Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Side 31
1>'V LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996
íþróttir
r Sundnámskeið fyrir þau allra yngstu:
Astu finnst mest gaman að busla
- sögðu foreldrar hennar, Nellý Pálsdóttir og Sigurður Stefánsson
Það var mikið um að vera í sund-
lauginni við Grensásdeild síðastlið-
inn laugardag, því þar voru mætt til
æfinga þau allra yngstu sem teljast
til sundgarpa þessa lands, því af-
reksfólkið var allt undir eins árs
aldri. Hér var því um að ræða sund-
fólk framtíðarinnar í þess orðs
fyllstu merkingu. í för með hinu
mjög svo unga íþróttafólki voru for-
eldrar sem fylgdust grannt með því
sem sundþjálfarinn, Ólafur Þór
Gunnlaugsson, lagði til hverju
sinni. En hvað höfðu foreldrar barn-
anna um þessa skemmtilegu uppá-
komu að segja?
Mest gaman að busla
Foreldrar Alexöndru Ástu Sigurð-
ardóttur, þau Nellý Pálsdóttir og
Sigurður Stefánsson, sögðu að henn-
ar mesta uppáhald væri að busla
sem allra mest:
Umsjón
Halldór Halldórsson
„Við byrjuðum að koma með
Ástu í þessar æfingar fyrir páska og
er þetta búið að vera mjög skemmti-
legt fyrir okkur öll. Frammistaða
Ástu litlu miðast að sjálfsögðu við
hversu upplögð hún er hverju sinni.
Hún er byrjuð að kafa og er það
mikill áfangi hjá henni. Þetta er síð-
asta námskeiðið að þessu sinni og
hafa þessir sundtímar verið alveg
frábærir. Núna er Ásta orðin svolít-
ið þreytt enda er æfingin að verða
búin - en hún er samt mjög afslöpp-
uð og verður mjög fljót að sofna þeg-
ar við komum heim. Við erum viss
Nellý Pálsdóttir og Siguröur í lauginni með Alexöndru Ástu sem er 7 mán
aöa.
Sveinbjörn Stefán Einarsson, 10 mánaöa, er hér meö foreldrum sínum,
Lindu Sveinbjörnsdóttur og Einari Bjarnasyni. „Viö erum ákveöin í þvf aö
halda áfram, þvi honum finnst svo gaman,“ sögöu þau.
í að þessar æfingar gera henni mjög
gott og ætlum því að sækja næsta
námskeið sem verður bráðlega í
Hafnarfirði," sögðu þau Nellý og
Sigurður.
Vantar æfingu
Brynhildur Pétursdóttir var með
soninn Jose Gabriel Resonia í ann-
að skiptið í lauginni:
„Gabriel minn er ekki kominn í
nógu góða æfingu, en ég veit að
hann hefur svo gott af þessu að ég
er ákveðin í að halda áfram og fara
á námskeið sem verður í Vesturbæj-
arlauginni á næstunni - svo hef ég
svo gaman af þessu sjálf.“
Leggst mjög vel í
dótturina
Aldís Björk Siguröardóttir var
með dóttur sinni, Önnu Dóru, og
hafði greinilega gaman af buslu-
ganginum í henni:
„Þetta er í fjórða skiptið sem ég
fer með hana í sundið og er hún orð-
in ansi veraldarvön. Sundæfingarn-
ar leggjast mjög vel í hana - en
núna er hún þreytt því þetta er tím-
inn sem hún tekur sér lúr,“ sagði
Aldís og horfði stolt á dótturina.
Ólafur Þór Gunnlaugsson sundkennari er hér aö taka Sveinbjörn, 10 mán-
aða, í sérkennslu. Sjáiö hvaö snáöinn er öruggur meö sig. DV-myndir Hson
Mjög ánægður
Guðfinna Pálsdóttir var með son-
inn Tý Vilhjálmsson, 6 mánaða:
„Mér finnst Tý líða mjög vel og
vera ánægður með tilveruna í laug-
inni. Það er eins og hann sé kominn
heim - aftur í móðurkvið - því hann
er svo afslappaður. Núna er hann
þó orðinn þreyttur en ánægður,
sagði Guðfinna.
Börnin eiga að vera synd fyrir grunnskólagöngu
- segir Úlafur Þór Gunnlaugsson sundþjálfari
grunnskólanámið og kannski yrði
það til mikils sparnaðar þegar á
heildina er litið.
Sundskóli með þessu sniði tók til
starfa innan Sunddeildar KR fyrir
tveimur árum og hafa eitthvað á
annað hundrað börn farið þar í
gegn á þeim tíma. Mikilvægt er að
börnin byrji nokkurra mánaða göm-
ul, og þá í fylgd foreldra til þess að
þau venjist við vatnið sem fyrst.
Foreldrar taka virkan þátt í nám-
skeiðunum framan af en hverfa síð-
an smám saman úr lauginni eftir
því sem færni barnanna eykst og
þau verða sjálfstæðari. Agi er stór
þáttur af námskeiðunum og læra
börnin að taka við fyrirmælum og
fylgja þeim eftir í lauginni.
Allt er þetta hluti af þeirri þróun
sem orðið hefur á starfi sundfélaga
í landinu, i samvinnu við SSÍ, sem
hafa tekið höndum saman um að
auka sundkunnáttu í landinu,"
sagði Ólafur Þór.
Þaö var mikiö fjör í lauginni og gleöi foreldranna og barnanna leyndi sér
ekki.
Ólafur Þór Gunnlaugsson sund-
þjálfari hefur þá skoðun að börnin
eigi að vera fullsynd þegar þau byrji
í grunnskólanámi. Þessi kenning er
í sjálfu sér byltingarkennd en um
leið frábær. Þetta myndi létta
á Laugardalsvelli 1. júní kl-19
Forsala aðgöngumiða er á ESSO-stöðvunum. 20% afsláttur til Safnkortshafa.
íssol
Fáðu þér Safnkort á nœstu ESSO-stöð.
Olíufélagið hf
—50 ára~