Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1996, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
Fréttir
__ Hörö gagnrýni stjórnarandstöðu á tekjuskattsfrumvarpið:
Frumvarp um lækkun
skatta stóreignamanna
- en ekki um fjármagnstekjuskatt, segir Sighvatur Björgvinsson
„Verði þetta frumvarp um fjár-
magnstekjuskatt, sem svo er kallað,
að lögum er þar um að ræða mestu
tilfærslu fjármuna til stóreigna-
manna sem orðið hefur í þessu þjóð-
félagi. Þetta er ekki frumvarp um
fjármagnstekjuskatt. Þetta er frum-
varp um stórlækkun skatta hjá stór-
eignamönnum og þeirra sem hafa
tekjur sínar af að braska með verð-
bréf og skuldabréf. Og það er með
ólíkindum að samtök erfiðisfólks,
eins og ASÍ, skuli láta orða sig við
þessa skattalækkun stóreigna-
manna eins og nú er,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson alþingismaður
um fjármagnstekjuskattsfrumvarp-
ið sem meirihluti efnahags- og við-
skiptanefndar hefur afgreitt úr
nefndinni og búist er við að tekið
verði til umræðu á morgun.
„Ef við tökum dæmi af stóreigna-
fyrirtæki sem á mikið lausafé, þá
hefur vandamál eigenda slíkra fyr-
irtækja verið að ekki hefur verið
hægt að greiða út skattfrjálsan arð
nema 10 prósent af nafnvirði hluta-
bréfanna. Sú upphæð er síðan skatt-
lögð hjá eigendum fyrirtækjanna
með almennum tekjuskattsreglum,
sem eru 41 til 47 prósent. Þess vegna
hafa sum fyrirtæki ekki greitt út
arð til eigenda sinna heldur safnað
fé.
Nú gerist það að breytingar verða
á þessu með þessu frumvarpi að lög-
um um fjármagnstekjuskatt. Fyrir-
tækjum verður heimilt að uppfæra
til jöfnunar nafnverð fyrirtækja til
markaðsverðs. Markaðsverð hluta-
bréfanna er í flestum tilfellum
langtum hærra en nafnverð þeirra.
Síðan mega þau borga út skattfrjáls-
an arð sem samsvarar 7 prósentum
af hinu uppfærða nafnverði án þess
að borga af því skatta. Viðtakendur
arðsins þurfa ekki lengur að borga
nema 10 prósent í skatta samkvæmt
frumvarpinu í stað 41 til 47 prósenta
því um er að ræða flata 10 prósenta
skattprósentu á fjármagnstekjur,“
segir Sighvatur..
Hann segir að þarna sé því um að
ræða gríðarlegar eignatiífærslur í
bréf. Segjum að árlegur söluhagnað-
ur þeirra sé 6 milljónir króna. Af
þessum 6 milljónum munu þau
greiða 10 þúsund krónur í skatt.
Ástæðan er sú að skattleysis-
mörkin i þessu tilviki eru 5,9 millj-
ónir króna á ári. Þau greiða því
ekki skatt af nema 100 þúsund krón-
um og fjármagnstekjuskatturinn
verður 10 prósent. Það er sett þak á
þetta þannig að hjón mega ekki hafa
meira en 6 milljónir á ári í sölutekj-
ur af eignum sínum eða verðbréf-
um. Ef þau hafa meira í tekjur á að
skattleggja það sem umfram er með
þessu venjulega tekjuskattshlutfalli.
En sett er undir þennan leka á
öðrum stað með því að gefa hjónun-
um kost á því að fresta slíkri skatt-
greiðslu í tvö ár. Ef þau innan þess
tíma eru búin að selja hluta- eða
verðbréfin sem þau áttu og kaupa
sér ný geta þau framlengt óendan-
lega skattfrelsið," segir Sighvatur
Björgvinsson.
-S.dór
þjóðfélaginu. Síðan sé annað sem
kemur inn en það er í sambandi við
meðferð söluhagnaðar.
„Ég skal nefna dæmi sem skýrir
þetta mjög vel. Tökum dæmi af
hjónum með söluhagnað af verð-
bréfaeign, eins og gengur með stór-
eignafólk sem kaupir og selur verð-
Alþingi stóð til miðnættis. Hér sjást sessunautarnir Guðný Guðmundsdóttir
og Svavar Gestsson. DV mynd -GS
Alþingi:
Ovíst hvenær eldhús-
dagsumræðurnar verða
„Það er stefnt að því aö eldhús-
dagsumræðurnar verði á fimmtu-
dagskvöld en það er ekki víst að
það takist,“ sagði Ólafur G. Einars-
son, forseti Alþingis, í gær.
Ástæða þessarar óvissu er sú að
gert var ráð fyrir að þinglok yrðu
á laugardaginn kemur og þá hefðu
eldhúsdagsumræðurnar orðið á
fimmtudag. Nú er útlit fyrir að
þingstörfin dragist fram í næstu
viku og jafnvel til 15. júní og ef svo
fer seinkar eldhúsdagsumræðun-
um vegna þess að þær eru alltaf
rétt fyrir þinglokin.
-S.dór
„ Alþingi:^ ^
Morg stormal
bíða afgreiðslu
Mörg stórmál bíða afgreiðslu á
Alþingi. Því er útlit fyrir að þinglok
dragist fram yfir það sem áætlað
var. Sem dæmi um mál sem eftir er
að afgreiða má nefna frumvörpin
um úthafsveiðar, veiðar krókabáta,
réttindi og skyldur opinberra starfs-
manna, stéttarfélög og vinnudeilur,
breytingar á vörugjaldi, vörugjald
af ökutækjum, sem gárungar nefna
„jeppafrumvarpið“ vegna þess að
með því lækkar verð á dýrustu jepp-
unum, auk fjölmargra annarra mála
sem ekki eru jafn fyrirferðarmikil
og þau fyrrnefndu.
í gær stóðu umræður á Alþingi til
miðnættis. Og meðal mála sem af-
greidd voru eftir 3. umræðu í gær-
kvöldi var frumvarpið um fram-
haldsskóla
-S.dór
Dagfari
Villir hann, stillir hann
Ólafur Ragnar Grímsson mætti í
yfirheyrslu hjá þeim Merði og
Hannesi á dögunum. Þá hafði fram-
bjóðandinn enn einu sinni mælst
með stuðning helmings þjóðarinn-
ar á bak við sig. Frambjóðandinn
var vel greiddur að vanda, virðu-
legur og þó látlaus, yfirlætislaus og
vandaður í allri framgöngu. Ólafur
reið með björgum fram, villir
hann, stillir hann.
Jæja, Ólafur, ert þú í felum?
Það ánægjulega við þetta forseta-
framboð er hve margt fólk gefur
sig fram úr öllum landshlutum,
starfsstéttum og stjórnmálaflokk-
um til að lýsa yfir stuðningi við
okkur hjónin. Ég hef mætt á fjölda-
mörgum fundum, svo sem á Þórs-
höfn og Súgandafirði og þar hafa
komið þúsundir manna til að hlýða
á mál mitt og svo er viðtal við mig
í Degi og varla er hægt að segja að
ég sé í felum á meðan ég hef þessi
tengsl við almenning.
Nú er sagt að frambjóðendur
hafi engar skoðanir og forseti Is-
lands sé valdalaus?
Það ánægjulega við þetta forseta-
framboð er að fólk hefur tugum og
hundruðum saman gert sér grein
fyrir hvað embættið gengur út á og
mér hefur fundist það ánægjulegt
og uppörvandi að fólk sér mig í
þessu embætti vegna skoðana
minna og framgöngu.
Hefur forseti íslands þá einhver
völd?
Það ánægjulega við embætti for-
seta íslands er að hann beitir ekki
völdum sínum nema í neyðartilvik-
um, enda hef ég bent á það í
kennslu minni við Háskóla íslands
að völd forseta séu fólgin í því að
beita ekki völdum sínum. Þannig
mun ég haga mér ef ég verð forseti,
þegar ég verð forseti.
Getur þú starfað með Davíð
Oddssyni eftir að hafa sagt að hann
sé með skítlegt eðli?
Ég hef ekki lesið þingræður mín-
ar og margt sem ég hef sagt er sagt
í hita leiksins og ber ekki að taka
alvarlega. Það ánægjulega við um-
ræður í þinginu er einmitt að
menn taka þær ekki alvarlega.
En getið þið Davíð unnið saman?
Ég hef átt ánægjuleg samskipti
við Davíð Oddsson og við tölumst
oft við og það ánægjulega við slík-
ar samræður er að það kemur í ljós
að menn geta talað saman sem
ekki hafa áður talað saman. Að
minnsta kosti tala ég við Davíð og
ég á ekki von á öðru en hann svari
mér þegar ég er orðinn forseti, ef
ég verð forseti.
En er hægt að treysta þér, Ólaf-
ur, eftir að þú sveikst opinbera
starfsmenn hér um árið?
Svik mín við opinbera starfs-
menn voru þung ákvörðun, en tek-
in af fullri ábyrgð og það ánægju-
lega við slík svik er að þau geym-
ast í reynslusjóði sem kemur sé vel
í kosningabaráttu um forsetaemb-
ættið. Ég mun bera þennan kross
það sem eftir er ævinnar, en
reynslusjóður minn hefur dýpkað
og skilningur minn á eðli svika af
þessu tagi mun koma sér vel þegar
ég er orðinn forseti, ef ég verð for-
seti.
En getur maður sem hefur verið
í eldlínu stjórnmálanna orðið
sameiningartákn?
Það ánægjulega við þetta forseta-
framboð er að hitta fólk úr öllum
landshlutum, starfsstéttum og
stjórnmálaflokkum og finna þá
hlýju sem leggur frá þessu fólki og
sjálfum hefur mér margoft hlýnað
um hjartaræturnar og okkur hjón-
um báðuni og ég er þakklátur
þeirri samstöðu sem náðst hefur
um framboð mitt, sem sýnir.að
þátttaka mín í stjórnmálum er sá
reynslusjóður sem forseti þarf á að
halda og ég mun njóta þegar ég
verð forseti, ef ég verð forseti.
Hvað er þér efst í huga?
Það ánægjulega við þessar kosn-
ingar er sú vakning sem fer um
þjóðina og mér er efst í huga þakk-
læti til hennar fyrir þær ánægju-
legu viðtökur sem við hjónin höf-
um mætt. Villir hann, stillir hann.
Dagfari