Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Síða 6
LAUGARDAGUR 25. MAÍ1996
6 *r|
ítlönd
stuttar fréttir
Deilt um kýr
Heiftarlegar deUur brutust út
á indverska þinginu rétt eftir
| setningu i gær þegar stjórn
hindúa tilkynnti að banna ætti
slátrun kúa.
Miðar í
A1 Gore,
varaforseti
IBandaríkj-
anna sem er i
heimsókn í
Portúgal,
sagði í gær
að hann
byggist við
að á næstu
vikum mundu friðarviðræðurn-
ar í Angóla þokast í rétta átt.
Hrefnuveiðar byrjaðar
Hrefnuvertíð Norðmanna er
hafln og er fyrsta dýrið þegar
komið á land.
25 árum skemur
Helmingslíkur eru á því að
reykingamenn sem byrjuöu ung-
ir lifi 25 árum skemur en ella.
||
13 ára dreng sleppt
Yfirvöld í Nígeríu hafa sleppt
13 ára breskum dreng sem var
handtekinn fyrir mánuði þegar
hann ætlaði að heimsækja föður
sinn sem er frændi fyrrum for-
| seta.
Kanar skammaðir
Framkvæmdastjórn ESB og
Evrópuþingið gagnrýndu banda-
rísk stjórnvöld harðlega í gær
fyrir að herða viðskiptaþvingan-
imar gegn Kúbu.
Á áætlun
Viðgerðimar á Wíndsorkast-
ala Bretadrottningar vegna
brunans mikla eru á áætlun og
innan íjárhagsramma.
Minna ofbeldi
Ofbeldisverk nýnasista og
annarra hægrisinnaðra öfga-
manna í Þýskalandi drógust
saman um 44 prósent árið 1995
vegna hertra aðgerða stjórn-
valda gegn öfgahópum.
Vilja aðgang
Lögmenn
Í mafíufbringj-
ans Giovann-
is Bruscas,
sem lögregla
handtók i
vikunni, vilja
fá aðgang að
skjólstæðingi
sínum til að
ganga úr skugga um hveraig
hann er til heilsunnar en þá
grunar að löggan hafi gengið í
skrokk á honum.
Líkum náð á land
Kafarar frá Kenía hafa náð á
annað hundrað líkum úr flaki
farþegaferjunnar sem sökk á
Viktoríuvatni í vikunni. Reuter
friðarátt
Bensínlækkun
vegna íraka-
samnings
Samkomulag Sameinuðu þjóð-
anna og Iraka um að þeir síðar-
nefndu fái að selja olíu á ný, eftir 6
ára viðskiptabann, hefur strax haft
áhrif til verðlækkunar á heims-
markaði. Ekki hefur bætt úr skák
að eftirspurn eftir eldsneyti í
Bandaríkjunum hefur minnkað síð-
ustu daga, sér í lagi eftir bensíni.
95 oktana og 98 oktana bensín hef-
ur frá maíbyrjun lækkað um allt að
10% á markaði í Rotterdam. Reikn-
að er með áframhaldandi lækkun-
um á næstunni þannig að íslenskir
bifreiðaeigendur mega eiga von á
lækkun, spumingin er bara
hvenær.
Dow Jones hlutabréfavísitalan í
Wall Street sló enn eitt sögulega
metið í vikunni, það 21. á þessu ári.
Met var einnig slegið í Frankfurt.
Reuter
Borís Jeltsín lofar kjósendum betri tíö:
Með fullar hendur
fjár í Arkangelsk
Borís Jeltsín Rússlandsforseti lék
við hvern sinn fingur í gær og lofaði
kjósendum í nyrsta hluta Rússlands
gulli og grænum skógum ef þeir léðu
honum atkvæði sitt í forsetakosning-
unum í næsta mánuði.
„Ég er kominn hingað með fulla
vasa. í dag munu dálitlir peningar
koma til Arkangelsk-svæðisins,"
sagði Jeltsín þegar hann gerði að
gamni sínu við kjósendur í íshafs-
borginni Arkangelsk.
Jeltsín tilkynnti að hann hefði und-
irritað fjölda tilskipana um fjárhags-
aðstoð við nyrstu héruð Rússlands.
Markaðsumbætur forsetans hafa
komiö mjög hart niður á verkamönn-
um í iðnfyrirtækjum þar, sem voru
byggð upp með niðurgreiðslum sovét-
kerfisins.
Helsti andstæöingur Jeltsíns í kosn-
ingunum 16. júni, kommúnistinn
Gennadí Zjúganov, veittist að efna-
hagsumbótum Kremlverja og sagði að
þær hefðu leitt til hrikalegra erfið-
leika. Zjúganov nýtur minna fylgis en
Jeltsín samkvæmt skoðanakönnunum.
í yfirlýsingu frá Zjúganov sagði að
hann væri ekki að undirbúa efna-
hagslega umbyltingu og að hann
hefði ekki í hyggju að skipta auðinum
upp að nýju.
Jeltsín virtist við hestaheilsu þar
sem hann lék sér í trérólu með lítilli
stúlku í Arkangelsk en um tíma í
fyrra leit út fyrir að hjartveiki hans
mundi útiloka hann frá framboöi.
„Framtíð ykkar og framtíð barna
ykkar er tryggð ef kommúnistar kom-
ast ekki til valda 16. júní. Ég vona að
þið munið ekki leyfa það,“ hafði Tass-
fréttastofan eftir Jeltsín. Reuter
Skálmöld ríkir nú í Bangui, höfuðborg Mið-Afríkulýðveldisins, þar sem hluti hersins hefur gert uppreisn gegn forseta
landsins, Ange-Felix Patasse. Hér sjást franskir hermenn hjálpa ungri stúlku upp í herbíl sem flutti hana út á flug-
völl þar sem henni var komið um borð í flugvél til Parísar. Símamynd Reuter
Hernaðarástand í fangelsinu í Nyborg í Danmörku:
Allir fangarnir í einangrun til
að koma í veg fyrir stórbruna
DV, Kaupmannahöfn:
Sá fáheyrði atburður átti sér stað
á fimmtudag að allir 160 fangar í
ríkisfangelsinu í Nyborg voru settir
í einangrun. Alla vikuna hefur ver-
ið mikill órói í fangelsinu með bar-
smíðum og skemmdarverkum en
fangelsisyfirvöld töldu nóg komið
þegar fangarnir ætluðu að kveikja í
öllu fangelsinu. Þaö eru glæpasam-
tökin Bandidos sem standa aö ódæð-
unum en þau ráða öllu í fangelsinu.
„Yfirleitt eru það handlangarar
þeirra sem vinna ódæðin, annað-
hvort ménn sem vilja komast í náð-
ina eða er hótað lífláti og líkams-
meiðingum. Og allir vita að þeir
standa við hótanir sínar,“ segir
Hans Bronsted aðstoðarfangelsis-
stjóri við Berlingske Tidende í gær.
Nærri helmingur fanganna, eða
60, hefur verið í einangrun að eigin
ósk um nokkurt skeið vegna
hræðslu við glæpagengið.
Lætin byrjuðu á mánudag þegar
einn fanginn var barinn til óbóta í
líkamsræktarsal fangelsisins. Sá
hefur ekki þorað að benda á gjörn-
ingsmennina. Daginn eftir var lík-
amsræktinni lokað í mánuð þar
sem árásir af þessu tagi voru orön-
ar mjög tíðar.
Fangarnir brugðust við með því
að leggja niður störf og næstu daga
var fjöldi íkveikja og sprenginga í
fangelsinu. Þegar fangelsisyfirvöld
höfðu fundið sannanir fyrir því að
kveikja ætti í öllum sex verkstæðum
fangelsins samtímis á fimmtudag
með sprengjum og gaskútum var
ákveðið að einangra alla fangana.
Nú er verið að finkemba cillt fangels-
ið og verða fangamir lokaðir inni
nokkra daga af þeim sökum. -PJ
DV
BobDolesak-
aður um per-
sónulegt
skítkast
Bob Dole,
forsetaefni
Repúblikana-
flokksins, hef-
ur verið sak-
aður um per-
sónulegt skít-
kast í garð
Bills Clintons
I Bandaríkja-
| forseta vegna forsetakosninganna
| í nóvember.
„Þessi kosningabarátta varð
I mjög kvikindisleg og mjög ljót
; mjög fljótt eftir að repúblikanar
i urðu frá sér af örvæntingu vegna
1 stöðu sinnar,“ sagði Mike Mc-
| Curry, talsmaður forsetans, við
| fféttamenn í gær.
Hvössustu orðaskipti kosn-
; ingabaráttunnar til þessa urðu á
fimmtudag þegar Dole réðst að
1 forsetanum fyrir að hafa beitt
; ■ neitunarvaldi sínu á frumvarp
sem hefði bannað ákveðna teg-
I und fóstureyðingar.
Ólympíukokkar
elda fimm
milljón máltíðir
| Bandariski matreiðslumeistar-
inn Louis Ferretti gerir ráð fyrir
B því að útbúa fimm milljón mál-
I tíöir í risaeldhúsi sínu á ólymp-
iuleikunum í'Atlanta í sumar.
Ferretti, sem hefur þegar eldað
j á fernum ólympíuleikum, er bú-
Iinn að safna saman 550 uppskrift-
um hvaðanæva úr heiminum til
þess að gera fimmtán þúsund
I þjálfurum og íþróttamönnum og
; tveimur milljónum gesta til hæf-
1 is.
í: „Fjölbreytni fæðunnar er gríð-
I arlega spennandi verkefni," sagði
Íí Ferretti þegar fréttamönnum var
boðið að smakka á ólympíumatn-
um. Uppáhaldsréttur kokksins er
pastasósa, þar sem tómatur er
1 uppistaðan, en hann upphugsaði
í hana þegar hann var að sigla í
fríinu sinu.
Fjörugt kynlíf
tengt blöðru-
hálskirtils-
krabba
Körlum sem eru iðnir við
| kynlífsiðkanir er hættara við að
fá krabbamein í blöðruháls-
kirtilinn en hinum sem hófsam-
I ari eru.
> Þetta kemur fram í sænskri
j rannsókn sem kynnt var í gær.
Hins vegar hafa reykingar og
1 mikil drykkja lítil áhrif á þessa
tegund krabbameins.
IEn þótt kynlifsfjörkálfar séu í
meiri hættu að fá blöðruháls-
kirtilskrabbamein mælir Swen-
Olof Andersson, sérfræðingur í
krabbameinslækningum við
sjúkrahúsið í Örebro, ekki með
því að menn hætti öllu kynlífi.
Frakkar í Alsír
hvattir til að
snúa aftur heim
Alain
Juppé, forsæt-
: isráðherra
Frakklands,
’ hvatti landa
sína i Alsír til
að snúa heim
þar sem ör-
I yggi þeirra
| væri ógnað.
j Ráðherrann lét orð í þá veru falla
1 á fundi með fréttamönnum eftir
I aö endanleg staðfesting kom á
því að skæruliöar alsírskra
múslíma hefðu myrt sjö franska
j munka sem þeir höfðu á valdi
. sinu.
Skæruliðasamtök sem kalla sig
I Vopnaða íslamska hópinn gáfu út
yfirlýsingu um að þau hefðu
j skorið munkana á háls. Reuter