Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Qupperneq 12
» erlend bóksjá
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996 DV
I Metsölukiljur
!! •••••••••«••••«
Bretland
Skáldsögur:
1. Joanna Trollope:
The Best of Friends.
2. Nlck Hornby:
Hlgh Fldellty.
3. Robert Harrls:
Enlgma.
4. David Lodge:
Therapy.
5. Rosamunde Pllcher:
Comlng Home.
6. Josteln Gaarder:
Sophle's World.
7. Stephen Klng:
Mouse on the Mlle.
8. Kate Atkinson:
Behlnd the Scenes at the Museum.
9. Kazuo Ishlguro:
The Unconsoled.
10. Stephen Klng:
The Two Dead Girls.
Rit almenns eölis:
1. Seamus Heaney:
The Splrlt Level.
2. Isabel Allende:
Paula.
3. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
4. Wlll Hutton:
The State We're in.
5. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are from
Venus.
6. Graham Hancock:
Flngerprints of the Gods.
7. John Cole:
As It Seemed to Me.
8. J. Redfleld & C. Adrlenne:
The Celestlne Prophecy
Experlmentlal Gulde.
9. Janlne Pourroy:
Behind the Scenes at ER.
: 10. Alan Bennett:
: Wrltlng Home.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
1. Jane Austen:
Fornuft og felelse.
2. Jung Chang:
Vilde svaner.
3. Use Nergaard:
Kun en plge.
4. Nat Howthorne:
Den flammende bogstav.
5. Terry McMillan:
Andened.
6. Use Nergaard:
De sendte en dame.
7. Peter Heeg:
De máske egnede.
(Byggt á Polltlken Sendag)
Ný spennusaga um
Maxwell og Murdoch
JefFrey Archer er einn helsti met-
söluhöfundur Breta um þessar
mundir. Spennusögur hans, sem
gerast gjarnan í heimi viðskipta og
stjórnmála, seljast í risaupplögum
og hafa gert höfundinn, sem eitt
sinn var á barmi gjaldþrots, að
margmilljónara. Samningur sem
hann gerði við HarperCollins út-
gáfufyrirtækið árið 1990 hefur nú
þegar gefið honum í aðra hönd sem
samsvarar 5-6 milljörðum íslenskra
króna.
Nú síðast gerði Archer samning
við fyrirtækið um að skrifa þrjár
skáldsögur fyrir hátt í tvo milljarða.
Sú fyrsta þessara bóka, The Fourth
Estate, kom út fyrir nokkrum dög-
um og flaug beint inn á metsölu-
listana. Að vísu kann það að hafa
haft áhrif á söluna að stórverslanir
hafa keppst um að bjóða hana á sí-
fellt lægra verði, enda frjálst verð á
bókum í Bretlandi. Samt er engum
blöðum um það að fletta að Archer
á afar fjölmennan lesendahóp víða
um heim.
Fjölmiðlakóngar
Margir gagnrýnendur hafa lengi
haft gaman af að hakka bækur
Archers í sig og finna þeim flest til
foráttu. Nú hefur bæst við sú full-
yrðing að nýja skáldsagan sé í raun
og veru engin skáldsaga heldur
samsuða úr ævisögum tveggja
frægra eða alræmdra fjölmiðla-
kónga. Archer sjálfur hefur ekki
neitað því að sagan sé byggð á raun-
verulegum atburðum; þvert á móti
hefur hann lýst því yfir að um 80
prósent sögunnar séu frásögn stað-
reynda og um 20 prósent skáldskap-
ur.
Söguhetjurnar eru sem sagt Ro-
Jeffrey Archer.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
bert Maxwell, sem lét lífið með
grunsamlegum hætti fyrir nokkrum
árum, og Rupert Murdoch sem er
einn öflugasti fjölmiðlakóngur
heimsins um þessar mundir.
Archer gefur þeim ný nöfn - Ric-
hard Armstrong og Keith Townsend
- en atburðarásin er mjög í sam-
ræmi við það sem þekkt er úr nýleg-
um ævisögum þessara gömlu fjand-
manna.
Armstrong/Maxwell fæddist í fá-
tækt í Austur-Evrópu, flúði vestur á
bóginn tU Bretlands, gekk í herinn
þar, þjónaði í breska hernámsliðinu
í Þýskalandi eftir stríð, náði þar
með svikum tökum á þýsku fyrir-
tæki sem sérhæfði sig í útgáfu vís-
indarita, mjólkaði það fjárhagslega
með óprúttnum aðferðum, fór svo
inn á dagblaðamarkaðinn í Bret-
landi og síðar í Ameríku, sveik og
stal eftir þörfum en endaði að lok-
um á því að fremja sjálfsmorð
Vélabrögð
Townsend/Murdoch kom hins
vegar úr allt annarri átt; af auð-
ugum ættum i Ástralíu þar sem fjöl-
skyldan átti útgáfufyrirtæki, hlaut
menntun í Oxford, tók síðan við
dagblöðum fjölskyldunnar og hóf út-
þenslu fyrirtækisins; fyrst í Ástral-
íu, síðan í Bretlandi, Ameriku og
víðar.
Það var einmitt þegar báðir þess-
ir menn voru að þreifa fyrir sér í
Bretlandi að þeim lenti fyrst saman;
það var hörð og æsileg barátta og
upphaf að langvarandi fjandskap og
samkeppni þeirra á milli. Allt er
þetta rakið ítarlega í bók Archers,
en að sögn sumra gagnrýnenda eru
frásagnir af vélabrögðum í fjármála-
heiminum besti hluti sögunnar.
Maxwell fær afar slæma útreið í
sögunni, enda er hann dauður og
því ófær um að verja sig með þeim
hætti sem honum var svo tamt að
grípa til í lifanda lífi; með málaferl-
um. Sonur hans reyndi að fá dóm-
ara til að stöðva útgáfu bókarinnar,
en hafði ekki árangur sem erfiði.
Farið er mildari höndum um
Murdoch. Sem er kannski skiljan-
legt þegar haft er í huga hversu víða
fingur hans teygja sig í viðskiptalíf-
inu. Forlag Arhcers, HarperCollins,
sem gefur út þessa sögu af baráttu
fjölmiðlarisanna, er þannig í eigu -
já, hvers annars en Ruperts Mur-
dochs!
Metsölukiljur
I •••••»••••«••••»«•»•
| Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Mary Hlggins Clark:
Let Me Call You Sweetheart.
2. Stephen Klng:
The Green Mlle: The Two Dead Glrls.
3. Robert Ludlum:
The Apocalypse Watch.
4. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
5. Nora Roberts:
True Betrayals.
6. Belva Plaln:
The Carousel.
7. Stephen Klng:
The Green Mlle: The Mouse on
the Mlle.
8. John Sandford:
Mlnd Prey.
9. John Grlsham:
I The Ralnmaker.
10. Anne Tyler:
Ladder of Years.
11. Maeve Blnchy:
The Glass Lake.
12. Jane Smlley:
Moo.
13. Anne Rice:
Taltos.
14. Wllllam Dlehl:
Primal Fear.
15. Catherine Coulter:
The Cove.
Rit almenns eðlis:
II. Mary Pipher:
Revlvlng Ophella.
2. James Carvllle:
We're Rlght, They’re Wrong.
3. Ann Rule:
Dead by Sunset.
14. Mary Karr:
The Liar’s Club.
5. Helen Prejean:
Dead Man Walklng.
6. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
7. Thomas Cahlll:
How the Irish Saved Clvillzation.
8. Isabel Allende:
;; Paula.
i 9. Ollver Sacks:
An Anthropologlst on Mars.
| 10. Rlchard Preston:
The Hot Zone.
11. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
12. Robert Fulghum:
From Beglnnlng to End.
13. B.J. Eadle & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
14. Balley Whlte:
Sleeplng at the Starllte Motei.
15. Thomas Moore:
Care of the Soul.
(Byggt á New York Times
Book Review)
Von á bættum
skiám
Svissneskir vísindamenn segj-
ast hafa uppgötvað nýrri og betri
; aðferð til að fá svokallaða fljót-
; andi kristalskjái (LCD) til að
’ virka. Það gæti haft í för með sér
: bjartari og skýrari skjái, allt frá
I tölvuskjám yfir í stór ljósaskilti.
LCD-skjáirnir reiða sig á líf-
rænar sameindir sem hægt er að
láta raða sér upp allar í sömu átt.
Nú um stundir er það gert með
gamaldags tækni en nýja aðferð-
in byggist á útfjólubláu ljósi og
gerði hún kleift að lesa á skjáina
frá mismunandi sjónarhomum
en þaðavar ekki hægt áður.
Of mikið salt er
óhollt
Nýjustu rannsóknir staðfesta
| það sem oft haföi verið haldið
p fram áður, nefnilega að of mikil
saltneysla getur valdið of háum
blóðþrýstingi. Vísindamenn
1 hvetja því fólk til að draga úr
I saltneyslunni, einkum eldra fólk.
Upp á síökastið höföu birst
niðurstööur rannsókna þar sem
leiddar voru að þvi líkur að sódí-
| um í salti ylli ekki auknum blóð-
þrýstingi heldur kynni hann að
I vera af völdum annarra efna, svo
j sem kalsíums.
En við rannsóknir á tíu þús-
I und manns í 52 löndum staðfestu
I breskir vísindamenn hins vegar
eldri kenningar um samband
l salts og háþrýstings.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Bóluefni 21. aldar ræktað í
banönum og öðrum ávöxtum
Er það ekki draumur sérhvers
manns að losna við allar þessar
hræðilegu sprautur þegar hann þarf
að láta bólusetja sig en geta þess í
stað kannski bara fengið sér banana
eða aðra ávexti?
Það er hreint ekki útilokað að
þannig verði það nú þegar börn 21.
aldarinnar þurfa að láta bólusetja
sig gegn ýmsum algengum barna-
sjúkdómum. Vísindamenn binda
miklar vonir við að hægt verði að
gera erfðafræðilegar breytingar á
ýmsum plöntum til að þær fram-
leiði bóluefni á ódýran hátt.
„Ég sé fyrir mér að í krukku af
barnamat verði erfðabreyttur ban-
ani sem muni veita vörn gegn ýms-
um smitsjúkdómum," segir Charles
Amtzen við Boyce Thompson stofn-
unina í plönturannsóknum við
Cornell-háskóla í nýlegri grein.
Með því að framleiða ódýrt bólu-
efni í plöntum, sem vaxa á staðnum,
eygja menn þann möguleika að geta
veitt vörn gegn hefðbundnum
drápssjúkdómum þróunarlandanna,
eins og niðurgangi og kóleru. Til-
raunir með kartöflur sýna að þetta
er hægt.
Hjá fyrirtækinu Axis Genetics í
Cambridge á Englandi eru visinda-
menn að vinna að bóluefni úr plönt-
um og miðar, að eigin sögn, nokkuð
áfram.
„Erfðabreytingar á plöntuveirum
eru líklegar til að geta af sér margs
konar heilsuvörur fyrir bæði menn
og dýr á næsta áratug," segir Iain
Cubitt, framkvæmdastjóri Axis.
Fyrirtækið framleiðir nú plöntur til
að kanna kenninguna og undirbúa
framleiðsluna.
Cubitt segir að veiran sé fram-
leidd í tilraunastofunni og sett á eitt
lauf á plöntunni. Hún margfaldast
og dreifist um plöntuna um leið og
hún vex. Veiran er hönnuð með það
í huga að hafa öll ráð plöntunnar í
hendi sér, ef svo má að orði komast,
án þess þó að drepa hana.
Vísindamönnum Axis hefur orðiö
nokkuð ágengt við framleiðslu á
bóluefni gegn ýmsum algengum
kvillum í köttum og hundum og
gegn gin- og klaufaveiki í nautgrip-
um. Reglur um lyf fyrir dýr eru
ekki eins strangar og þær sem gilda
um lyf fyrir mannfólkið. Þess vegna
eru lyf fyrir dýr fljótari á markað.
Fyrirtækið er einnig að vinna að
bóluefni gegn alnæmi, malaríu,
mislingum, lifrarbólgu B og inflú-
ensu, svo og að leiðum til að berjast
gegn sveppasýkingum og að með-
ferð við ristilkrabba.
Þar til fyrir um fimmtíu árum
voru flest lyf unnin úr plöntum en
nú á dögum eru flest ný lyf fram-
leidd í tilraunastofum lyfjafyrir-
tækjanna. Erfðaverkfræðin hefur
hins vegar opnað fyrir þann mögu-
leika að leita aftur á vit plantnanna.
Sérfræðingar telja að það geti leitt
til ódýrari bóluéfna en þeirra sem
nú eru framleidd. En þrátt fyrir allt
bjartsýnistalið, eru engu að síður
ýmis vandamál sem þarf að yfir-
stíga.
„Það verður að hreinsa prótínið
sem maður vill ná úr plöntunni.
Mig grunar að aðeins hafi verið
breitt yfir það en það er ekki neitt
aukaatriði," segir Julian Burke,
lektor í lífefnafræði við Sussex-há-
skóla á Englandi. Hann segir að
erfðaverkfræðingar eigi eftir að
sanna að þeir geti haldið ávallt
sama styrk í bóluefninu sem þeir
framleiða. Hann er þó bjartsýnn á
að hægt verði að yfirstíga öll vanda-
mál.
Bestir pabbar
syngja best
Hæfileikamestu söngvararnir
j eru bestu feðurnir, að minnsta
; kosti þegar nokkrar fuglategund-
ir eiga í hlut, segja fuglafræðing-
ar við Cornell háskólann í New
1 York og háskólann í Lundi.
Fuglar eru ákaflega fjöllyndir
og reyna að svíkja maka sína í
tryggðum eins oft og þeir mögu-
| lega geta. Stundum vilja kven-
fuglarnir karla með skærlitar
fjaðrir en fyrir kemur að „skvís-
urnar" falli fremur fyrir bestu
söngvurunum. Það hefur líka
komið í ljós að hjá ákveðinni
söngfuglategund amerískri eru
lifslíkur unganna meiri ef feður
þeirra eru góðir söngvarar.
Aspirín gegn
krabbameini
Aspirín getur orðið að liði í
baráttunni við ristilkrabba þar
sem það fær krabbameinsfrum-
urnar til að tortíma sjálfum sér.
I Að sögn breskra vísindamanna,
sem uppgötvuðu þetta, gæti það
| leitt til meðferðar við þessari teg-
I und krabbameins sem er ein hin
algengasta á Vesturlöndum og sú
| sem einna erfiðast er að eiga við.
Læknar vita að regluleg neysla
aspiríns getur dregið úr hætt-
j unni á krabbameini um 50 pró-
* sent.
Vísindamennirnir ræktuðu
ristilkrabbameinsfrumur og létu
aðalefnið í aspiríni á þær. Frum-
urnar frömdu þá eins konar
sjálfsmorð en það er mikilvægur
liður í starfsemi frumna. Talið er
i að krabbameinsfrumur vaxi
Ístjórnlaust þar sem þær geti ekki
eyðilagt sjálfar sig.