Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Side 2
2 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 Fréttir Háseti af Snorra Sturlusyni bjargaðist naumlega þegar hann féll fyrir borð í Smugunni: Mjög hræddur þegar skipið fjarlægðist í myrkrinu - félagarnir björguðu lifi mínu, segir Sigurbjöm Þórmundsson Stuttar fréttir „Það var rosalegt sjokk að lenda allt í einu í köldum sjónum. Ég fór á bólakaf en náði að komast upp á yfirborðið. Þá voru félagar mínir búnir að kasta til mín björgunar- hring og ég náði að skríða upp á hann,“ segir Sigurbjöm Þórmunds- son, háseti á togaranum Snorra Sturlusyni, í einkaviðtali viö DV, en hann lenti í mikilli í lífshættu þegar hann féll fyrir borð i Smug- unni. Atvikið varð um tíuleytið að kvöldi fímmtudagsins 5. september sl. Aö sögn Sigurbjöms var veður frekar gott en þó var hitinn í sjón- um aðeins um þrjár gráður. Sigur- björn var um fjórar mínútur í sjón- um, sem er mikiö afrek því miðað við þessar aðstæður og þetta hita- stig sjávar er gert ráð fyrir að menn lifi af í þrjár mínútur í mesta lagi. Var fariö aö kólna mjög „Ég hugsaði bara um að halda á mér hita og reyna sem minnst á mig. Ég varð mjög smeykur þegar ég fjarlægðist skipið i myrkrinu og var kominn 80-100 metra burtu frá því. Mér var farið aö kólna mjög mikið þegar ég sá bátinn koma í áttina til mín og þá vissi ég að lífi mínu var borgið," segir Sigurbjöm. Fullkomin björgunaraögerö „Við vorum fjórir félagarnir uppi á dekki að láta trollið fara þegar ég flæktist með annan fótinn í keðju. Skyndilega strekktist á keðjunni og við það kastaðist ég í sjóinn. Félagarnir voru fljótir að bregð- ast við. Tveir hlupu í björgunar- hringina og köstuðu þeim útbyrðis. Þegar þeir sáu að ég var búinn að ná hringnum hlupu þeir til að gera bátinn kláran. Þeir voru mjög fljót- ir að setja bátinn niður og ná í mig. Björgunaraðgerðin gekk fullkom- lega upp og hver sekúnda var nýtt til hins ýtrasta. Það hefði ekki mátt muna miklu því i svona aðstæðum er þetta spurning um sekúndur. Fé- Ég var auðvitað dasaður en alveg ómeiddur utan að ég fékk smám- ar á annan fótinn. Ég viður- kenni að ég hef hugsað mjög mikið um þennan . atburð eftir á og hversu litlu mátti muna að illa færi. Maður sér marga hluti í nýju ljósi 1 ý eftir svona lífs- reynslu," segir Sigurbjörn. -RR Sigurbjörn Þórmunds- son háseti með björgun- arhringinn sem bjargaði lífi hans þegar hann féll útbyrðis af togaran- um Snorra Sturlusyni í Smugunni. DV-mynd GVA Hafrafellið: Aldrei beðnir um umsögn - segir Helgi Laxdal „Sannleikurinn er sá að Skafti hefur aldrei komið með neina beiöni til okkar vegna þessa máls, hvorki fyrr né síðar," sagði Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands, vegna viðtals við Skafta Skúlason, útgerðarmann Hafra- fellsins, í DV á laugardaginn. Þar hélt Skafti því fram að Vélstjórafé- lagið hefði verið andvígt því að tveir rússneskir vélstjórar fengju undanþágu til að starfa um borð í Hafrafellinu. Skafti sagði að Vélstjórafélagið hefði kverkatak á útgerðunum vegna löggildingar starfsins og ákvæða um aö aðeins megi ráða menn með íslensk vélstjórarétt- indi á íslensk fiskiskip nema með sérstökum undanþágum. „Ég skil ekki hvað Skafti er að fara. Félagsmálaráðuneytið af- greiðir beiðnir um atvinnuleyfl fyrir útlendinga og við erum um- sagnaraðilar," sagði Helgi. -bjb Líkamsárás á ísafirði Maöur var handtekinn á ísa- firði í fyrrinótt eftir að hafa ráð- ist á mann og veitt honum áverka í bakgarði húss við Aðal- stræti. Árásarmaðurinn hefur verið ákærður fyrir líkamsárás. Fómarlambið var enn á sjúkrahúsi i gærkvöld með tölu- verða áverka í andliti og jafnvel var talið að um innvortis meiðsl væri að ræða. -RR lagar mínir fá toppeinkunn fyrir björgunarstarfið og það er þeim að þakka að ég er á lífi.“ Fórum yfir björgunaraö- geröir „Á leiðinni í Smuguna fór- um við vandlega yfir allar björgunaraðgerðir. Það er mjög mikilvægt. Það var talað um að mikilvægast væri að halda ró sinni og það tel ég hafa hjálp- að mér mjög mikið. Eftir aö ég kom aftur um borð var ég mjög sjokkeraður. En ég náði sem betur fer að jafna mig fljótlega á öllu sam- an og allir félagar mínir um borð gerðu sitt til að láta mér líða betur. Mórallinn er einstaklega góður um borð í skipinu og það hjálpaði mér mikið. Það kom fljótlega læknir úr varð- skipinu um borð og skoðaði mig. Kom og ógnaði mér með hnífi - segir Kristjana M. Jónasdóttir, tvítug afgreiðslustúlka Vopnað rán í Söluturninum við Grundarstíg: „Hann kom allt í einu að mér og ógnaði með hnífi. Hann sagðist ekki ætla að gera mér mein ef ég gerði eins og hann vildi. Ég var mjög hrædd en náði samt að halda ró rninni," segir Kristjana M. Jónas- dóttir, tvítug afgreiðslustúlka, í samtali við DV, eftir að vopnað rán hafði verið framið í Söluturninum við Grundarstíg um níuleytið í gær- kvöld. Kristjana var ein í sölutum- inum þegar ránið var framið. „Maðurinn hljóp síðan út án þess að gera mér nokkuð. Ég var í mestu sjokki eftir að hann var farinn og ég gat áttað mig á hvað hafði gerst. Maðurinn var mjög yfirvegaður all- an tímann og talaði rólega. Hann virtist ekki vera ölvaður eða undir áhrifum eiturlyfja. Ég hringdi strax í lögregluna og gaf lýsingu á hon- um. Ég er nokkum vegin búin að jafna mig á þessu en átti þó dálítið erfitt með að sofna. En ég ætla ekki að láta þetta hafa nein áhrif á mig eða líf mitt,“ sagði Kristjana. Ræninginn handtekinn Ræninginn hafði á brott með sér 25 þúsund krónur í reiðufé. Lög- reglumenn á næturvakt í Reykjavík handtóku hann um fjögurleytið í fyrrinótt í húsi við Nýlendugötu. Þar fannst hluti þýfisins og einnig Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Ji M Nei íM 904 1600 Er rétt að selja áritaðar myndir af forsetahjónunum til styrktar framboði Ólafs Ragnars Grímssonar j rödd FOLKSINS Fjórir teknir meö fíkniefni Fjórir menn voru handteknir með fikniefni á Laugaveginum aö- faranótt sunnudags, Lögreglan handtók fyrst einn karlmann en hann hafði á sér 9 hassmola og 3 grömm af amfetamíni. Síðla nætur vom síðan þrir menn teknir í bil á Laugaveginum og við leit i bílnum fannst nokkurt magn af amfetamíni. Mennirnir voru allir látnir lausir eftir yfirheyrslur. -RR nokkuð af fíkniefnum. Að sögn lög- reglunnar í Reykjavík játaði maður- inn ránið við yfirheyrslur í morgun og einnig að hafa stolið bíl í borg- inni fóstu- dags- kvöld. Hann mun ekki hafa komið mikið við sögu lögreglu. -RR Kristjana M. Jónasdóttir, tvítug af- greiöslustúlka, var viö afgreiöslu- störf þegar maöur vopnaöur hnífi rændi 25 þúsund krónum í Söluturninum viö Grundarstíg í fyrrakvöld. Ræninginn ógnaöi Kristjönu með hnífi í ráninu. DV-mynd GVA Ibúar fá völdin Hverfisnefnd og hverfisráð verða stofnuð í tilraunaskyni í Grafarvogi á næstu döginn. Sam- kvæmt RÚV er það liður í að færa íbúum hverfanna meiri völd en hingað til. Kröfur í Miðbæ Auglýst hefúr verið eftir kröfu- höfum á hendur Miðbæ Hafhar- fjarðar hf. Samkvæmt RÚV hefur félagið fengið heimild til að leita nauðasamninga. Aukið Græn- landsflug Flugleiðir hyggjast fjölga ferð- um til Grænlands í vor, m.a. í tengslum við útgerð nýs skemmti- ferðaskips við Grænlandsstrend- ur. Þetta kom fram í RÚV. Forstjóratekjur Nær helmingur 50 þekktra for- sfjóra hefur á bilinu 500 til 800 þúsund krónur í tekjur á mánuði. Frá þessu er greint í Frjálsri verslun. Þverrandi áhugi Áhugi útlendinga á islenskum fræðum fer þverrandi. Samkvæmt Stöð 2 verður starfsliði Árnastofn- unar í Kaupmannahöfn fækkað um fjórðung. Heilabiluðum fjölgar Samfara auknum lífslíkum fer heilabiluðum og minnissjúkum jafnt og þétt fjölgandi. Samkvæmt Mbl. gæti heilabilun orðið farald- ur 21. aldarinnar. Samið við Col- umbia Yfirgnæfandi líkur eru taldar á samningnum við Columbia Ventures um byggingu álvers á Grundartanga. Samkvæmt Mbl. gætu framkvæmdir hafist í byrj- un næsta árs. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.