Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1996, Side 56
LT3
Veður á sunnudag
og mánudag:
Áfram kalt
fyrir norðan
og austan
Fremur hæg breytileg átt
verður á sunnudag og mánudag
og skúrir, einkum síðdegis. Hiti
verður fjögur til þrettán stig,
hlýjast í innsveitum suðyestan
til en kaldast við norðaustur-
ströndina.
Samkynhneigðir mega ganga í vígða sambúð 27. júní:
■■■ •• ■ ■■
Fjoldi para
hyggst taka borg-
aralegri vígslu
- erum að sleppa inn í 20. öldina, segir formaður Samtakanna 78
„Það verður mikill hátíðisdag-
ur hjá okkur þann 27. júní þegar
hjúskaparlöggjöf fyrir samkyn-
hneigða gengur í gildi, sú fyrsta í
sögunni hér á landi. Og það er
einmitt 27. júní sem er alþjóðlegur
frelsisdagur samkynhneigðra. Því
er þetta einstakur hátíöisdagur
fyrir okkur. Þetta verða okkar
aldamót, við erum að sleppa inn í
20. öldina. Ég veit ekki hve marg-
ar vígslur verða framkvæmdar
hjá sýslumanninum í Reykjavík
þennan dag. Ég gæti giskað á að
þær yrðu nærri einum tug,“ sagði
Margrét Pála Ólafsdóttir, formað-
ur Samtakanna 78, í samtali við
DV.
Alþingi samþykkti fyrir
skömmu lög sem heimila samkyn-
hneigðum að ganga í borgaralega
sambúð. Það verður eingöngu um
að ræða borgaralega vígslu. Kirkj-
an er undanskilin því að vígja
samkynhneigða. Þannig er það
líka annars staðar á Norðurlönd-
unum, að sögn Margrétar Pálu.
„Hinar Norðurlandaþjóöirnar
hafa riðiö á vaðið með þessa teg-
und réttinda og nú er ísland kom-
ið í hópinn. Það hefur engin þjóö
gengiö lengra en við í þessum
málurn," segir Margrét Pála.
Þá vaknar spm-ningin um ætt-
leiðingu bama þegar búið er að
vígja fólk í sambúð?
„Þar er klípan. Eini bamarétt-
urinn er sameiginlegt forræði ef
annar aðilinn í staðfestri sambúð
er með forræði bams. Þá verður
sameiginlegt forræði yfir baminu
og báðir aðilar geta verið fulltrú-
ar þess. Ef kynforeldri fellur frá
mun uppeldisforeldrið taka við.
Enda þótt þetta sé stökkbreyting
fr am á við fyrir okkur gerðum við
okkur lengi von um að stjúpætt-
leiðing myndi fylgja en það náðist
ekki. Það era vonbrigði. Eins er
frumættleiðing og tæknifrjóvgun
enn eins langt frá okkur og kirkj-
an. Það eru því kirkjan og krakk-
arnir þar sem fordómamir lifa
enn þá. Og þannig er það alls stað-
ar þar sem sambúð samkyn-
hneigðra hefur verið staðfest.
Þess vegna segi ég, við erum að
koma heim úr útlegð en á skil-
orði,“ sagði Margrét Pála Ólafs-
dóttir. -S.dór
JLwmrnmm§mr
Verta viðbúinfnj vúutmgi
Herdís Storgaard:
Líklega
til land-
læknis
Sterkar líkur eru á að Herdís
Storgaard, barnaslysavarnafulltrúi
hjá Slysavarnafélagi Islands, fari til
starfa fyrir landlæknisembættið
þegar hún lætur af störfum hjá
Slysavarnafélaginu í sumar.
Eins og fram kom í DV í gær hef-
ur Herdís sagt upp störfum hjá
Slysavarnafélaginu vegna óánægju
og samstarfsörðugleika á skrifstofu
félagsins.
Ólafur Ólafsson landlæknir vildi
ekki ræða þetta mál þegar DV leit-
aði eftir því í gær. -GK
V
Sunnudagur
' og mánudagur
Gestur Hjaltason fyrír framan versl-
un sína.
Kjarval á Hellu:
Þögul mót-
mæli íbúanna
íbúar á Hellu höfðu í frammi þög-
ul mótmæli fyrir framan verslunina
Kjarval í gær. Búðin hét áður, Höfn-
Þríhyrningur. Samnefnt fyrirtæki
hefur nú opnað breytta verslun á
Selfossi sem er að keppa við 10-11
sem nýlega opnaði útibú þar í bæ.
íbúar á Hellu óttast að í kjölfarið
flytjist fjármagn og atvinna í burtu
frá byggðarlaginu.
Mótmælin fóru þannig fram að
fólk lagði bdum sínum fyrir utan
Kjarval með spjöld í gluggum þar
sem meðal annars stóð á „atvinnu í
héraði“ og „við viljum að fjármagn-
ið stoppi hér heima og verði til at-
vinnuuppbyggingar." Að sögn Gests
Hjaltasonar framkvæmdastjóra
Hafnar-Þríhymings eru þessi mót-
mæli á misskilningi byggð. Fyrir-
tækið hafi til dæmis lagt 10 miljón-
ir króna í uppbyggingu á fullkomnu
sláturhúsi. Aðspurður kvaðst hann
lítast vel á aukna samkeppni á
markaðnum með tilkomu nýju 10-11
versluninni á Selfossi. - Jón Ben
LAUGARDAGUR 8. JUNI 1996
Móðir og tvö
börn slösuðust
Móðir og tvö börn hennar slösuð-
ust þegar bíll valt í lausamöl
skammt sunnan Hólmavíkur í
fyrrakvöld.
Voru hin slösuðu flutt undir
læknishendur á Hólmavík en reynd-
ust ekki alvarlega slösuð. Þau höfðu
hlotið mar og skrámur og fengu að
fara heim að skoðun lokinni. -GK
Slydda fyrir austan:
Fjallvegir
að teppast
Hellisheiði eystri - milli Vopna-
fjarðar og Héraðs - var orðin þung-
fær vegna snjóa síðdegis í gær.
Slydda hafði þá verið víða á Aust-
fjörðum, grátt í föllum og sumstaðar
krapi allt niður í flæðarmál. Hiti
var rétt yfxr frostmarki og vetralegt
um að litast. -GK
Í
ý
i
i
i
I i
i
i
Hvað er betra en púla léttklæddur í sumri og sól? Þessir strákar, sem voru að malbika Njarðargötuna, nutu sin vel i
blíðunni. Nú standa yfir miklar malbikunarframkvæmdir vítt og breitt enda hafa naglarnir spænt upp malbikið á snjó-
léttum vetri. DV-mynd GS
Þrírbílar é
stórskemmdir ^
Þrír bílar stórskemmdust í hörð-
um árekstri á Nýbýlavegi i Kópa-
vogi eftir hádegið í gær. Farþegi úr
einum bílnum fór á slysadeild en
reyndist ekki alvarlega slasaður.
Bilarnir voru allir fluttir á brott
með kranabíl og er jafnvel talið að
tjónið geti numið milljónum. -GK
Smuguveiðar:
Nefnd á fund
Norðmanna
í gær héldu utan embættismenn-
irnir Guðmundur Eiríksson, Árni
Kolbeinsson og Albert Jónsson til
að taka þátt í viðræðum við Norð-
menn og Rússa í dag um Smugu-
veiðar. Áætlað er að fundurinn
standi í dag en framhald gæti orðið
á morgun ef efni standa til. -GK
Selfoss:
i
i
i
i
*
ist i
Ökumaður og barn slösuðust í
hörðum árekstri á Selfossi síðdegis
í gær. Tveir bílar skullu saman á |
mótum Engjavegar og Tryggvagötu.
Hin slösuðu voru flutt á heilsu- i
gæslustöðina til rannsóknar. Bil- |
arnir eru mikið skemmdir og varð i
að kalla út slökvilið til að hreinsa
olíu af götunni. -GK
OPEL
Opel flstna
Verð kr.
1.199.000.-
Bílheimar ehf.
Sœvarhöíba 2a Sími: 525 9000
FRÉTTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fulirar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
KIN