Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996
Fréttir
Fjórir menn af asískum uppruna kæröir til lögreglu fyrir margs konar brot:
Óttaslegnar fjöl-
skyldur í felum
- eftir hótanir og ítrekuð skemmdarverk
Bíli mannsins, sem var eltur, lítur svona út eftir áreksturinn.
DV-mynd BG
Fjórir menn af asískum uppruna
hafa verið kærðir til lögreglu fyrir
tilraunir til fjárkúgunar og að hafa
lagt fólk í einelti með hótunum um
ofbeldi og skemmdarverkum. Mikill
uggur er í röðum nýbúa í Reykjavík
og er ástandið orðið svo slæmt að
sumar fjölskyldur eru komnar í fel-
ur vegna mannanna. Lögreglan seg-
ir að ástandið hafi varað lengi en nú
„sé boltinn að springa". RLR, Lög-
reglan í Reykjavík og Rauði kross
íslands eru að vinna í málinu.
Karlmaður af asískum uppruna
átti fótum fjör að launa í síðustu
viku þegar fjórmenningamir eltu
hann vopnaðir hnífúm eftir að hann
hafði neitað að greiða þeim peninga.
Mennimir fjórir létu ekki af eftirför-
inni fyrr en maðurinn var kominn
móður, másandi og yfir sig óttasleg-
inn inn á lögreglustöö við Hlemm.
Sami maður var síðan eltur um síð-
ustu helgi og var hann þá á bíl.
Þeirri eftirför lauk með því að fóm-
arlambið sá sitt óvænna og ók yfir á
rauðu ljósi og lenti þá í árekstri.
„Þetta ástand verður að stöðva.
Þetta er að verða eins og í útlöndum
þar sem „Asíumafiur" vaða uppi.
Þessir fjórir menn hafa komið inn á
veitingastaði eða farið til einstakl-
inga og heimtað að „fá lánaðan pen-
ing“ eða viljað selja þeim þýfi. Ef
maður hlýðir ekki er ráðist á mann,
konuna eða jafnvel bömin eða bíll-
inn skemmdur,“ sagði asískur mað-
ur í atvinnurekstri í Reykjavík í
samtali við DV í gær. Hann sagði
jafnframt að hér væri eingöngu um
að ræða fjóra tiltekna karlmenn frá
Asíu og landar þeirra vildu fá þá
stöðvaða - þeir kæmu óorði á fólkið.
„Þessir menn vinna ekki neitt.
Það er ekki hægt að haga sér svona
þegar íslenska þjóðin er búin að
taka vel við Asíufólki," sagði at-
vinnurekandinn.
íslensk kona, sem hefur haft nán-
ar spumir af a.m.k. einhverjum
fiórmenninganna um árabil, sagði
við DV að aðfarir þeirra minntu á
mafiuna í kvikmyndunum um Guð-
fóðurinn - þeir skemmdu m.a. bíla
og svifust einskis þegar ekki væri
farið að vilja þeirra.
Maðurinn sem var eltur að lög-
reglustöðinni í síðustu viku varð
fyrir því í byrjun mánaðarins að
fjölskyldubíll hans var mikið
skemmdur fyrir utan vinnustað
konu hans. Rúður voru brotnar og
ætandi vökva hellt yfir sætin sem
brunnu undan efhinu.
Eins og fyrr segir vinnur RLR í
málinu en Lögreglan í Reykjavík
mun samkvæmt heimildum DV
einnig grípa til sérstakra aðgerða til
aö fylgjast með umræddum fjór-
menningum á næstunni. -Ótt
Fallhlífarstökk:
Fallhlífin
opnaðist
ekki
„Þetta er hlutur sem alltaf getur
komið fyrir og við stökkvarar vitum
af þessari hættu sem alltaf fylgir
stökkum. Þegar aðalfallhlífin opnað-
ist ekki hafði ég varafallhlífina og
varð aldrei beint smeykur. Ég varð
að losa aðalhlífina áður en ég opn-
aði hina. Þetta gekk sem betur fer
vel og lendingin var mjúk og góð,“
sagði Guðmundur Guðjónsson, 22
ára gamall fallhlífarstökkvari, en
hann lenti í töluverðri hættu í fall-
hlífarstökki hjá Sandskeiði í gær-
dag þegar aðalfallhlíf hans flæktist
og opnaðist ekki.
Áhorfandi varð mjög skelfdur
þegar hann sá aðalfallhlífina falla
til jarðar og hringdi úr farsíma í
neyðarlínuna og tilkynnti um
fallhlífarstökkvara í hættu. „Ég hef
stokkið 78 sinnum og aldrei lent í
því áður að þurfa að grípa til vara-
fallhlífar. En það er gott að vita af
henni og hún er mun öruggari því
henni er pakkað af atvinnumönn-
um,“ sagði Guðmundur en hann er
meðlimur í Flugbjörgunarsveit
Reykjavíkur. -S/RR
Guðmundur viö bíl Flugbjörgunarsveitarinnar á Sandskeiði í gær en þar stökk hann í fallhlíf. Aöalfallhlíf Guömund
ar opnaöist ekki og því varö hann aö grípa til varafallhlífar. DV-mynd S
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Já 1 Nei 2
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Eiga stjórnvöld að
bjarga Kolbeinsey?
Hasso frestar íslandsför:
Bílarnir
ekki með
Ekkert varð af komu auðkýfings-
ins Hasso Schútzendorf til landsins
í gær þar sem tveir glæsibílar í
hans eigu, Rolls Royce og Benz,
komust ekki með vél Cargolux frá
Lúxemborg. Cargolux, sem flýgiu-
hingað vikulega, varð að láta bilana
víkja vegna mikilvægs og plássfreks
farms til Bandaríkjanna.
komust
Cargolux
Hasso ákvað því að fresta íslands-
fór sinni um nokkra daga en kona
hans, Astrid, og einn lífvörður ætl-
uðu einnig að koma. Lifverðir fylgja
Hasso og Astrid hvert fótmál vegna
hótana frá kólumbísku og ítölsku
mafíunni, eins og DV greindi frá í
gær.
-bjb
Stuttar fréttir dv
Meiri kennaraskortur
Formaður Kennarasambands
íslands segir að kennaraskortur
sé meiri nú en undanfarin ár,
samkvæmt frétt RÚV.
Rækjusamdráttur
Talsmenn rækjuverksmiðja
telja óhjákvæmilegt að draga úr
framleiðslu næstu mánuðina og
lækka hráefnisverð til útgerða
og sjómanna. Samkvæmt RÚV er
það til að mæta birgðasöfnun og
verðlækkun á afurðum.
Óskynsamleg hækkun
Sjálfstæðismenn í borgarráði
telja fyrirhugaða 15% hækkun á
vatnsgjaldi óskynsamlega og hún
komi frekar niður á eignalitlu
fólki. Þetta kom fram á RÚV.
Nefnd ekki starfandi
Hagfræðingur VSÍ telur brýnt
að koma böndum á verðhækk-
anir á matvælum til að spoma
gegn skuldasöfhun heimilanna.
Samkvæmt RÚV hefur nefnd,
sem á að stuðla að lægra verði á
matvælum, ekki komið saman í
hálft ár.
Sjóvá græðir
Sjóvá-Almennar jók hagnað á
fyrri hluta ársins mn 82% miðað
við sama tíma i fyrra. Gróðinn
jókst úr 93 í 169 milljónir króna.
Borgarstarfslaun
Nýlega var starfslaunum
Reykjavíkurborgar úthlutað til
listamannanna Helga Þorgils
Friðjónssonar, Elíasar Mar,
Önnu Líndal, Margrétar J.
Pálmadóttur, Eydísar Franzdótt-
ur, Þorsteins Gauta Sigurðsson-
ar og Sigtryggs Baldurssonar.
Bensínsölu mótmæit
íbúar við Egilsgötu hafa kom-
ið á framfæri fjölmörgum at-
hugasemdum við borgaryfirvöld
vegna fyrirhugaðrar lóðar undir
bensínsölu við Egilsgötu 5. Málið
verður tekið fyrir á næsta fundi
skipulagsnefndar.
ísland í 6. sæti
íslenska sveitin í Ólympíu-
mótinu í skák 16 ára og yngri,
sem fór nýlega fram í Svartfjalla-
landi, hafnaði í 6. sæti með 19!4
vinning af 36 mögulegum.
Afmæli SÞ minnst
í tilefni af 50 ára afrnæli Sam-
einuðu þjóðanna 19. nóvember
nk. hefúr ríkisstjóm íslands
ákveðið að standa m.a. fyrir há-
tíðarsamkomu og ráðstefnu um
málefni SÞ. Jafnframt verður
gefm út bók og sáttmáli SÞ end-
urprentaöur.
Skaöabótanefnd skipuð
Dómsmálaráðherra hefúr skip-
að Guðmund Jónsson, Þorgeir
Örlygsson og Áma Kolbeinsson í
nefnd til að vinna að heildarend-
urskoðun skaðabótalaganna.
Undir áætlun
Ný bygging Hæstaréttar verð-
ur tekin í notkun i næstu viku.
Samkvæmt Stöö 2 er kostnaður
20 milljónum undir áætlun eða
460 milljónir króna.
Gott uppeldi
íslensk böm era með þeim
hæstu í heimi. Samkvæmt Stöð 2
er góðum uppeldisaðstæðum að
þakka en íslenskir læknar vinna
að viðamikilli rannsókn á þessu
sviði.
Ójafnrétti í nefndum
Aðeins . heilbrigðisráðherra,
Ingibjörg Pálmadóttir, hefui- þeg-
ar náð því markmiði að vera með
meira en 30% hlutfall kvenna í
nefndum og ráðum. Hlutfallið hjá
henni er 41% á meöan þaö er t.d.
aðeins 2% hjá Guðmundi Bjama-
syni landbúnaðai’ráðherra.
íbúðir á fornminjasvæöi
Bæjarstjórn Seltjamarness
samþykkti í gær að 24 íbúðir
yrðu byggðai’ á fomminjasvæði.
Þetta kom fram á Ríkissjónvarp-
inu. -bjb