Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Page 34
jrimm
DV myndir GS
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996
Margrét Jónsdóttir komin í frí eftir 10 ára starf: 50q j Húsasmiðjuhlaupi
taf haft mestan áhuga
nninum í sófanum"
- fólk á að trimma ánægjunnar vegna og einhæfni
er varasöm og eykur líkur á álagsmeiðslum
Margrét Jónsdóttir, íþróttakennari viö kennslu, hress aö vanda.
Fyrsta Grindarvíkurhlaupið
Sigurvegararnir í flokki karla ,50 ára og
eldri, í fyrsta Grindavíkurhlaupinu féllust á
aö vera kallaðir „öldungar”, væri oröiö haft
innan gæsalappa. F.v. Sigurjón frá Námsfl.
Rvk, sem var í fyrsta sæti, Hafsteinn
skipstjóri og heimamaöur, Sæmundsson I
ööru sæti og Grétar G. Guðmundsson, úr
■ Trimmklúbbi Seltjarnarness, sem varð I
þriöja sæti. DVmyndÓG
••• framundan...
Hlaupið á Akranesi
Akraneshlaup 1996 verður
laugardaginn 15. júni nk.
klukkan 12. Vegalengdir verða
3,5 km, 10 km og hálfmaraþon.
Skráning er hjá ferðamálafull-
trúa á Akranesi í síma 431 3327
og í Reykjavík á skrifstofu
UMFÍ, Fellsmúla 26. Kvittun
fyrir greiðslu þátttökugjalds
veitir helmingsafslátt á far-
gjaldi Akraborgar.
Hópferð á
Mývatns maraþon
Nokkrir félagar í hlaupahópi
Námsflokka Reykjavíkur hafa
ákveðið að efna tii hópferðar að
Mývatni í byrjun júlí nk. vegna
maraþonhlaupsins þar. Ætlun-
in er að leggja af stað frá
Reykjavík eftir hádegi 4. júlí en
hlaupið verður þann sjötta.
Kostnaður við akstur og gist-
ingu er áætlaður um 8000 krón-
ur á mann. Frekari upplýsingar
fást hjá Pétri Frantzsyni, hs.
5514096 og vs. 5512992.
Ég trúi því aö með réttri og hæfi-
legri hreyfmgu og útiveru megi fyr-
irbyggja ýmiss konar sjúkdóma og
kvilla sem hrjá manneskjuna, sagði
MargrétJónsdóttir, íþróttakennari
og forustumaður- um almennings-
íþróttir, í viðtali við DV. Tilefnið
var að eftir tæplega ellefu ára þátt-
töku, og lengst af forustu í almenn-
ingsíþróttum á
Seltjarnarnesi,
tekur Margrét
sér nú hlé frá
störfum. Hve
langt það hlé
verður á eft
ir að koma
í ljós.
Þetta
hófst allt
árið 1985,
þegar hald-
inn var
trimmdagur
hér á Nesinu,
undir forustu
Unnar
Ágústsdóttur
kennara, seg-
ir Margrét.
Þar fengum
við fyrirlesara
og leiðbeinendur og kynntum
göngu, skokk, leikfimi og sund. Síð-
an varð úr að einn fyrirlesaranna,
Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir,
hóf að leiðbeina okkur í skokkinu
einu sinni í viku. Þetta hlóð síðan
utan á sig og síðustu sex árin hef ég
verið í hálfu starfi hjá Seltjarn-
arnesbæ við umsjón og skipulag al-
menningsíþrótta.
Trimmklúbbur Seltjarnarness er
elstur slíkra félaga á höfuðborgar-
svæðinu. Starfsemin hefur ávallt
verið blómleg og á árum áður, þeg-
ar hóparnir voru færri, komu oft
sextíu til áttatíu manns til upphit-
unar hjá Margréti fyrir skokk. Auk
þess hefur ávallt verið boðið upp á
leiðbeiningar fyrir þá sem vilja
ganga og einnig hefur hún verið
með vatnsleikfimi í Sundlaug Sel-
tjarnarness. Árið 1991 var síðan
haldin hreystivika á Seltjarnarnesi,
með stuðningi Trimmnefndar ÍSÍ,
bæjarfélagsins og fleiri aðila.
Hreystivikur voru síðan endurtekn-
ar nokkrum sinnum síðar. Seltjarn-
arnes var þarna í forustu bæjarfé-
laga á landinu.
Ég hef ávallt haft mestan áhuga á
þeim sem eru að stíga fyrstu skref-
in í trimminu. Stundum kalla ég
þessa byrjendur „mann-
inn úr- sófanum",
sem er þá samheiti
fyrir alla þá sem eru
að byrja
aftur
lík-
amsrækt eftir áralangt hlé eða jafn-
vel í fyrsta skipti. í byrjun er nauð-
synlegt að fara sér hægt, ætla sér
ekki um of. Mitt meginmarkmið
hefur ávallt verið það að fólk eigi að
koma ánægjunnar vegna en ekki af
skyldu. Við verðum að læra að njóta
hreyfingarinnar, tíminn og hraðinn
skiptir ekki máli, slíkt kemur
seinna hjá þeim sem það vilja.
Líkamsrækt
fremur en
kokkteilbofl
„Það verður stööugt algengara að
við bjóðum erlendum gestum okkar í
miðnæturgolf eða skokk, fremur en að
efna til kokkteiiboða eða veislu-
halda,“ sagði Árni Þór Árnason, for-
stjóri Austurbakka hf., sem meðal
annars flytur inn lyf og lækninga-
tæki. Um sfðustu helgi átti fyrirtæki
hans þátt í að bjóða norrænum gigtar-
læknum til 5 km skokks á Seltjarnar-
nesi, undir stjórn Margrétar Jónsdótt-
ur íþróttakennara. Ekki var annað að sjá en læknarnir væru hinir ánægð-
ustu þar sem þeir komu másandi og blásandi í mark, rjóðir og sællegir.
Árni sagðist hafa veitt því athygli að nú tíðkaðist það stöðugt meir að
kaupsýslumenn á alþjóðlegum vörusýningum skelltu sér í sundlaugar eða
líkamsræktarsali hótelanna í stað þess að bregða sér á barinn að loknum
vinnudegi. Einkum ætti þetta við yngri aldurshópana. Hinir eldri héldu sig
fremur við gömlu hættina.
Margrét Jónsdóttir, og Árni í
Austurbakka aö loknu skokki
norrænu giktarlæknanna.
Hreyfing þarf að vera fjölbreytt, ein-
hæfni er varasöm og eykur líkur á
álagsmeiðslum,
Á næstunni mun Margrét Jónsdótt-
ir þjóna ferðamönnum á gistihúsi
fjölskyldunnar, Gesthúsi Dúnu, í
Kópavogi. Ekki hverfur hún þó al-
veg frá líkamsræktinni því að kon-
ur i Ráðhúsi Reykjavíkur fengu
hana til að sjá um leikfimi fyrir sig
í hádeginu í sumar.
Hóflegt skokk
ekki slæmt
fyrir hnén
Nýjar 'bandarískar rannsóknir,
sem stóðu í níu ár, benda til þess að
skokkurum, sem hlaupa hóflega, sé
ekki hættara við hnjámeiðslum en
jafnöldrum þeirra sem halda kyrru
fyrir. Fólk með heilbrigð liðamót
getur fast að því skokkað til ævi-
loka, segir í niðurstöðum. Auk þess
eru minni líkur á að skokkar-
arnir fái aðra líkam-
lega sjúkdóma þeg-
ar árin færast yfir.
Skokk og önnur útivist
leiði einnig til
þess að fólk
verði yfirleitt
virkara félagslega en það bæti geðið
til muna. Hvatt er til þess að
hefja skokk með hóflegri
blöndu af hlaupi og
rösklegri göngu.
Síðan má lengja
vegalengdir og auka hraðann.
Ávallt á að nota vandaða skó og
gæta þess að æfa ekki ef eitthvað
amar að í fótum.
(American Health, júní ’96)
2.vika. 9/6-15/6
Húsasmiðjuhlaupið fór fram
síðasta laugardag í maí.
Skemmtiskokk fór fram bæði í
Reykjavík og Hafnarfirði. 20
km og hálfmaraþon var síðan
hlaupið i Hafnarfirði. Sigurveg-
ari í hálfmaraþoni varð Ingólf-
ur G. Gissurarson á 1.16,51. ívar
T. Jósafatsson skeiðaði síðan 10
km á 36,27 fremstur manna.
Þátttakendur voru 478 samtals.
Þverfellshorn
- en ekki -tindur
í frásögn af Esjugöngu nokk-
urra garpa, sem birtist sl. laug-
ardag, varð okkur á að segja þá
hafa gengið á Þverfellstind á
Esju. Auðvitaö var gengið á
Þverfellshorn enda ekki vitað
um neinn tind með því nafni á
fjallinu. Ferðafélag Islands lét
reisa útsýnisskífu á Þverfells-
horni tfl heiðurs Jóni Víðis
ferðamálafrömuði. Þar er
geymd gestabók þar sem flestir
þeir sem þangað ganga rita
nafn sitt.
Götum líklega
lokað í
Reykjavíkur
maraþoni
Ekki er annað vitað en götum
í Reykjavík, þar sem hlaupið
verður um í Reykjavíkurmara-
þoni síðar í sumar, verði lokað
eins og gert var í fyrsta skipti í
fyrrasumar. Ágúst Þorsteins-
son framkvæmdastjóri sagði að
viðræður væru hafnar við lög-
regluyfirvöld í Reykjavík vegna
þessa og fleiri atriða sem mara-
þonhlaupið varðar.
Lokun gatna, þegar
fjölmenn götuhlaup
fara fram, tíðkast í
flestum stórborgum
aö sögn Ágústs og
þykir sjálfsagt
öryggisatriði.
Sagðist hann von-
ast til að svo yrði
einnig hér til fram-
búðar. Vandamál
vegna lokunar
gatna í Reykjavík
væru varla meiri
en í New York,
Boston, Los Angeles
eða Löndon. Flestir bíl-
stjórar sýndu líka
skilning og þolinmæði
þótt einhverjir sýndu
óþolinmæöi sína í verki.
Umsjón
Olafur Geírsson
■ r U ,
10 km 21 km 42 km
Sunnudogur 5 km ról. 14 km ról 18 km ról.
Mónudogur Hvild Hvitd Hvíld
Þriðjudagur 6 km (Hraðaleikur) 10 km (Hraðcleikur) 10 km (Hraðaleikur).
Fyrst 1 km ról. og siðon Fyrst 2 km ról.og siðan Fyrsl 2 km ról.og siðon
1 km hrott til skiptis. 2 km hrott til skiplis 2 km hrolt til skiptis somtols
somtols 4x1 km. Siðon somtols 4x 2 km. Siðon 4x 2 km. Siðon 2 km. ról.
2 km. ról. i lokin 2km ról. ilokin. i lokin.
Miövikudogur 4 km ról. 7 km ról. 12kmról.
Fimmtudagur Hvíld 6 km jolnt 8 km jofnt
Föstudagur Hvild Hvdd Hvild
Laugardogur Akraneshlaup Akraneshloup Akraneshlaup
3.5 km 10 km 21 km
Somt: 18.5 km. 47 km Ó9km JBH
VOLVO
S40
er styrktaraðili
Reykjavíkurmaraþonsins
FLUGLEIÐIR
mMm
0
If