Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Blaðsíða 18
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 jLlV
Ég var vakinn meö símhring-
ingu frá Austurríki kl. 7.10 að
morgni og einhver vildi fá_að ræða
við elsta son minn sem ætlar að
fara í háskólanám þar ytra. Þar
með var ég vaknaður og dreif mig
í sturtu og fékk mér lýsið mitt, AB-
mjólkina og banana sem er
ómissandi á morgnana.
Ég starfa sem íþróttakennari við
Flensborgarskóla og hef nýlokið
við að ganga frá því og langur og
strangur dagur var í vændum því
aö ég var að koma íþrótta- og
leikjanámskeiðum Æskulýðs- og
tómstundaráðs Hafnarijarðar,
ÆTH, af stað á sex stöðum í bæn-
um. Þarna eru um 700 krakkar á
öllum aldri við leik og störf og því
mikil undirbúningsvinna fram
undan.
Ég þurfti að fá lánaða aft-
aníkerru tU þess að flytja íþróttaá-
höld ýmiss konar á staðina sex.
Ég, eins og fleiri, er með GSM og
símboða á mér og þeir samkjöft-
uðu ekki allan daginn, fólk að for-
vitnast um námskeiðin og fleira.
Maginn kallaði á sitt
Áður en ég vissi var klukkan
orðin 12.30 og maginn kaUaði á sitt
sem var indælis gufusoðin ýsa og
með öUu tiUieyrandi frá konunni
minni. Ég reyndi að fá krakkana
mína yngstu til að borða fiskinn
Víðistaðakirkju og þar svitnaði
maður vel og dreif sig svo að ná í
yngstu dótturina á íþróttanám-
skeið rétt áður en ég fór á old boys
körfuboltaæfingu í Lækjarskóla-
húsi þar sem við félagamir spUuð-
um tU kl. 19 og gerum tvisvar sinn-
um í viku.
Og það er alveg ótrúlegt hvað
við berjumst og keppum tU sigurs
á svona æfingum, því það vottar
enn fyrir keppnisskapinu í manni
og enginn þolir að tapa því þá er
mönnum mikið strítt.
Fundur hjá FH
Eftir að hafa farið í sturtu varð
ég að þjóta heim, áöur en ég fór á
stjórnarfund hjá FH handknatt-
leiksdeUd kl. 20-22 í Kaplakrika og
var þetta síðasti fundur tímabUs-
ins og aðaltUefnið var að mark-
vörður s-kóreska landsliðsins var
að koma til landsins tU að leika
með FH næsta tímabil. Nú, margt
var gert á fundinum, svo sem aö
ráða þjálfara fyrir næsta tímabil
o.fl.
Klukkan var langt gengin í 23
þegar ég komst loksins heim tU að
fá mér að borða og horfa á sjón-
varpið og ræða við fjölskyldumeð-
limi, en þá gaU síminn við og
hringt frá golfveUi KeUis þar sem
sá næstelstfvar í golfi og vildi láta
sækja sig. Upp úr miðnætti fór ég í
draumalandið, þreyttur og sáttur
við tUveruna.
Geir Hallsteinsson iþróttakennari stjórnar íþrótta- og leikjanámskeiöum í Hafnarfirði og er þaö í 30. sinn. Hann
segist muna eftir mörgum þekktum mönnum í þjóölífinu sem rollingum i den. DV-mynd
Dagur í lífi Geirs Hallsteinssonar íþróttakennara:
Skipuleggur námskeið
og fundar hjá FH
en gekk svona hálfilla. Ótrúlegt
hvað krakkar eru latir við að
borða fisk, eins og hann er hoUur
og góöur.
Kl. 13 skutlaði ég þeim elsta í
vinnuna og heimsótti nokkra staði
á námskeiðinu og var mikið glað-
ur hve aðsóknin ætlaöi að verða
góð þetta sumarið, kannski er það
góða veðrið og aUir í góðu skapi
þessa dagana, hver veit? Þetta er
30. árið sem ég stjórna þessum
námskeiðum og man meira að
segja eftir mönnum eins og Guð-
mundi Árna Stefánssyni, alþingis-
manni í dag, sem litlum rolling á
námskeiðinu i den. Ótrúlegt hvað
árin líða hratt og sérstaklega þeg-
ar maður eldist. Þetta er eins og
jámbrautarlest á fullu.
Svitnaði
í tennis
Klukkan var langt gengin í 17
þegar ég dreif mig í tennis með
yngsta syni mínum á vöUinn við
Finnur þú fimm breytingar? 362
Eyjólfur er mjög stundvís. Hann hringir alltaf klukkan 17.32 og seg-
ist veröa of seinn í kvöldmat.
Nafn:
Heimiii:
©PIB
... COPIftNKIN
Vmningshafar fyrir þrjú hundruð og sextugustu
getraun reyndust vera:
1. Fjóla Sigurðardóttir
Bröttugötu 18
900 Vestmannaeyjar
2. Valgeir Árni Ómarsson
Norðurvangi 20
220 Hafnarfjörður
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni tU hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þess'i fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni tU hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimUisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó meö útvarpi að
verðmæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeif-
unni 7, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík...
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 362
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík