Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 25. MAÍ1996 Fréttir 13 ára fórnarlamb kynferðisofbeldis í 7 ár segir dómara Hæstaréttar óréttláta gagnvart börnum: Af því að pabbi misnotaði mig vom bæturnar lækkaðar - dómurinn lækkaði bætur vegna þess að faðirinn mun „eftir sem áður bera framfærsluskyldu" „Þaö er búið að ganga mikið á hjá mér. Ég var misnotuð kynferðislega frá 4ra til 11 ára aldurs. Mér finnst dómur Hæstaréttar óréttlátur gagn- vart öllum börnum. Af því að pabbi minn misnotaði mig voru skaðabæt- umar lækkaðar. Ef einhver maður úti í bæ hefði misnotað mig hefðu bæturnar verið hærri. Þetta er skrýtið vegna þess að það er erfið- ara að vera misnotuð af föður sín- um og missa þannig hann og helm- inginn af fjölskyldunni heldur en að eiga við ókunnugan mann sem mað- ur slítur sig hvort sem er frá. Hæstaréttardómarar skilja þetta greinilega ekki,“ sagði 13 ára fórn- arlamb kynferðislegs ofbeldis foður síns sem Hæstiréttur dæmdi á fimmtudag í 4ra ára fangelsi. Hæstiréttur dæmdi manninn jafnframt til að greiða stúlkunni 1 milljón króna í skaðabætur og lækkaði þannig 2ja milljóna króna skaðabótagreiðslu um helming sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt manninn til að greiða stúlkunni. í niðurstöðu Hæstaréttar segir m.a. eftirfarandi: „Við ákvörðun skaðabóta úr hendi ákærða ber að taka tillit til skyldleika aðilanna ásamt því að hann mun eftir sem áður bera framfærsluskyldur gagn- vart dóttur sinni.“ Oft græt ég á næturnar „Auðvitað líður mér illa því ekki er gott að missa fóður sinn og hálfa fjölskyldu," segir stúlkan. „En þess- ir dómarar skilja það ekki. Hefði maðurinn sem þeir dæmdu í fang- elsi verið einhver maður úti í bæ hefði hann fengið strangari dóm. Oft græt ég á næturnar og ég tel mig vera óheppnustu stelpu sem til er en svo er þó ekki. Það er erfitt að vera kvenmaður, þá er maður í miklum áhættuhópi," segir stúlkan. Stigamót hafa í kjölfar þessa dóms ritað bréf þar sem farið verður fram á álit umboðsmanns barna um nið- urstöðu Hæstaréttar - það er að skaðabótagreiðsla skuli miðuð við skyldleika bams og brotamanns, framfærsluskyldu og að ekki verði séð fyrir hve alvarlega brot hans muni hafa á líf stúlkunnar. Dómararnir spurðu ekki um okk- ur, segir móðirin Móðir stúlkunnar sagði í samtali við DV að sér hefði þótt sárt að fylgjast með dómurum Hæstaréttar leggja spurningar fyrir málflytjend- ur um félagslega stöðu föðurins. „Það spurði enginn dómaranna fimm hvernig félagsleg staða mín og dótturinnar væri. Ég hef til dæmis ekkert getað unnið úti eftir að mál- ið kom fram,“ sagði móðirin. Stúlkan hefur verið í stöðugri meðferð hjá sálfræðingi í rúmt eitt ár og móðirin hefur einnig þurft að leita til fagfólks vegna áfallsins sem málið hefur haft í fór með sér. „Ég vildi fyrst ekki tala um þetta en núna er ég opin,“ sagði stúlkan. Hæstiréttur lítilsvirðir dóttur mína „Dóttir min hefur verið ofsalega dugleg en hún hefur engu að síður verið svipt æsku sinni og sakleysi sem við eigum öll að fá að njóta. Ég tel að Hæstiréttur lítilsvirði dótt- ur mína með því að lækka skaðabæturnar á þeim for- sendum að það hafi verið faðir hennar sem framdi verknaðinn. Það má skilja dóminn á þann veg að af því að það var pabbinn sem braut af sér gegn henni þá sé þetta ekki eins al varlegt. Það er hrikalegt ef þetta hefur fordæmis- gildi. Því miður er þetta ekki búið,“ segir móðirin. „Dóttir mín mun fyrir lífstíð þurfa að takast á við þessa misnotk- un. -Ótt Mæðgurnar hafa báðar þurft að leita sálfræðiaðstoðar vegna þeirra atburða sem dóttirin hefur þurft að ganga í gegnum frá því hún var lítið barn. Þær telja það lítilsvirðingu að æðsti dómstóll landsins lækki skaðabætur sem héraðsdómur dæmdi með því að láta föðurinn njóta skyldleikans og þess að hann hafi hvort sem er framfærsluskyldu. DV-mynd BG Ástþór Magnússon tilkynnti framboð sitt til embættis forseta íslands á blaðamannafundi á Þingvöllum í gær. í yfirlýsingu á fundinum sagði Ástþór m.a. að ef hann yrði kjörinn þá mundi hann leitast við að uppræta alla spill- ingu í þjóðfélaginu. -bjb/DV-mynd GS Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. já 23 Nel 2] ,t ö d d FOLKSINS 904-1600 Halda Skagamenn Islands- meistaratitlinum í fótbolta? Ekkert fannst til að styðja skoðun biskups - Sigrún Pálína segist vera að skoða framhald málsins af sinni hálfu „Rannsóknargögn máls þessa þykja eigi veita efni til frekari að- gerða af hálfu ákæruvalds," segir í niðurstöðu Hallvarðs Einvarðsson- ar ríkissaksóknara um kæru herra Ólafs Skúlasonar á hendur fjórum konum vegna „rangs sakburðar og ærumeiðandi aðdróttana" kvenn- anna í garð biskups. Rannsóknarlögreglunni var falið að rannsaka málið og fannst ekkert sem gæti stutt skoðun biskups. Er málið því fallið niður eins og bréf ríkissaksóknara ber með sér og einnig vegna þess að biskup hefur dregið kæru sína til baka. Því vant- ar bæði kæru og sakarefni til að halda málinu áfram. Svokölluð biskupsmál eru því enn á sama stigi og þegar biskup var í vetur borinn sökum um til- raun til nauðgunar og kynferðislega áreitni. Upphaflega voru það þrjár konur sem sögu frá samskiptum sínum við biskup en síðar dró ein þeirra klögumál sín til baka. Hinar halda fast við framburð sinn og biskup heldur fast við sakleysi sitt. Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem segir að biskup hafi reynt að nauðga sér i Bústaðakirkju vorið 1979, segir við DV að í þessari stöðu sé hún að íhuga hvað næst taki við. Hún ætli sér að endurmeta stöðuna í samráði við lögmann sinn. Að því loknu verði ákveðið með næsta skref. Stefanía Þorgrímsdóttir, sem sak- ar biskup um að hafa leitað á sig í sundlauginni á Laugum í Reykjadal árið 1963, hvikar heldur ekki frá fyrri framburði sínum. Hún segir þó ekki ljóst hvert geti orðið fram- hald málsins af sinni hálfu. Einn hluti þess snýr að systkinum henn- ar en ekki biskupi. „Það var mjög dýrkeypt að segja sannleikann í þetta sinn. Ég var kærð eins og glæpamaður þótt sak- leysi mitt væri leitt í ljós,“ segir Stefanía og á jafnt við kæru biskups og yfirlýsingar systkina hennar um andlega heilsu hennar. „Ég hef ákveðið að segja mig úr þjóðkirkjunni meðan þessi maður er biskup. Siðferðilegur stuðningur og tilfinningalegur frá börnum, vin- um, vinnufélögum og bláókunnugu fólki hefur hins vegar verið ómetan- legur,“ segir Stefanía. Stuttar fréttir Rifkind aö koma Utanrikisráðherra Bretlands, Michael Rifkind, kemur í heim- sókn til íslands um næstu helgi. Hann mun hitta Davið Oddsson og Halldór Ásgrímsson auk þess að vígja nýja sameiginlega bygg- ingu breska og þýska sendiráðs- ins í Reykjavík. Sendifulltrúar RKÍ Sendifulltrúar Rauða kross ís- lands eru nú 15 í flestum heims- álfum, fleiri en nokkru sinni áður í sögu RKÍ. Þess má geta að RKÍ hefur samið við félagsmála- ráðuneytiö um móttöku flótta- manna hér á landi. Ríkisbréf innkölluð Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að innkalla gömul rikis- bréf að fjárhæð allt að 17 millj- arðar króna sem bera háa fasta vexti miðað við vaxtastigið í dag. Bréfin voru gefln út árið 1986. LÍN breytir reglum Stjórn Lánasjóðs íslenskra lánsmanna hefur. samþykkt breytingar á úthlutunarreglum sjóösins fyrir næsta skólaár. Flestar breytingarnar eru láns- mönnum í hag, samkvæmt frétt- um Bylgjunnar. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.