Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Side 26
38 MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 Fréttir Ferðamannaþjónusta á Sauðárkróki: Enga hótelgistingu að fá í bænum Um síðustu mánaðamót áttu sér stað tímamót varðandi þjónustu við ferðamenn á Sauðárkróki. Frá þeim tíma verður enga hótelgist- ingu aö fá í bænum. Samkvæmt því sem sögufróöir menn segja hef- ur slíkt ekki gerst frá því Hótel Tindastóll tók til starfa fjrir rúmri öld, 1884, en þar áður hafði reynd- ar Ámi vert selt gistingu með greiðasölu sinni. Guðmundur Tómasson, eigandi Hótel Torgs, hefur leigt Fjölbrautaskóla Norð- urlands vestra hótelið i vetur fyrir heimavist. Guðmundur hefur rek- ið hótelgistingu í 20 ár samfleytt á Sauðárkróki. Þegar við vorum með heimavist Fjölbrautaskólans á leigu um ára- bil var sú krafa sett af bænum að við rækjum heils árs hótel. Þegar viö síðan lentum í erfiðleikum, greiðslustöðvun, var heimavistin tekin af okkur og afhent öðrum að- ila. Ég hygg að sú krafa hafi einnig verið gerð til þess aðila af hálfu bæjarins að hann tryggði rekstur heils árs hótels í bænum en 9 ár hafa liðið án þess að hann hafi ráð- ist í hótelbyggingu," segir Guð- mundur Tómasson, hótelstjóri á Hótel Mælifelli, en nokkur ár eru síðan gisting var lögð af í því húsi, enda veitinga- og skemmtistaður. Guðmundur sagði einnig í sam- tali við DV að bærinn hefði ekki staðið við fyrirheit um niðurfell- ingu fasteignagjalds meðan ekki væri starfandi annað hótel að vetr- inum. Þá sagði Guðmundur greini- lega mismunun bæjaryfirvalda koma fram í því að margítrekað hafi Erlendur Hansen óskað eftir lagfæringum á Kaupangstorgi fyr- ir hönd nágranna viö torgið. Þeirri beiðni hafi ekki verið sinnt en bærinn hafi hins vegar brugðist skjótt við beiðni £mnarra aðila í grenndinni um malbikun. Engum mismunað í hótel- og veitingarekstri „Það er engum aðila mismunað í hótel- og veitingarekstri í bænum. Sá eini sem hefur fengið niðurfell- ingu á fasteignagjöldum er Guð- mundur Tómasson og það er vegna þess að hann er sá eini sem hefur haft rekstur heils árs hótels með höndum. Hins vegar hef ég lengi haft áhyggjur af stöðu hótelmála hér í bænum og veit til þess að að- ilar hafa beinlínis skipulagt sínar ferðir með það í huga að þurfa ekki að gista héma í bænum. Ein- faldlega vegna þess að hér hefur ekki verið í boði nægjanlega gott gistirými,“ sagði Snorri Björn Sig- urðsson bæjarsljóri. Aðspurður sagði Snorri Björn að það væri rangt að Erlendur Hansen hefði óskað eftir lagfæring- um á Kirkjutorgi og það væri líka rangt að bærinn heföi hlaupið upp til handa og fóta og malbikað í ná- grenninu vegna óska aðila í veit- ingarekstrinum. „Ástæðan fyrir því að við malbikuðum við Aðal- götu 16b (við Kaffi Krók, innsk. blm.) er sú að við vorum að kaupa þar hús sem við hyggjumst opna í safn næsta vor. Ef við hefðum ekki malbikað núna hefði það trúlega ekki komist í verk fyrir þann tíma,“ sagði Snorri Bjöm. Bæjar- stjóri gat þess einnig að það væri ekki og hefði aldrei verið á valdi bæjarstjómar að leigja út heima- vist Fjölbrautaskólans, það væri á valdi annarra aðila. Án þess að orð bæjarstjóra séu vefengd né orð annarra sem blaða- maður hefur rætt við um málið skal þess getið að Erlendur Hansen staðfesti það við blaðamann að hann hefði ítrekað óskað eftir lag- færingum á Kaupangstorgi. -ÞÁ Víöimýrarkirkja i Skagafiröi Aukablað um %% Midvtkudaguin 25, september mun aukablað um tölvur og tölvubúnað fylgja DV. Blaðið verður fjölbreytt og efiiismikið en í því verður fjallað um flest það er viðkemur tölvum og tölvunotkun. I blaðinu verða upplýsingar um bæði hugbúnað og vélbúnað, þróun og markaðsmál ásamt smáfréttunum vinsælu. Þeim sem vildu koma á framfæri nýjungum og eíni í blaðið er bent á að hafa samband við Jón Heiðar Þorsteinsson í síma 550-5847 sem fyrst. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við Selmu Rut, auglýsingadeild DV, hið fýrsta í síma 550-5720. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550-5727. Útlendingarnir flykkjast í Víði- mýrarkirkju Milli 9 og 10 þúsund manns skoð- uðu Víðimýrarkirkju í Skagafirði í sumar en hefðbundnum sýningar- tíma lauk þann 31. ágúst sl. Aðsókn var mjög svipuð og undanfarin ár, að sögn Önnu Kristinsdóttur, um- sjónarmanns kirkjunnar. Ekki liggja fyrir endanlegar tölur um að- sókn enda erfitt að halda utan um slíkt þar sem ellilífeyrisþegar, börn og unglingar innan 16 ára aldurs greiða ekki aðgangseyri. Kirkjan hefur verið opin almenningi alla daga undanfarin ár timabilið júní til ágúst. Kirkjan að Víðimýri er ein af ör- fáum torfkirkjum sem enn er í fullri notkun á landinu. Núverandi kirkja var byggð árið 1834. Hún er þiljuð að innan með rekaviði sem enn er nánast í upprunalegu horfi. Kirkjan var friðlýst árið 1936 og komst hún þá í eigu Þjóðminja- safns íslands. í henni eru nokkrir gamlir og merkilegir munir. Má þar nefna predikunarstól sem kom- inn var í kirkju á staðnum árið 1661 en getur verið eldri. Einnig má nefna altaristöflu frá árinu 1616. Anna Kristinsdóttir segir að út- lendingar séu í miklum meirihluta þeirra sem skoða kirkjuna og þar vegi hópar á vegum ferðaskrifstof- anna þyngst. Hún segir að í sumar hafi verið áberandi minna um Þjóöverja og Norðurlandabúa en undanfarin sumur. Þess má að lokum geta að ekki er tilviljun að fólk sýni Víðimýrar- kirkju áhuga. Kristján Eldjám, fyrrverandi þjóðminjavörður og forseti íslands, lýsti kirkjunni þannig: „Víðimýrarkirkja er einn stílhreinasti og fegursti minjagrip- ur íslenskrar gamallar byggingar- listar sem til er.“ -ÖÞ Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum: Deilt um tilnefningar fulltrúa sveitarfélaga DV, Suðurnesjum: „Til samræmis við undangengnar umræður, sem snerust um tilnefn- ingar fulltrúa sveitarfélaga en ekki persónur, harma ég að stjóm S.S.S. bæri ekki gæfu til að stýra málum þannig að öll sveitarfélög ættu þar einn fulltrúa hvort, í stað þess að Reykjanesbær komi til með að eiga tvo á kostnað fulltrúa frá Sandgerð- isbæ,“ segir í bókun Hallgrims Bogasonar, fulltrúa Grindavíkur í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum. Sambandi sveitarfélaga á Suður- nesjum barst bréf í sumar frá Bimi Bjarnasyni menntamálaráðherra þar sem óskað var tilnefningar tveggja fulltrúa í stjórn Fjölbrauta- skóla Suðurnesja og tveggja til vara. Tveir fundir voru haldnir nýlega hjá S.S.S. og urðu miklar umræður um það frá hvaöa sveitarfélögum fulltrúar ættu að vera. Kom fram til- laga á fundinum um Jón Inga Bald- vinsson og Guðbjörgu Ingimundar- dóttur sem aðalmenn og Guðjón Þ. Kristjánsson og Karl Hermannsson til vara. Tillagan var samþykkt með 4 at- kvæðum gegn atkvæði Hallgríms Bogasonar, fulltrúa Grindavíkur. Fulltrúar annarra sveitarfélaga gerðu eftirfarandi bókun. „í framhaldi af bókun Hallgríms er rétt að benda á að stjóm S.S.S. til- nefndi einungis tvo fulltrúa í skól- anefnd F.S. Það er ekki á valdi stjórnar S.S.S. að hafa áhrif á hvem- ig ráðherra skipar sína fulltrúa.“ -ÆMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.