Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 26. OKTOBER 1996
Fjölgun frá Gatwick
í þessum mánuöi ætla British
Airways aö fjölga ferðum frá
Gatwick-flugvelli til Helsinski,
Barcelona, Oporto og Lissabon.
Ástæðan er sú að í mars sl.
flutti BA ferðir til Suður-Amer-
íku til Gatwick þannig að nú sjá
þeir tækifæri tfl að tengja þær
spænsku og portúgölsku flug-
leiðunum.
Þögnin er gulls ígildi
Svissneska lestafyrirtækið
Swiss Railways hefur tekið upp
þá nýjung að bjóða upp á „þögla
vagna“ fyrir farþega sína. Þeir
sem það kjósa geta nú ferðast í
vögnum þar sem GSM-símar og
háværar samræður eru strang-
lega bannaðar.
Allir reknir
Öll yfirstjóm ástralskra flug-
öryggisyfirvalda (CASA) hefúr
verið beöin að segja upp störf-
um og taka pokann sinn. Þetta
er að frumkvæði samgöngu-
málaráðherra Ástralíu, Johns
Sharps, en ákvörðunin kemur í
kjölfar rannsóknar á flugslysi
sem varð við Lord Howe eyju
með þeim afleiðingum að níu
manns létust. í skýrslunni segir
að slysiö hafi orðið vegna óheið-
arleika og vankunnáttu flugfé-
lagsins sem átti vélina og CAA,
sem var þáverandi yfirvald í
flugöryggismálum, hefði sýnt
því algjört afskiptaleysi. CASA
tók við af CAA en samgöngu-
ráðherrann telur að þar sitji
óvant fólk sem þekki illa tfl
flugmála og flugfarþegar í Ástr-
alíu geti ekki beðið eftir að það
afli sér þeirrar þekkingar sem
þeir þurfa á að halda.
Fyrir svanga ferða-
langa
British Airways hefur tekiö
upp á þeirri nýbreytni að bjóða
farþegum á fyrsta farrými, sem
fljúga frá New York, Toronto og
27
Washington, máltíð í biðsal
áður en flogið er. Þeir sem vflja
nýta sér þessa þjónustu panta
matinn um leið og þeir skrá sig
inn og er maturinn sá sami og
um borð í vélinni.
Þýsk-kanadísk
samvinna
Lufthansa og Air Canada
hafa undirritað samning um að
starfa saman á flugleiðunum
Calgary-Frankfurt og Vancou-
ver-Frankfurt. Samstarfið mun
fela í sér beina samvinnu varð-
andi flug, auk þess sem mark-
aðssetning flugfélaganna á þess-
um leiðum verður sameinuð.
Enn meiri stækkun
Changi-flugvöllurinn í
Singapúr hefur nú bætt við sig
22 nýjum hliðum. Enn meiri
stækkun er í burðarliðnum en
nú er unnið að stækkunarfram-
kvæmdum sem talið er að verði
tflbúnar um aldamótin. Árið
1999 er gert ráð fyrir að flug-
völlurinn geti annað 40 milljón
farþegum á ári en í fyrra ferð-
uðust 23 milljónir manna um
völlinn.
KLM með áhyggjur
Hækkandi kostnaður og auk-
in samkeppni frá ódýrum flug-
félögum með takmarkaða þjón-
ustu veldur hinu hollenska flug-
félagi KLM miklum áhyggjum.
Fyrsta ársfjórðunginn á þessu
ári varð hagnaður félagsins að-
eins helmingur af því sem sem
hann var í fyrra.
Skuggaverur í Hollywood
- hrekkjavakan aldrei vinsælli
Suðurhluti Kalifomíu
er líklega þekktari fyrir
sól en skugga en i októ-
ber á hverju ári verður
Hollywood ákaflega
skuggaleg. Það er
einmitt í októbermánuði
sem Bandaríkjamenn
halda Halloween, eða
hrekkjavökuna, og kvik-
myndaborgin tekur
hana með trompi. Enda
er kominn stóriðnaður í
kringum hrekkjavökuna
sem veltir milljónum
dollara. Hollywood er
draumastaður allra sem
hafa gaman af búning-
um og grímum i lok
október.
Eftirminnilegir
staðir
Knott’s Berry Farm í
Buena Park mun halda
Knott’s Scary Farms
Halloween Haunt 24.
árið í röð fram til 2. nóv-
ember. Öll hin hefð-
bundnu skemmtitæki
garðsins víkja fyrir
tæknibrellum, þoku-
mistri, skrimslum og
draugalegri tónlist. Tíu gönguleiðir
og völundarhús standa til boða, sjö
hryllingssýningar eru stöðugt í gangi
og yfir 1000 leikarar gera sitt til að
hræða líftóruna úr gestum. Sýningin
þykir mjög eðlileg og því er fólki ráð-
lagt að taka ekki með sér ung böm.
Það eru einmitt fundir á borð við þennan, mörg þúsund ára gamla ,
aflinu hjá fólki.
,fsjómfrú“, sem kveikja í ímyndunar-
Mickey’s Halloween Treat þykir
ekki eins skelfileg og er hún frekar
sniðin að þörfum fjölskyldufólks. Þar
era múmíur og álfar á ferli, auk þess
sem fólki er boðið að heimsækja
draugaborg.
Universal-kvikmyndaverið býður
upp á hrollvekjandi gönguferðir þar
sem keðjusagarmorðingjar og aðrir
álíka skemmtflegir náungar eru á
hverju strái. Kvikmyndaverið býður
einnig upp á sérstakar barnaferðir
þar sem trúðar og aðrar slíkar figúr-
ur taka við hlutverki morðingjanna. í
Movieland Wax Muse-
um, sem þykir bjóða
upp á sérlega eðlilegar
styttur, er sérstök
sýning helguð hryll-
ingsmyndum þar sem
gestir geta m.a. virt
fyrir sér eftirlíkingar
af Borís Karloff í hlut-
verki sínu í Franken-
stein, Bela Lugosi í
Dracula og Lindu Bla-
ir í The Exorcist -
með höfuðsnúningi,
grænni ælu og öðru
sem myndinni fylgdi.
Dansað á götunni
En langstærsta gleðin
er þó hrekkja-
vökukarnivalið sem
haldið er í Vestur-
Hollywood, en þá er
hefl mfla af Santa
Monica Boulevard
tekin undir gleðina.
Stanslausir tónleikar
og sýningar eru á sýn-
ingarpöllum, gata er
skreytt og farið er í
skrúðgöngur.Á hyerju
ári koma yfir 100 þús-
und manns í þetta
gríðarlega hóf sem hef-
ur verið árlegur viðburður frá 1992,
enda þarf að panta hótelherbergi i
grenndinni með margra mánaða fyr-
irvara.
Þýtt og endursagt úr The New
York Times -ggá
Bærinn Alba á Ítalíu:
Abatasöm næturviðskipti
Við erum stödd í bænum Alba á
Ítalíu og það er tekið að rökkva.
Svartir eðalvagnar raða sér upp á
torginu Piazza Statuto, margir með
skottin opin. Einkennisklæddir Suð-
ur-Amerikumenn með stresstöskur
standa við bílana og
líta taugaveiklunarlega
í kringum sig. Órakað-
ir varðmenn eru á fyrir
fram skipulögðiun stöð-
um til að koma í veg
fyrir að leyniskyttur
geti hreiðrað um sig.
En þetta virðist ætla að
ganga upp, bæjarbúum
má treysta og viðskipt-
in voru skipulögð í gær
þannig að Uklegast hef-
ur ekkert lekið út.
Við útjaðra Alba bíða
vændiskonurnar i ró-
legheitum eftir því að
geta notið góðs af því fé
sem er um það bfl að
fara að streyma inn í bæinn.
Hér er þó ekki um að ræða illa
fenginn ágóða af viðskiptum með
vopn eða eiturlyf eins og margir
myndu eðlflega freistast tfl að halda
heldur er það svartamarkaðsbrask á
hvítum hallsveppum, lostæti sem vex
neðanjarðar.
Verðmætið gífurlegt
Það er einmitt á þessu svæði, í
kringum suðausturhluta Piedmont,
sem hvíti hallsveppurinn, vex og
hann er svo verömætur að hann er
virði þyngdar sinnar í gulli, í bókstaf-
legri merkingu. Verðmætið liggur í
fágæti sveppsins og hafa allar tilraun-
ir til að rækta hann á öðrum stöðum,
eins og i Frakklandi eða á Spáni, mis-
tekist enda virðist hann ekki þrífast
neins staðar annars staðar en í jarð-
veginum í Piedmont. Ástæðan fyrir
svartamarkaðsbraskinu er sú ákvörð-
Það eru aðeins dýrustu og
glæsilegustu veitingastað-
ir heims sem geta státað
af því að bjóða upp á hvíta
hallsveppinn.
un ítalskra stjómvalda að leggja 90%
lúxusskatt á sveppinn í stað hins
hefðbundna 4% skatts á landbúnaðar-
vörur. Á daginn gæti sveppatínslu-
maðurinn verið verslunarmaður,
bóndi eða víngerðarmaður en þegar
kvölda tekur læðist
hann út á sveppasvæð-
in, sem oft hafa verið
fj ölskylduleyndarmál
árum saman, með sér-
þjálfaða húnda, verk-
færi og vasaljós og læt-
ur greipar sóþa. Þeir
sem eru sérlega lagnir
og þekkja vel tfl þurfa
aðeins að vinna meðan
sveppatímabilið er í
hámarki, eða frá októ-
ber og fram í janúar,
en því sem eftir er af
árjnu eyða þeir við ró-
legheit og golf í finum
klúbbum. Þetta gildir
þó aðeins um þá sem
ekki nást - hinir eyða timanum í að
búa tfl bílnúmeraplötur í fangelsun-
um.
Eins og falleg kona
Lyktin af sveppnum þykir í senn
vera kynþokkafull og óhugnanleg en
veitingahúsaeigendur í New York,
Tokyo, London og París eru reiðu-
búnir að greiða 2,8 til 3,5 milljón lira
lágmarksverð fyrir kílóið. Alba er að-
eins klukkutíma leið frá borginni
Turin og það er einmitt vegna þessa
lostætis sem sælkerar flykkjast á
staðinn frá október og fram í janúar.
Á svæðinu má fá sveppina matreidda
á ótal vegu, með risotto, carpaccio,
tagliolini, steiktum eggjum og hveiju
öðru sem hugurinn gimist.
Einn þjónn á veitingastað í Alba,
sem sérhæfir sig í matreiðslu svep-
panna, var spurður að því hvemig
hann myndi lýsa lyktinni af hvíta
hallsveppnum. Hann svaraði: „Það er
ekki hægt að lýsa henni frekar en
hægt er að lýsa fagurri konu. í mín-
um huga er sveppurinn angan jarðar-
r
innar, flmur ástarinnar og lykt guð-
dómsins.”
Þýtt og endursagt úr The Sunday
Times -ggá
PROSTMEUJAHR!
ir á hótel Concept |
: sem er fyrsta flokks hótel
í miðborginni.
Freyðandi, glitrandi og hvellfjöru|
tækifæri fyrir þá sem vilja kveójá
gamla árið og heilsa hinu nýja
með ógleymanlegum hætti.
“49.90
kr.
a manninn.
■ Beint leiguflug til og frá Berlín.
1 Gist á góðu hóteli f mióborginni.
■ Áramótafagnaður með svignandi veisluborði,
skemmtiatriðum, danstónlist og flugeldasýningu.
■ Skoðunarferðir um Berlin.
i ístenskur ferarstjóri: Kristín Jóhannsdóttir.
'Innifalið: flug,
flugvallarskattar, akstur til
og frá flugvelli erlendis,
gisting í tvibýli í 4 naetur
með morgunverði,
áramótafagnaður og islensk
fararstjórn.
w
ÚRVAL ÚTSÝN
Lágmúla 4: sími 569 9300,
____ ____ Hafuarfirði: sírni 565 23 66, Keflavík: sími 421 1353,
ftgSP] pjATT S Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
m . 0g hjá umboðsm 'önnum um lancl allt.