Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 8
8
MANUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996
Útlönd
Aðskilnaðarsinnar stofnuðu sjálfstætt lýðveldi á Norður-Ítalíu:
almenning með sér
Lögreglan segir aö færri en tuttugu þúsund manns hafi komiö til aö hlusta á Umberto Bossi, foringja aöskilnaöar-
sinna, lýsa yfir stofnun Padaníu, sjálfstæös lýöveldis, á noröurhluta Italíu. Einingarsinnum gekk betur aö fá fólk í liö
meö sér á fundum um allt land
Símamynd Reuter
Umberto Bossi, forsprakki að-
skilnaðarsinna á Ítalíu, lét sér fátt
um finnast þótt stuðningur almenn-
ings við hann reyndist dræmur,
heldur lýsti yfir sjálfstæðu lýðveldi
í hinum auðugu norðurhéruðum It-
alíu í gær.
Með lónið í Feneyjum í baksýn og
við hljóma hátíðlegrar tónlistar
lýsti eldhuginn Bossi, leiðtogi
Bandalags norðanmanna, yfir stofn-
un sambandslýðveldisins Padaníu.
Bossi hafði þá lokið þriggja daga
göngu sinni til sjávar, eins og hann
kallaði hana, frá upptökum árinnar
Pó uppi í Alpafjöllunum til Adría-
hafsins.
„Við, þjóð Padaníu, lýsum því há-
tíðlega yfir að Padanía er frjálst og
fullvalda sambandslýðveldi," sagði í
yflrlýsingunni sem Bossi las upp
fyrir mannfjöldann í Feneyjum.
Þangað kom hann siglandi í fylking-
arbrjósti smábátaflota.
Samverkamenn Bossis tóku niður
ítalska þjóðfánann og drógu að húni
hvítan og grænan fána með mynd af
laufi, tákn hins nýja lýðveldis.
Lögreglan telur að færri en tutt-
ugu þúsund manns hafi verið við-
stödd athöfnina en aðskilnaðarsinn-
ar sjálfir segja að sjötíu þúsund hafi
sótt samkomuna. Þá var langur
vegur frá því að ganga Bossis drægi
að sér þá eina milljón manna sem
hann gerði sér vonir um.
Stuðningsmenn einingar Ítalíu
létu líka til sín taka um allt land í
gær en hvergi voru þó fleiri saman
komnir en á fjöldafundi í Mílanó
sem róttækir hægrisinnar boðuðu
til. Lögreglan álítur að þar hafi 150
þúsund manns að minnsta kosti
komið til að lýsa yfir stuðningi sín-
um við óskipta Ítalíu.
Gianfranco Fini, leiðtogi hins
hægrisinnaða þjóðarbandalags,
sagði í Mílanó að aðskilnaður væri
móðgun við söguna og móðgun við
heilbrigða skynsemi.
„Ítalía læfur ekki móðga sig og
henni verður ekki skipt,“ sagði
Fini.
Oscar Luigi Scalfaro, forseti ítal-
íu, gagnrýndi Bossi og sagði að rík-
ið mundi tryggja málfrelsi en það
mundi ekki líða að hvatt yrði til
„ólöglegra athafna“. Þar var hann
að vísa i þau orð Bossis að eitt
fyrsta verk bráðabirgðastjórnar
hins nýja lýðveldis væri að stofna
vopnaðar sveitir aðskilnaðarsinna.
Reuter
Bossi mistókst að fá
Sfl ÚTBOÐ
F.h. Húsnæöisnefndar Reykjavíkur er óskaö eftir tilboðum í:
1. Gler
2. Blikksmíöi
í 102 íbúðir viö Álfaborgir/Dísaborgir i Reykjavík.
Útboðsgögn eru afhent á skrifst. vorri gegn kr. 10.000, skilatr. fyrir hvort verk.
Opnun tilboða: miðvikud. 2. okt. nk, kl. 11.00 á sama stað.
hnr 126/6
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. sjálfseignarstofnunarinnar
Skógarbæjar, óskar eftir tilboðum í múrverk innanhúss fyrir hjúkrunarheimiliö
Skógarbæ að Árskógum 2, Reykjavík. Helstu verkþættir eru gólflögn, hlaönir
innveggir og múrhúðun hlaðinna veggja.
Útboösgögn eru afhent á skrifst. vorri frá miövikud. 18. sept. nk, gegn kr.
15.000, skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 10. okt. nk, kl. 11.00 á sama stað.
bgd 127/6
F.h. Borgarverkfræðingsins f Reykjavik er hér meö óskað eftir tilboðum í
verkið:
Borgarholt II - Spöngin og Vættaborgir.
Helstu magntölur eru:
- Götur, breidd 5-6 m, 370 m
- Götur, breidd 7-7,5 m, 560 m
-Bllastæði2. 100 m!
-Holræsi2. 140 m
- Púkk 3.500 m!
- Mulin grús 7.400 m!
- Losun klappar, 3.500 m3
Hluta verksins skal skila fyrir 1. des. 1996 en því skal aö fullu lokið fyrir 1. júlí
1997.
Útboösgögn eru afhent á skrifst. vorri frá þriöjud. 17. sept. gegn kr. 10.000,
skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 26. sept. nk, kl. 11.00 á sama stað.
gat 128/6
INNKA URASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Frfklrkjuvegi 3 - Sfmi 552 58 00 - Fax 562 26 16
Clinton hringdi í Borís Jeltsín:
Óskaði góðs gengis
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hringdi í Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seta í gær til að óska honum góðs
gengis vegna væntanlegrar hjarta-
aðgerðar sem Kremlarbóndinn þarf
að gangast undir einhvern tíma á
næstunni.
„Þetta var bara vináttusímtal til
að óska honum alls hins besta,“
sagði Mary Ellen Glynn, talskona
Hvíta hússins, við fréttamenn í
Iowa þar sem Clinton var á kosn-
ingaferðalagi.
Leiðtogamir töluðu saman í tíu
mínútur.
Jeltsin dvaldi á sjúkrahúsi í
Moskvu um helgina til að læknar
gætu rannsakað hann betur vegna
hjartaaðgerðarinnar væntanlegu.
Talsmaður Rússlandsforseta sagði
að ekkert óeðlilegt væri að forsetan-
um, það væri einfaldlega auðveld-
ara fyrir læknana að gera rann-
sóknirnar inni á sjúkrahúsinu.
Rússneska sjónvarpsstöðin NTV
sagði í gær að svo kynni að fara að
Jeltsín mundi láta forsætisráðherra
sinn fá yfirráð yfir kjarnorkuvopna-
búrinu rétt á meðan hann væri
meðvitundarlaus í sjálfri skurðað-
gerðinni.
Reuter
Saddam traustari en
við lok Flóabardaga
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
viðurkenndi í gær að Saddam
Hussein íraksforseti væri traustari
í sessi nú en að loknu Persaflóa-
stríðinu en sagðist þó fullviss um að
vígbúnaður Bandaríkjamanna í
þessum heimshluta mundi hafa
hemil á honum.
Hann sagðist eiga von á að stjórn-
völd í Kúveit mundu veita viðtöku
allt að fimm þúsund bandarískum
hermönnum til viðbótar við þá sem
fyrir eru vegna nýrrar árásarstefnu
íraka. Kúveitar voru hins vegar
afar hikandi í byrjun.
Háttsettir bandarískir embættis-
menn sögðu að þeir gæfu ekki mik-
ið fyrir tilkynningu íraskra stjóm-
valda á föstudag um að þau væru
hætt að skjóta á bandarískar flug-
vélar sem hefðu eftirlit með flug-
bannssvæðunum yfir norður- og
suðurhluta Iraks.
Wifliam Perry, landvamaráðherra
Bandaríkjanna, var í Sádi-Arabíu,
Kúveit og Barein í gær til að afla
stuðnings við aukin hemaðarumsvif
Bandarikjamanna. Hann sagði í Kú-
veit að Bandaríkin mundu grípa til
nauðsynlegra aðgerða til að fram-
fylgja flugbanninu og útilokaði ekki
frekari loftárásir. Reuter
Stuttar fréttir i>v
Loftárás á borg
Orrustuvélar afganska stjórn-
arhersins vörpuðu sprengjum á
borgina Jalalabad sem er á valdi
Taleban skæruliða og týndu að
minnsta kosti tólf lífi.
Lofar kosningum
Liame Zeroual, forseti Alsírs,
lofaöi í gær að kosningar yrðu
haldnar á næsta ári.
Netanyahu
Benjamin
Netanyahu,
forsætisráð-
herra ísraels,
er undir mikl-
um þrýstingi
frá arabaþjóð-
um um að
hleypa meira
fjöri í friöar-
viðræðumar en hann segist
engu að síður ekki ætla að hvika
frá grundvallarstefnu sinni,
jafnvel þótt það kosti hann vin-
skap Bandaríkjanna.
Hætt kominn
Alberto Fujimori slapp með
skrekkinn þegar bilun í þyrlu
sem hann var í varð til þess að
flugmennimir misstu stjóm á
henni um stundarsakir.
Ekkert vopnahlé
Talsmaður Sinn Fein, pól-
itísks arms írska lýðveldishers-
ins, segir ekkert hæft í fréttum
um að fyrirhuguð ráðstefria í
næsta mánuði verði notuð til að
lýsa yfir vopnahléi IRA.
Lítil kjörsókn
Lítil kjörsókn í Bekaadalnum
í austurhluta Líbanons í síðustu
umferð þingkosninganna er
áfall fyrir hreyfingu Hizbollah
sem fylgja írönum að máli.
Blair í
Innanbúðar-
átök setja nú
svip sinn á
breska Verka-
mannaflokk-
inn eftir að
fréttir birtust
um að tengsl-
in við verka-
lýðshreyfing-
mia kynnu að verða rofin. Tony
Blair flokksleiötogi sakaði and-
stæðinga sína í gær um að
skorta kjark í slaginn um völdin
viö íhaldsflokkinn.
Le Pen kokhraustur
Jean-Marie Le Pen, leiðtogi
flokks franskra hægriöfga-
manna, var kokhraustur í gær
þegar tilraunir til að fá flokk
hans bannaðan rannu út í sand-
inn.
Rigning í Halifax
Mikið úrfelli var í Halifax og
öðmm byggðum Nova Scotia í
Kanada af völdum leifa fellibyls-
ins Hortense.
Strangari lög
Norma
Major, eigin-
kona breska
forsætisráð-
herrans,
hvatti til þess
í gær að sett
yrðu strang-
ari lög um
vemdun
einkalífs fólks en nokkur blöð
birtu myndir sem teknar vom
með aðdráttarlinsu af Major-
fjölskyldunni I fríi á lúxus-
snekkju.
Stúlkur fundust
Tvær belgískar unglingsstúlk-
ur fundust ómeiddar nærri
frönsku landamærunum
nokkmm klukkustundum eftir
að tveir menn rændu þeim og
svæfðu.
Gegn flugum
Borgarstjórinn í Manila á Fil-
ippseyjum hefur skorið upp her-
ör gegn flugum og kakkalökkum
í borginni. Reuter
erjum
fastur fyrir