Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Qupperneq 36
14.09/96
4 12 23
26 32
6.402.;
19 20) (2$
Herskip í Reykjavík:
Reynt að
leysa
landfestar
Veðurá
Faxaflóasvæði
næstu viku
- samkv. tölum frá Veöurstofu íslands - ^
Hitastig- á 12 tíma bili
14 c°
12
10
->/4V
f
mán. þri. miö. fim. fös.
Vindhraði
12 stig
10
8
6
4
mán. þri. miö. flm. fös.
Urkoma -á 12 tima bw
18 mm
16
14
12
10
8
Ib||SiB|b
mán. þri. miö. fim. fösi
ÆTLI ÞAU HAFI SUNGIÐ
KARTÖFLULAGIÐ HANS
ÁRNA JOHNSENS?
L O K I
> C2 ŒD FRÉTTASKOTIÐ
CC {—5 LXJ SÍMINN SEM ALDREI SEFIIR
S UT3 «=C Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
I— 1_TD
550 5555
MANUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996
Nokkur íslensk ungmenni tóku
upp á því aðfaranótt laugardags að
reyna að leysa landfestar ítalsks
herskips sem lá í Reykjavíkurhöfn.
Lögreglan kom á vettvang og stöðv-
aði uppátækið.
Um 500 ítalskir sjóliðar voru
staddir í Reykjavík um helgina. Að
sögn lögreglu höguðu þeir sér mjög
vel þrátt fyrir að vera áberandi í
borginni, sérstaklega á skemmti-
stöðum á fóstudagskvöldið. Þeir
fóru aUir um horð í herskip sitt um
miðnætti aðfaranótt sunnudags.
-RR
Berst fyrir endurupptöku dómsmáls unnusta síns í Finnlandi:
Höfum ákveðið að
gifta okkur fljót
lega í fangelsinu
- munum standa saman, segir Halldóra Gunnlaugsdóttir
„Með hjálp konsúlsins er ég
búin að komast að því í hvaða
fangelsi hann er og fæ að heim-
sækja hann tvisvar í viku. Ég fór
fyrst til hans í gær og síðan aftur
í dag. Hann tekur þessu þokka-
lega en það eru takmörk fyrir þvi
hvað ein manneskja þolir. Ég
ætla að veita honum alla þá hjálp
sem ég get. Við ætlum að standa
saman og höfum ákveðið að gifta
okkur fljótlega ef það verður leyft
í fangelsinu," sagði Halldóra
Gunnlaugsdóttir í samtali við DV
í gær frá Helsinki en hún er
unnusta Christophers Bundeh
frá Sierre Leone sem íslensk
stjórnvöld framseldu til Finn-
lands i siðustu viku til að afplána
tæplega 2 ára dóm í nauðgunar-
máli.
Halldóra fór út á eftir honum
og ætlar berjast fyrir endurupp-
töku málsins í Finnlandi auk
þess sem meðferðin á Christoph-
er hefur verið kærð til mannrétt-
indadómstóls Evrópu.
Halldóra býr hjá vinafólki
hans en varð að skilja dóttur sína
eftir á ísafirði. Hún hefur sett sig
í samband við finnska lögfræð-
inga, sem unnið hafa mikið I
mannréttindamálum, til að fá að-
stoð við endurupptöku málsins.
Hrottaleg meðferð
Halldóra sagði að eftir því sem
hún kynnti sér mál Christophers
í Finnlandi betur þá kæmi meira
og meira í Ijós hversu illa
finnska lögreglan gekk fram,
ekki síst í að fá fram játningu.
Meðferðin hefði verið hrottaleg
og andlegar misþyrmingar hafð-
ar uppi í yfirheyrslum yfir
Christopher og vinum hans.
Sömuleiðis væri hún búin að
heyra ótrúlegustu sögur eftir að
hún kom út, sögur sem sýndu að
hið sanna yrði að koma fram í
dagsljósið.
„Maður er sjokkeraður yfir
hvað mikil grimmd og kynþátta-
fordómar ríkja hérna. Ef þú ert
svartur þá á að finna eitthvað á
þig, sama hvað það er. Ég ætla að
berjast til að vinna. Ég ætla ekki
að þegja og mun láta finnskum
fjölmiðlum í hendur öll þau gögn
sem til eru í málinu. Það er búið
að gera tilraun til að splundra
íjölskyldu minni og því mótmæli
ég. Annars snýst þetta ekki bara
um okkur Christopher heldur
hvort mannréttindabrot og kyn-
þáttafordómar eigi að fá að vaða
uppi varnarlaust,“ sagði Hall-
dóra Gunnlaugsdóttir.
-bjb
HeUissandur:
Fornbýli
og kuml
grafin upp
„Markmiðið með þessum tveggja
daga athugunum var að staðfesta
hvort fornbýli og kuml væru á
staðnum eða ekki. Það bendir allt til
þess að þetta sé 10. aldar býli og
kumlið er þar hjá. Næsta skref er að
senda sýni utan til frekari greining-
ar,“ sagði Bjarni Einarsson forn-
leifafræðingur við DV í gær en
hann stjórnaði uppgrefti á skála og
kumli að írsku búðum i nágrenni
Hellissands um helgina en staður-
inn gengur einnig undir nafninu
Gerðuberg. Uppgi'öfturinn var sam-
starfsverkefni Bjarna og Snæfells-
bæjar en sveitarfélagiö kostar rann-
sóknina.
„Býlið hefur farið í eyði fyrir árið
1000 og aldrei byggst upp aftur.
Möguleikamir á góðum niðurstöð-
um eru því miklir. Nú er komin
endanleg staðfesting á aö þarna séu
fornleifar," sagði Bjarni.
Aðspurður sagði Bjarni að fund-
urinn væri mjög merkur og sam-
bærilegur við aðra. En hann væri
sérstakur að því leyti að gefa mikla
möguleika á að varpa ljósi á land-
nám íslands.
„Staðurinn styður þær kenningar
sem ég hef varpað fram og er í engu
ólíkur þeim.“
Bjami sagði ómögulegt að segja af
hverjum kumlið væri, hann ætlaði
að láta heimamönnum eftir að finna
nafn á kappann. Beinin í kumlinu
eru ónýt að sögn Bjama, orðin að
einhvers konar drullu eða deigi.
-bjb
Guörún Einarsdóttir, fyrrverandi aöstoöarframkvæmdastjóri Fáks, einhendir réttapelann í Tungnaréttum á laugardaginn en systir hennar, Eiínborg Einars-
dóttir, stendur hjá. Aö baki má sjá söngmennina góöu Sigurð frá Selfossi og Magnús Erlendsson frá Vatnsleysu. Um þrjú þúsund manns voru í réttunum í
fádæma blíöu. Réttað var um 6 þúsund fjár. Síöan fóru allir á ball hjá Geirmundi Valtýssyni um kvöldiö enda búið að færa réttirnar af miðvikudegi yfir á laug-
ardag til aö allir gætu skemmt sér nóttina út. DV-mynd GTK
Veðriö á þriðjudag:
Rigning
eða súld
Litlar breytingar verða á veð-
urfarinu á morgun, gert er ráð
fyrir suðaustanátt, víða stinn-
ingskalda. Rigning eða súld
verðm' um mestallt land, en þó
úrkomulítið á Vestfórðum og
Norðurlandi og þar ætti helst að
sjást til sólar einhvern hluta
dagsins. Hitinn verður 9 til 13
stig um allt land nema á Norð-
urlandi þar sem hitinn getur
farið i 16 stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
CRNOIDÍI
1
533-1000
7
Kvöld- og
helgarþjónusta
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Peifben
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499