Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 7 DV Sandkorn Heiðarlegir menn Þingmenn Framsóknarflokksins í Suöurlandskjördæmi, Guðni Ágústs- son og ísólfur Gylíi Pálmason, héldu ekki alls fyrir löngu fjörugan fund í Vestmannaeyj- um. Segir frá fundinum í blaöinu Frétt- um og að margt hafi þar borið á góma. Meðal annars hélt einn fundar- manna því fram að alþingis- menn væru i dag veru- leikafirrtir og þekktu ekki skil á réttu og röngu. Guðni Ágústs- son bar sakir af þingmönnum og sagði með sinni djúpu sterku rödd: „Ég er sannfæröur um og veit að meirihluti þingmanna er, sem betur fer, heiðarlegir menn.“ Til að leggja áherslu á mál sitt gerði Guðni hlé á máli sinu og leit yfir salinn. Kunnur Eyjamaður, Gaui gamli, var á fund- inum. Hann hafði nýlokið viö að taka í nefið þegar Guðni gerði áhersluhléið á máli sínu. Þegar Guðni leit yfir salinn í þögninni heyrðist Gaui segja stundarhátt: „0, jæja!“ Lengjann Sjálfsagt muna flestir eftir þeirri miklu deilu sem kom upp í sumar þegar framkvæmdastjóri Lengjunn- ar tók leik ÍBV og ÍA af lengjuseðli af ótta við að úrslitin yrðu ákveðin fyrir- firam. í Fréttum segir frá því að í lokahófi ÍBV í haust hafi Ási Friðriks, þekkt- ur hrekkjalóm- ur í Eyjum, ver- ið veislustjóri. Hann gerði óspart grín að bróður sínum Eliasi sem er lágvaxinn maður. Ási greindi frá því að ÍBV og Lengjan hefðu náð sáttum í Lengjumálinu. Samkomulagið fælist í því að Lengj- an gæfi öllum Eyjamönnum úlpur. Aftan á þeim mundi standa Lengjan. Tvær undantekningar yrðu á þessu. Elías og Einar Otto Högnason fengju úlpur sem á stæði LENGJA’NN. Tilviljun? Kristján Gunnarsson, bæjarfull- trúi og verkalýðsforingi i Reykjanes- bæ, vakti á dögunum athygli á því að áriö 1938 hefðu þáverandi stjóm- völd sett löggjöf um stéttarfélög og vinnudeilur. Urðu miklar umræður og deilur í landinu um þá löggjöf. Sama ár gaus í Vatnajökli og í kjölfarið fylgdi eitt mesta Skeiðarárhlaup sem komxð hafði. Árið 1996 breytti ríkis- stjórnin löggjöfinni um stéttarfélög og vinnudeilur afhn- og enn urðu umræður og deilur í landinu vegna þess. Og í kjölfar stefiiuræðu forsæt- isráðherra hófst gos í Vatnajökli og í kjölfarið eitt stærsta Skeiðarár- hlaup sem sögur fara af. Tilviljun eða hvað? Honum á ég það að þakka Þeir sem á annað borð hafa ánægju af vísum þekkja tfl vestur- íslenska hagyrðingsins Kristjáns Nikulásar Júliussonar eða KN eins og hann var kallaður. Vísur hans vom vel geröar og fullar af kímni. Hann var einnig fræg- ur fyrir að svara vel fyrir sig í bundnu máli. KN drakk nokkuð og gift- ist aldrei. Eitt sinn var virðu- leg frú að skamma hann fyrir að drekka of mikið. Hún sagði að ef hann hefði drukkið minna hefði hann án efa náð sér i konu, jafnvel hún hefði getað hugsað sér að eiga hann. KN svaraði konunni þannig. Gamli Bakkus gaf mér smakka gæðin bestu, öl og vin, og honum á ég það að þakka aö þú ert ekki konan mín. Umsjón Slgurdór Slgurdórsson Fréttir Jörmundur Ingi Hansen allsherjargoði: Leiðtogi alþjóðasamtaka? - stefnt að því að stofna samtökin á Þingvöllum árið 2000 „Ég hef verið í sambandi við ásatrúarfélög í Bandarikjunum og Evrópu. Það er stefnan að stofiia alþjóðasamtök ásatrúarmanna á Þingvöllum 22. júní árið 2000, dag- inn eftir Þórsdag. Mér hefúr verið boðið að gerast trúarleiðtogi al- þjóðasamtakanna og það er auðvit- að mikill heiður,“ segir Jörmund- ur Ingi Hansen allherjargoði við DV en hann hefur haft í nógu að snúast að undanfomu. Jörmundi var boðið til Bandaríkjanna þar sem hann heimsótti ásatrúarmenn og goða í Arizona og víðar. „Þetta var gamalt boð og kom- inn tími til að fara. Ég hitti þama goða úr ýmsum ásatrúarfélögum og það var mjög fróðlegt og skemmtilegt. Það er stefnan að öll félög ásatrúarmanna geti komið að þessu máli og því þarf tíma og skipulagningu til að gera þessi al- þjóðasamtök sem best úr garði. Það em öll lönd í Evrópu með ása- trúarfélög nema í Albaníu og Portúgal. Ásatrúin er missterk eft- ir löndum en hún er sterkari í þeim löndum þar sem norrænir menn hafa verið,“ segir Jörmund- ur. -RR eP'ÁV Láttuðek eppa úrtiendi sleppa! Fjöldinn allun af notuðum jeppum á kostnaöanverði þessa viku! Fnábaen kjön í boði. Líttu inn í sýningansal okkan á Nýbýlavegi eða hafðu samband við sölumenn í síma 563 4-400 <2B> TOYOTA Notaðir bílar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.