Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Side 35
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996 fréttir43 ------------ *** Pátur Hafstein forsetaframbjóðandi í DV-yfirheyrslu: Mál fólksins en ekki flokkanna að velja forseta „Þaö hefur veriö sagt um mig aö ég sé vammlaus og heiöarlegur embættismaöur. Ef mönnum þykir þaö ekki hæfa forseta íslands verö ég aö una þeim dómi,“ segir Pétur Hafstein m.a. í yfirheyrslu DV. DV-mynd GVA - Af hverju fórstu í framboð? „Það skiptir mig máli, og vonandi alla aðra íslendinga, með hvaða hætti forsetaembættið er starfrækt. Ég hef mjög ákveðnar hugmyndir um hvernig það eigi að vera. Þegar að mér var lagt að fara í þetta fram- boð þá sá ég tækifæri til að gera þessar hugmyndir að veruleika. Ég held að þeir sem þekktu mig hafi einmitt lagt að mér vegna þessara hugmynda.“______________________ - Hvaða kostum telur þú að for- setinn þurfi að búa yfír?_______ „Það er ekki mitt að tíunda mína kosti. Ég get hins vegar sagt að drengskapur og heiðarleiki séu þeir kostir sem helst ættu að prýða hvern mann og þá að sjálfsögðu for- setann. Forsetinn er fremstur meðal jafningja og þjóðin verður hverju sinni að meta hvaða kosti hún sér í frambjóðendum."_________________ - Hverjar verða þínar áherslur á Bessastöðum, náir þú kjöri? „Eg legg megináherslu á skyldur forsetans inn á við, annars vegar gagnvart stjómskipun landsins og meðferð ríkisvaldsins og hins vegar gagnvart íslensku þjóðinni. Forset- inn ber ekki pólitíska ábyrgð og hef- ur ekki pólitísk völd nema á af- mörkuðum sviðum en hann hefur áhrifamátt. Sá máttur getur verið öflugur ef rétt er á málum haldið. Ég legg einnig áherslu á að forseta- embættið eigi að reka með ráðdeild, hófsemi og sparnað í huga. Ekki á þann hátt sem tíðkast með milljóna þjóðum. Forsetinn verður umfram alla aðra að gæta þess að við rekst- ur embættisins sé ekki farið fram úr þeim fjárheimildum sem Alþingi hefur ákveðið. Þar á hann að ganga á undan með góðu fordæmi.“______ - Hvert er þá álit þitt á þeim mikla kostnaði sem orðið hefur við endurbæturnar á Bessastöð- um?_____________________________ „Þar er um gífurlegar fjárhæðir að ræða. Mér hefur fundist ein- kennilegast við þetta að menn virð- ast ekki hafa gert sér grein fyrir því í upphafi, og kannski ekki heldur þegar á verkið leið, hvað það er í raun umfangsmikið. Mér skilst að það hafi ekki verið til raunhæfar áætlanir um kostnað. Ef það er rétt þá er þáð mjög ámælisvert. Ég tek skýrt fram að mér hefur ekki gefist tóm til að meta einstaka liði þessara framkvæmda, t.d. hönnunarkostnað sem hefur verið mjög gagnrýndur. Það er hins vegar ljóst að búa þarf vel að forseta íslands og að sjálf- sögðu að halda menningarverðmæt- um vel við.“____________________ - Telur þú að forsetinn eigi að beita ákvæði um neitunarvald sitt á lagasetningar frá Alþingi? „Forsetinn á að beita þessum mál- skotsrétti með mikilli varfærni. Þetta er í raun neyðarúrræði sem forseti á aðeins að beita við alveg sérstakar og ófyrirséðar aðstæður. Þegar hann metur málið svo að hann geti ekki, gagnvart samvisku sinni, komist að annarri niðurstöðu en þeirri að tiitekið mál megi ekki ganga fram án þess að þjóðin fái að segja álit sitt á lagasetningunni.“ - Náir þú ekki kjöri, munt þú setjast aftur í Hæstarétt sem dómari eins og ekkert hafi í skorist?________________________ „Eg er í launalausu leyfi frá starfi mínu í Hæstarétti fram yfir kosn- ingar og mun taka þar sæti að nýju ef ég næ ekki kjöri.“___________ - Verður þú ekki vanhæfur dómari í ljósi allra þeirra ein- staklinga sem opinberlega hafa lýst yfir stuðningi við þig?____ „Menn eru að lýsa yfir stuðningi við mig í embætti þjóðhöfðingja, sem hefur sérstaka stöðu í okkar þjóðlífí. Hæstaréttardómarar eru ekki kjörgengir til Alþingis sam- kvæmt stjórnarskránni vegna þess m.a. að það er ekki talið rétt að þeir taki þátt í almennri þjóðmálaum- ræðu, öðru máli gegnir um framboð til þjóðhöfðingjaembættisins. Það hefur algjöra sérstöðu að þessu leyti og því fmnst mér fráleitt að útiloka hæstaréttardómara frá því að gefa kost á sér til þessa embættis. Vissu- lega geta skapast ákveðnir erfiðleik- ar sem ég verð þá að eiga við mína samvisku. Ef minnsti vafi leikur á um óhlutdrægni dómara þá víkur hann sæti.“ Ekki sjáifaefið að ég verði vannæfur dómari - Þannig að þú munt víkja sæti ef mál einhvers af opinberum stuðningsmönnum þínum kemur fyrir Hæstarétt?______________ „Það er ómögulegt að segja um það fyrirfram. Þetta verður að vera matsatriði hverju sinni. Ég undir- strika að þótt einhver hafi þá skoð- un, og ég vona að þeir séu sem flest- ir, að ég sé hæfari en aðrir til að gegna þessu embætti þá þarf það ekki að þýða sjálfkrafa að ég sé van- hæfur til að að dæma í hans máli.“ - Hver er áætlaður kostnaður við þitt framboð?_____________ „Eg get ekki sagt um það í ein- stökum atriðum. Hópur valin- kunnra manna hefur tekið að sér fjármál framboðsins. Ég hef ákveðið að eiga engan hlut aö því og fá enga vitneskju um ákveðin framlög, m.a. vegna stöðu minnar sem hæstarétt- ardómari ef til þess kæmi að ég þyrfti að setjast í dómarasæti á ný.“ - Þannig að þér er ekki kunn- ugt um hverjir fjármagna fram- boðið?__________________________ „Nei, mér er ekki kunnugt um það.“___________________________ - Verða reikningar framboðs- ins birtir að loknum kosningum? „Já, ég sagði strax þegar ég gaf kost á mér að grein yrði gerð fyrir Yfirheyrsla Bjöm Jóhann Bjömsson fjármálum framboðsins með reikn- ingum, unnum af löggiltum endur- skoðendum.“____________________ - Er eitthvað í þinni fortíð sem gæti skaðað þig sem forseta? „Nei, það tel ég alveg örugglega ekki. Ég hefði þá ekki gefið kost á mér til þessa embættis."_______ - Fylgi við þig hefur ásamt öðr- um frambjóðendum mælst langt undir fylgi Ólafs Ragnars í und- anförnum skoðanakönnunum. Hefurðu í ljósi þessa séð eftir því að hafa farið í framboð eða jafn- vel hugsað um að hætta við? „Nei, því fer víðs fjarri. Mitt fylgi mældist 11-12 prósent nokkrum klukkutímum eftir að ég tilkynnti framboð og það hefur verið svipað í könnunum síðan. Nokkuð er um lið- ið síðan skoðanakannanir hafa ver- ið birtar og ég hef skynjað það mjög greinilega að það er töluvert umrót á fólki. Margir eru enn óákveðnir og vilja láta tímann líða nær kosn- ingum áður en þeir taka ákvörðun. Kynningin af minni hálfu hefur ver- ið að aukast að undanförnu. Ég hef ástæðu til að ætla að straumhvörf eigi eftir að verða á fylgi frambjóð- enda.“ _________________________ - Margir segja að yflrlýsing þín, um að hafa talað við Davíð Oddsson og Friðrik Sophusson áður en þú ákvaðst framboð, hafi spiUt fyrir þér og stimplað fram- boðið sem framlag Sjálfstæðis- flokksins í stað Davíðs. Hvað seg- irðu við þessu?_________________ „Þetta er fjarri sanni. Eg leitaði ekki eftir neinum stuðningi frá þeim Davíð og Friðriki og hvorki var né er kunnugt um þeirra af- stöðu til míns framboðs. Ég taldi hins vegar rétt að ræða við þá, og reyndar fjölmarga aðra menn, áður en ég tók ákvörðun. Satt að segja finnst mér það ankannalegt ef eitt svona samtal á að gera mitt fram- boð pólitískt. Um leið eiga stjórn- málaforingjar, sem gefa kost á sér til embættisins, að vera hvítskúrað- ir af allri pólitík. Ég á mjög erfitt með að skilja þetta.“ Embættismenn geta náð tii fólksins - Þú hefur verið embættismað- ur lengst af en ert skyndilega kominn í hringiðuna og á allra vörum. Er ekki erfitt fyrir þig að taka þessum hamskiptum og þurfa kannski að vera alþýðlegri en venjulega?__________________ „Jú, auðvitað eru þetta mikil við- brigði frá mínu starfi. En embættis- menn geta að sjálfsögðu náð til fólks og verið alþýðlegir, eins og fjölmörg dæmi eru um. Nefni ég þá sérstak- lega afa minn, Júlíus Havsteen, sýslumann á Húsavik. Ég hef sem sýslumaður á árum áður átt geysi- lega mikil samskipti við fólk. Ég hef kynnst margvíslegum tilbrigðum mannlífsins og dreg enga dul á að reynsla mín frá sýslumannsárunum á Isafirði er mér ómetanleg. Hún er drýgsta veganestið í þessa kosning- abaráttu. Þannig að það er ekki svo að allir embættismenn séu í ein- hverjum fílabeinsturni."_______ - Nú ættu flestir að vita að þú ert sonur Jóhanns Hafstein, fyrr- um formanns Sjálfstæðisflokks- ins og forsætisráðherra, og fylgi við þig í könnunum hefur aöal- lega komið úr Sjálfstæðisflokknr - um. Er þetta ekki of einhæfur bakgrunnur til að komast á Bessastaði? Þarftu ekki meiri stuðning úr öðrum flokkum? „Þetta er ekki rétt greining. Með- al þeirra sem hvöttu mig til fram- boðs voru menn úr öðrum flokkum en Sjálfstæðisflokknum. Ég legg auðvitað áherslu á að framboð til forsetaembættisins eigi að vera haf- ið yfir flokkapólitík. Framboð mitt er ekki pólitískt. Ég hef ekki tekið þátt í stjórnmálum í 14 ár og var nú aldrei mikil þátttaka þar af minni hálfu. Ég vænti þess að með mál- flutningi mínum og framgöngu, og með skírskotun til fyrri verka, þá muni mér takast að afla mér enn meira fylgis úr öllum starfsstéttuni'' og þjóðfélagshópum, án tillits til stjórnmálaskoðana." Berst til síðasta blóð- dropa ef með þarf - Fari fylgi við þig ekki að aukast í næstu könnunum, kem- ur þá til greina að þú dragir framboð þitt til baka?_________ „Að sjálfsögðu vakir ekkert ann- að fyrir mér en að berjast, og það til síðasta blóðdropa ef með þarf.“ - Þegar þeir, sem ekki hafa sagst ætla að kjósa Pétur Haf- stein, hafa verið spurðir af hverju, þá hafa þeir sagt að hanf. persóna sé ekki nógu þekkt og of litlaus til að gegna embætti for- seta. Hvað segirðu við þessu? „Það er ljóst að ég hef kannski verið síst þekktur af frambjóðend- unum fram undir þetta. Aðrir verða að sjálfsögðu að dæma um mína kosti. Það hefur verið sagt um mig að ég sé vammlaus og heiðarlegur embættismaður. Ef mönnum þykir það ekki hæfa forseta íslands verð ég að una þeim dómi.“__________ - Hvernig hefði þér litist á framboð Jóns Baldvins ef hann hefði gefið kost á sér?________* „Vissulega hefði það verið sér- kennileg staða ef þarna hefðu verið komnir tveir stjórnmálaforingjar í framboð úr eldlínu stjórnmálanna. f Ég tel að það eigi að vera mál fólks- l ins í landinu en ekki stjórnmála- j flokkanna að velja sér forseta." -bjh j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.