Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Side 4
4 fréttir
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996 DV
Munaði hársbreidd að Alþýðusambandið sundraðist í gærmorgun:
Ég skal játa að þá var ég
hræddur um samtökin
- segir Hervar Gunnarsson, 1. varaforseti Alþýðusambandsins
„Það þýðir ekkert að vera að
reyna að fela það. í morgun var ASÍ
á barmi sundrungar. Ég skal alveg
játa þaö að ég var um tíma alvar-
lega hræddur um framtíð sam-
bandsins," sagði Hervar Gunnars-
son, 1. varaforseti Alþýðusambands
íslands, eftir að öldurnar hafði lægt
á Alþýðusambandsþingi í gær.
Deilurnar blossuðu upp aftur eft-
ir átökin á fimmtudagskvöld þegar
reynt var að fá kosninguna til sam-
bandsstjómar endurtekna vegna
þess að 70 prósent þingfulltrúa skil-
uðu auðu. Verkamannasambands-
menn sökuðu verslunarmenn um að
ætla að fá kosninguna endurtekna.
Hætt var við það og lög ASÍ í raun
brotin með því að láta það gilda að
sambandsstjórn væri kosin með 30
prósentum atkvæöa. Heföi kosning-
in verið endurtekin hefðu fulltrúar
Verkamannasambandsins gengið af
þingi og þar með hefði ASÍ klofnaö.
Um tíma voru engin þingstörf í
gangi í gærmorgun. Margir voru í
homum og herbergjum að reyna að
ná sáttum. Aðrir sátu sem lamaðir
vegna átakanna. Margir þeirra sem
DV ræddi við sögðu að það væri
þeim Grétari Þorsteinssyni og Her-
vari Gunnarssyni að þakka að deil-
umar voru settar niður og sæmileg-
ar sættir tókust.
„Ég vona að hægt verði að setja
þessar deilur niður endanlega.
Menn verða að setjast niður og
ræða málin. Það er ekki hægt að ná
sáttum öðruvísi,“ sagði Hervar
Guimarsson.
„Ég tel að þessi deilumál hafi þeg-
ar verið gerð upp hér á þinginu og
tel raunar að hreyfingin sé sterkari
á eftir. Ég ætla ekki að segja að ég
hafi verið hræddur um ASÍ i morg-
un en það væm ósannindi ef ég
segði annað en að mér hefði liöið
illa því hér voru uppi grimmar deil-
ur þótt það hafi ekki verið málefna-
deilur,“ sagði Grétar Þorsteinsson,
nýkjörinn forseti ASÍ.
Magnús L. Sveinsson sagði
Verkamannasambandið eiga hér
alla sök. Bjöm Grétar Sveinsson,
formaður VMSÍ, sagði verslunar-
menn, og þá ekki síst Magnús L.
Sveinsson, eiga sökina.
Einn þingfulltrúa, sem bað um
nafnleynd, sagði að hér hefði verið
um uppsafnaða illsku Verkamanna-
sambandsmanna í garð Magnúsar
L. Sveinssonar að ræða. Þeir segja
hann hafa komið í veg fyrir að mað-
ur úr röðum Verkamannasam-
bandsins væri kjörinn forseti ASÍ
fyrir fjórum árum og að hann hafi
aftur gert það nú. Síðustu fjögur
árin hafi verið eldur þama í milli.
Hann sagði að mikið þyrfti að koma
til ef fullar sættir ættu að nást í
nánustu framtíð. -S.dór
Benedikt Davíðsson:
Komið að
uppskeru-
tíma
„Ég tel að það merkasta sem
gerðist á þessu þingi sé sú sam-
staða sem er hér, alveg klárlega, í
vinnuumhverfísmatinu í þjóðfé-
laginu. Það er mjög mikilvægt að
samtökin séu þar samstiga og hafi
sameiginlega sýn á hvernig stað-
an er núna. Það er uppsveifla í
þjóðfélaginu. Við höfum á undan-
fómum árum verið að leggja okk-
ur fram við að komast yfir lægð-
artímabilið. Það fólk sem hér er á
þinginu hefur allt saman skilning
á því að nú er komið að uppskeru-
tímanum," sagöi Benedikt Dav-
íðsson, fráfarandi forseti Alþýðu-
sambandsins og einn reyndasti
maður sem til er í íslenskum
verkalýðsmálum.
Hann segir að það sé skýlaus
krafa að fólk innan ASÍ, sem
mestu hefur fórnað til að ná þjóð-
félaginu upp úr öldudalnum, fái
nú umbun erfiðis síns. -S.dór
■IPV!
Þorsfcurinn á uppleið
Veiði/Áætl. '95-'96 □
Ráðgjöf/Hafró '96-'97 □
Boðaður mismunur '96-’97
186 þ.
tonn
Þorskur 155 þ.
Grálúða
Karfi
60 þ.
tonn
65 þ.
tonn
Smásagnasamkeppni Tígra:
Yfir 2 þús-
und sögur
bárust
Krakkaklúbbur DV stóð fyrir
smásagnasamkeppninni Tígri í
umferðinni í samstarfi við Um-
ferðarráð og lögregluna. Sam-
keppnin var kynnt í öllum skól-
um landsins og var mjög góð þátt-
taka meðal nemenda um allt land.
Allir þeir krakkar sem sendu
inn sögur fá send teinaglit á reið-
hjólin sín í júní.
50 sögur verða valdar og gefnar
út í einni bók, Tígrabókinni, sem
kemur út í haust. Þeir sem eiga
sögur í bókinni fá viðurkenning-
arskjöl og eiga möguleika á að
vinna vegleg verðlaun. Dregin
verða út þrjú nöfn í fjórum ald-
urshópum, 6 ára og yngri, 7-8 ára,
9-10 ára og 11-12 ára.
Verðlaunin eru hjólreiðahjálm-
ar frá versluninni Markinu, Ár-
múla 40. Verðlaunaafhendingin
fer fram í byrjun júní og verður
nánar tilkynnt um hana þegar
nær dregur. Krakkaklúbbur DV,
Umferðarráð og lögreglan þakka
öllum þeim krökkum sem sendu
inn sögu kærlega fyrir þátttök-
una. Tígri hvetur öll börn til að
muna eftir hjólreiðahjálmunum.
-SF
Það er mikið að gera hjá Tígra þessa dagana þar sem hann er að lesa yfir all-
ar Tígrasögurnar sem bárust í smásagnasamkeppnina Tígri í umferðinni.
Alis bárust 2.000 Tígrasögur alls staðar af landinu. Þess má einnig geta að
ein sagan sem barst okkur kom alla leið frá Afríku.
Gleðitíðindi frá Hafró í fyrsta sinn um árabil:
Þorskkvótinn aukinn um
12% á næsta fiskveiðiári
- tímamót, segir Jakob Jakobsson
Hafrannsóknastofnun mælir með
því að þorskafli á næsta fiskveiðiári
verði aukinn úr 155 þúsund tonnum
í 186 þúsund tonn, eða um 12%.
„Þetta eru mikil tímamót í þessu
starfi okkar hér á undanfómum
árum þvi að í stað þess að mæla
með aflasamdrætti getum við nú
mælt með aukningu," sagði Jakob
Jakobsson, forstjóri Hafrannsókna-
stothunar, þegar tillögur stofnunar-
innar um veiðar úr nytjastofnum á
næsta fiskveiðiári vom kynntar.
Gunnar Guðmundsson tölfræðingur
kynnti forsendur tillagna Hafrann-
sóknastofnunar og sagði að árangur
fiskveiðistjórnunar undanfarinna
ára væri nú að skila sér. Dregið hafi
úr sókn um 48% síðan árið 1993 og í
byrjun þessa almanaksárs hafi
veiðistofn þorsks verið 675 þúsund
tonn á móti 580 þús. tonnum árið á
undan. Þá hafi hrygningarstofninn í
ársbyrjun verið 380 þúsund tonn á
móti 305 þúsund tonnum áriö á und-
an.
Allt bendir því í eina átt varðandi
þorskstofninn og með sama áfram-
haldi gerir Hafrannsóknastofnun
ráð fyrir því að veiðistofninn í byrj-
un næsta árs veröi orðinn um 814
þúsund tonn og muni halda áfram
að vaxa í 850 þúsund tonn í ársbyrj-
un 1999. Líkur á stofnhruni fram til
aldamóta eru taldar sáralitlar eða
innan við 1%.
Samanlögð veiði á inn-
fjarðarækju og rækju á djúpslóð
mun aukast samkvæmt tillögu
stofnunarinnar og munar þar mest
um aukningu í djúpsjávarrækjunni.
í fyrra var leyfð veiði á 40 þús. tonn-
um en það mark hækkar nú i 55
þúsund tonn. Hins vegar minnkar
heimildin í innfjarðarækjunni úr 11
þúsund tonnum í 7.600 en minnkun-
in er vegna stækkandi þorskstofns.
Lagt er til að dregið veröi úr ýsu-;
veiði þar sem sókn í hana er enn of
mikil og stórir árgangar skila sér
illa inn í veiðistofninn og stóru ár-
gangamir frá 1989 og 1990, sem hafa
verið ríkjandi í ýsuaflanum, eru að:
hverfa úr stofninum. Veiðidánar-'
stuðlar ýsu hafa verið of háir um
árabil og eru enn of háir. Lagt er til
að ýsuaflinn fari ekki yfir 40 þús-
und tonn á næsta fiskveiðiári og
gangi það eftir er búist við að bæði
veiði- og hrygningarstofnar fari
stækkandi, enda sé von á stórum
nýliðunarárgangi ársins 1995 sem
bætist í veiðistofninn áriö 1998.
-SÁ
Stálkonan:
Síðasti
sýningardagur
Lokadagur ljósmyndasýningar-
innar Stálkonan í Kringlunni er í
dag. Á sýningunni eru myndir af
vaxtarræktarkonum eftir ljós-
myndarann Bill Dobbins. Hann er
talinn í hópi færustu myndasmiða
á sínu sviði og var nýlega tilnefnd-
Jeppi brann
til kaldra
kola
Blazerjeppi brann til kaldra kola
á veginum undir Eyjafjöllum síð-
degis í gær. Upptök eldsins eru óljós
en rjúka tók úr bílnum þegar hann
var á fullri ferð. Ökumaður var
einn í bílnum og slapp án meiðsla.
-GK
ur íþróttaljósmyndari ársins í
Bandaríkjunum.
Dobbins kom nýlega til landsins
í fylgd tveggja stálmeyja, Ericcu
Kem, líkamsræktarmeistara Norð-
ur-Ameríku, og Melissu Coates,
áhugameistara Kanada.
Tveir út af á
biindhæð
Tveir bílar fóru út af veginum í
Kollafirði í Strandasýslu í gær,
Mættust þeir á blindhæð og missti
■ökumaður annars bílsins stjórn á
honum. Stakkst hann út í mýri og
skemmdist töluvert. Ökumaður
hins bílsins renndi honum einnig út
af til að forðast árekstur. Bíll hans
slapp að mestu óskemmdur. Enginn
slasaðist í óhappi þessu. -GK