Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Qupperneq 4
4 fréttir LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996 DV Munaði hársbreidd að Alþýðusambandið sundraðist í gærmorgun: Ég skal játa að þá var ég hræddur um samtökin - segir Hervar Gunnarsson, 1. varaforseti Alþýðusambandsins „Það þýðir ekkert að vera að reyna að fela það. í morgun var ASÍ á barmi sundrungar. Ég skal alveg játa þaö að ég var um tíma alvar- lega hræddur um framtíð sam- bandsins," sagði Hervar Gunnars- son, 1. varaforseti Alþýðusambands íslands, eftir að öldurnar hafði lægt á Alþýðusambandsþingi í gær. Deilurnar blossuðu upp aftur eft- ir átökin á fimmtudagskvöld þegar reynt var að fá kosninguna til sam- bandsstjómar endurtekna vegna þess að 70 prósent þingfulltrúa skil- uðu auðu. Verkamannasambands- menn sökuðu verslunarmenn um að ætla að fá kosninguna endurtekna. Hætt var við það og lög ASÍ í raun brotin með því að láta það gilda að sambandsstjórn væri kosin með 30 prósentum atkvæöa. Heföi kosning- in verið endurtekin hefðu fulltrúar Verkamannasambandsins gengið af þingi og þar með hefði ASÍ klofnaö. Um tíma voru engin þingstörf í gangi í gærmorgun. Margir voru í homum og herbergjum að reyna að ná sáttum. Aðrir sátu sem lamaðir vegna átakanna. Margir þeirra sem DV ræddi við sögðu að það væri þeim Grétari Þorsteinssyni og Her- vari Gunnarssyni að þakka að deil- umar voru settar niður og sæmileg- ar sættir tókust. „Ég vona að hægt verði að setja þessar deilur niður endanlega. Menn verða að setjast niður og ræða málin. Það er ekki hægt að ná sáttum öðruvísi,“ sagði Hervar Guimarsson. „Ég tel að þessi deilumál hafi þeg- ar verið gerð upp hér á þinginu og tel raunar að hreyfingin sé sterkari á eftir. Ég ætla ekki að segja að ég hafi verið hræddur um ASÍ i morg- un en það væm ósannindi ef ég segði annað en að mér hefði liöið illa því hér voru uppi grimmar deil- ur þótt það hafi ekki verið málefna- deilur,“ sagði Grétar Þorsteinsson, nýkjörinn forseti ASÍ. Magnús L. Sveinsson sagði Verkamannasambandið eiga hér alla sök. Bjöm Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, sagði verslunar- menn, og þá ekki síst Magnús L. Sveinsson, eiga sökina. Einn þingfulltrúa, sem bað um nafnleynd, sagði að hér hefði verið um uppsafnaða illsku Verkamanna- sambandsmanna í garð Magnúsar L. Sveinssonar að ræða. Þeir segja hann hafa komið í veg fyrir að mað- ur úr röðum Verkamannasam- bandsins væri kjörinn forseti ASÍ fyrir fjórum árum og að hann hafi aftur gert það nú. Síðustu fjögur árin hafi verið eldur þama í milli. Hann sagði að mikið þyrfti að koma til ef fullar sættir ættu að nást í nánustu framtíð. -S.dór Benedikt Davíðsson: Komið að uppskeru- tíma „Ég tel að það merkasta sem gerðist á þessu þingi sé sú sam- staða sem er hér, alveg klárlega, í vinnuumhverfísmatinu í þjóðfé- laginu. Það er mjög mikilvægt að samtökin séu þar samstiga og hafi sameiginlega sýn á hvernig stað- an er núna. Það er uppsveifla í þjóðfélaginu. Við höfum á undan- fómum árum verið að leggja okk- ur fram við að komast yfir lægð- artímabilið. Það fólk sem hér er á þinginu hefur allt saman skilning á því að nú er komið að uppskeru- tímanum," sagöi Benedikt Dav- íðsson, fráfarandi forseti Alþýðu- sambandsins og einn reyndasti maður sem til er í íslenskum verkalýðsmálum. Hann segir að það sé skýlaus krafa að fólk innan ASÍ, sem mestu hefur fórnað til að ná þjóð- félaginu upp úr öldudalnum, fái nú umbun erfiðis síns. -S.dór ■IPV! Þorsfcurinn á uppleið Veiði/Áætl. '95-'96 □ Ráðgjöf/Hafró '96-'97 □ Boðaður mismunur '96-’97 186 þ. tonn Þorskur 155 þ. Grálúða Karfi 60 þ. tonn 65 þ. tonn Smásagnasamkeppni Tígra: Yfir 2 þús- und sögur bárust Krakkaklúbbur DV stóð fyrir smásagnasamkeppninni Tígri í umferðinni í samstarfi við Um- ferðarráð og lögregluna. Sam- keppnin var kynnt í öllum skól- um landsins og var mjög góð þátt- taka meðal nemenda um allt land. Allir þeir krakkar sem sendu inn sögur fá send teinaglit á reið- hjólin sín í júní. 50 sögur verða valdar og gefnar út í einni bók, Tígrabókinni, sem kemur út í haust. Þeir sem eiga sögur í bókinni fá viðurkenning- arskjöl og eiga möguleika á að vinna vegleg verðlaun. Dregin verða út þrjú nöfn í fjórum ald- urshópum, 6 ára og yngri, 7-8 ára, 9-10 ára og 11-12 ára. Verðlaunin eru hjólreiðahjálm- ar frá versluninni Markinu, Ár- múla 40. Verðlaunaafhendingin fer fram í byrjun júní og verður nánar tilkynnt um hana þegar nær dregur. Krakkaklúbbur DV, Umferðarráð og lögreglan þakka öllum þeim krökkum sem sendu inn sögu kærlega fyrir þátttök- una. Tígri hvetur öll börn til að muna eftir hjólreiðahjálmunum. -SF Það er mikið að gera hjá Tígra þessa dagana þar sem hann er að lesa yfir all- ar Tígrasögurnar sem bárust í smásagnasamkeppnina Tígri í umferðinni. Alis bárust 2.000 Tígrasögur alls staðar af landinu. Þess má einnig geta að ein sagan sem barst okkur kom alla leið frá Afríku. Gleðitíðindi frá Hafró í fyrsta sinn um árabil: Þorskkvótinn aukinn um 12% á næsta fiskveiðiári - tímamót, segir Jakob Jakobsson Hafrannsóknastofnun mælir með því að þorskafli á næsta fiskveiðiári verði aukinn úr 155 þúsund tonnum í 186 þúsund tonn, eða um 12%. „Þetta eru mikil tímamót í þessu starfi okkar hér á undanfómum árum þvi að í stað þess að mæla með aflasamdrætti getum við nú mælt með aukningu," sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsókna- stothunar, þegar tillögur stofnunar- innar um veiðar úr nytjastofnum á næsta fiskveiðiári vom kynntar. Gunnar Guðmundsson tölfræðingur kynnti forsendur tillagna Hafrann- sóknastofnunar og sagði að árangur fiskveiðistjórnunar undanfarinna ára væri nú að skila sér. Dregið hafi úr sókn um 48% síðan árið 1993 og í byrjun þessa almanaksárs hafi veiðistofn þorsks verið 675 þúsund tonn á móti 580 þús. tonnum árið á undan. Þá hafi hrygningarstofninn í ársbyrjun verið 380 þúsund tonn á móti 305 þúsund tonnum áriö á und- an. Allt bendir því í eina átt varðandi þorskstofninn og með sama áfram- haldi gerir Hafrannsóknastofnun ráð fyrir því að veiðistofninn í byrj- un næsta árs veröi orðinn um 814 þúsund tonn og muni halda áfram að vaxa í 850 þúsund tonn í ársbyrj- un 1999. Líkur á stofnhruni fram til aldamóta eru taldar sáralitlar eða innan við 1%. Samanlögð veiði á inn- fjarðarækju og rækju á djúpslóð mun aukast samkvæmt tillögu stofnunarinnar og munar þar mest um aukningu í djúpsjávarrækjunni. í fyrra var leyfð veiði á 40 þús. tonn- um en það mark hækkar nú i 55 þúsund tonn. Hins vegar minnkar heimildin í innfjarðarækjunni úr 11 þúsund tonnum í 7.600 en minnkun- in er vegna stækkandi þorskstofns. Lagt er til að dregið veröi úr ýsu-; veiði þar sem sókn í hana er enn of mikil og stórir árgangar skila sér illa inn í veiðistofninn og stóru ár- gangamir frá 1989 og 1990, sem hafa verið ríkjandi í ýsuaflanum, eru að: hverfa úr stofninum. Veiðidánar-' stuðlar ýsu hafa verið of háir um árabil og eru enn of háir. Lagt er til að ýsuaflinn fari ekki yfir 40 þús- und tonn á næsta fiskveiðiári og gangi það eftir er búist við að bæði veiði- og hrygningarstofnar fari stækkandi, enda sé von á stórum nýliðunarárgangi ársins 1995 sem bætist í veiðistofninn áriö 1998. -SÁ Stálkonan: Síðasti sýningardagur Lokadagur ljósmyndasýningar- innar Stálkonan í Kringlunni er í dag. Á sýningunni eru myndir af vaxtarræktarkonum eftir ljós- myndarann Bill Dobbins. Hann er talinn í hópi færustu myndasmiða á sínu sviði og var nýlega tilnefnd- Jeppi brann til kaldra kola Blazerjeppi brann til kaldra kola á veginum undir Eyjafjöllum síð- degis í gær. Upptök eldsins eru óljós en rjúka tók úr bílnum þegar hann var á fullri ferð. Ökumaður var einn í bílnum og slapp án meiðsla. -GK ur íþróttaljósmyndari ársins í Bandaríkjunum. Dobbins kom nýlega til landsins í fylgd tveggja stálmeyja, Ericcu Kem, líkamsræktarmeistara Norð- ur-Ameríku, og Melissu Coates, áhugameistara Kanada. Tveir út af á biindhæð Tveir bílar fóru út af veginum í Kollafirði í Strandasýslu í gær, Mættust þeir á blindhæð og missti ■ökumaður annars bílsins stjórn á honum. Stakkst hann út í mýri og skemmdist töluvert. Ökumaður hins bílsins renndi honum einnig út af til að forðast árekstur. Bíll hans slapp að mestu óskemmdur. Enginn slasaðist í óhappi þessu. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.