Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Page 11
FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996
Fréttir
11
Lyktarmengun frá Krossanesverksmiðjunni:
Margir telja að sér
líði illa af lyktinni
- eftirlitsmenn Hollustuverndar fara norður
RAFSTÖÐ
Rafstöö 2200 VA
Verð 79.900
Japanskur mótor og þýsk ending
M. Ragnarsson
Sími 553 4173. GSM 892 5231
„Það hafa margir hér í bæ haft
samband við mig og kvartað undan
lyktarmegnun frá Krossanesverk-
smiðjunni, telja hreinlega að sér líði
illa yfir lyktinni. Það leggur sterkan
fnyk yfir hæinn, sérstaklega þegar
hafgola er, en verst er þetta í Holta-
hverfinu sem er næst verksmiðj-
unni. Ég á von á eftirlitsmönnum
frá Hollustuvernd ríksins og þeir
munu skoða verksmiðjuna og meta
aðstæður," sagði Valdimar Brynj-
ólfsson, framkvæmdastjóri hjá Heil-
brigðiseftirliti Eyjafjarðar, við DV.
Margir Akureyringar hafa kvartað
undan mikilli bræðslulykt frá verk-
smiðjunni í sumar en þar er loðna
brædd.
Ákveöiö vandamál sem
fylgir rekstrinum
„Þetta er ákveðið vandamál sem
fylgir þessum rekstri. Við gerum
okkar besta til að draga úr þessari
lykt eins og mögulegt er og höfum til
þess mengunarvamarbúnað eins og
reykeyðingu og lyktarbrennslu og
notum hann á fullu. Við tökum ekki
inn meira hráefni en við getum unn-
ið á eðlilegum vinnslutíma. Við urð-
um fyrir því óhappi nú í vikunni að
það bilaði rafstrengur hjá okkur í
hálfan annan sólarhring. Við urðum
að starta vélunum upp á nýtt og þá
er lyktin alltaf verri. Þess vegna
varð hráefnið eldra en eðlilegt er.
Lyktin er missterk eftir því hvernig
vindáttin er, ef það er hafgola berst
lyktin meira inn i bæinn. Þá bætist
við þessi mikli hiti sem er búinn að
vera hér að undanförnu og því er
alltaf meiri lykt yfir sumartímann,“
sagði Jóhann Pétur Andersen, fram-
kvæmdastjóri Krossanesverksmiðj-
unnar, við DV.
Jóhann Pétur sagðist ekki vita að
eftirlitsmenn frá Hollustuvernd rík-
isins væru væntanlegir en sagðist
bjóða þá velkomna að skoða verk-
smiðjuna. Hann sagðist ekki hafa
orðið var við nein veikindatilfelli
meðal starfsmanna verksmiðjunnar
þó að lyktin væri vissulega einnig
inni í henni.
„Það er ekki bara fiskimjölsiðnað-
urinn sem lendir í því að angra ná-
grannann með lykt. Menn verða var-
ir við annars konar starfsemi hér í
bæ og annars staðar sem af stafar
sjón- og lyktarmengun. Ég get vel
ímyndað mér að sumt fólk finni fyr-
ir óþægindum af lyktinni en flestir,
held ég, finna ekki fyrir henni. Það
er sagt að menn venjist þessari lykt
og það er raunin með starfsmenn
hér. Þeir hafa ekki kvartað undan
Framkvæmdir hafnar á fullu við 1100 fermetra húsnæöi sem Járn & skip láta reisa í Keflavík. Gamla húsiö brann í
stórbruna í júní. DV-mynd ÆMK
Reykjanesbær:
Nýbygging kaupfé-
lagsins að rísa
DV, Suðurnesjum:
„Við ættum að geta flutt inn í
fyrri hlutann af húsinu í byrjun
október og i allt húsið upp úr ára-
mótum. Nýbyggingin lítur vel út og
þar verður miklu meira og betra
pláss en var í gamla húsinu. Það er
byggt eftir nútímakröfum," sagði
Guðjón Stefánsson kaupfélagsstjóri
við DV.
Kaupfélag Suðurnesja hefur hafið
á fullu framkvæmdir við 1100 m2
húsnæði á einu gólfi sem mun hýsa
byggingavöruverslunina Járn &
Skip. Eldra húsnæðið brann til
kaldra kola í stórbruna í júní. Til að
flýta fyrir byggingunni verða tveir
af veggjum gamla húsnæðisins, sem
stóðu einir eftir brunann, notaðir til
að flýta fyrir nýbyggingunni. Fyrri
hluti byggingarinnar verður um 370
m2 og stefnt er að því að opna hann
1. október.
Hluti af verslunarrekstrinum hef-
ur verið í plötuhúsinu sem slapp í
brunanum en það er staðsett við
hlið Járn & Skips. Guðjón segir að
salan þar hafi gengið vonum framar
og verið meiri sala en þeir þorðu að
reikna með.
-ÆMK
Sveitarstjórnir:
Ákveðnar reglur um hvaða
varamenn taka sæti
Menn hafa velt því nokkuð fyrir
sér - eftir að bæjarstjórinn í Hafnar-
firði, Ingvar Viktorsson, las upp á
kratafundi á dögunum bréf frá Jó-
hanni G. Bergþórssyni um að hann
ætlaði að halda sig til hlés á næst-
unni til að auðvelda félögmn sínum
að starfa í bæjarstjórn - hver tæki
sæti Jóhanns ef hann færi í frí.
Unnar Stefánsson hjá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga sagði
ákveðnar reglur gilda um hvaða
varamaður tæki sæti í sveitarstjóm
færi aðalmaður í frí. Aðalreglan
væri sú að næsti maður á lista tæki
sæti aðalmanns.
Vegna þess hve mikið er um að
tveir eða þrír flokkar eða hópar
bjóði fram lista saman i sveitar-
stjórnarkosningum hefur verið litið
fram hjá þessu.
Tökum dæmi af lista sem á 3
kjörna fulltrúa í sveitarstjórn þar
sem Framsóknarflokkur á mann í 1.
sæti, Alþýðuflokkur mann í 2. sæti
og Óháöir manninn í 3. sætinu.
Segjum að sama flokksröð sé í 4. til
6. sæti. Félagsmálaráðherra hefur
úrskurðað að til að mynda sá óháði
megi kalla inn fyrir sig þann sem er
í 6. sæti, kratinn þann sem er í 5.
sæti og framsóknarmaðurinn þann
sem er í 4. sæti.
Þess vegna getur Jóhann G. Berg-
þórsson kallað Magnús Kjartans-
son, sem er eini stuðningsmaður
núverandi samstarfs af lista Sjálf-
stæðisflokksins fyrir utan Ellert
Borgar Þorvaldsson, inn fyrir sig ef
hann fer í frí. Ef Jóhann hætti eða
tæki sér mjög langt frí yrði senni-
lega að koma til úrskurðar félags-
málaráðherra hvort Magnús Kjart-
ansson eða Þorgils Óttar Mathiesen,
sem er næsti maður á listanum,
tæki sæti hans.
-S.dór
veikindum eða óþægindum vegna
hennar," sagði Jóhann Pétur. -RR
Tilboð
í Kjarakaupum
Pottasett
3 stk.
Ryðfrítt
stál 18/8
með
glerloki,
gufuventli og
þreföldum botni.
Kjarakaupí
Lágmúla 6, sími 568 4910, fax 568 4914
JDagur-®tmmn
-besti tími dagsins!