Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1996, Page 21
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996
sviðsljósn
Stór og stæltur
Roberta Flack stjórnar nú sínum
eigin útvarpsþætti og syngur við
viss tækifæri.
Antonio Sabáto yngri skartar
sínu fegursta yfir Tímatorgi í New
York þessa dagana en margir kann-
ast við hann úr sjónvarpsþáttunum
General Hospital og Melrose Place.
Hann auglýsir nærfót fyrir Cctlvin
Klein á þrjátíu metra háu ljósaskilti
og er Antonio því líklega með
stærstu magavöfða í New York um
þessar mundir. Svipuð skilti munu
verða sett upp víðar í stórborgum
Bandaríkjanna, til dæmis í í Los
Angeles.
Flottur náungi Antonio Sabáto sem
margir kannast við úr Melrose Place
og General Hospital.
Roberta Flack
kærastan
hamingjusöm
I
aftur í sviðsljósið
Endurútgáfa hljómsveitarinnar
The Fugees á laginu Killing Me Soft-
ly sem Roberta Flack söng á áttunda
áratugnum hefur ýtt henni aftur inn
í sviðsljósið. Flack gerði vinsæl lög
eins og The First
Time Ever I
Saw Your
Face og Kiil-
ing Me
Softly og
vann til
nokkurra Grammy-verðlauna á sín-
um tíma. Söngkonan er nú 57 ára og
er enn þá að. Hún söng fyrir fullu
húsi í Radio City Music Hall í maí.
Flack er með sinn eigin útvarpsþátt
þar sem hún leikur tónlist og minn-
ist ára sinna í poppbransanum. Þeg-
ar hún heyrði lagið Killing Me Soft-
ly aftur í kjörbúð fyrir stuttu hélt
hún að hún sjálf væri að syngja.
Hún áttaði sig þó fljótlega á því að
útsetningin var önnur en líkaði vel
að heyra lagið sungið með rappívafi.
Hugh Grant og
tryllir sem hann leikur í ásamt
Gene Hackman. Þegar þau komu
til Cannes voru þau umkringd
ljósmyndurmn og kvik-
myndatökumönnum sem
veltust hver um annan
þveran til þess að ná
myndum af stjömunni
og kærustunni hans. El-
ísabet Hurley, sem er
andlit Estée Lauder, var
klædd í eiturgrænan að-
skorinn kjól og skó í
sama lit og virtist alsæl
með kærastann enda þótt
sögusagnir hafi sagt annað.
Allt virtist í lukkunnar velstandi
hjá stórleikaranum Hugh Grant
og Elísabeth Hurley þegar
þau sigldu á skútu sinni
inn í Cannes á kvik-
myndahátíðina. Elísabet
virðist hafa fyrirgefið
sínum heittelskaða feil-
sporið með vændiskon-
unni. Skötuhjúin vora
stödd í Cannes til þess
að kynna nýjustu mynd
Grants, Extreme Me-
asures, sem er spennu-
Elísabet Hurley og Hugh Gr-
ant voru alsæl á kvikmyndahá-
tíðinni i Cannes.
Super Chips eru framleiddar af Smiths, sem er einn stærsti snakkframleiðandi Evrópu og er í eigu PepsiCo
og General Mills. Super Chips er mest selda snakkiö í mörgum löndum álfunnar.
Super Chips er frábært snakk, þykkt og stökkt, búið til úr hollenskum gæða kartöflum.
Fáðu þér Super Chips í 300 gramma ofurpoka á einstoku kynningarverði.