Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1996, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996 Fijálst'f óháð daghlað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, augiýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Leiga Almannagjár Þótt eðlilegt sé að leyfa kvikmyndatökufólki að nota náttúru íslands sem bakgrunn að kvikmynda- og sjón- varpsefni, er ekki forsvaranlegt að leigja þeim Almanna- gjá og loka henni um leið fyrir innlendum og erlendum ferðamönnum. Það voru mistök hjá Þingvallanefnd. Alþingi þjóðveldisaldar var háð í eða við Almannagjá. Hún er þungamiðja Þingvallasvæðisins og helgur staður í þjóðarsögunni. Enginn staður á landinu er friðhelgari en hún. íslenzkir borgarar mega aldrei koma að henni lokaðri, af því að hún hafi verið leigð út. Eftir lýsingum að dæma var Almannagjá notuð sem óþekkjanlegur bakgrunnur fyrir vélframleidda þoku. Margir hamraveggir eru til á íslandi, sem henta vel til slíkrar kvikmyndagerðar, þótt íslenzkir aðstandendur kvikmyndarinnar virðist hafa verið ófróðir um þá. Þeim hefði verið gerður greiði með því að benda þeim á aðra hamraveggi, svo sem Tröllagjá eða Ásbyrgi, sem ekki eiga jafn helgan sess í þjóðarsögunni. Engan veginn verður séð, að Almannagjá sé neitt heppilegri bakgrunn- ur fyrir vélframleidda þoku í auglýsingamynd. Málsaðilar telja ekkert athugavert við þetta. Þeir hampa 350.000 silfurpeningum Þingvallanefndar og reikna óbeinar gjaldeyristekjur af kvikmyndaliðinu og aðstoðarfólki þess. Þeir hafa slitnað úr tengslum við þjóðarsöguna og hugsa eins og hverjar aðrar hórur. í leiðindamáli þessu kemur einnig fram landlægur undirlægjuháttur og minnimáttarkennd íslendinga gagnvart útlendingum og sú landlæga hugsun, að skjót- fengnir peningar séu upphaf og endir alls. Þessi árátta virðist lítið lagast með aukinni lífsreynslu þjóðarinnar. Skynsamlegt er að greiða götu innlendra og erlendra kvikmyndagerðarmanna. Flestir eru ekki fyrirferðar- miklir á vettvangi og skilja ekki eftir neinn óþrifnað. Rangt er að reyna að hafa fé af þeim sérstaklega umfram aðra ferðamenn vegna notkunar landslags. Hitt er svo annað mál, að svo getur farið, að selja þurfi aðgang að hálendinu eða ákveðnum stöðum þess vegna of mikils og ört vaxandi álags. Það fé yrði þá innheimt af öllum, innlendu og erlendu fólki, með og án kvik- myndavéla, og færi í kostnað við vemdun staðanna. Ef haldið verður áfram að reyna að ná til landsins þeirri tegund ferðamanna, sem helzt vill fara til staða á borð við Þingvöll, Guilfoss, Geysi, Þórsmörk, Land- mannalaugar, Hveravelli og Herðubreiðarlindir, er ljóst, að taka verður sérstaklega á því vandamáli. Erfitt er að hugsa sér, að slíkum stöðum sé lokað um tíma og sízt vegna þess, að einhver aðili hafi leigt sér einkaaðgang að honum vegna kvikmyndatöku eða af öðrum ástæðum. Hitt er líklegra, að skammtaður verði aðgangur með útgáfú aðgöngumiða að slíkum stöðum. Sennilega mundi þó síðast af öllu verða seldur aðgang- ur að Almannagjá, jafnvel þótt álagið þar margfaldist. Söguleg staða hennar er slík, að hún hentar verr sem söluvara en annað landslag. Flestir mundu heldur vilja greiða kostnað af vemdun hennar af almannafé. Þannig em mistökin tvenn í umræddu máli, annars vegar að veittur var einkaaðgangur að gjánni, og hins vegar að tekið var óbeint gjald fyrir aðganginn. Jónas Kristjánsson Þeir einir mega ganga frá eigna- skiptayfirlýsingum sem hafa stað- ist próf og fengið löggildingu. Hver sem er getur hins vegar metið fast- eign. Sýslumenn þinglýsa aðeins eignaskiptayfirlýsingum löggiltra manna en lánastofnanir lána út á möt óreyndra sölumanna. Eigna- skiptayfirlýsingar eru mikilvægar en mun meiri hagsmunir eru í húfi við mat og lánveitingar. Gríð- arlega háar fjárhæðir hafa tapast vegna lélegra veðmata. Lítil þekk- ing á matsstörfum og veðtöku hef- ur kostað þjóðfélagið stórfé. Lög- gjafinn veitir ekki aðhald með því að setja reglur og gera kröfur. Tugmilljaröa töp Lánastofhanir hafa undanfama áratugi tapað tugmilljörðum vegna ótraustra trygginga að baki lánum. Helstu tryggingar í lána- viðskiptum em fasteignaveð. Veð- möt vora um áratugaskeið þannig að leiða hlaut til stórskaða. Lána- stofhanir höfðu sáralitla þekkingu á veðmötum og störfum mats- manna. Mat fólst í því að fletta upp í branatryggingaskrá. Á með- an raunvextir voru neikvæðir mátti fela útlánatöpin í bókhaldi en eftir að verðtrygging var tekin upp var sá möguleiki úr sögunni. Mikil töp komu í ljós sem hafa verið að sliga þjóðfélagið í hálfan annan áratug. Undanfarið hafa menn í aukn- um mæli stuðst við mat fasteigna- sala sem er miklu skárra en „Á almennum markaöi þekkist aö eignum sé svo illa lýst aö ekki sé unnt aö sjá aldur, stærö eöa ástand eignar eöa hvernig matiö er yfirhöfuð fundiö," segir m.a. í greininni. Löggjöf um störf matsmanna brunabótamatið en þó ekki veðmat í faglegum skilningi. Enn skortir lána- stofnanir næga þekkingu á veðmöt- um, störfum mats- manna og ákvörðun veðmarka. Tíma- bært er að gert verði átak til að tryggja að starfandi matsmenn skili verki sem stenst faglegar kröfur en mikið vantar enn upp á það. Greinarhöfundur hefur metið eignir í þrjá áratugi og kennt matsfræði á háskólastigi í ára- tug. Fyrir fáum árum bað einn nemandinn hann að meta íbúð fyrir fjölskyldu sína vegna fyrirhugaðr- ar lántöku. Við- skiptabanki fjöl- skyldunnar hafn- aði því og gerði kröfu um ákveðna fasteignasölu. Sölumaður sem mat húsið hafði unnið hjá fast- eignasölunni í þrjár vikur. Kjallarinn Stefán Ingólfsson verkfræöingur Lágmarkskröfur Erlendis eru lög um störf matsmanna sett til að tryggja að mats- störf standist lág- markskröfur. Til þess að öðlast starfsleyfi þurfa matsmenn að uppfylla vissar kröfur. Hér á landi er ekki að finna slík lög, reglur eða staðla fyrir mats- menn að fara eftir. Samtök lánastofnana gefa ekki út reglur og engar tilgreindar kröf- ur eru gerðar til manna sem taka aö sér matsstörf. Ákvæði eru „Ákvæði eru í lögum um dómkvadda matsmenn og matsnefnd eignarnáms- bóta en þau eiga ekki viö almenna matsmenn. Tímabært er að setja lög um störf matsmanna oggefa út reglu■ gerðir og staðla sem tryggja hagsmuni þeirra sem matið nota.“ í lögum um dómkvadda matsmenn og matsnefnd eignamámsbóta en þau eiga ekki við almenna mats- menn. Tímabært er að setja lög um störf matsmanna og gefa út reglu- gerðir og staðla sem tryggja hags- muni þeirra sem matið nota. Mik- ilvægt er að skilgreina í lögum kröfur um faglega hæfni áþekka þeim sem gerðar eru til dóm- kvaddra matsmanna en einungis má dómkveðja menn sem að öllu leyti eru óaðfinnanleg vitni, 20 ára og eldri, og hafa nauðsynlega kunnáttu til að leysa verkið. Ekki er síður mikilvægt að lág- markskröfur séu gerðar til mats- gerða sem innihalda niðurstöður matsmanna. Slíkar kröfur skortir. Dómkvöddum matsmönnum ber að semja rökstudda matsgerð sem merkir að þeir verða að gera grein fyrir forsendum matsins og semja greinargóða lýsingu á hinu metna. Á almennum markaði þekkist að eignum sé svo illa lýst að ekki sé unnt að sjá aldur, stærð eða ástand eignar eða hvemig matið er yfirhöfuð fundið. í eignaskiptayfirlýsingum skal nú lögum samkvæmt tilgreina hvað fylgir eignum, stærðir sam- kvæmt stöðlum, forsendur um út- reikninga og hvaða gögnum yfir- lýsingar byggi á. Engin slík ákvæði gilda um þá sem meta verðmæti eignanna. Stefán Ingólfsson Skoðanir annarra Undirverktakar „Reynslan sýnir að oft má auka framleiðni veru- lega t.d. í opinberam rekstri með því að nýta undir- verktaka. Heilbrigðisstofnanir gætu trúlega aukið framleiðni og lækkað kostnað með samningum við undirverktaka ,t. . Til þess að ná verulegum spam- aði i heilbrigðiskerfinu er trúlega nauðsynlegt að vinna að uppstokkun og róttækum breytingum á starfsháttum og starfsaðstöðu. Stundum þarf að rífa niður til að geta breytt og byggt upp.“ Þorkell Sigurlaugsson í Viðskiptablaðinu 21. ágúst. Linkind sjávarútvegsráðherra „Félag úthafsútgerða minnir í álykfim sinni á, að það sé almennt viöurkennt að efnahagsbatinn í þjóð- lífinu eigi að miklu leyti rætur að rekja til aukinna úthafsveiða. íslenskum stjórnvöldum beri því að styðja þennan atvinnuveg í stað þess að taka þátt í viðleitni annarra þjóða til að koma böndum á fram- tak íslenskra útgerða og sjómanna á þessu sviði. Sú hefur því miður ekki orðið raunin, að minnsta kosti ekki hvað varðar sjávarútvegsráðherrann. Linkind Þorsteins gagnvart útlendingum er furðuleg og kostnaðarsöm eins og dæmin sanna.“ Úr forystugrein Alþbl. 21. ágúst. Hagsmunir sjúkra? „Hún er skrýtin þessi læknadeila. Ríkisvaldið og sáttasemjari keppast við að semja ekki við starfsstétt sem er ekki til Heilsugæslulæknar hafa sagt upp með lögmætum hætti og era ekki lengur starfsmenn ríkisins, eða neins annars. En allir sem þátt taka í þykjustuleiknum segja bara að þetta sé allt í plati og fjármálaráðuneytiö og sáttasemjari era í verkfalls- leik við fólk sem alls ekki er í verkfalli... Hagsmuna sjúkra gætir enginn, enda eru þeir ekki aðilar að málunum og ættu að gæta þess aö verða ekki veikir nema í þykjustunni." OÓ í Tímanum 21. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.