eða svo til jafnmörg og
íbúarnir í litlu sveitarfélögunum
voru áður, og tvo menn kjörna.
Tveir efstu menn á listanum, Hilm-
ar Magnússon og Kristinn Her-
mannsson, sem jafnframt er yngsti
bæjarfulltrúinn á íslandi, verða því
virkir bæjarfulltrúar næsta kjör-
tímabil.
Sjálfstæðisflokkur fékk 923 at-
kvæði og fimm bæjarfulltrúa í sveit-
arstjórnarkosningunum á laugar-
dag, var með fjóra áður. A-listi Al-
þýðuflokks fékk 335 atkvæði og einn
mann kjörinn, var með tvo áður, B-
listi Framsóknarflokks fékk 319 at-
kvæði og einn mann, var með meiri-
hluta í litlu sveitarfélögunum áður,
og F-listi Óháðra, Kvennalista og Al-
þýðubandalags fékk 454 atkvæði og
tvo menn kjörna.
Sjálfstæðismenn eru nú með
flesta bæjarfulltrúana í 11 manna
bæjarstjórn sameinaða sveitarfé-
lagsins, með fimm af 11 bæjarfull-
trúum nú, miðað við fjóra af níu
bæjarfulltrúum á síðasta kjörtíma-
bili.
Nýkjörnir bæjarfulltrúar eru:
Sigurður R. Ólafsson, A-lista,
Kristinn Jón Jónsson, B-lista, Þor-
steinn Jóhannesson, Magnea Guð-
mundsdóttir, Jónas Ólafsson, Hall-
dór Jónsson og Kolbrún Halldórs-
dóttir af D- lista, Hilmar Magnússon
og Kristinn Hermannsson af E-lista,
Funk-lista, og Smári Haraldsson, F-
lista.
Kosningaþátttaka var þokkaleg á
laugardag og tóku 2547 þátt í kosn-
ingunum, eða 83 prósent þeirra sem
voru á kjörskrá. Auðir seðlar voru
61 og 13 ógildir.
Við atkvæðagreiðslu um nafn á
sveitarfélagið greiddu 2.332 at-
kvæði, 20 seðlar voru ógildir. ísa-
fjarðarbær hlaut flest atkvæði eða
1110. Eyrarbyggð fékk 5£9 atkvæði
og ísafjarðarbyggð 354. -GHS
F-listi Alþýðubandalags, Óháðra og Kvennalista:
Fólk er hrætt við
meirihlutastjórn
DV, ísafírði:
„Ég er að reyna að átta mig á
hvaða skilaboð þetta eru. Ég dreg þá
ályktun af þessu að fólk hafi verið
hrætt við meirihlutastjórn Sjálf-
stæðisflokksins. Það var ljóst að það
vildi ekki ljá Sjálfstæðisflokknum
atkvæði sitt svo hann næði hrein-
um meirihluta,“ sagði Smári Har-
aldsson, oddviti F- lista, þegar hann
var að koma af fundi í húsnæði
Framsóknarflokksins síðdegis á
sunnudag þar sem fram fóru þreif-
ingar á hugsanlegri myndun fjög-
urra flokka bæjarstjórnar án þátt-
töku Sjálfstæðisflokks.
„Þá tel ég að fólk vilji samfylk-
ingu. Fólk hefði viljað að þeir flokk-
ar sem áttu viðræður í vetur færu
saman í einu lagi gegn Sjálfstæðis-
flokknum. Ég túlka þessi skilaboð
þannig núna. En það er án efa eitt-
hvað fleira þarna á ferðinni sem ég
er að melta með mér,“ sagði Smári
spurður að því hvernig hann túlk-
aði úrslit kosninganna og góða út-
komu Funk-listans. -HK/GHS
Sjálfstæöisflokks
-segir Smári Haraldsson, F- lista
Funklisti framhaldsskólanema vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum
um helgina og fékk svipað atkvæðamagn og íbúarnir í litlu sameinuðu sveit-
arfélögunum eru samtals og var kosningaþátttakan mjög góð eða rúm 83
prósent. Hér er það Kristján J. Jóhannesson, fráfarandi sveitarstjóri á Flat-
eyri, sem greiðir atkvæði. DV-mynd Guðm. Sig.
Funklistamenn unnu stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum í sameinaða sveitarfélaginu á norðanverðum Vestfjörð-
um um helgina og fengu tvo menn kjörna. Samhliða kosningunum voru greidd atkvæði um nafn á sameinaða sveit-
arfélagið og hlaut ísafjarðarbær flest atkvæði, eða 1110. DV-mynd Hörður
Oddviti Sjálfstæðisflokks á ísafirði:
Við höldum að
okkurhöndum
„Við höldum okkar með tilliti til
fulltrúa, erum með fimm af ellefu.
Auðvitað megum við ekki vera óá-
nægðir en við hefðum viljað fá
meira fylgi. Eftir sem áður erum við
afskaplega þakklátir því fólki sem
studdi okkur,“ segir Þorsteinn Jó-
hannesson, oddviti Sjálfstæðis-
flokks í sameinuðu sveitarfélagi ísa-
fjarðar, Þingeyrarhrepps, Mýra-
hrepps, Mosvallahrepps, Suðureyr-
arhrepps og Flateyrarhrepps.
Viðræður áttu sér stað milli sjálf-
stæðismanna og bæjarfulltrúa Al-
þýðuflokks annars vegar og Alþýðu-
flokksmanna og fulltrúa hinna list-
anna hins vegar i gær. Eftir fundinn
með krötum kvaðst Þorsteinn telja
grundvöll fyrir frekari viðræðum
við krata um myndun meirihluta og
var fundur boðaður í gærkvöld.
Ekkert varð þó af þeim fundi eftir
að Alþýðuflokksmenn ákváðu að
ganga til viðræðna við hina listana
og sagði Þorsteinn að sjálfstæðis-
menn myndu þá sitja hjá og bíða
átekta.
„Hlutverk meirihlutans er fyrst
og fremst að ná samstöðu innan
þessa víðfeðma sveitarfélags og ég
tel það einungis mögulegt með því
að hafa sjálfstæðismenn í meiri-
hluta. Án þeirra eiga litlu sveitarfé-
lögin engan fulltrúa í meirihluta því
að þetta eru það margir listar og all-
ir með ísfirðinga í efstu sætum,"
segir Þorsteinn en bæjarfulltrúar
allra hinna listanna eru ísfirðingar.
„Ef þessir bæjarfulltrúar mynda
meirihluta þá eiga litlu byggðirnar í
kringum okkur engan málsvara í
meirihlutanum. Ég tel að það sé al-
gjör forsenda þess að sameiningin
takist að það sé gætt þarna ákveðins
jafnvægis. Ef við færum í meiri-
hluta þá væru að minnsta kosti
tveir bæjarfulltrúar úr litlu byggð-
unum inni,“ segir hann.
Talið er að einkum komi þrenns
konar meirihluti til greina fyrir
vestan, meirihluti D- og A-lista, D-
og B-lista eða meirihluti A-, B-, E- og
F-lista. Fyrst verður látið reyna á
þann síðastnefnda. -GHS
Funklistinn:
í viöræöum við litlu flokkana
„Við höfum verið á fundum með
öllum flokkunum nema sjálfstæðis-
mönnum í dag. Þetta er ennþá á við-
ræðustigi. Við erum bara að ræða
saman og sjá hvernig landið liggur.
Við viljum meirihluta þessara
flokka. Það er okkar vilji. Við höld-
um væntanlega áfram að tala sam-
an,“ segir Hilmar Magnússon, efsti
Mældist á 181
km hraða
Lögreglan í Grindavík stöðvaöi
á föstudag á Grindavíkurvegi
ökumann bifhjóls sem var heldur
fljótur í fórum. Hann mældist á
181 kílómetra hraða og stansaði
strax þegar lögreglan gaf honum
merki. -pp
maður á Funklista, um yfirlýsingar
Sigurðar R. Ólafssonar, oddvita Al-
þýðuflokks í sameinaða sveitarfé-
laginu á norðanverðum Vestfjörð-
um.
Sigurður hefur lýst yfir að sigur-
vegarar bæjarstjórnarkosninganna
verði að leiöa viðræður um myndun
nýs meirihluta. Hilmar segir að
stuðningsmenn Funk-lista verði
kallaðir saman á næstu dögum og
þá komi í ljós hvað lagt verði
áhersla á. Hann vill ekkert gefa út
um það hver verði bæjarstjóri á
næsta kjörtímabili. Funk-listi geri
ennþá engar kröfur í þeim efnum.
-GHS
i. 4.7. 8. ii. oc 14. júní mÍÐöSALö 15-19 nEmo món. sími 511-1475. ísLEnsKii ÓPERen