Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1996, Page 13
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996
13
Fréttir
Óánægja meö tilkynningakerfi smábáta:
Sniðið fyrir sjómenn sem sjá
veðrið út um eldhúsgluggann
DV, Flateyri:
„Þetta er algjört rugl. Það var til
dæmis áttræður maður á ísafirði
sem ekki átti að fá að róa trillunni
sinni vegna þess að hann hafði ekki
rétta gerð af síma. Það gengur ekki
lengur að trillusjómann séu með
skífusíma," sagði Jón Kristinsson
skipstjóri á Þorbjörgu ÍS frá Flat-
eyri.
Mikil óánægja er með hið nýja til-
kynningarkerti þar sem smábátasjó-
mönnum er gert að tilkynna sig inn
á talhólf hjá Fiskistofu. Það sem sjó-
menn setja helst fyrir sig er að
þurfa að tapa róðrardegi ef ekki
reynist veður til veiða eftir að þeir
eru búnir að tilkynna sig á sjó. Ein-
ungis mega líða tvær klukkustundir
frá því að bátur tilkynnir sig úr
höfn og þar til hann verður að vera
kominn þangað aftur ef ekki á að
missa róðrardag fyrir.
„Við hér á Flateyri erum klukku-
tíma út úr firði og ef við kíkjum út
á 4-6 mílur erum við 3-4 tíma í ferð-
inni reynist ekki veiðiveður. Kerfið
er sniðið fyrir staði eins og Ólafsvík
þar sem menn sjá veðrið út um eld-
húsgluggann hjá sér. Fyrir okkur
þýðir þetta aö töpum einum róðrar-
degi af þessum þrettán sem við höf-
um á róðrartímabilinu. Það er ekk-
ert réttlæti í þessu kerfi. Báturinn
hjá mér gengur 5 mílur svo það sér
hver maðlgreindur maður að þetta
gengur ekki upp fyrir mig,“ sagði
Jón. GS
Skipstjórarnir Guðbjartur Jónsson og Jón Kristinsson við bryggju á Flateyri í rjómablíðu.
DV-mynd GS
Bingóflug fellt niður
Verður allt með
felldu í kvöld
- segir Hilmar Kristjánsson
Flug Bingóferða og dönsku
ferðaskrifstofunnar Whilborg
Rejser frá Kaupmannahöfn til
Keflavíkur og aftur til haka var
fellt niður sl. þriðjudagskvöld eins
og sagt var frá í DV á miðvikudag.
Ástæðan var sú að sögn Hilmars
Kristjánssonar forstjóra Bingó-
ferða að íslenska samgönguráðu-
neytið viðurkenndi ekki rétt
dönsku ferðaskrifstofunnar til að
selja farmiða tif íslendinga á ís-
landi, „þótt hún megi selja farmiða
úti um allan heim,“ eins og Hilm-
ar orðar það við DV.
Whilborg Rejser hefur nú fengið
leyfi til að reka útibú hér á íslandi
að sögn Hilmars en þar sem það lá
ekki fyrir í tæka tíö fyrir síðasta
flug var vélin afpöntuð. Næsta flug
verður í kvöld, fostudagskvöld og
að sögn Hilmars verður það með
eðlilegum hætti þar sem öll leyfi
eru fengin.
-SÁ
NÁTTHAGI Garðplöntustöð
við Hvammsveg í Ölfusi Eigandi Ólafur Njálsson
Mikið úrval aftrjám og runnumfyrir sumarbústaðalðnd, skjólbelti og garða.
Einnig ýmsar spes plöntur eins og alparósir, klifurplðntur, berjarunnar o.fl.
Sími 483 4840 Fax 483 4802
______( V e I k o m i n 1 sveitasœlustöBin a~~)__
DANMORK
KAUPMANNAHÖFN
Takmarkaóur sætafjöldi
\ /
Kirkja vígö á Djúpavogi:
Líkist helsta staðartákni
Djúpavogs - Búlandstindi
DV, Djúpavogi:
Það var mikill hátíðisdagur á
Djúpavogi sunnudaginn 19. maí þeg-
ar biskup Islands, herra Ólafur
Skúlason, vígði nýja kirkju á staðn-
um. Fjöldi fólks var viðstaddur at-
höfnina víðs vegar að af landinu og
fullt út úr dyrum, en kirkjan tekur
200 manns í sæti.
Sóknarpresturinn, séra Sjöfn Jó-
hannesdóttir, þjónaði fyrir altari
ásamt biskupi. Kór Djúpavogs-
kirkju söng við undirleik og stjórn
Ericu Jaszay. Erica og Lazlo Juhasz
léku á gítar og fiðlu og Thorvald
Gjorde á orgel.
Vígsluathöfnin var þrungin stolti,
kærleika og samhug. Það er ekki
auðvelt fyrir lítinn söfnuð að koma
upp svo glæsilegri kirkju eins og
hér um ræðir en fyrir samstöðu
íbúa og dugnað sóknarnefndar tókst
það á tæpum fimm árum. t ræðu
sóknarprests og frá sóknarnefnd
komu fram sérstakar þakkir til
biskups fyrir mikinn skilning og
velvilja í garð Djúpavogskirkju.
Kirkjan er teiknuð af Birni Krist-
leifssyni arkitekt. Grunnflöturinn
er 300 m2 og minnir lögun hennar á
helsta staðartákn Djúpavogs, Bú-
landstind. Allar innréttingar eru
unnar hér í fjórðungnum. Má þar
nefna altari, predikunarstól og
hurðir sem unnið er úr lerki úr
Hallormsstaðarskógi. Krossinn yfir
altari er að hluta úr austfirsku
bergi, unninn í Álfasteini, Borgar-
firði. Úr gömlu kirkjunni koma
skírnarfontur og númeratafla eftir
listamanninn þekkta, Ríkarð Jóns-
son.
Safnaðarheimili er á lofti kirkj-
unnar og eftir vígsluna fóru gestir
þangað og þáðu veitingar sem kven-
félagskonur reiddu fram af glæsi-
brag. -HEB
Kirkjukór Djúpavogskirkju og prestar sem voru við vígsluna - Davíð Baldursson prófastur, Gunnlaugur Stefánsson,
Heydölum, Vigfús Ingvarsson, Egilsstöðum, Sigurður Ægisson, Grenjaðarstað, Sigurður Kr. Sigurðsson, Höfn, séra
Yrsa Þórðardóttir og Carlos Ferrer, Fáskrúðsfirði.
DV-myndir Hafdís
HVORA LEIÐ MEÐ FLUGVALLASKATTI
NÚ SELT Á ÍSLANDI
WIHLBORG REJSER,
SÍMI: 567 8999
SUND
JAKKINN
eru kemnir
VERSLUN
SLYSAVARNAFÉLAGSINS
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA
FRÁ KL. 1 3:00 TIL 1 7:00