Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Page 2
2
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ1996
Fréttir
Sex ára drengur hlaut varanlega áverka á þremur fingrum í rúllustiga i Kringlunni:
Bitar rifnuðu úr þremur
fingrum og einn brotnaði
- segir Ragnar Georgsson verslunarmaður sem fyrstur kom drengnum til hjálpar
„Ég stökk strax út úr spilasalnum
þegar ég heyrði öskrin í stráknum.
Hann var þá staðinn upp og á leið
upp hinn stigann á eftir félaga sín-
um. Ég náði honum uppi á stigapall-
inum og fór með hann niður afttn-,“
segir Ragnar Georgsson, verslunar-
maður og starfsmaður í spilasalnum
Galaxy í Kringlunni.
Hann kom um klukkan eitt í gær-
dag að sex ára gömlum dreng sem
hafði fest sig í rúllustiga i suöur-
enda Kringlunnar með þeim afleið-
ingum að hann skaddaðist á þremur
fingrum og einn þeirra brotnaði.
Ragnar segir að bitar á stærð við
neglur hafi rifnað upp úr litlafingri,
baugfingri og löngutöng rétt fyrir
neðan hnúana.
„Það voru hjón stödd við spilasal-
inn og þau aðstoðuðu við að vefja
eldhúsrúllu um sárið á meðan leitað
var eftir sjúkrabíl og reynt að hafa
samband við foreldra drengsins,"
segir Ragnar.
Drengurinn var á fjórða tíma í
gær í aðgerð á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur þar sem tókst að bjarga fingr-
um hans. Faðir drengsins sagði þó
við DV í gær að enn væri of snemmt
að segja hversu alvarlegan og var-
anlega skaða hann hlyti af. Faðirinn
segir að ekki verði eftirmál af slys-
inu gagnvart Kringlunni enda um
óviðráðanlegt slys að ræða.
Ragnar Georgsson segir að dreng-
urinn hafi borið sig vel þó mikið
hafi blætt úr fmgrunum. Hann gat
þó ekki gert nákvæmlega grein fyr-
ir hvemig hann festi sig í rúllustig-
anum.
„Annaðhvort hefur hann dottið
eða setið neðst í tröppunum. Fing-
urnir hafa lent í raufinni milli
trappnanna þegar stiginn fer undir
gólfið," segir Ragnar.
Zophanías Sigurðsson, tækni-
stjóri í Kringlunni, sagði við DV að
aldrei væri of brýnt fyrir foreldrum
að hafa gát á bömum sínum og að
þau mættu ekki vera að leik í rúllu-
stigunum.
„Rúllustigarnir eru öruggir ef
rétt er farið að við notkun þeirra.
Börn vita ekki hlvað er hættulegt og
hvað ekki og því verða foreldrar eða
forráðamenn barna að sjá til þess að
þau noti ekki stigana sem leiktæki,“
sagði Zophanias.
-GK
Þjoðvaki:
Jóhanna
endurkjörin
Jóhanna Sigurðardóttir var
einróma endurkjörin formaður
Þjóðvaka 1996-1997 á landsfundi
hreyfingarinnar í Viðey á laugar-
dag, Svanfriður Jónasdóttir var
Kjörin varaformaður og Ágúst
Einarsson ritari hreyfingarinnar.
Á fundinum flutti Jóhanna
skýrslu stjómar og fjallaði um
stjómmálaviðhorfið og þingmenn
ræddu þingstörfin í vetur.
í stjórnmálaályktun af lands-
fundinum var lýst yfir andstööu
við stefnu ríkisstjórnar Daviös
Oddssonar. „í stað gamaldags
hugmyndafræði ríkissfjómar-
flokkanna er þjóðinni nauðsyn að
lausnir jafnaðarmanna setji mark
sitt á landsstjórnina," segir meðal
annars í ályktuninni.
Þjóðvaki krefst þess að veiði-
leyfagjaldi verði komið á í sjávar-
útvegi, sambærilegt orkugjald viö
nýtingu orkulinda og vill fá nýjan
búvörusamning sem sé hagkvæm-
ur neytendum og bændum. Hreyf-
ingin vill öflugt velferðarkerfi og
telur að ríkisstjórnin hafi ráðist
harkalega á heilbrigðis- og vel-
ferðarkerfi landsmanna síðustu
misseri.
Þjóövaki vill samráð og bætt
skipulag á vinnumarkaði, jafnari
tekjuskiptingu og að stóreigna-
menn beri byrðarnar auk þess
sem grundarvallarbreytingar
þurfi á sfjómskipun með auknum
rétti til þjóðaratkvæðis, svo eitt-
hvað sé nefnt. -GHS
Reykjavík:
Þrír fíklar og tólf
stútar teknir
Annasamt var hjá Reykjavíkur-
lögreglunni um helgina og vom
m.a. tólf ökumenn teknir í gær-
morgun, grunaöir um ölvun við
akstur. Þá hafði gleðskapur verið
í borginni alla nóttina sem og að-
faranótt sunnudagsins. Þá vora
þrír menn, grunaðir um fíkni-
efnaneyslu, teknir. -GK
Talið er að veltigrind og bílbelti hafi komið í veg fyrir stórslys þegar breyttur Bronco-jeppi valt í Svínahrauni í gær.
Tvennt var í bílnum og slapp meö óveruleg meiösl en bíllinn skemmdist töluvert. DV-mynd S
Herdís Storgaard um ályktun þings Slysavarnafélagsins:
Ég mun ræða við þau
- nýkjörinn forseti lýsir trausti á Herdísi
mundu ræða við stjómina og Esther
um ágreininginn samkvæmt álykt-
uninni á þinginu.
Á þinginu ritaði meirihluti fund-
armanna nöfn sín á undirskrifta-
lista til stuðnings Herdísi og var
hann afhentur Gunnari Tómassyni,
forseta Slysavarnafélagsins. Gunnar
var kjörinn forseti á þinginu um
helgina í stað Einars Sigurjónsson-
ar sem gaf ekki á sér. Gunnar er
hlynntur því að leita leiða til að
halda Herdísi áfram hjá félaginu og
hefur lýst því yfir aö félagið beri
mikið traust til hennar.
Tillaga þess efnis aö sameina
starf forseta SVFÍ og framkvæmda-
stjóra félagsins var felld á þinginu
um helgina.
-Ótt
Jóhanna Siguröardóttir:
Hittumst til að
ræða ný skref
að sameiningu
Jóhanna Sigurðardóttir, nýkjör-
inn formaður Þjóðvaka, segir að ný-
kjörin stjóm hreyfingarinnar muni
hittast fljótlega til að ræða hvemig
hún geti markaö ný skref í átt að
sameiningu jafnaðarmanna. Ekkert
geti þó skeð i þá átt nema hinir
flokkarnir séu tUbúnir til að koma
áð borðinu með því hugarfari að
setja ágreiningsmál til hliðar og
vinna að því sem sameiningar en
ekki sundrar.
Jóhanna segir aö eindrægni og
samstaða hafi ríkt á landsfundi
Þjóðvaka sem haldinn var um helg-
ina, bæði varðandi menn og mál-
efni. Umræðumar hafi að mestu
snúist um sameiningarmálin en
Þjóövaki hafi litla trú á kosninga-
bandalagi A-flokkanna, eins og rætt
hafi verið um. Flokkamir þurfi að
sameinast. Það hafi verið sýnt fram
á að enginn stór ágreiningur sé
milli flokkanna nema ESB. -GHS
„Ég á eftir að sjá hvað aðilar
vilja. Ég mun ræða málin við þá.
Það kom fram mikill vilji fólks og
áhugi á að greiða úr þessum mál-
um,“ sagði Herdís Storgaard, full-
trúi hjá Slysavarnafélagi íslands,
um ályktun sem kom fram á þingi
SVFÍ þar sem skorað var á sljóm fé-
lagsins, framkvæmdastjóra og Her-
dísi að leita leiða til að koma í veg
fyrir að Herdís léti af störfum.
Herdís sagði starfi sínu lausu um
síðustu mánaðamót. Hún kvaðst í
gærkvöld ekki vilja tjá sig um
ástæður uppsagnarinnar - hún
hefði vissulega gert Esther Guð-
mundsdóttur framkvæmdastjóra
grein fyrir henni. Hún kvaðst síðan
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringla í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Jé |lj
Nel 2 I
,r ö d d
FOLKSIN
904-1600
Á að leyfa áfengisauglýsingar í
íslenskum fjölmiðlum?
Annaðhvort hefur hann dottið eða
setið neðst í tröppunum. Fingurnir
hafa lent í raufinni milli trappnanna
þegar stiginn fer undir gólfið,“ segir
Ragnar Geórgsson sem fyrstur kom
drengnum til hjálpar. DV-mynd GS
Stuttar fréttir
ísland er fyrirmyndin
fslenskur læknir tekur þátt í endur-
uppbyggingu heilbrigðiskerfisins í
Bosníu-Hersegóvinu með íslenska kerfið
að fyrirmynd. Sjónvarpið greindi frá.
Diddú söng í Róm
Diddú söng einsöng við stórmessu i
Péturskirkjunni í Róm í gærmorgun og
varð til þess fyrst kvenna. Kvennakór
Reykjavíkur söng. Sjónvarpið sagði frá.
Hágöngumiölun verði slys?
Náttúruunnendur telja að fyrirhuguð
Hágöngumiðlun verði umhverfisslys, að
sögn Sjónvarps. Landsvirkjun hefur
kært úrskurð um frekari rannsóknir til
ráðherra.
Tilkynningaskylda flutt?
Rætt er um að flytja tilkynninga-
skyldu skipa frá Slysavamafélaginu til
Landhelgisgæslu í andstöðu við félagið,
að sögn RÚV.
íslendingar fengu mest
íslendingar fengu langmest fé allra
evrópskra rílga í Marshall-aðstoð frá
Bandaríkjunum því stjómvöld sögðu
hana auðvelda uppbyggingu herstöðvar.
RÚV sagði frá.
Ný byitingarkennd aðferö
Ný aðferð við meðferð slitgigtar getur
gert erfiöar skurðaðgerðir óþarfar.
Læknar tala um byltingu. RÚV greindi
frá.
Foröast stærðfræðinám
Stúlkur hafa ekki sótt jafnmikið í
stærðfræðitengt nám og konur hafa sótt
í langskólanám. Þær em aöeins 25%
þeirra sem ljúka námi af stærðfræði-
braut. RÚV sagði frá.
Kemur í lokjúli
Flóttafólkið frá Bosníu kemur í síð-
asta lagi í lok júlí. Verið er að undirbúa
komu þess á ísafirði. Útvarpið greindi
frá.
Láglaunahópar greiða
Landsþing Sjálfsbjargar telur að
stjómvöld láti láglaunahópa greiða nið-
ur halla ríkissjóðs. Stöð 2 sagði ffá.
Ákvörðun vekur athygli
Ákvörðun Alþingis að leyfa vígslu
samkynhneigðra hefur vakið mikla at-
hygli i Finnlandi, skv. RÚV.
Kjalvegur opnaður
Kjalvegur hefur verið opnaöur þrem-
ur vikum fyrr en í fyrra. Gróður er far-
inn að laufgast og ferðamenn famir að
sjást. Útvarpið sagði ffá.
Kenndi hárgreiðslu í Kína
íslensk hárgreiðslukona fór til Kina
til að kenna hárgreiðslu á vegum banda-
rísks hárgreiðsluskóla. RÚV greindi ffá.
-GHS