Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Side 12
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
12 erlend bóksjá
Metsölukiljur
Skáldsagan um ástir
Barböru kvikmynduð
Bretland
Skáldsögur:
1. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer. (12988)
2. Patrlcia 0. Cornwell:
From Potter's Fleld. (12756)
3. Mlchael Crlchton:
The Lost World. (11748)
4. Pat Barker:
The Ghost Road. (10899)
5. Stephen Klng:
Nlght Journey. (9806)
6. Danlelle Steel:
Ughtning. (9149)
7. Clare Francls:
Betrayal. (8464)
8. Tom Sharpe:
Grantchester Grlnd. (7764)
9. Nlck Hornby:
High Rdeilty. (7012)
10. D. & L. Eddlngs:
Belgarath the Sorcerer. (6227)
Rlt almenns eölis:
1. Bili Bryson:
Notes from a Small Island. (13.028)
2. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers. (3482)
3. Margaret Forster:
Hidden Llves: A Famlly Memoir.
(1817)
4. Jung Chang:
Wild Swans. (2633)
5. Paul Theroux:
The Plllars of Hercules. (2512)
6. Erlc Lomax:
The Railway Man. (2447)
7. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom. (1875)
8. Chris Ryan:
The One That Got Away. (1551)
9. Wlll Hutton:
The State We're In. (1479)
10. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are from
Venus. (1453)
Innbundnar skáldsögur:
1. Ben Elton:
Popcorn. (2749)
2. Terry Pratchett:
Feet of Clay. (1783)
3. Chrls Ryan:
Stand By, Stand By. (1686)
4. Kevln J. Anderson:
X-Flles 4: Rulns. 1539)
5. John Grlsham:
The Runaway Jury. (1395)
Innbundin rit almenns eölis:
1. Jack Ramsay:
SAS: The Soldler's Story. (788)
2. Wendy Beckett:
The Story of Palnting. (715)
3. Jane Goldman:
The X-Flles Book of the Unexplalned.
(624)
4. Davld Hopps:
Free as a Blrd. (484)
5. Brian Scoveli:
Dlckle. (471)
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Ein eftirminnilegasta skáldsaga
færeysks rithöfundar á þessari öld
er tvímælalaust „Barbara“ eftir
Jorgen-Frantz Jacobsen.
Þótt höfundurinn byggði frásögn
sína á raunverulegum atburðum
sem gerðust í Færeyjum á sautj-
ándu öld var það þó reynsla hans
sjálfs sem gæddi söguna lífi - en
hún kom út árið 1939, ári eftir að
Jacobsen lést úr berklum.
Kunnasti rithöfundur Færeyinga
á þessari öld, William Heinesen, var
náinn vinur Jacobsens og sá um að
koma skáldsögunni á markað. Hún
hefur síðan verið prentuð þrjátíu
sinnum eða svo hjá Gyldendalfor-
laginu, sem hefur selt nokkur
hundruð þúsund eintök af bókinni,
og að auki verið þýdd á fjölda
tungumála. Og nú er verið að gera
kvikmynd um þessa mögnuðu per-
sónu.
Einn kunnasti gagnrýnandi
Dana, Tom Kristensen, komst svo
að orði um skáldsöguna þegar hún
kom fyrst út að Jacobsen hefði þar
tekist að fanga heimskupör ástar-
innar, brjásemi afbrýðiseminnar,
sætleika tálsins og sakleysi ótryggð-
arinnar.
Setti allt á
annan endann
Söguefnið sótti Jacobsen í raun-
verulega atburði í færeyskri sögu.
Fyrirmynd hans hét Bente Kristine.
Hún fæddist utan hjónabands i
Kaupmannahöfn og kom barn að
aldri til Þórshafnar í Færeyjum árið
1668. Þar átti hún eftir að setja eyj-
arnar á annan endann með líferni
Estrid Banning Good: fyrirmynd
Jorgen-Frantz Jacobsens aö Bar-
böru.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
sínu, ekki síst frjálslyndi I ástamál-
um.
Þegar hún lést, 84 ára að aldri,
árið 1752, hafði hún gifst þremur
prestum - og lifði sá þriðji hana.
Hina tvo hafði hún að mati eyjar-
skeggja hrakið í dauðann langt fyr-
ir aldur fram með óheftu framferði
sínu.
Þrátt fyrir þetta lýsir Jacobsen
Barböru, sem hann kallar svo í sög-
unni, ekki aðeins af næmri tilfinn-
ingu heldur einnig af mikilli samúð.
Hann er gagntekinn af þessari konu
og honum tekst frábærlega að vekja
hana til lífsins á síðum þessarar
einu, en sígildu skáldsögu sinnar.
r
Astarjátning
Ástæðan er sú að þótt hann væri
að skrifa sögulega skáldsögu hafði
hann fyrir sér lifandi fyrirmynd að
Barböru úr eigin lífi, konu sem
hafði mikil áhrif á hann og reyndar
ílesta aðra karlmenn sem hún
komst í kynni við - og þeir voru
margir.
Hún heitir Estrid Bannister Good
og er enn á lífi, 92 ára að aldri.
Hún kom sem táningur, árið 1921,
til Færeyja ásamt systur sinni - en
þær áttu færeyska móður og dansk-
an föður. Þótt hún væri þá þegar
trúlofuð Englendingi, sem hún síðar
giftist, lagði hún marga unga karl-
menn að fótum sér í heimsókninni
til Færeyja, þar á meðal rithöfund-
ana Heinesen og Jacobsen.
Estrid fangaði svo gjörsamlega
hjarta Jacobsens að hann kvæntist
aldrei. Þau héldu nánu bréfasam-
bandi alla tíð og hún bjó um hríð á
heimili hans þegar hann var að
semja skáldsöguna. í bréfum sem
hann ritaði ættingjum sínum og
vinum um það leyti íjallaöi Jacob-
sen um Estrid sem Barböru.
Gjarnan er litið á skáldsöguna
Barböru sem einstæða ástarjátn-
ingu til Estrid sem var, eins og Bar-
bara skáldsögunnar, í senn afar
ástríðufull og fjöllynd í ástamálum.
vísindi_________________
Flottustu
eldflugumar
Ef karlkyns eldfluga ætlar sér
:: að ná í flottasta kvendýrið og það
eftirsóknarverðasta er eins gott
fyrir gutta að láta halann blikka
| nógu oft, segja bandarískir vís-
; indamenn.
Vísindamennirnir uppgötvuðu
I nýja aðferð til að herma eftir
glömpunum í eldflugum og
ákváðu að kanna kynlíf þein-a.
Þeir komust að því að kvendýrin
réðu úrslitum um hvaða karl-
flugur höfðu heppnina meö sér,
því kvenflugurnar voru hrifnast-
ar af körlunum sem blikkuðu
ljóshölum sínum oftar en hinir.
Kókaín tengt
lifrarbólgu
Rannsókn á blóðgjöfum, sem
sýndu merki þess að hafa ein-
hvern tíma smitast af lifrarhólgu
C, hefur leitt í ljós hugsanlegt
: samband milli sjúkdómsins og
þess að sjúga kókaín upp í nefið.
Vísindamenn við bandarísku
rannsóknarstofnunina í ofnæm-
is- og smitjúkdómum segja að
| misnotkun kókains sem slík sé
| ekki orsök veirusýkingarinnar.
Lifrarbólga C smitast alla
jafna meö blóði. Hugsanlegt er
talið að smitað blóð á stráinu,
| sem kókaínneytendur nota, kom-
| ist í snertingu við blóð sogmanns
gegnum særindi i nefinu.
Umsjón
Guðlaugur Beigmundsson
Forfeður hvalanna syntu
upp í árnar til að drekka
-Forfeður nútímahvala skakklöppuðust ekki bara um
á fjórum fótum á ströndinni heldur áttu þeir það líka til
að synda upp ár og læki til að fá sér að drekka. Hópur
vísindamanna frá Bandaríkjunum og Indlandi, sem hef-
ur rannsakað tennur úr fjórum tegundum af steingerð-
um hvölum, segir frá því í tímaritinu Nature í maílok
að þrír þeirra
hafi varið um-
talsverðum
tíma í
ferskvatni.
Spendýr sem
lifa á þurru
landi geta ekki
þrifist án þess
að hafa aðgang
að fersku
vatni. Öðru
máli gegnir
hins vegar um
hvali og flesta
höfrunga. En
þar sem sjávar-
spendýrin hófu
feril sinn sem
landdýr sem
héldu út í
brimsölt haf-
djúpin, má
gera ráð fyrir
því að um tíma
hafi þau enn þurft á ferskvatni að halda.
Vísindamennirnir rannsökuðu steingerðar leifar
fomra hvala sem fundust i 50 milljón ára gömlu grjóti í
Pakistan og mældu hlutfall súrefnisísótópa sem varð-
veittust í tönnum þeirra. Vísindamennirnir sögðu sem
svo að tennumar mundu endurspegla vatnsneyslu dýr-
anna, hvort sem um var að ræða salt- eða ferskvatn, á
þessum tíma, þ.e. fyrir 50 milljón árum. Tvær hvalateg-
undanna, Pakicetus og Nalacetus, fundust í ferskvatns-
setlögum en þriðja tegundin, Ambulocetus, fannst við
ströndina. Öll vora dýrin með ferskvatnstennur. Aðeins
ein tegundanna fjögurra, sem vísindamenirnir rannsök-
uðu, Indocetus, drakk sjó allan tímann. Sú tegund hlýt-
ur þá að hafa verið búin að þróa með sér aðferð til að
losa sig við saltið.
Nútímahá-
hyrningar éta
seli og önnur
sjávarspen-
dýr, sem öll
era að mestu
leyti úr vatni.
í augum sliks
hvals er selur-
inn því eins
konar dykkur
á priki, segja
vísindamenn.
„Þeir éta dýr
sem hafa
minna salt-
innihald í lík-
amanum en er
í vatninu um-
hverfis,“ segir
David George,
sem starfar
við breska
náttúrufræð-
isafnið, í við-
tali við breska blaðið Guardian. „Þeir eiga því ekki í
miklum vandræðum með að losa sig við umframsaltið.
Skíðishvalir, sem nærast á átu, en hún hefur svipað
saltmagn og vatnið umhverfis, eru með miklu stærri
nýra. Þeir hleypa þvi mjög miklu af þvagi í gegnum þau
til að losa sig við saltið."
Hann telur að hvalir hafi byrjað sem tenntar fiskæt-
ur sem héldu til í árósum og þeir hafi síðan vaxið og
vaxið þar sem betra sé fyrir sjávardýr að vera stór.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Stephen Klng:
The Green Mile: The Bad Death of
| Eduard Delacroiz.
2. Patricla Cornwell:
From Potter’s Reld.
3. Danielle Steel:
Llghtning.
4. Pat Conroy:
Beach Muslc.
5. Rosamunde Pilcher:
Coming Home.
6. Nora Roberts:
Darlng to Dream.
7. David Guterson:
Snow Falling on Cedars.
8. Ken Follett:
A Place Called Freedom.
9. Stephen King:
The Green Mlle: Coffey’s Hands.
10. Dean Koontz:
Strange Highways.
11. John Grlsham:
A Tlme to Klll.
12. Stephen King:
The Green Mile: The Mouse on the
Mile.
13. Stephen Klng:
The Green Mile: The Two Dead Girls.
14. Joseph R. Garber:
Vertlcal Run.
15. Sandra Brown:
The Witness.
1
Rit almenns eölis:
1. Mary Pipher:
Revivlng Ophelia.
2. Colin L. Powell:
My Amerlcan Journey.
3. Mary Karr:
The Llar's Club.
4. Thomas Cahill:
How the Irlsh Saved Clvlllzatlon.
5. J. Douglas & M. Olshaker:
Mindhunter.
6. John Feinstein:
A Good Walk Spoiled.
7. Jack Mlles:
God: A Biography.
8. J.M. Masson & S. McCarthy:
When Elephants Weep.
9. Thomas Moore:
Care of the Soul.
10. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
11. Gall Sheehy:
New Passages.
12. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
13. Isabel Atlende:
Paula.
14. Helen Prejean:
Dead Man Walkíng.
15. D. Hays & D. Hays:
My Old Man and the Sea.
(Byggt á New York Times Book Revlew)
I
Blýkollur
er blýþungur
Börn sem komast í snertingu
| við blý á unga aldri halda áfram
að súpa af því seyðið í mörg ár á
I eftir og gengur t.d. verr en öðrum
! á greindarprófum.
Vísindamenn í Ástralíu, undir
stjóm Shilu Tong, rannsökuðu
375 börn sem fæddust í eða 1 ná-
1 grenni bæjarins Port Pirie, þar
sem blýbræðsla er starfrækt.
IBörnin höfðu öll komist í snert-
ingu við blý í frumbernsku en
vora 11 til 13 ára þegar rann-
sóknin var gerð.
Hópur Tong komst að því að
því meira blý sem var í blóði
barnanna, þeim mun lægri var
| greind þeirra þegar unglingsaldr-
Iinum var náð.
Pillan og
háþrýstingur
Ný kynslóð getnaðarvarn-
arpillna, sem innihalda bæði
| estrógen og prógestógen, hækkar
blóðþrýsting kvenna og læknar
ættu því að fylgjast grannt með
þeim sem taka pillurnar, segja
breskir vísindamenn.
Getnaðarvarnarpillur hafa
§ lengi verið taldar valda auknum
Iblóöþrýstingi og því mæla lækn-
ar reglubundið blóðþrýsting
þeirra kvenna sem taka þær. Vís-
indamenn höfðu gert sér vonir
um að nýjar pillur yrðu betri.
Neil Poulter, farsóttafræðingur
við læknaskóla University Col-
I lege í London, segir að konur
sem taka pillur sem aðeins inni-
halda prógestógen séu ekki í
hættu á að fá hærri blóðþrýsting.