Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1996, Qupperneq 28
36
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
Fólksflutningar frá Flateyri eru
mörgum umhugsunarefni.
Atvinnuleysi
flutt burt
„Menn viröast gleyma því þeg-
ar talað er um minnst atvinnu-
leysi á Vestfjöröum aö atvinnu-
leysið hefur í rauninni veriö
flutt burt.“
Gunnlaugur Sigmundsson al-
þingismaður, í DV.
Kennari utan úr heimi
„Samband okkar við annan
heim er ekki komið á nógu þró-
að stig til að við getum ráðið
kennara af öðrum heimi.“
Magnús H. Skarphéðinsson,
skólastjóri Sálarrannsóknar-
skólans, í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Eyðslugleði á brauðfótum
„Þetta er áminning til okkar
allra um að eyðslugleðin núna
standi á brauðfótum.“
Þórarinn V. Þórarinsson, um
vaxtahækkun Seðlabankans, í
DV.
Hefði mátt gera þetta fyrr
„Ég hefði auðvitað kosið að
hann hefði beitt sér fyrir vega-
gerð í Barðastrandarsýslu fyrr.“
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra um ummæli forseta ís-
lands, í Alþýðublaðinu.
Skúli Sverrisson leikur með eigin
hljómsveit á Hótel Sögu í kvöld.
Skúli Sverris
með eigin sveit
RúRek djasshátíðin stendur nú
sem hæst og i dag og í kvöld er
boðið upp á hvorki meira né
minna en sjö tónleika. Þeir sem
vilja byrja daginn snemma ættu að
bregða sér á Smurbrauðsstofúna
Jómffúna, þar stígur á stokk Norð-
ur-Suður kvartettinn og hefur
hann leik kl. 17.00.
Einleikstónleikar
Webers
Bandaríski píanóleikarionn Jon
Weber hefur þegar komið tvisvar
fram á RúRek hátiðinni, á opnun-
artónleikunum og í gærkvöldi
sýndi hann Guðmundi Ingólfssyni
virðingu sína með því að leika lög
hans. í kvöld er hann með ein-
leikstónleika í Menningarstofnun
Bandaríkjanna, þar mun hann
leika bæði gömul og klassísk dæg-
urlög ásamt eigin tónsmíðum.
Tónleikamir heíjast kl. 20.30 og er
aðgangur ókeypis. Á sama tima
hefur leik í Norræna húsinu Tríó
Wolferts Brederodes.
Skúli á Sögu
Það eru margir sem bíða
spenntir eftir aö hlusta á Skúla
Sverrisson en þessi frábæri bassa-
leikari hefur verið að gera það gott
í New York. Hann er nú mættur
með sína eigin hljómsveit og hefúr
leik kl. 22.00 á Hótel Sögu í kvöld.
Á sama tima hefja leik Frú Pálina
og félagar í Kringlukránni, Kvar-
tett Ómars Axelssonar á Hótel
Borg og Hljómsveit Carls Möllers
á Píanóbamum.
á víð og dreif
Skúrir
Skammt vestsuðvestur af Reykja-
nesi er 977 mb lægð sem þokast
vestur en 978 mb lægð um 700 km
suðvestur í hafi fer norðaustur og
verður við suðurströnd landsins í
dag.
Veðrið í dag
Á landinu í dag verður suðaust-
angola eða kaldi en norðaustankaldi
á Vestfjörðum. Skúrir verða á víð
og dreif í fyrstu, þó síst í innsveit-
um norðanlands. Síðdegis verður
komin austan- og norðaustankaldi
og sums staðar stinningskaldi með
rigningu, einkum sunnan- og aust-
anlands, en skúrum á við og dreif í
öðrum landshlutum. Hiti verður á
bilinu 5 til 14 stig.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustangola eða -kcddi og smá-
skúrir en austan- og norðaustan-
kcddi síðdegis og í nótt. Hiti verður
7 til 12 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 19.14
Sólarupprás á morgxrn: 07.25
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.49
Árdegisflóð á morgun: 06.10
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjaó 6
Akurnes alskýjaö 9
Bergstaóir léttskýjað 4
Bolungarvík alskýjaö 6
Egilsstaöir skýjaö 9
Keflavíkurflugv. skýjaö 8
Kirkjubkl. rigning 8
Raufarhöfn léttskýjað 5
Reykjavík skýjaó 8
Stórhöföi alskýjaö 8
Helsinki þokumóöa 4
Kaupmannah. lágþokublettir 7
Ósló alskýjaö 6
Stokkhólmur þokumóöa 3
Þórshöfn rigning 11
Amsterdam lágþokublettir 8
Barcelona léttskýjaö 14
Chicago alskýjaö 14
Frankfurt þoka 9
Glasgow skýjaö 14
Hamborg þokumóöa 9
London skýjaö 11
Los Angeles alskýjaö 18
Madrid léttskýjað 9
Malaga léttskýjaö 19
Mallorca léttskýjaö 14
París þoka í grennd 8
Róm rigning 15
Valencia léttskýjaö 16
New York heióskírt 14
Nuuk skýjað 0
Vín hálfskýjaö 10
Washington heiöskírt 14
Winnipeg léttskýjað 9
Jon Weber pianoleikari:
Læt hlustendur oft ráða hvað ég leik
Einn af gestum RúRek djasshá-
tíðarinnar er bandaríski píanó-
leikarinn Jon Weber en auk þess
að vera frábær píanóleikari þá
hefúr hann ótrúlegt minni. Weber
kann yfir 20.000 lög og það sem
meira er, hann getur sagt hver
höfundur laganna er og hvenær
þau voru fyrst flutt. íslenskir
djassunnendur fengu að kynnast
píanóleik hans í Kringlukránni í
gærkvöldi en þar lék hann lög
Guðmundar Ingólfssonar. Weber
hefur komið fjórum sinnum til ís-
lands og á þessum ferðum kynnt-
ist hann tónlist Guðmundar. í
kvöld heldur Jon Weber einleiks-
tónleika í Menningarstofnun
Bandaríkjanna og var hann spurð-
ur hvaða lög hann myndi flytja.
Maður dagsins
„Ég ákveð aldrei fýrirfram hvað
ég leik, ég sest bara við píanóið og
síðan kemur lagið upp i huga mér,
oft ekki fyrr en ég legg hendumar
á nótnaborðið. Oft spyr ég áhorf-
endur í hvaða dúr ég á að leika og
læt þá þannig ráða því hvaða lag
ég tek.“
Jon Weber hefúr mikla reynslu
í að leika á hótelum og börum og
Jon Weber.
telur það hafa verið góða reynslu:
„Það að leika á hótelbörum eins og
ég hef gert lengi er mjög góð æfing
vegna þess að ég veit í raun ekki
hvort ég hef þolinmæði til að æfa
einn míns liðs í sex klukkustund-
ir. Á hótelinu verð ég að gera það.
Á móti kemur að ég skrifa mina
eigin músík, meðal annars fyrir
sjónvarp og hef verið að gera það
með spUamennskunni undanfarin
tíu ár. Þá hef ég einnig unnið með
Milwaukie sinfóníuhljómsveitinni
og Chicago sinfóníuna. Þannig að
segja má að ég skipti spilamennsk-
unni í tvennt."
Nýlega kom út plata með Jon
Weber sem heitir Jazz Wagon og
hefur hún fengið góðar viðtökur, á
henni leikur hann meðal annars
íslenska þjóðsönginn í eigin út-
setningu: „Ég er mjög hrifmn af
þjóðsöngnum ykkar og fannst
sjálfsagt að hafa útsetningu mína
á honum meðal þeirra sextíu laga
sem ég bauð upp á. Og það að
hann skyldi verða valinn á plöt-
una sýnir að ég er ekki einn um að
þykja þjóösöngurinn sérlega fall-
egur og melódiskur. Á plötunni
spila ég einnig þrjú af mínum eig-
in lögum en á minni næstu plötu
verð ég örugglega með hljómsveit
og á henni verða að líkindum ein-
göngu lög eftir mig.
En hvernig stóð á því að Jon
Weber fékk áhuga á íslandi? „Það
atvikaðist þannig að sem strákur
átti ég hnattlíkan. Ég hafði oft
hugsað um eyjuna sem var þama
ein á milli heimsálfanna og ákvað
einhvern tímann að fara þangað.
Ég lét verða að því árið 1992 að
koma hingað, féll kylliílatur fyrir
landinu og er þetta í fjóröa sinn
sem ég kem hingað. Ég er búinn að
ferðast mikið um landið, hef farið á
vélsleðum upp á hálendið, gengið á
fjöll og gert ýmislegt fleira og ég
hætti aldrei að dást að því hvað þið
eigiö fallegt land." -HK
Rúmhelgur Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
Trio Nordica leikur ásamt Áshildi
Haraldsdóttur á fyrri tónleikun-
um í Listasafninu.
Trio Nordica
og Avanti í
Listasafninu
Þrennir tónleikar verða á Nor-
rænum músíkdögum 1 dag. Á há-
degistónleikum í Norræna hús-
inu, sem hefjast kl. 12.30, verða
leikin verk eftir Snorra Sigfús
Birgisson, sænska tónskáldið
Eberhard Eyser og T. Aagaard-
Nilsen frá Noregi. Auk Snorra
Sigfúsar koma fram Þórhallur
Birgisson og Steef van Osterhout
slagverkleikari.
Trio Nordica og
Áshildur
Á fýrri tónleikunum í Lista-
safni íslands, sem hefjast kl.
21.00, leikur Trio Nordica ásamt
Áshildi Haraldsdóttur flautuleik-
ara. Tríóið skipa Auður Haf-
steinsdóttir, fiðla, Bryndís Halla
Gylfadóttir, selló, og Mona Sand-
ström, píanó.
Bridge
Betri sagnir leiða ekki alltaf til
betri niðurstöðu. Þetta spil kom fyr-
ir á alþjóðlegu Marlboro sveita-
keppninni í Peking fyrr í mánuðin-
um. Lokasamningurinn var sá sami
á báðum borðum, 6 spaðar, en var
doblaður á öðru borðanna en pass-
aður á hinu. Sagnir gengu þannig á
öðru borðanna, suður gjafari og NS
á hættu:
* D982
* 53
* KG8753
* 10
* G
M 876
* Á109
* KD8652
4 ÁK10753 * -- 4- 4 * ÁG9743
Suður Vestur Norður Austur
1 * 4 *» 4 4 5 «»
5 4 6 * pass 64»
6 4 p/h pass pass Dobl
* 64 N
«» AKÐG10942 v ,
♦ D62 „
s
Vestur fór þá óvenjulegu leið að
segja 6 lauf (útspilsbeiðni) þó ljóst
væri að hann ætti sjálfur út gegn
spaðasamningi. Dobl austurs var
aðvörun til félaga um að spila ekki
út hjartalitnum. Vestur hlýddi og
spilaði út tígultvisti í upphafi, stór-
gott útspil sem virðist tryggja að
slemman fari niður. Sagnhafi gerði
ráð fyrir að vestur hefði sagt 5 lauf
á eyðu i litnum og væri að reyna að
koma austri inn til að fá stungu í
laufi. Þess vegna setti hann tígul-
kónginn því honum fannst líklegt
að vestur væri að spila undan ásn-
um í litnum. Sú spilamennska rugl-
aði austur í ríminu og hann hélt að
tvisturinn í tígli væri einspil. Hann
spilaði tígli áfram og nú voru engin
vandamál fyrir sagnhafa. Hann
trompaði heima, tók ás og drottn-
ingu í trompi og trompaði tígul
heima. Þegar tígullinn féll gat sagn-
hafi hent þremur laufum í frítígla
og trompað tvö lauf í blindum. Á
hinu borðinu spilaði vestur einfald-
lega út hjartaásnum í upphafi. Sagn-
hcifi trompaði heima, hafði enga
hugmynd um hina slæmu legu í
laufrnu og lagði niður ásinn. Vestur
trompaöi og tók slag til viðbótar á
tígul. ísak Örn Sigurðsson