Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 25. MAI 1996
17
Svar Hákonar
Björnssonar
„Ég fékk upplýsingar um aö
Þorsteinn væri í viðræðum við
erlenda aðila um innflutning á
áburði til landsins í samkeppni
við Áburðarverksmiðjuna þegar
hann var sölustjóri hjá okkur.
Eftir að hafa rætt við hann um
þetta varð niðurstaðan sú að
hann léti af störfum hjá okkur,“
segir Hákon Bjömsson, forstjóri
Áburðarverksmiðju ríkisins, um
orð Þorsteins Þórðarsonar.
Hann segir að í kjölfar þessa
hafi lífeyrissjóðsmálið komið
upp og hafa verði í huga að þar
sé á ferðinni sjálfstætt mál. Það
hafi farið sína leið í gegnum kerf-
ið. Allar fullyröingar um að hann
hafi farið með ósannindi fyrir
rétti sé dylgjur einar.
„Ásakanir hans um að gögn
hafi horfið af skrifstofunni eru
staðlausir stafir því hún stóð
óhreyfð í nokkrar vikur þar til
hann kom sjáifur með rannsókn-
arlögreglunni til að ná í gögn
þar.“
Hákon segir að þvert á það
sem Þorsteinn segir hafi hags-
munir Lífeyrissjóðs starfsmanna
Áburðarverksmiðjunnar verið
hafðir að leiðarljósi. Óvilhallir
matsmenn hafi verið fengnir til
að meta verðmæti eignarinnar
við Skipholt 50 d og þeir hafi
komist að þeirri niðurstöðu áð
hagsmunum sjóðsins væri best
borgið með því að fara þá leið
sem farin var. Þróun mála hafi
sannað aö skynsamlegasta leiðin
var farin.
-PP
Sveinn Runólfsson:
Fullkomlega
eðlilega að
útboðinu staðið
„Við höldum okkur að sjálfsögðu
við reglur Ríkiskaupa um útboðs-
mál og treystum fyllilega þeim fag-
legu vinnubrögðum sem þar eru
viðhöfð. Við tókum, í samráði við
Ríkiskaup, þá ákvörðun að ganga að
aðaltilboði Áburðarverksmiðjunnar
hf. sem var lægsta aðaltilboðið. Við
sáum okkur ekki fært að ganga að
frávikstilboðum ísafoldar. Það voru
ýmsar ástæður fyrir því en það var
fullkomlega eðlilegt að ganga að að-
altilboðinu," segir Sveinn Runólfs-
son landgræðslustjóri.
Hann segir að auk verðs hafi
greiðslufyrirkomulag, afhending og
þjónusta ráðið því að aðaltilboðinu
hafi verið tekið. í sjálfu sér hafi því
engin viðhlítandi rök verið fyrir því
að taka ekki lægsta aðaltilboði. Það
sé viðtekin venja hjá Ríkiskaupum
að taka í langflestum tilvikum aðalt-
ilboðum. Efnafræðileg rök hafi líka
ráðið því að frávikstilboðum var
ekki tekið.
Sveinn segir útboð sem þau sem
staðið hefur verið að sl. tvö skipti
hafi lækkað verulega áburðarverð
til Landgræðslunnar og það hafa
verið ákvörðun stofnunarinnar að
óska eftir því að Ríkiskaup byðu út
öll meiri háttar hráefniskaup stofn-
unarinnar, eins og áburðarkaup.
„Við leggjum áherslu á að fram-
hald verði á þessu fyrirkomulagi og
teljum að þarna hafi verið fyllilega
faglega að verki staðið og um enga
sýndarmennsku að ræða. Það er
vissulega við nokkur rök að styðjast
þegar Þorsteinn segir að fjárframlög
til okkar séu á mánaðarlegum
grundvelli. En ég er þó nokkuð viss
um að fjármálaráðuneytið hefði vik-
ið frá þeirri meginreglu til þess að
greiða þessa vöru í einu lagi ef
virkilega hefði þurft á að halda. Ég
vona svo sannarlega að ísafold haldi
áfram að freista þess að útvega okk-
ur áburð á enn lægra verði en per-
sónulega lýsi ég þó jafnframt yfir
ánægju minni með að þessi inn-
lenda framleiðsla skuli getað staðist
innflutningnum snúning en það réð
ekki því að lægsta aðaltilboði var
tekið.“
Fyrsta fyrirtækiö
(og í dag það eina) til að fá
faggildingu og starfsleyfi
til ísetningar
og prófunar ökurita
Bíla og Vagna
þjónustan hf.
Drangahrauni 7, 220 Hafnarfiröi,
sími 565-3867, fax 565-3876
merki
í fjallahjólum
PRO line 5800
24 gíra Grip Shift, SRT 600
Shimano Deore LX gírskiptar
Maxis dekk. Cro Mo stell
Litur: Svartur
'IU44T4.
PRO line 2800
21 gíra Grip Shift
Shimano Alivio gírskiptar
Cro Mo stell
4.44494:
PRO line 1800
21 gíra Grip Shift
Shimano Acera gírskiptar
Cro Mo stell
'J//4414.
topp merki
PRO line 800
18 gíra Twist Shift
Hi - Ten stell og gaffall
Úrval aukahluta frá Acor.
SUÐURLANDSBRAUT 8 • SÍMI 581 4670
MJÓDD, ÞARABAKKA 3 • SÍMI 567 0100