Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996
27
Fréttir
íslensk-þýsk kvikmynd - María - tekin upp á Snæfellsnesi:
Frægasta leik-
kona Þjóðverja
í aðalhlutverki
- ísland fær unrQöllun í þýskum fjölmiðlum
DV, Suðurnesjum:
„Vindmyllan er aðalorkustöðin
okkar. Þar sem ekkert rafmagn er
fáanlegt á svæðinu þurftum við að
reisa vindmylluna og afl hennar
nægir okkur til þess að dæla vatni í
sýningartanka til að halda fiskun-
um þar lifandi. Þá sér hún fyrir
vatnsöflun fyrir hreinlætisaðstöðu,
auk lýsingar í veiðihúsinu,“ sagði
Jónas Pétursson, rekstraraðili
veiði- og útivistarsvæðisins Sel-
tjamar, sem er skammt frá Grinda-
víkurafleggjaranum í landi Reykja-
nesbæjar.
Vindmyllan, sem er staðsett við
veiðivatnið, sér um að hlaða inn á
12 volta rafgeyma. Að sögn Jónasar
er næsta rafmagn frá þeim við af-
leggjarann Grindavíkurvegur-
Reykjanesbraut. Hann segir að það
sé of dýr framkvæmd að fá rafmagn
þaðan.
„Raforkunotkunin er orðin það
mikil eftir vaxandi uppbyggingu
hér á svæðinu að á næsta sumri
ætla ég að hafa þrjár orkustöðvar. í
fyrsta lagi vindorku, í öðru lagi sól-
arorku og þriðja lagi dísilrafstöð.
-ÆMK
Mánudaginn 19. ágúst hófust á
Snæfellsnesi tökur á kvikmyndinni
Maríu sem unnin er í samvinnu ís-
lensku kvikmyndasamsteypunnar
og þýska kvikmyndafyrirtækisins
Blue Screen Film. Þegar hefur verið
gerður samningur við Stöð 1 í
Þýskalandi um sýningar á mynd-
inni og norður-þýsk sjónvarpsstöð
mun gera heimildarmynd um gerð
myndarinnar.
Þýsk blöð hafa fjallað nokkuð um
gerð myndarinnar enda er aðalhlut-
verkið í myndinni í höndum einnar
umtöluðustu leikkonu Þjóðverja,
Barböru Auer. Hún hefur á síðustu
árum leikið aðalhlutverk i mörgum
þekktum þýskum kvikmyndum og
er talin eiga mjög góða möguleika á
alþjóðlegum frama. Hún hefur af
þýskum tímaritum verið nefnd „sú
fagra í fílabeinstuminum“ þar sem
hún tekur ekki hvaða hlutverk sem
er. Hún hefur hlotið fjölda verð-
launa fyrir leik sinn.
Þýsk blöð segja um söguna að
hún sé að einhverju leyti byggð á
sögu þýskra kvenna sem svöruðu
blaðaauglýsingu frá íslandi árið
1949 þar sem óskað var eftir þýskum
konum til starfa á íslenskum heim-
ilum. Greint er frá blaðamanna-
fundi sem haldin var í Lúbeck þar
sem aðalleikkonan, Einar Heimis-
son, handritshöfundur og leikstjóri,
og fleiri kynntu myndina.
Tökur hófust í Þýskalandi 14.
ágúst og myndað verður á Snæfells-
nesi þar til í lok ágúst. Tökum lýk-
ur svo endanlega í Reykjavík um
miðjan september.
íslensku leikararnir Arnar Jóns-
son, Helga Jónsdóttir og Hinrik Ól-
afsson fara með önnur helstu hlut-
verk í myndinni, kvikmyndataka er
i höndum Sigurðar Sverris Pálsson-
ar og Ámi Páll Jóhannsson er leik-
myndahönnuður. -sv
Jónas viö vindmylluna.
Fá rafmagn
frá vindmyllu
í nágrenni við bæinn Kistufell við Grundarfjörð hefur veriö reistur gamall sveitabær þar sem tökur á myndinni Mar-
íu fara fram. Myndað veröur á Snæfellsnesi þar til í lok ágúst og þeim lýkur síðan í Reykjavík um miöjan september.
DV-mynd S
Skjólstæðingar SAA:
Meirihlutinn er
stórreykingafólk
„Þessar reykingar valda
ómældu og miklu heilsutjóni. Með
árunum hafa sjúklingar í vaxandi
mæli verið hvattir til að draga úr
reykingum í meðferðinni og hætta
þeim þegar þeir hafa náð bata frá
annarri vímuefnaneyslu,“ segir í
ársskýrslu SÁÁ en þar er sagt frá
því að mjög margir skjólstæðingar
þeirra séu stórreykingafólk.
Ekki hefur verið talið fært að
banna reykingar alfarið en þær
eru einungis leyfðar á vissum
svæðum. Um 75% skjólstæðinga
SÁÁ reykja daglega og meira en
90% reykja einn pakka á dag eða
meira.
-sv
Hvammstangi:
Nýtt sambyli geðfatlaðra
DV, Hvammstanga:
Til nokkurra ára hefur verið rek-
ið sambýli geðfatlaðra á Gauksmýri
í Kirkjuhvammshreppi í Vestur-
Húnavatnssýslu. Nú hefur félags-
málaráðuneytið ákveðið að þeirri
einingu verði lokað vegna óhag-
kvæmni í rekstri en í staðinn verð-
ur opnað í næsta mánuöi nýtt sam-
hýli geðfatlaðra á Hvammstanga.
„Því munu íbúar á Gauksmýri
færa sig um set eftir sumardvöl sína
á Egilsá í Skagafirði og flytja inn í
íbúðimar að Grundartúni 10-12 á
Hvammstanga í byijun næsta mán-
aðar,“ að sögn Sveins Allans Mort-
hens, framkvæmdastjóra svæðis-
skrifstofu fatlaðra á Norðurlandi
vestra.
Flutningurinn og aðlögunin fær
heldur skamman tíma. Ekki hefur
enn verið ráðið í nema hluta þeirra
starfa sem fylgja starfseminni og
nýlega var auglýst eftir forstöðu-
manni fyrir sambýlið. Núverandi
forstöðumaður er á leið til starfa er-
lendis. Það stendur til að kynna
Húsakynni nýja sambýlisins aö Grundartúni 10-12. Báöar ibúðirnar eru í fé-
lagslega kaupleigukerfinu en nú ætlar Hvammstangahreppur aö leigja þær
svæöisskrifstofu fatlaöra á Noröurlandi vestra. DV-mynd Sesselja
starfsemi sambýlisins fyrir bæjar-
búum í samráði við bæjaryfirvöld.!
framtíðinni er áætlað að opna iðju-
verkstæði fyrir íbúana en ekki hef-
ur enn fundist húsnæði fyrir starf-
semina. Þá er og vonandi að þessir
nýju íbúar Hvammstanga geti á ein-
hvem hátt verið virkir í almennu
atvinnulífi bæjarins.
Óvíst er hvað verður um húseign-
ina á Gauksmýri, en hún er eign
Þroskahjálparfélaga í Húnavatns-
sýslum og Skagafirði. -ST