Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Blaðsíða 28
28
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 JL>"V
helgarviðtal
Hallgrímur Axelsson verkfræðingur fákk nýjan kjálka eftir að hafa greinst með krabbamein:
Skröltir svolítið í vírunum
sem tengja kjálkana saman
- angist og ótti fylgir úrskurði um krabbamein - reynir að taka sem fyrst upp þráðinn í lífi sínu
„Það að fá úrskurð um krabba-
mein hefur margvísleg áhrif, bæði á
viðkomandi einstakling og ættingja
og vini. Því hlýtur að fylgja ákveðin
angist og ótti. Krabbamein er í
mörgum tilfellum sjúkdómur sem
dregur menn til dauða. Menn búast
allt eins við því að vera kippt burt
og því fara menn að hugsa um dauð-
ann. Maður verður líka var við mik-
inn stuðning allt í kringum sig, lík-
lega vegna þess að það er litið á
krabbamein sem oft og tíðum
ólæknandi sjúkdóm,“ segir Hall-
grímur Axelsson, 48 ára verkfræð-
ingur.
Fyrir rúmum tveimur árum
greindist Hallgrímur með krabba-
mein í hægri kinn og nokkur mein-
vörp á hálsi. Hann fór í viðamikla
aðgerð þar sem æxlið í munninum
var fjarlægt og sömuleiðis megnið
innan á hægri kinninni frá neðri
góm upp á efri góm og aftur að koki
og eitlar voru fjarlægðir úr hálsin-
um. Meðan æxlið var fjarlægt var
tekið hold af innanverðum vinstri
framhandlegg, skinn og undirhúðar-
vefur með æðum, og æðarnar tengd-
ar við heppilegar æðar á hálsinum.
Vefurinn var svo saumaður inn í
holrúmið sem myndaðist eftir æxlið
og húð tekin af lærinu og grædd á
framhandlegginn.
„Aðgerðin tók verulega á. Ég fór
fljótlega að vinna aftur en vann sem
hálfur maður nokkuð lengi og náði
til dæmis þyngdinni aldrei upp aft-
ur þó að ég reyndi. Eftir fyrri að-
gerðina leit ég á mig sem mann sem
hefði fengið krabbamein og losnað
við það,“ segir Hallgrímur.
Krabbamein
undir jaxli
Skurðaðgerðin tókst vel og var
Hallgrímur eftir geislameðferð und-
ir reglulegu eftirliti hjá krabba-
meinsdeild Landspítalans og háls-,
nef- og eyrnadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur. i október í fyrra komu
í ljós ójöfnur i slímhúðinni kringum
aftasta jaxlinn en sýni sýndu að
ekki væri um illkynja breytingar að
ræða. Þar sem alltaf var erting
kringum jaxlinn fjarlægði tann-
læknir tönnina í haust. Þá kom í
]jós að krabbamein var í vef sem
fylgdi tannrótunum. Hallgrimur var
strax kallaður inn og kom í ljós að
hann var með krabbameinsvöxt í
neðra kjálkabeininu. Þá var ekki
um annað að ræða en að taka burt
hægri helminginn af neðri kjálkan-
um.
„Sú aögerð var mjög sambærileg
fyrri aðgerðinni. Megnið af vefnum
var tekið úr kinninni, alveg inn í
munnbotn og inn að tungu, og neðra
kjálkabeinið var fjarlægt líka. Síðan
var þetta svæði enduruppbyggt á
sama hátt og fyrir tveimur árum.
Núna var helmingur af þykkt ann-
ars framhandleggsbeinsins tekinn
líka og búinn til nýr neðri kjálki.
Það eru miklar líkur til þess að
hann sé læknaður af sínum sjúk-
dómi. Svör við vefjarannsóknum
sýna að þetta hafi verið fjarlægt,"
útskýrir Hannes Hjartarson, læknir
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Foss-
vogi.
Aðgerðin tókst vel en hið endur-
uppbyggða kjálkabein Hallgríms er
að sjálfsögðu ekki jafnþykkt og
sterkt og venjulegt kjálkabein þó að
það þjóni vel sínum tilgangi. Hall-
Hér má sjá merkt á framhandlegg hvaðan
„varahluturinn" er tekinn.
Aðgerðin hafin.
Flipi, bein og undirhúðarvefur ásamt æðum
er flutt.
Flipinn,
Æ.ðalcngj
Flipi af framhandlegg
Nýr kjálki er búinn til úr „varahlutum“ líkam
ans.
Hallgrímur Axelsson fékk úrskurð um krabbamein í munni og með meinvörp á hálsi fyrir um tveimur árum. Hann gekkst þá undir aðgerð og var æxlið fjar-
lægt og tekið hold af vinstri framhandlegg og flutt inn í holrúmið sem myndaðist. í haust varð hann svo að gangast aftur undir aðgerð þar sem krabbamein
uppgötvaðist aftur. Kjálkabeinið var þá fjarlægt og fékk Hallgrímur nýjan kjálka. Ólíklegt er að Hallgrímur nái fullum styrk í kjálkanum en kjálkinn þjónar þó
vel sínum tilgangi eftir aðgerðina.