Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Page 14
14 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoöarritstjóri: EUAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgalds. Ofbeldislýður Við höfum stært okkur af því að búa í friðsælu samfé- lagi þar sem menn gætu gengið óhultir um götur, jafnt að nóttu sem degi. Það á ekki við lengur. Alvarlegum lík- amsárásum hefur fjölgað, árásum sem margar hverjar eru afar fólskulegar og sumar að því er virðist algerlega tilefnislausar. Við höfum gjarnan kynnt útlendingum fegurð lands- ins og sagt þeim um leið að hér væru þeir öruggir um líf sitt, limi og eigur. Það er ekki langt síðan menn þurftu hvorki að læsa bílum sínum né híbýlum. Nú telja marg- ir að ekki dugi að læsa bílum og húsum, vissara sé að koma upp öryggis- og þjófavamarkerfum til viðbótar. Mannsöfhuður, dykkjusvall og ómenning er lýti á mið- borg Reykjavíkur um helgar. Þessar reglulegu sukksam- komur hafa vakið athygli út fyrir landsteina, jafnvel svo mikla að hingað hafa verið sendir fréttamenn til þess að skoða fyrirbrigðið. Þær fréttir og myndir eru vond land- kynning. Enn verra er að venjulegt fólk treystir sér ekki til þess að ganga um sinn eigin miðbæ á þeim tíma er lýðurinn hertekur hann. í lögregluskýrslum koma ástæður þessa ástands fram. Áfengis- og flkniefnaneysla er mjög ofbeldishvetjandi. Neysla harðari efna breytir mönnum og gerir þá ofbeld- isfyllri. Umhverfið er opnara fyrir ofbeldi en áður var. Átök aðila innan fíkniefnaheimsins eru harkaleg. Svo aðeins séu teknir atburðir síðustu viku þá fannst fíkniefnagreni á ísafirði þar sem auk fíkniefna fundust fjölmörg eggvopn, allt upp í sverð. í Reykjavík var að til- efnislausu ráðist á ungan mann og djúpur skurður rist- ur í andlit hans. Þá var framið mannrán í borginni. Árásarmennirnir fundust fljótt en óttinn í þessum lok- aða heimi er slíkur að fórnarlambið, sem þekkti árásar- mennina, kaus að kæra ekki. Þótt skráðar líkamsárásir séu margar í Reykjavík er fráleitt að ofbeldið sé bundið við höfuðborgina eina. Þeg- ar ástandið var kannað fyrir helgi kom í ljós að fjölmarg- ar meiri háttar líkamsárásir eru skráðar víða um land. Búnaður flkniefnasala og -neytenda er sýnir að þeir eru tilbúnir að beita vopnum. Fíkniefnaheimurinn er harður og óvæginn og hugur þeirra er ánetjast hafa efn- unum brenglaður. Samkvæmt upplýsingum lögreglunn- ar hafa ofbeldisskapandi fikniefni, amfetamín og kókaín, borist hingað í vaxandi mæli. Þá er það einnig mikið áhyggjuefni að áfengisneysla virðist hafa aukist og hún nær til yngra fólks en áður. Dæmin hafa menn fyrir framan sig eins og ástandið í miðborg Reykjavíkur sýnir. Skemmst er einnig að minn- ast hinna árlegu svallhátíða ungmenna í ágústbyrjun. Ástandið mun versna nema gripið sér harkalega í tau- mana. Borgar- og lögregluyfirvöld eiga ekki að líða ástand- ið í miðbænum. Þar þarf að hreinsa til. Aðgerðir lögregl- unnar gegn þekktum flkniefnagrenum undanfarnar vikur eru bráðnauðsynlegar. Þar má hvergi slaka á. En björninn er ekki unninn þótt takist að koma flkni- efnalýðnum undir mannahendur. Fangelsismálastjóri greindi frá því um helgina að fikniefnaneysla hefði auk- ist að undanförnu innan veggja fangelsisins á Litla- Hrauni. Hann sagði að hart yrði tekið á þeim brotum enda full þörf á. Aðalfikniefnaleiðin inn í fangelsin er með gestum sem koma í heimsókn. Þeir sem koma á götuna eftir slíka vist verða enn verri viðureignar en áður takist ekki að koma í veg fyr- ir eiturflutningana inn í fangelsin. Það er því víða verk að vinna. Jónas Haraldsson ,Eins og ekkert væri að gerast á íslandi nema flökun og frysting og loöna að steypast í síló, Sjónvarpið de Beauvoir... um, sjöttungi af þjóðar- tekjum, 83% þjóðar- tekna eiga upptök sín utan sjávarútvegs, að- eins einn af hverjum átta íslendingum vinn- ur við sjávarútveg, sjá Þorvald Gylfason, Mbl. 4. júní 1995). En látum það liggja á milli hluta, það er svo margt mikil- vægt sem engin þörf er að útlista í smáatriðum. Til dæmis meltingin: enginn ber brigður á mikilvægi hennar, þótt við séum ekki vakin og sofin að hugsa um hana, hún er sem betur fer á snærum ósjálfráða taugakerfisins; tugir „Og ég er ekki frá því að efnistök- in hafí líka breyst, þessi árátta að myndskreyta aðra hverja setningu var komin út í öfgar, vélin var eins og flö á skinni að fínna orðunum stað í mynd.“ Kjallarinn Pétur Gunnarsson rithöfundur Sú saga er sögð af frönsku skáld- konunni Simone de Beauvoir, mikilli baráttukonu, að einhverju sinni þegar hún háði hildi, mig minnir það hafi verið fyrir frjálsum fóstureyð- ingum, hafi í miðj- um klíðum verið komið til hennar með þau tíðindi að málið væri í höfn, þingið hefði sam- þykkt frumvarp. „Andskotinn," á frúin að hafa sagt, „og ég sem var búin að skrifa grein!“ Til dæmis meltingin... Ég var líka bú- inn að skrifa grein um hvað sjón- varpsfréttir RÚV væru leiðinlegar, þessar endalausu fiskiþulur, eins og ekkert væri að ger- ast á íslandi nema flökun og frysting og loðna að steypast í síló ... sjón- varpið væri á góðri leið með að breytast í fiskabúr þar sem þulim- ir kæmu syndandi upp að glerinu með loftbólum. Jújú, auðvitað er sjávarútvegur höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar og allt það (sem hann reyndar er ekki, skilar 53% af útflutningstekj- þúsunda taugaboða sem stýra meltingu eins munnbita og annað en gaman ef það færi allt fram í vitundinni. Maður kæmist ekki yfir að hugsa mikið annað. Gerbreytt taktík Svo settist ég niður fyrir framan sjónvarpið til að sannreyna að enn væru þeir við sama heygarðshorn- ið. En hvað sé ég? Mennirnir hafa gerbreytt um taktík síðan síðast, það er allt annað yfirbragð á fréttatímunum og líka flutt tíðindi af því sem er að gerast utan frysti- húsanna. Þjóðin jafnvel lyftir sér á kreik og lítur upp úr önnum dags- ins. Og ég er ekki frá því að efnistök- in hafi líka breyst, þessi árátta að myndskreyta aðra hverja setningu var komin út i öfgar, vélin var eins og fló á skinni að finna orðun- um stað í mynd. Það var verið að tala um eitthvað gersamlega ómyndrænt, t.a.m. skattamálin, og sýndar myndir af Seðlabankanum, Skattstofunni, súmmað aftur á bak og áfram á stafma yfir inngangin- um: SKATTSTOFAN ... skattstof- an. Hendur að telja seðla, fólk að þramma upp og niður Banka- stræti... Um hvað var aftur fréttin? Skattamál? Eða dómsmál og myndatökugengið gert út af örk- inni til að taka mynd af stöfunum fyrir ofan dyrnar í Hæstarétti: Hæstiréttur ... HÆSTIRÉTTUR ... hæstiréttur og RANNSÓKNAR- LÖGREGLA RÍKISINS súmmað aftur á bak og áfram þangað til kafflð v£ir farið að skvettast upp úr bollunum heima í stofu. Hvergi á byggðu bóli upplifði maður önnur eins efnistök, þessa vantrú á efninu sem um var rætt. Næsta stig hefði verið tökuliðið að hoppa framan við vélina líkt og bömin þegar þau komast í tæri við sjónvarpið. En sumsé - að þessu sinni get ég tekið heilshugar undir með Simone de Beauvoir... Pétur Gunnarsson Skoðanir annarra Stjórn heilsugæslu „Stjórn heilsugæslu þarf að vera sem næst fólkinu á hverjum stað. Þess vegna eiga heilsugæslan og sjúkrahúsin að vera undir stjórn byggðarlaganna eða sjálfstæðar stofnanir. Þó væri eðlOegt að ríkið ætti eitt öflugt sjúkrahús. Höfuðborgin ætti einnig að hafa burði til að eiga sjúkrahús sem gæti verið það öflugt að eölilegt aðhald skapist og samkeppni verði um gæði og verð þjónustunnar. Sú staða sem nú er komin upp í heilbrigðismálum að sameina stóru sjúkrahúsin í eitt fjárlagamiðstýrt bákn er röng.“ Páll V. Daníelsson í Mbl. 13. sept. Kjarasamningar og verðbólga „Nú fer að koma sá tími að kjarasamningar verða helsta viðfangsefnið á vettvangi þjóðmálanna og fjöl- miðlanna. Um áramótin þarf að endumýja kjara- samningana, en síðast vom þeir gerðir til tveggja ára. Kjarasamningarnir verða einn af helstu próf- steinunum á það hvort íslenskt samfélag er horfið af braut verðbólgunnar og gengið inn á veg stöðugleik- ans og framfara." Vilhjálmur Egilsson í Degi-Tímanum 13. sept. Dauður bókstafur „Fyrir nokkrum árum samþykkti Alþingi ný lög um stjómun fiskveiða þar sem 1 fyrstu grein var kveðið á um að auðlindir hafsins væm þjóðareign. Staðreyndin er hins vegar sú að þróun viðskipta með aflaheimildir hefur fært útgerðinni ígildi eigna- réttar á nýtingu fiskistofnanna. í höndum sægreif- anna er ákvæðið um þjóðareignina dauður bókstaf- ur. .. . Brýnt er að Alþýðubandalagið taki af öll tví- mæli um stefnu flokksins í þessum málum og móti skýrar tillögur um það hvernig þjóðin fái í sinn hlut afgjald frá þeim sem nýta sameiginlega auðlind okk- ar.“ Úr forystugrein Vikublaðsins 13. sept.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.