Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1996, Blaðsíða 32
Álla laugardaga Vertu viðbúin(n) vinningi! Vinningstölur 23.5/96 25}(29)(30) KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst.óháÖ dagblað FOSTUDAGUR 24. MAI 1996 Akureyri: Bóndinn laus úr gæsluvarðhaldi Akureyri: Ábúandinn að Steinsstöðum í 'Öxnadal, sem setið hefur í gæslu- varðhaldi á Akureyri undanfarnar vikur vegna gruns um aðild að and- láti systur sinnar, var látinn laus í gær. Sl. fóstudag krafðist sýslumanns- embættið á Akureyri mánaðarfram- lengingar varðhalds yfir bóndanum auk þess sem honum yrði gert að sæta geðrannsókn. Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði manninn í varðhald til dagsins í dag og hafnaði kröfunni um geðrann- sókn. Þeim úrskurði var áfrýjað til hæstaréttar en þar var ákvörðun héraðsdóms staðfest. Bóndinn mun ávallt við yfir- heyrslur hafa neitað aðUd að and- láti systur sinnar sem lést á heimili hans. Samkvæmt heimildum DV voru áverkar á höfði konunnar hins vegar þess eðlis að grunur beindist að því að bróðir hennar hefði átt þátt í andláti hennar. Málið mun verða sent ríkissaksóknara sem tek- ur ákvörðun um áframhaldandi málsmeðferð. -gk Reykjanesbraut: Tekinn á 136 Keflavíkurlögreglan tók í gær fjóra ökumenn sem höfðu freistast til að aka of hratt á Reykjanesbraut- inni. Sá sem greiðast ók var á 136 kUómetra hraða, hinir þrír voru á yfir 120 kUómetra hraða. -GK Ólafur Ragnar Grímsson: Afþakkar boð um að tína rusl og flaka fisk Allir forsetaframbjóðendur nema Ólafur Ragnar Grímsson munu hefja umhverfisátak Ungmennafé- -lags íslands laugardaginn 1. júní nk. með söfnun rusls í Grafarvogi. Á sama tíma gangsetur Vigdís Finn- bogadóttir átakið á Álftanesi. Ólafur Ragnar afþakkaði boð UMFÍ þar sem hann verður á kynningarferð um Snæfellsnes þennan dag. Forsetaframbjóðendunum barst einnig boð um að hefja árlega fisk- flökunarkeppni á hafnarbakkanum í Reykjavík á vegum Fisktækni hf. Keppnin hefst að morgni laugar- dagsins 1. júní. Vegna ferðarinnar um Snæfellsnes hefur Ólafur Ragn- ar sömuleiðis afþakkað boð Fisk- tækni. Forráðamenn fyrirtækisins ákváðu því að aflýsa þátttöku fram- bjóðenda í upphafi keppninnar en ^eir áttu að etja kappi saman í fisk- flökun. -bjb L O K I Alþýðusambandið rambar á barmi klofnings: Vona að menn átti sig ?: •• - segir Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur „Auðvitað óttast ég að til klofn- ings ASÍ geti komið ef menn átta sig ekki á því að andstæðingarnir eru ekki í okkar röðum heldur vinnuveitenda. Ef menn átta sig ekki á þessu er Alþýðusambandið í mikilli hættu. En vissulega vona ég að menn átti sig og að til klofh- ings komi ekki,“ sagði Magnús L. Sveinsson, formaður VR, í samtali við DV í morgun vegna þeirra at- burða sem áttu sér stað í gær þeg- ar reynt var að ýta verslunar- mönnum út úr öllum ráðum og nefndum á þingi sambandsins. „Ég vona að það fólk sem hefúr verið með miður góð vinnubrögð á þinginu átti sig á því þegar 70 pró- sent þingfulltrúa taka undir þau sjónarmið sem ég var að kynna i ræðu minni, þegar upp úr sauð og mælirinn var fullur með kjörinu í varamiðstjórn, að svona vinnu- brögð ganga ekki. Þetta er verst fyrir verkalýðshreyfinguna sjálfa," sagði Magnús L. Magnús segir að þessi hópur, sem vinnur gegn verslunarmönn- um á þinginu, sé fulltrúar félaga Verkamannasambandsins. Það eru einmitt þeir sömu menn sem ásaka Magnús L. og verslun- armenn um að hafa koinið í veg fyrir að Hervar Gunnarsson færi í framboð til forseta. Magnús var spurður hvort atburðir gærdags- ins væru ekki bein afleiðing þessa. „Það voru ekki verslunarmenn sem stóðu að því að Hervar hætti við. Verslunarmenn komu ekki nálægt þeim deilum sem urðu vegna forsetakjörsins. Ég hafna því að hafa komið þar nærri, bendi raunar á að fulltrúi verslun- armanna, Ingibjörg R. Guðmunds- dóttir, var 1. varaforseti ASÍ en ég sætti mig við það i kjörnefndinni að hún færði sig í 2. sætið til að setja niöur deilur sem voru uppi,“ sagði Magnús L. „Það er hópur manna úr Verka- mannasambandinu sem opnar ekki munninn án þess að vera með skítkast í forystu verkalýðs- hreyfingarinnar, auk þess að hnýta í verslunarmenn. Þessir menn láta eins og andstæðingur verkalýðshreyfingarinnar sé ekki Vinnuveitendasambandið heldur forysta ASÍ. Þetta er stóra hættan fyrir samtökin,“ sagði Magnús L. Sveinsson. Sjá nánar á bls. 2 -S.dór Veðrið á morgun: Skýjað með köflum Horfur eru á hægri austlægri eða norðlægri átt. Þokusúld verður við norðaustur- og aust- urströndina en annars skýjað með köflum. Hætt er við síðdeg- isskúrum á Suðvesturlandi. Hiti verður 3 tO 7 stig í þoku- loftinu við austur- og norðaust- urströndina en annars 6 til 14 stiga hiti, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands. Ær ein hjá Stefáni Aðalsteinssyni á Djúpavogi bar tveimur lömbum á dögunum en hafði alltaf áður verið einlembd. Þá brá svo við að ærin vildi ekki sjá annað lambið sem kallað er Botni. Stefán byrjaði þá að gefa Botna peia. Á heimilinu er tfkin Tinna, fimm ára, sem hefur átt hvolpa. Tinna fór að gefa sig að lambinu sem lauk með því að hún gekk Botna litla í móðurstað. Botni byrjaði á að sjúga Tinnu og er hreint stórkostlegt að sjá til þeirra. Tíkin stendur eins og ærnar gera og Botni fær sér sopa, Helgi Snær Ómarsson fylgist spenntur með. DV-myndir Hafdís Ástþór Magnússon: Tilkynnir framboð til forseta í dag Ástþór Magnússon hefur boðað til blaðamannafundar í Hótel Valhöll á Þingvöllum í hádeginu í dag. Sam- kvæmt heimildum DV mun hann tilkynna þá ákvörðun sína að fara í framboð til embættis forseta ís- lands. Ástþór vildi ekkert segja sjálfur um málið þegar DV ræddi við hann í gærkvöldi nema hvað að tilskilinn fjöldi meðmælenda væri kominn úr öllum kjördæmum. Ekk- ert væri því til fyrirstöðu að skila listunum til dómsmálaráðuneytis- ins í dag. Ástþór er fimmti frambjóðandinn og líklegt að þeir verði ekki íleiri þar sem Guðmundi Rafni Geirdal hefur gengið treglega að safna með- mælendum til þessa. -bjb Samræmdu prófin: Slakastur árang- ur á Vestfjörðum Meðaleinkunn í samræmdu próf- unum í ár er lægst á Vestfjörðum og hefur hún verið það að jafnaði und- anfarin fjögur ár, að því er fram kemur í upplýsingum frá Rann- sóknastofnun uppeldis- og mennta- mála. Bestur árangur í öllum náms- greinunum náðist í Reykjavík. Meðcdeinkunn á landinu öllu var hæst í ensku eða 7, í íslensku var meðaleinkunnin 5,8, í dönsku 6,3 og í stærðfræði 5,5. Stúlkur standa sig betur en piltar í öllum námsgreinunum fjórum, ís- lensku, stærðfræði, dönsku og ensku. -IBS Móttaka á brotajárni allan sólarhringinn “ sími 581-4757 HRINGRÁS ENDURVINNSLA 4V brother tölvu- iímmiða- prentari ■•ÉLJ Nýbýlavegi 28 - Sími 554-4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.