Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Page 9
MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 9 I>V Utlönd John Major vill aö ríkisarfinn fari hægt í sakirnar: Karl klaufskur viö aö fá þjóöina á band Camillu Karl Bretaprins er undir sívax- andi þrýstingi um að fara nú hægt í sakirnar við að reyna að fá breskan almenning til að taka hjákonu hans til margra ára, Camillu Parker Bow- les, í sátt. Breska blaðið Mail on Sunday sagði í gær að John Major, forsætis- ráðherra Bretlands, ætlaði að skýra Elísabetu drottningu frá ótta sínum við það sem ráðherra kallar klaufa- lega herferð Karls til að fá almenn- ing á band Camillu. Major var gest- ur drottningar yfir helgina. „Þeir óttast að herferðin, sem hófst aðeins þremur vikum eftir lög- skilnað prinsins, gæti haft öfug áhrif við það sem að var stefnt og þar með varpað skugga á erfðarétt hans,“ sagði í blaðinu. „Forsætisráðherrann telur að all- ar hugmyndir hans um að kvænast aftur verði að bíða þar til um alda- mót, þótt ríkisstjómin sé í sjálfu sér ekki andvíg sambandi þeirra.“ Karl hefur ekkert farið leynt með að hann ætlar að halda áfram sam- bandi sínu við Camillu. Skoðana- kannanir sýna hins vegar að breska þjóðin er andvíg því að þau gangi í hjónaband, enda enn töfruð af Díönu prinsessu sem er bæði yngri og glæsilegri. Vinir Karls og Camillu hafa tekið virkan þátt í herferðinni og laumað þvi að fjölmiðlum hvar hægt sé að mynda þau saman, eða hvar hægt sé að sjá Camillu með nýja hárgreiðslu og í flottum fótum. Blaðið Sunday Times sagði i gær að engin ástæða væri fyrir Major að sofa ekki rólega þar sem drottning- in ætlaði að fullvissa hann um að engin hætta væri á að Karl mundi ganga í hjónaband ef það væri al- menningi ekki þóknanlegt. Karl og Andrés, bróðir hans, voru með móður sinni og öðrum úr fjöl- skyldunni í Balmoralkastala í Skot- landi um helgina þar sem rætt verð- ur um hvernig hægt sé að hressa upp á ímynd fjölskyldunnar eftir öll hneykslismálin og hjónaskilnaðina sem hafa skekið hana upp á síðkast- ið. Reuter Vinir og aðdáend- ur syrgja Tupac Shakur Aðdáendm- og vinir minntust rapparans Tupacs Shakurs um helgina en hann lést á sjúkrahúsi í Las Végas aðfaranótt laugardags, sex dögum eftir að hann varð fyrir skot- árás í bíl sínum í borginni. Shakur, sem var 25 ára þegar hann lést, var einhver umtalaðasti rapparinn vestra og komst marg- sinnis í kast við lögin. Það endur- speglaðist í tónlist hans þar sem líf- inu í fátækrahverfum svertingja var lýst á mjög svo opinskáan hátt. Reuter qitarskóli ^"ÖLAFS GAUKS NÚ ER HVER SÍÐASTUR AÐ INNRITAST Við innritum í síma 588-3730 daglega þessa viku kl. 14.00 til 17.00 eða í skólanum Síðumúla 17. Fjölbreytt námskeið í boði, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna á öllum aldri. Skemmtilegt nám. Þú nærð lengra en þú heldur fyrir jól. Verulegur staðgreiðsluafsláttur. Sendum upplýsingabækling þeim sem vilja. SLÁÐU Á ÞRÁÐINN OG KANNAÐU MÁLIÐ Tara Dawn Holland frá Kansas hefur fulla ástæðu til að vera hress og kát. Hún var nefnilega kjörin fegursta stúlka Bandarikjanna í gleðiborginni Atl- antic City um helgina. Tara er 23 ára gömul og er að læra að verða tónlistar- kennari. Sjónvarpsáhorfendur höfðu sitt að segja um úrslitin. Símamynd Reuter Alþjóðlegir eftirlitsmenn í Bosníu: Kosningarnar voru að mestu frjálsar Alþjóðlegir umsjónarmenn kosn- inganna í Bosníu um helgina, þeirra fýrstu frá lokum borgara- styrjaldarinnar, sögðu i gær að óháðir eftirlitsmenn teldu þær hafa að mestu verið frjálsar og farið vel fram. Múslímar neita hins vegar að viðurkenna úrslitin á svæðum Serba og saka þá um kosninga- svindl. Stjórnvöld í Frakklandi og Þýska- landi hafa tekið undir með Richard Holbrooke, aðalhöfundi friðarsam- komulagsins í Bosníu, sem fylgdist með kosningunum á laugardag og lokið á þær lofsorði. Mikill þrýsting- ur er því á múslíma um að láta af andstöðu sinni. Bosníu-Serbar svöruðu múslímum með því að stöðva taln- ingu atkvæða á svæðum sínum, þar sem tugir þúsunda flóttamanna múslíma greiddu atkvæði. En taln- ingin hófst á ný nokkrum klukku- stundum síðar, eftir að Stofhunin um öryggi og samvinnu í Evrópu, sem hefur yflrumsjón með kosning- unum, skarst í leikinn. Umsjónarmennirnir höfðu búið sig undir mótmæli andstæðra fylk- inga í Bosníu eftir kosningarnar og sögðust þess fullvissir að hægt yrði að jafna allan ágreining á næstu dögum. Öryggisstofnunin sagði að fylk- ingamar í Bosníu hefðu vitað fyrir- fram að kosningarnar yrðu ekki fullkomnar og ekkert benti til að ástæða væri til að ógilda þær neins staðar. Bráðabirgðaúrslit úr kosningun- um til þriggja manna forsetaráðs frá héruðum múslíma, Serba og Króata, svo og þingkosningunum, verða væntanlega kunn síðar í dag. Skýrsla eftirlitsmannanna mun síðan hafa áhrif á það hvort úrslitin verða staðfest síðar í mánuðimun. Þá verður hægt að hefja myndun valdastofnana og vinna að fjárlög- um næsta árs. Reuter þaö Vegna góðrar sölu AKAI ~ ^ á íslandi, verðlauna framleiðendur okkur með ríflegum afslætti af tveimur samstæðum. um Þennan afslátt færðu beint hjá okkur... minna • Stefrænt FM/MW/LW útvarp meö 3Ö minnu • Þriggja diska geislaspilari með 30 minnum • Innstunga fyrir heyrnatól og hljóðnema • Tónjafnari með 6 forstillingum • ívöfalt Dolby segulband • Tímastillari og vekjari • Fullkomin fjarstýring • 100 watta magnari AKAI TX-3DD Kr. B4.9DD stgr. Var áður kr. 44.900 stgr. • Stafrænt FM/MW/LW útvarp með 30 minnum • Þriggja diska geislaspilari með 30 minnum • Innstunga fyrir heyrnatól og hljóðnema • Tvöfalt Oolby segulband m.síspilun • lónjafnari með6forstillingum • Tímastillari og vekjari • Fullkomin fjarstýring • Surround Itljúlerfi • 140watta magnari 1 • 1 1 1 1 \ —o«5væ>o— t | h\ 0 ■ % • • f ■ ;■ | v ' - - - 1 ' ' ■ ' 1 J * i f AKAI TX-50D Kr. 44.9DD stgr. Var áður kr. 54.900 stgr. Sjðnvarpsmiðstöðin IUrtofatm n M allCVlSTURlAIIO: Hljómsýa Akranesi. Kauplálag BgiMim Borgamesi. Blónslnellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímssoa Gmndarfirði. VESTflRDIR: Ralbúð Jónasar luis, PatitksH. Ptillmn. Isafirði. NDR0URLAIID: (I Steingrimsljarðar. Holma.ik 1 [(V-Húnvetninga. Hvauislinga. II Húnvelninga. Blönduósi. Skagfiiðingabúð. Sauóárkióki HA. Oalvík. Hljómvei. tureyn Oryggi. Húsavík. Urð. HaularhttiAUSIUHLAND.Kf Héraósbúa, Egilssloöum. II Vopnfiróinga. Vopnallrði. U Héraösbúa, Seyðisfiröi. IF Fáskrúðsljarðar. I Fáskiúðstirði. KASK, Diúpavogi KASK. Hðfn Hnmafirði.SUDURLAKID: KF Amesinga .Hvolsvelli. Mosfell. Hellu. Heimstækni. Sellossi. Radiðrás. Selfossi. tl Arnesinga. Selfnssi. Rás. Pmlákshöfn. Brímnes. Vestmannaevium. RIYKJANES: Rafborg. Grindavik. Ralmæni. Hafnarlirði 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.