Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 JLlV
(sælkerínn
Gott hreindýrakjöt er gulli betra:
Hreindýrakjöt með berjahlaupi
og krydduðum kartöflum
Hreindýraveiðitíminn er löngu búinn og marg-
ur veiðimaðurinn sem hefur komið með nýtt
hreindýrakjöt í búið. Gott hreindýrakjöt er gulli
betra og gaman að vanda sig við matreiðsluna þeg-
ar það er á borðum á hátiðarstundu. Hér kemur
uppskrift að meyrum og safaríkum hreindýrarétti.
Athugið að kjötið þarf aðeins stuttan steikingar-
tíma. í uppskriftina var upprunalega notað hind-
berjaedik en í staðinn má gjaman nota gott berja-
hlaup eða berjasaft.
600 g hreindýrakjöt, gjaman lundir
salt og pipar
smjör
Grænmeti
200 g sveppir
200 g sellerí
200 g gulrætur
smjör
Kartöflur
4 meðalstórar kartöflur
2 msk. hrætt smjör
2 tsk. timjan
salt og pipar
Sósa >
3 dl soð af kjötinu
Hreindýrakjöt er Ijúffengt og meyrt.
3 dl sýrður rjómi
berjahlaup eða berjasaft
salt
1 msk. smjör
maísenamjöl
Kjötið er hreinsað af himnum og sinum og
þurrkað. Salt og pipar er nuddað inn i kjötið og
það er brúnað í smjöri. Látið bíða meðan græn-
metisblandan er búin til.
Kartöflumar em þvegnar vel og skornar i fjóra
hluta. Penslað með smjöri og saltað, piprað og
timjan dreift á. Steikt í ofni í ca 20 mín. þar til
kartöflurnar em mjúkar og brúnaðar.
Sveppirnir era hreinsaðir og skomir í sneiðar,
selleríið í teninga og gulrætumar era sneiddar
niður. Grænmetið er steikt í smjöri þar til það
er mjúkt. Kryddað og haldið heitu.
Kjötið er nú steikt aftur, að þessu sinni í ofni í
5-6 mín., og látið bíða jafn lengi áður en það er
skorið í sneiðar.
Sósan er búin til meðan kjötið er inni í ofnin-
um. Náð er upp suðu á soðinu og sýrða rjóman-
um. Bragðbætt með hlaupi. Smjöri er hrært
saman við og bragðbætt með salti. Sósan er
jöfnuð með maísenamjöli sem hefur verið hrært
út í kalt vatn.
Grænmetinu er raðað á heita diska með kjöt-
sneiðum á. Sósunni er hellt yfir og kartöflum-
ar eru svo settar við hliðina.
-GHS
200 g valhnetukjamar
100 g suöusúkkulaði
250 g sykur
200 g hveiti
8 eggjahvítur
salt á hnifsoddi
Súkkulaðikrem
8 eggjarauður
100 g sykur
100 g suðusúkkulaði
100 g smjör
3-4 msk. sterkt kaffi
flórsykur
Hnetur, súkkulaði, syk-
ur og hveiti er sett í mat-
vinnsluvél. Eggjahvíturn-
ar eru stífþeyttar með
salti. Valhnetublöndunni
er blandað varlega saman
við marensinn.
Hrærunni er hellt í
smurt og hveitistráö 22-24
cm form. Kakan er bökuð
og deilt i tvo hluta.
Hrærið saman eggjar-
auðu og sykur. Bræðið
súkkulaðið og blandið
saman við eggjahræruna.
Bætið við mjúku smjöri
og þeytið kremið þar til
það er létt og loftmikið.
Kælið þar til það stífnar.
Kaffi er sett á kaffibotn-
ana, hugsanlega líkjör
líka, og leggið botnana
saman með súkkulaði-
kremi á milli. Kakan
verður að standa í nokkra
tíma áður en hún er bor-
in fram. -GHS
matgæðingur vikunnar
Guðrún Hanna Guðmundsdóttir:
Pastaréttur með hakki
og sætur eftirréttur
„Þessi góði og auðveldi pastaréttur
kom strax upp í hugann á mér þegar
skorað var á mig sem matgæðing
DV. Þegar fjölskylda mín hittist í
boðum eru saman komnir miklir
sælkerar og læt ég fylgja eina sæta
og fljótlega uppskrift að eftirrétti
sem er mjög vinsæll á mínu heimili,"
segir Guðrún Hanna Guðmundsdótt-
ir í Hveragerði.
Pastaréttur
500 g hakk
200 g sveppir
paprika
skinka (má sleppa)
100 g spergilkál
piparostur
1 peli rjómi
pastaskrúfur
Hakkið er steikt á pönnu ásamt
sveppum, papriku og skinkunni.
Piparosturinn er bræddur í rjóm-
anum ásamt smá krafti og þessu
öllu blandað saman á pönn-
unni ásamt soðnu
spergilkáli og
pastanu. Gott að bera fram hvítlauks-
brauð með.
Eftirráttur
8-10 stk. súkkulaðibitakökur
% banani
Rimi piparmyntukex
rjómi
serrí
Helmingur-
inn af kök-
unum er
mulinn og
settur í
botn á fati.
34 msk. af
sérríi
sett yfir og síðan smátt brytjaður
banani og Rimi kex. Síðan er
súkkulaðikrem sett yfir og að lokum
rjómi. Skreytt með súkkulaðirúsín-
um.
Krem
2 eggjarauður
1V2 bolli flórsykur
þeytt vel saman og 50 g af
bræddu súkkulaði bætt út í.
Guðrún Hanna skorar á Sigur-
laugu Haraldsdóttur.
-GHS
Guðrún Hanna gefur uppskrift að
pastarétti með hakki og eftirrétti
með banana og súkkulaðirúsínum.
DV-mynd Sigrún Lovísa
Sveppaterrin
með tómat og
heslihnetu-
vinaigrette
—fyrir fjóra
Snæbjörn Kristjánsson, mat-
reiðslumaður á Fiðlaranum á þak-
inu á Akureyri, laumar á ýmsum
góðum uppskriftum í pokahominu.
Hann gefur hér uppskrift að
þriggjasveppaterrin með tómat og
heslihnetuvinaigrette.
100 g lerkisveppir
100 g ostrusveppir
100 g kjörsveppir
2-3 blaðlaukar, græni hlutinn
smjör
salt og pipar
Tómatmauk
Í4-5 tómatar, flysjaðir og maukaðir
2-3 msk. tómatpuré
3 basilblöð
1 msk. rifinn appelsínubörkur
1 grein timian
1 msk. timianedik
4 stk. matarlímsblöð
1 y
V
Salat
Vt ekarlauf
Vt Lollo Rosso
Vt Frise salat
■ V4 rautt salat
Skolið og skerið blaðlaukinn í
tvennt eftir endilöngu, forsjóðið
hann og kælið. Klæðið braggalaga
form að innan með honum þannig
að hann nái allan hringinn. Skolið
og hlutið sveppina niður í ca 4
parta og steikið létt í smjörinu,
kryddið þá og kælið. Blandið öllu í
tómatmaukið saman og leysið upp
matarlímið og hrærið út í. Raðið
sveppunum og tómatmaukinu í
braggaformið og klæðið með blað-
lauknum yfir. Látið stífna í kæli í
' ca 4 klst.
Heslihnetuvinaigrette
1 dl heslihnetuolía
y4 dl balsamikedik
4-5 muldar heslihnetur
salt og pipar
IBlandið öllu saman og gefið með
sveppaterrininu. Skreytið diskinn
með villta salatinu.
IMyntute
H 1 vatn
1 tsk. grænt te
2 tsk. þurrkuð
mynta eða 3
grein
ar fersk mynta
Efnin eru soðin
saman í 5-10
mín.
Arabískt
kaffi
y21 vatn
13 msk.
dökkt/arabískt kaffi,
bragðbætt með kardimommu
3 msk. sykur
Suðu er náð upp á vatninu, kaffi
og sykri bætt út í. Suðunni náð upp.
Potturinn er tekinn af hitanu.m svo
að kaffi nái að falla á botninn. Hit-
að upp aftur.
Kaffið er borið fram í litlum boll-
um. -GHS
mmmmmmm