Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Síða 46
54
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996 JU’V
smáauglýsingar - Sími 550 5000 Þverholti 11
Volvo 408, árg. ‘87, meö stöðvarleyfi og
kæli. Skipti athugandi. Uppl. í síma
5877 772 og 8533 200.
Benz 613, árgerö ‘85, sendibíll til sölu.
Upplýsingar í síma 893 6707.
Hópferðabílar
Er ekki einhver sem vantar litla rútu á
hálendið (ekki húsbíl)? Þá er Bangsi
tilv. Hann er 15 farþega, m/drif á öllum
hjólum, 6 cyl. Nissan dísilmótor á
túrbínu. Ef þú hefur áhuga þá hringdu
í s. 435 1416 um helgina eða á kvöldin.
Hino FD 174, árg. ‘87, til sölu, ekinn
350 þús. Er með lyftu. Verð 1.750 þús.
m/vsk. Upplýsingar í síma 8531462 eða
482 1562 eftir helgina.
P'
Vörubílar
Til sölu Scania 112E, árg. ‘82, 2 drifa,
með Sörling palli, verð 1.950 þús. +
vsk. Uppl. á Bílasölunni Hraun, s. 565
2727, og e.kl. 20 í síma 567 2774.
Til sölu tengivagn, lengd 7 m, gámafest-
ingar, góð dekk, skoðaður ‘97,
(hjólmælir), vagn í toppstandi.
Tilbúinn í vinnu. Verð 650 þús. +
vsk. Upplýsingar í síma 892 4580
eða 587 9180.
IÝmislegt
Snyrtistudio Palma & RVB
Listhúsinu Laugardal - Sími 568 0166
Reyndu eitthvað nýtt og gott.
Bílaáhugamenn! í tengslum við Greifa-
torfæruna á laugardag verður írábær
torfæru-grillveisla með skemmtiatrið-
um í Sjallanum kl. 20 á laugardags-
kvöld. Allir velkomnir. Veitingahúsið
Greifinn og Bílaklúbbur Akureyrar.
jyl Skemmtanir
Sjóstangaveiöi meö Eldingu II. Bjóðum
upp á 3ja ,tíma veiðiferðir fyrir allt að
6 manns. I Reykjavík leggjum við upp
frá Ægisgarði. Pantið tímanlega.
Sími 4314175 eða 883 4030.
f Veisluþjónusta
Til leigu Nýr glæsilegur veislusalur.
Hentar fyrir brúðkaup, afmæli, vöru-
kynningar, fúndarhöld og annan
mannfagnað. Ath. sérgrein okkar eru
brúðkaup. Nokkrir laugardagar lausir
í sumar. Listacafdé, sími 568 4255.
0 Þjónusta
Bílastæöamerkingar og malbiksvið-
gerðir. Allir þekkja vandann þegar
einn bíll tekur tvö stæði. Merkjum
bílastæði fyrir fyrirtæki og húsfélög,
notum einungis sömu málningu og
Vegagerð ríkisins. Látið gera við mal-
bilað áður en skemmdin breiðir úr
sér. B.S. verktakar, s. 897 3025.
Vinningar í
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Heiti potturinn 24. maíl ‘96
kom ú miða nr. 28656
FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN í REYKJAVÍK
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík
verður haldinn í safnaðarheimilinu, Laufásvegi 13,
fimmtudaginn 30. maí kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt lögum safnaðarins.
Stjórnin
Vinnulyftur ehf.
Fyrir iðnaðarmenn o.fl. Höfum til
leigu og sölu sjálfkeyrandi vinnulyft-
ur. Vinnuhæð allt að 14 m. S. 554 4107.
Veggjakrotiö burt. Ný og varanleg
lausn, þrif og glær filma gegn veggja-
krotinu. Ný efni og vel þjálfaðir menn
gegn úðabrúsum, tússi og öðru veggja-
kroti. Málningarþjónusta B.S. verk-
taka, s. 897 3025, opið 9-22.
staðgreiðslu-
og greiðslukorta-
afsláttur og
stighækkandi
birtingarafsláttur
550 5§§Q
Hægt að
rukka síma-
eiganda
Helgi Gústafsson, bílstjóri hjá
Hreyfli, segir leigubílastöðina ekki
hafa rukkað þá sem gerst hafa sekir
um að panta leigubíl til annarra í
þeim tilgangi að gera at.
„Við höfum ekki gert það, hvað
sem verður. Þetta er auðvitað pirr-
andi fyrir okkur og samkvæmt lög-
um væri hægt að rukka. Mér skilst
að símaeigandi sé ábyrgur fyrir sím-
anum sem hringt er úr. En því hef-
ur ekki verið framfylgt hér. Ég veit
að þetta er gert í Svíþjóð, að
minnsta kosti hjá einstaka stöðvum.
Þá er húsið, sem hringt var úr, sett
í straff þar til búið er að gera þétta
upp. Það væri hægt að láta þetta
ganga með einhverjum látum en hér
eru menn líka hræddir um markað-
inn,“ segir Helgi.
Hann segir ekki mikið um að
pantaðir séu bílar til annarra í því
skyni að gera at. Það sé hins vegar
þó nokkuð um að drukkið fólk panti
bíla og komi svo ekki út í bílinn.
„Ég myndi ekki reyna að rukka
þó ég vissi hver hefði hringt og
pantað pitsu til annars manns,“ seg-
ir Þórarinn Ævarsson, verslunar-
stjóri hjá Domino’s Pizza á Grensás-
vegi. „Ég hef heyrt um fólk sem hef-
ur ekkert gert af sér og er í hanni á
hinum stöðunum. Heimilisfaðirinn
getur verið grandvar maður en
krakkarnir einhverjir prakkarar.
Það eru margir með aðgang að síma
á flestum heimilum og það er erfitt
að standa í svoleiðis," segir Þórar-
inn.
Hann getur þess að verslunin sé
nýbúin að fá tæki sem sýni úr
hvaða númeri er hringt, aðallega til
öryggis fyrir sendla til að þeir verði
ekki plataðir og rændir. „Ég sé í
flestum tilfellum hver er að hringja.
Við erum með gagnabanka með öll-
um símanúmerum og heimilisfóng-
um og ef númerið, sem hringt er úr,
stemmir ekki við heimilisfang
hringjum við til að fá pöntunina
staðfesta. Það er sem betur fer lítið
um svona gabb en þegar það gerist
virðist sem fólk sé virkilega tekið í
gegn. Sendlarnir mínir segja að þeg-
ar þeir lenda í þessufiafi sendlar frá
öllum hinum pitsustöðunum verið
búnir að koma líka og einnig leigu-
bílar og sendibílar."
-IBS
Nokkrir piltar stóöu fyrir símaatinu:
Komu niðurbrotnir og báðu um fyrirgefningu
Pilturinn, sem ónáðaði nágranna-
fjölskyldu heila nótt nú í vikunni
með dónalegum símtölum, pitsu- og
leigubílasendingum og vakningu frá
Pósti og síma, var ekki einn að
verki. DV sagði frá ónæðinu í gær.
„Það komu til mín nokkrir niður-
brotnir piltar í morgun og báðu mig
fyrirgefningar," sagði heimilisfaðir-
inn í gær. „Þeir sögðu það tilviljun
að ég hefði orðið fórnarlamb þeirra,
það hefði alveg eins getað verið ein-
hver kennari eða skólastjóri. Þeir
voru að halda upp á eitthvað og ætl-
uðu að hrekkja einhvern sem þeir
þekktu allir. Þetta eru piltar nálægt
tvítugu og ég hafði verið liðsstjóri
þeirra í fótbolta."
Heimilisfaðirinn þekkti rödd eins
piltsins af segulbandsupptöku hjá
leigubílastöð. Hann ákvað að kæra
og hafði samband við lögfræðing
sem skrifaði lögreglustjóra bréf. „Ég
lét reiðina renna af mér áður en ég
hafði samband við móður piltsins. I
morgun kom svo pilturinn sjálfur til
mín ásamt nokkrum félögum sín-
um. Það varð að samkomulagi að ég
dreg kæruna til baka en þeir ætla að
slá saman fyrir þeim lögfræðings-
kostnaði sem ég hef þegar orðið fyr-
ir,“ greindi heimilisfaðirinn frá i
gær.
-IBS
Sýning til dýrðar heilögum Marteini frá Tours hefst í Hallgrímskirkju um helgina:
Var staöráöin í aðfæra klæöiö heim
„Ég er fædd og uppalin á Grenjað-
arstað og þess vegna fannst mér
þetta klæði tilheyra mér. Það er
sennilega eini íslenski listgripurinn
í Louvres-safninu og þegar ég var
þarna úti í nokkra mánuði í fyrra
var ég alveg staðráðin í þvi að færa
þetta klæði á einhvern hátt heim og
það myndi ég geta gert með því að
flytja það svona, í myndum. Ég leik
mér svolítið að þessu en reyni að
nota alveg sömu útfærslu á sögunni
og skreytingar sem ég nota tek ég úr
klæðinu," segir Þorgerður Sigurð-
ardóttir grafiklistakona.
Þorgerður hefur opnað sýningu á
tréristum sínum, sem byggðar eru á
refilsaumuðu altarisklæði úr Gren-
jaðarstaðarkirkju í Suður-Þingeyj-
arsýslu, í forsal Hallgrímskirkju.
Myndirnar eru byggðar á altaris-
klæðinu, sem segir sögu heilags
Marteins frá Tours. Heilagur Mart-
einn var verndardýrlingur kirkj-
unnar á Grenjaðarstað, kirkjan var
helguð honum í kaþólskum sið og
segir Þórunn að hann hafi ekki bara
verið dýrlingur heldur lika eigandi
kirkjunnar. í kaþólskum sið hafi
dýrlingarnir verið það.
„Ég raða myndunum misjafnlega
hátt upp. Sums staðar er ég með
krossform og hringlaga form. Mynd-
irnar eru allar mismunandi út-
færsla á þessu eina klæði og ég kafa
alls ekki mjög djúpt í það því að það
er mjög mikið af alls kyns tákn-
myndum í þessu klæði, sem ég er
alls ekki fær um að lesa. Á þessum
tíma, að kaþólskum sið, kunni fólk
að lesa táknin. Með siðskiptunum
varð mikil breyting. Þá komu upp-
lýsingar meira á prenti og þá týnd-
um við niður hæfileikanum að lesa
myndir," segir hún.
Myndirnar á altarisklæðinu segja
frá því þegar rómverski riddarinn
Marteinn sníður sundur skikkju
sína og gefur betlara annan helm-
inginn. Næstu nótt birtist Kristur
Marteini í draumi og Marteinn tek-
ur skírn og helgar eftir það líf sitt
Kristi. Myndirnar segja síðan frá
kraftaverkum sem hann gerir allt
þar til hann vígist til biskups, særir
burt djöfulinn, flæmir burt púka og
deyr. Heilagir biskupar fytja svo sál
hans til himnaríkis en djöflinum
mistakast afskipti að viðstöddum
munkum og nunnum.
Þorgerður segir að lítið sé vitað
um sögu altarisklæðisins. Líklega
hafl það verið gert í klaustri, trú-
lega í Reynisstaðaklaustri. Talið sé
að franski leiðangm'sstjórinn Paul
Gaimard hafi eignast klæðið hér á
landi árið 1836. Það hafi síðan kom-
ist í eigu Louvre-safnsins í Paris á
19. öld. Heilagur Marteinn var mik-
ils metinn dýrlingur. Hann var bisk-
up í Tours á 4. öld og er verndardýr-
lingur Frakka.
Á sýningu Þorgerðar eru 12 litlar
myndir og níu stórar og eru það allt
myndir sein hún vann síðasta haust
og hafa þegar verið á sýningu í
Gerðarsafni. Tréristur Þorgerðar
eru þrykktar með offsetlitum á
pappír og síðan er pappírinn límdur
upp á spjöld. Engar tvær myndanna
eru eins en sumar myndanna eru
mjög líkar því að sama formið er
notað, útskurðurinn er sá sami en í
mismunandi litum og raðað upp
með mismunandi hætti.
Sýningin er opnuð nú um helgina
og stendur fram á sumar. -GHS
Þorgeröur Siguröardóttlr grafikllstakona hefur opnaö sýningu á myndum sfnum um
sögu heilags Marteins frá Tours í Hallgrfmskirkju. DV-mynd GVA