Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Page 18
18
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996 I^"V
Elenora haföi óvart slökkt á
vekjaraklukkunni og þess vegna lá
okkur dálitið á þegar við vöknuð-
um aftur um klukkan 8.30. Morg-
unmatur varð að bíða enda átti ég
strangt til tekið að vera mættur til
vinnu.
Gulir skilaboðamiðar biðu í af-
greiðslu ráðuneytisins og frá
klukkan 9 til 11 var ég svo að segja
óslitið í símanum. Flest erindin
voru frá einstaklingum sem leita
til félagsmálaráðherra vegna per-
sónulegra vandræða, s.s. greiðslu-
erfiðleika, húsnæðismála, málefni
fatlaöra o.fl. Hjá mörgum er það
seinasta skref á langri göngu að
panta viðtal við félagsmálaráð-
herra eða aðstoðarmann hans.
Neyð margs er mikil og reyndar
ekki óalgengt að harðfullorðið fólk
brotni saman og gráti þegar það
segir frá ógæfu sinni upphátt.
Um klukkan 11 hófst svo kallað-
ur „toppfundur“ en það eru sam-
Árni Gunnarsson, aöstoöarmaður félagsmálaráöherra, þeysist erinda fyrir ráðherrann á reiöhjólinu.
DV-mynd GS
eða jafnvel aldrei komist inn á
vinnumarkaðinn.
Skilaboðin höfðu hrannast upp
síðdegis. Meðal annars hringdu
tveir blaðamenn. Erindi annars
var óvenjulegt en það var frá
Matthíasi Eggertssyni, ritstjóra
Freys, sem minnti mig á að ég
hefði fyrir meira en ári lofað hon-
um viðtali við Helga Jónsson,
bónda og einbúa á Merkigili í
Skagafirði. Ég hét því að standa
við loforðið. Restin af deginum fór
í bréfaskriftir.
Við Elenora hittumst til að
borða saman kvöldmat en hún var
upptekin um kvöldið við að hjálpa
ungum frænda sínu að læra undir
próf. Ég fór einn á fund um utan-
ríkismál með Halldóri Ásgríms-
syni, sem haldinn var af Siv Frið-
leifs og hinum framsóknarmönn-
unum á Seltjamarnesi.
Vorkvöldið var fallegt og stillt
og ég skellti mér á hestbak eftir
Dagur í lífi Árna Gunnarssonar aðstoðarmanns félagsmálaráðherra:
Erindað á reiðhjóli fyrir ráðherra
ráðsfundir með ráðherra, ráðu-
neytisstjóra og skrifstofustjóra þar
sem farið er yfir mál sem eru efst
á baugi hverju sinni. Listinn var
langur að þessu sinni og teygðist
úr fundinum til klukkan 12.30.
Meðal þess sem stendur fyrir dyr-
um er endurskoðun á lögum um
málefni fatlaðra og lögum um fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga, loka-
undirbúningur fyrir byggðaráð-
stefnu S.Þ. í Istanbul o.fl.
Skottaðir oo skottlausir
refir
í hádeginu gleypti ég í mig sam-
loku hjá vini mínum vertinum á
Texas við Ingólfstorg og geystist á
reiðhjólinu á pósthúsið í vestur-
bænum til að ná i veiðikortið mitt
sem var komið í pósti frá Akur-
eyri. Það er vissara að hafa „licen-
se to kill“ frá Guðmundi Bjarna-
syni þegar ég fer um miðjan júní
norður í Skagafjörð í grenjaleit
með Kára bróður. Undanfarið hef-
ur mér reyndar verið hugsað til
þess hversu miklu verðugri and-
stæðingar þeir eru refirnir með
skottið heldur en hinir skottlausu.
Ég kom við á Barnaverndarstofu
á bakaleiðinni til þess að fá upplýs-
ingar fyrir Pál vegna fyrirspurnar
í þinginu um vímuefnavandann en
hafði ekki erindi sem erfiði þar
sem forstöðumaður var erlendis og
næstráðandi úti í bæ. Ég hjólaði í
þingið og skýrði Páli frá því að
hann gæti því miður ekki fengið
neitt skriflegt í hendurnar. Það
kom ekki að sök því Páll var með
þetta nokkurn veginn allt í kollin-
um.
Klukkan 14.00 áttum við Áslaug
Friðriksdóttir vinnusálfræðingur
fund með Róbert Jónssyni og
Oddrúnu Kristjánsdóttur frá
Reykjavíkurborg um ný úrræði
fyrir atvinnulausa. Um er að ræða
drög að spennandi tilraunaverk-
efni sem felst í því að koma á fót
„vinnuklúbbi" fyrir þá sem hafa
verið atvinnulausir árum saman
fundinn og reið stuttan hring í
heiðinni fyrir ofan Fjárborgina á
ungum skjóttum hesti frá Flata-
tungu sem ég hef verið að temja
undanfarna tvo vetur. Svöl vorgol-
an lék um kinnar og klárinn iðaði
af fjöri þar sem hann fetaði töltið,
hágengur, í moldargötunni.
Það var komin nótt þegar við
hjónaleysin loksins komum heim
en lífíð er alveg makalaust
skemmtilegt á þessum tíma ársins
og gerir ekkert til þó að lítill tími
sé til að sofa.
Finnur þú fimm breytingar? 360
Ef viö göngum út frá því aö hráefnisverð haldist óbreytt þá ættum
viö aö geta selt hvert ker á 1.520 krónur. Þaö þýöir aö eiginfjárhlut-
fall fyrirtækisins eykst um 12 prósent miöað viö 800 seld ker.
Nafn:
Heimili:
444 a.
d'.. 'h'
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og
áttundu getraun reyndust vera:
1. Sigurður Dan Heimisson 2. Rósa Dögg Jónsdóttir
Grenigrund 16 Gilsbakka 8
200 Kópavogur 465 Bíldudalur
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur i ljós að á myndinni tU hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni tU hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi að
verðmæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeif-
unni 7, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
GuUauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rik og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 360
c/oDV, pósthólf 5380
125 Reykjavík