Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Side 17
16
Iþróttir
Giggs er
að braggast
Ryan Giggs, leikmaðurinn
knái hjá Manchester United,
vonast til að geta leikið með
United á laugardaginn þegar lið-
ið sækir Arsenal heim í ensku
úrvalsdeildinni. Giggs hefur
verið meiddur meira eða minna
síðan seint í september og marg-
ir stuðningsmenn liðsins kenna
slöku gengi United að undan-
fornu um aö liðið hefur leikið án
hans.
-GH
Wilkins áfram
með Hibernian
Ray Wilkins, sem hætti í
haust sem framkvæmdastjóri
enska knattspyrnufélagsins
QPR, leikur nú með Hibemian í
skosku úrvalsdeildinni. Hann
framlengdi í gær samning sinn
við félagið um einn mánuð til
viðbótar eftir aö hafa verið full-
vissaöur um að leikmennimir
vildu hafa hann áfram. Wilkins
er orðinn fertugur en lætur eng-
an bilbug á sér flnna. Hann á
glæsilegan feril að baki með
Chelsea, Manchester United, AC
Milan, Rangers og QPR.
-vs
Stórkostlegar
sendingar
Jakob Már Jónharðsson, fyrir-
liöi Keflvíkinga, æfði með Hi-
bemian á dögunum og sagði í
spjalli við DV að Wilkins væri
ótrúlega snjall enn þá. „Hann
kemur bara á föstudögum og
æfir einu sinni með liðinu fyrir
leik. WUkins fer vissulega hægt
yfir en sendingamar hans eru
stórkostlegar," sagöi Jakob.
Þess má geta að Jakob æfði
með þremur úrvalsdeildarfélög-
um í ferð sinni, Hibemian, He-
arts og Dunfermline. „Þetta var
ágætis viöbót við tímabiliö hér
heima og gaman aö kynnast
þessu aöeins,“ sagði Jakob. Grét-
ar Hjartarson, bráðefnilegur
leikmaðm- úr Reyni í Sandgeröi,
var með Jakobi í for.
-vs
Rauða stjarnan
fær loks greitt
Alþjóöa knattspymusamband-
ið, FIFA, úrskurðaði i gær að
ítalska félagið Roma yrði að
greiða júgóslavneska félaginu
Rauðu stjömunni 585 milljónir
króna, og 150 milijónir að auki í
vexti, fyrir Sinisa Mihajlovic.
Roma fékk Mihajlovic frá
Rauðu stjömunni árið 1992 en
engar greiðslur vora inntar af
hendi vegna viðskiptabanns
Sameinuðu þjóðanna á Júg-
óslavíu á þeim tíma. Banninu
var aflétt árið 1995 en þá neitaði
Roma að greiða fyrir leikmann-
inn.
Mihajlovic er nú farinn frá
Roma og leikur með Sampdoria
á Ítalíu.
Collymore
verður með
Stan Coliymore viröist hafa
veriö tekinn í sátt hjá enska
knattspymufélaginu Liverpool.
Hann hefur verið úti í kuldanum
að undanförnu og spilaö með
varaliðinu en nú hefur hann ver-
ið valinn í leikmannahópinn fyr-
ir leikinn við Charlton í deilda-
bikamum í kvöld.
Þá hefur stjóm Liverpool lýst
því yfir að ekkert bendi til þess
að Collymore hafi ausið svívirð-
ingum yfir fréttamenn, eftir
varaliðsleik með félaginu um
helgina, eins og haldið hefur ver-
ið fram. Félagiö muni því ekkert
aðhafast í því máli.
-VS
Brynjar Haröarson, formaöur Handknattleiksdeildar Vals, og hans menn hafa örugglega í nógu aö snúast á r
vikum. Byrnjar segist bjartsýnn ó aö máliö fái farsælan endi. DV-mynd Brynjar
Tommy Armour mótarööin:
Sigurjón í þriðja
sæti í Flórída
Sigurjón Arnarsson, kylfingur úr
Golfklúbbi Reykjavíkur, keppti í
fyrradag í Tommy Armour mótaröö
atvinnumanna í golfi í Flórída. Mót-
ið fór fram á Harbor Hills golfvellin-
um sem er 6925 jarda langur og
völlurinn par 72.
Aöstæður voru ekki góðar til
Á innanfélagsmóti Aftureldingar
í sundi, sem haldið var í Sundhöll
Reykjavíkur, setti Gunnar Stein-
þórsson úr Aftureldingu þrjú
sveinamet.
í 50 metra flugsundi synti Gunnar
vegalengdina á 31,10 sekúndum en
eldra metið átti Guðmundur Ó.
Unnarsson ffá því í nóvember í
fyrra. 100 metra skriðsund synti
Gunnar á 1:01,00 mínútum og tók
Fjórtán leikir fara fram í 32-liða
úrslitum í bikarkeppni karla í hand-
knattleik í kvöld. Stórleikur kvölds-
ins er án efa viðureign Hauka og
Aftureldingar. Mosfellingar era sem
stendur í toppsæti Nissan-deildar-
innar og hafa verið á góðu skriði í
síðustu leikjum og fróðlegt verður
að sjá hvort Haukamir ná að
stöðva sigurgöngu þeirra.
Leikur Hauka og Aftureldingar
er sá eini þar sem tvö 1. deildar fé-
lög eigast við. Fyrir utan þann leik
er leikmr Víkings og Gróttu einna
keppni, tiltölulega kalt og hvasst.
Sigurjón lét það ekki á sig fá og lék
öruggt golf og kom inn á parinu eða
á 72 höggum.
Sigurjón varö í þriðja sæti af 56
keppendum, sem verður að teljast
mjög góður árangur, en sigurvegar-
inn lék á 69 höggum. -JKS
metið frá Grétari Má Axelssyni sem
hann setti fyrir fimm árum.
Gunnar setti síöan þriöja metið í
400 metra bringusundi, synti á
6:21,16 mínútum en eldra metið átti
Sævar Öm Sigurjónsson frá árinu
1994.
Árangur Gunnars Steinþórssonar
sýnir að þar er á ferð mikiö efiii
sem vert er að veita athygli í fram-
tíðinni. -JKS
áhugaverðastur og ætti ekki að
koma á óvart þótt 2. deildar lið Vík-
ings gæti velgt 1. deildar liöinu af
Seltjamamesi vel undir uggum.
Leikimir í kvöld eru annars þessir:
Valur b-KA b, Haukar-Aftureld-
ing, Víkingur-Grótta, Afturelding b
-Valur, Keflavík-ÍR, ÍBV b-Ár-
mann, Ögri-KR, Fram-ÍH og
HM-FH. Þór Ak.-Hörður,
KA-Vikingur b og KS-Stjaman
leika síöar, HK, Breiðablikog Sel-
foss era komin áfram og b-lið
Gróttu situr hjá. -GH
|^ý) ÞÝSKALAND
Bikarkeppnin - 8-liða úrslit:
Energie Cottbus-St.Pauli (O-O) 5-4
(eftir vítaspymukeppni)
Óvænt úrslit því St. Pauli leikur í 1.
deild en Cottbus í þeirri þriðju.
Bayem Milnchen-Bremen ... 3-1
Klinsmann 2, Ziege - Bodo.
(jij HOLLANP
Úrvaisdeildin:
Feyenoord-Breda ............. 1-0
Heerenveen-Graafschap........2-1
(j^j ENOIANP
Deildabikar:
Lincoln-Southampton.....1-3
Ainsworth - Magilton, Watson, Ber-
kovic.
Southampton skoraði mörkin þrjú á
síöustu 15 mínútunum eftir aö Lin-
coln, sem leikur í 3. deild, hafði kom-
ist yfir strax á 9. mínútu.
Luton-Wimbledon..........1-2
Sjálfsmark - Castledine, Fear
Wimbledon jafnaði á lokasekúndun-
um og skoraði sigurmarkiö í fram-
lengingu.
1. deild:
Bamsley-Norwich..........3-1
Bj) ÍTAIÍA
Bikar - 8-liða úrsllt:
AC Milan-Vicenza.........1-1
0-1 Ambrosetti, 1-1 Baggio.
Þetta var fyrri leikur liðanna og
Vicenza stendur vel að vigi en liðið
lék með 10 menn allan síðari hálf-
leikinn.
m FRAKKLAND ]
1. deild:
Nantes-Nancy.............2-0
Gunnar setti þrjú sveinamet
Bikarkeppnin í handknattleik í kvöld:
Haukarnir taka á
móti Aftureldingu
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996
33
DV I>V
Brynjar Harðarson, formaður Handknattleiksdeildar Vals:
„Næsta skrenð er að
krefjast peninganna"
Eins og fram kom í DV í gær er allt útlit fyr-
ir að íslensk félagslið í handknattleik fái ekkert
fyrir leikmenn sem þau missa til liða í Evrópu,
svo framarlega sem viðkomandi leikmaður er
ekki á samningi hjá sínu félagi á íslandi. Þetta
er í það minnsta álit eftirlitsstofhunar EFTA en
þangað fór þýska liðið Schútterwald með mál
sitt.
Ef þetta verður reyndin er ljóst að íslensk lið
missa töluverðan spón úr aski sínum. Þau hafa
í gegnum tíðina fengið nokkra þóknun fyrir leik-
menn sem þau hafa séð á eftir í atvinnu-
mennsku. Fjárhagur margra liða á íslandi er
ekki beysinn og ekki bætir úr skák ef þau þurfa
nú að sætta sig við það að fá ekki eyri fyrir leik-
menn sem lið á meginlandi Evrópu falast eftir.
Þó nokkur umræða fór af stað þegar fréttist að
þýska liðið Schútterwald ætlaði sér ekki að
ganga frá greiðslum við Aftureldingu varðandi
félagaskipti Róberts Sighvatssonar - og eins það
að greiöslur til Valsmanna frá Wuppertal, fýrir
þá Ólaf Stefánsson og Dag Sigurðsson, hefðu ver-
ið frystar af evrópska handknattleikssamband-
inu.
Til að skyggnast aðeins inn í þetta mál var
Brynjar Harðarsson, formaður Handknattleiks-
deildar Vals, inntur eftir því hvað menn þar á
bæ ætluðu að gera í framhaldinu.
Bosman-máliö fjallar um allt aöra
hluti
„Við erum búnir að vinna í þessum málum og
sitja fundi meö okkar lögfræöingum sem þekkja
til þessara mála í Evrópu. Eins höfúm við átt
fundi með ÍSÍ og leitaö eftir stuðningi þess til að
reka þetta mál. Það sem er að koma upp núna er
í sjáifu sér bara uppþot. í fyrsta lagi fjallar
Bosman-málið svokallaða um allt aðra hluti. Það
fjallar um atvinnufrelsi manna og atvinnu
manna sem eru íþróttum og fara á milli liða
samningslausir. ísland er ekki í Evrópu-
sambandinu og þar af leiðandi getur þessi dóm-
ur aldrei orðið fordæmisgefandi fyrir okkur.
Þetta mál verður því fyrst og fremst að reka fyr-
ir íslenskum dómstólum. Málið fjallar því um
það að evrópska handboltasambandið er búið að
fjalla um málið og fella sinn úrskurð en hefur
ekki þor til að fara eftir eigin úrskurði. Um
þetta snýst málið nú. Það var búið að ákveða
upphæðina og fella úrskurð um að það ætti að
greiða þessa peninga til Vals. Siðan var ákveðið
að frysta greiðsluna - með einhverjum hótunum
frá lögmönnum Wuppertal sem síðan er engin
leið að ná sambandi við.
Vegna stæröar Þjóöverjanna þorir
evrópska sambandið ekki aö gera
neitt
„Það er engum símbréfum svarað heldur á að
byggja þetta eingöngu á því að kæfa máliö í ljósi
stærðar þýska handboltasambandsins og í fram-
haldinu þorir evrópska sambandið ekki að gera
nokkum skapaðan hlut, jafnvel þótt búið sé að
fella úrskurð. Það er því miklu nærtækara núna
að fjalla um málið út frá þessu og ef þeir síðan
vilja fara i mál við okkur geta þeir svo sem gert
það. Bosman var ekki að spila þegar hans mál
kom upp en það vora hins vegar Ólafur og Dag-
ur. Við veröum einfaldlega aö fá evrópska hand-
boltasambandið til fylgja eftir sínum eigin úr-
skurði, “ sagði Brynjar Harðarson I spjallinu við
DV.
- Hvert verður þá næsta skref af hálfu
ykkur í handknattleiksdeUd Vals?
„Það er að fara í innheimtumál gegn evrópska
handboltasambandinu. Þaö verður að gera í Vín-
arborg þar sem sambandið hefur aðsetur. Við
eram að leita liðsinnis ÍSÍ í þessum málum og fá
aðstoð þess eins og kostur er. Öll málstilhögum
Þjóðverjanna byggist greinilega á því að þeir
vita hversu erfitt er að vera langt í hurtu og að
það er dýrt fyrir fjárvana félag að verja rétt
sinn. í augnablikinu beita Þjóðverjar þessari
taktík. Þeir halda að við höfum hvorki þor né
kraft til að sækja okkar rétt. Þess vegna höfum
við leitað til Ellerts B. Schram og þeirra í ÍSÍ og
átt með þeim fundi til aö fá aðstoð. Eins og ég
sagði áður snýst Bosman-málið um atvinnufrelsi
en okkar mál um það að áhugamannafélag fái
einhverja sanngjama þóknun fyrir það að hafa
alið leikmann upp í 15 ár með æmum tilkostn-
aði,“ sagði Brynjar.
- Af hverju eru fslenskir handboltamenn
ekki á samningi hjá sínum liðum sem leika í
1. deild?
„Vegna þess að við eram ekki atvinnumenn.
Það era svokallaðir leikmannasamningar í gildi
í knattspyrnunni og hugsanlega er það næsta
skrefið í handboltanum. Umhverfið allt er
kannski að stefna í þessa átt. Handboltinn í dag
er hins vegar fjárvana áhugamannaíþrótt. Ann-
ar þessara leikmanna okkar gerði samning við
Val og í honum er þess getið hvað Valur á að fá
ef hann fer til erlends félags. Ef þetta fæst ekki
greitt frá félaginu liggur bara beinast viö að
krefja hann um það sjálfan."
- Hvað segir þú um framhaldið. Verður
ekki erfitt að sækja þetta mál?
„Það er raunar vonlaust fyrir Val sem félag að
gera það. Ég vildi óska þess að HSÍ hefði burði
til þess en með fullri virðingu fyrir HSÍ held ég
að þeir hafi bara nóg á sinni könnu með sín mál.
Þess vegna snerum við okkur til ÍSÍ. Ef málin
þróast á þann veg aö við framleiðum íþrótta-
menn fyrir erlend félög, hvort sem þaö er í hand-
bolta, körfúbolta eða í fótbolta, þá er þaö síðasti
naglinn í líkkistuna fyrir keppnisíþróttir á ís-
landi. í þessari umræðu allri verðum við að hafa
skýrt í huga að við erum ekki aðilar að Evrópu-
sambandinu. Þessi dómstóll er ekki sá sem við
heyrum undir. Við getum huganlega gert það
einhvem tímann í framtíðinni - en ekki i dag.
Við erum í EFTA og þar er allt annar dómstóll.
Okkar mál falla ekki þama undir. Ef við fáum
einhver svör og málið kemst í þann farveg sem
er vitrænn þá stöndum við vel að vígi. Hitt er
svo annað mál ef það verður niðurstaðan að
þessum leikmönnum sé frjálst að fara þá verö-
um við að fara aftur í grunninn og spyrja okkur
hvað Valur sé. Ég stend í þeirri meiningu að það
sé leikmenn félagsins hveiju sinni.“
Semja viö okkar menn án þess aö
ræöa nokkuö viö Val
Ertu bjartsýnn á að þetta mál fái farsælan
endi?
„Já, ég er það ef við fáum liðsinni ÍSÍ. Málið
er með slíkum eindæmum frá upphafi að það
hálfa væri nóg. Það byrjar á því að það kemur
einhver útlendingur til íslands og semur við tvo
af okkar bestu leikmönnum. Þessi maður talar
aldrei við okkur. Leikmennimir segja, þegar
samningi við okkur er lokiö, að þeir séu bara
famir. Síðan hefur þýska félagið ekkert sam-
band viö okkur og ætlar sér aldrei að hafa sam-
band. Það erum við sem förum að leita þá uppi
og senda þeim símbréf og komast í samband við
þá. Úrskurður evrópska sambandsins liggur fyr-
ir þar sem segir að kröfur okkar séu réttmætar
og það beri aö borga Val þessa peninga. Wupp-
ertal gerir það en evrópska sambandið vill síðan
ekki koma þeim áfram til okkar. Frá þeim
tímapunkti höfúm ekkert heyrt frá þýska liðinu.
Næsta skrefið er að krefjast þessara peninga.
Þetta er mergurinn málsins. Bosman er ekki
mergurinn málsins," sagði Brynjar Harðarson
við DV.
Oliver Bierhoff fagnar markinu sem færöl Þjóöverjum Evrópumeistaratitilinn
í sumar. Um leiö tryggöi hann þeim stærsta bitann af fjárhagsköku Evrópu-
mótsins.
Nýja félagið stofnað í Eyjum innan skamms:
Sameiningin samþykkt
- á aðalfundum beggja félaganna, Týs og Þórs
Um síðustu helgi var samþykkt á að-
alíúndum Týs og Þórs í Vestmannaeyj-
um að leggja félögin niður og stofna í
staðinn Knattspymu- og handknatt-
leiksfélag ÍBV. Það verður gert innan
skamms en nú er unnið að því að fá
fólk til starfa hjá nýja félaginu.
Þetta hefur lengi verið í burðarliðn-
um en samþykki beggja félaganna
þurfti til þess aö af sameiningunni gæti
orðið. Týr og Þór eru gamalgróin
íþróttafélög, stofnuð á öðrum og þriðja
áratug aldarinnar, og því ekki einfalt
mál að leggja þau niður. Enda stóö
tæpt að málið gengi í gegn því hjá Þór
náðist samþykki nákvæmlega tveggja
þriðju hluta fundarmanna - eins og til-
skilið var.
Nýja félagið verður aðili aö ÍBV og
yfir því verður ein framkvæmdastjóm
og sín deildin fyrir hvora íþrótt. Félag-
ið byrjar nánast með hreint borð fjár-
hagslega því Vestmannaeyjabær yfir:
tekur skuldir félagaima að mestu en
þær vora talsverðar, sérstaklega hjá
Tý. Tekjupóstar gömlu félaganna
renna til þess nýja, svo sem Shellmót
Týs, Pæjumót Þórs og sjálf þjóðhátíðin,
þannig að fjárhagslegur grannur þess
ætti að vera mjög traustur. -VS
Sex milljarða króna hagnaður af EM í knattspyrnu:
KSÍ fær 25 millj
ónir í sinn hlut
- Þjóðverjar fá samtals 587 milljónir
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, tilkynnti í gær að hagnaður
þess af úrslitum Evrópukeppninnar í
Englandi í sumar næmi um 6 millj-
örðum króna. Þeirri upphæð verður
skipt á milli allra aðildarþjóða og
hlutur KSÍ fyrir hönd íslands verður
tæpar 25 milljónir króna.
Þjóðimar sextán sem léku til úr-
slita fá mest í sinn hlut en um 4,7
milljörðum er skipt á milli þeirra.
Evrópumeistarar Þjóðverja fá mest,
562 milljónir, Tékkar fá 515 milljónir
og Frakkar og Englendingar 398 millj-
ónir hvor þjóð. Þær þjóðir sem fá
minnst, Sviss, Rúmenía, Rússland og
Tyrkland, fá 187 milljónir hver.
Því sem eftir er, tæplega 1.300 millj-
ónum króna, verður skipt á milli að-
ildarþjóða UEFA sem era 51 talsins.
Hver um sig fær um 24,8 milijónir og
verður upphæöin greidd á fjórum
árum, 6,2 milljónir á ári. Þjóðimar
sextán sem léku til úrslita fá líka
þessa greiðslu þannig að lágmarks
hagnaður þeirra af keppninni nemur
202 milljónum króna.
Þessar upphæðir sýna vel hve gíf-
urlegir fjármunir eru í umferð í
knattspymunni en það era sjónvarps-
útsendingar sem gefa af sér megnið af
þessum tekjum.
-VS
íþróttir
2Robert
Horry
Phoenix Suns
Fæddur: 25. ágúst 1970 í
Andalusia í Alabama.
Hæð: 2,08 m.
Þyngd: 100 kg.
Staða: Framheiji.
Númer á treyju: 25.
Heimilishagir: Ógiftur.
NBA-leikir: 360 með Houston,
þar af 65 í úrslitakeppni. Sex
leikir með Phoenix.
Meðalskor f NBA: 10,4 stig.
Flest stig í leik: 40.
Flest fráköst: 15.
Flestar stoðsendingar: 10.
Ferill: Var númer 11 í nýliða-
valinu 1992, valinn af Houston.
Lék meö liðinu í fjögur ár og
varö tvívegis NBA-meistari. Fór
til Detroit í febrúar 1994 i skipt-
um fyrir Sean Elliott en kaupin
gengu til baka þegar Elliott féll í
læknisskoðun og hann spilaði
aldrei með liöinu. Seldur til
Phoenix í sumar ásamt þremur
öðram í skiptum fyrir Charles
Barkley.
Ýmislegt: Þriðja besta 3ja
stiga skytta í sögu Houston.
Setti félagsmet hjá Houston í
3ja stiga körfum þegar hann
skoraöi 9 slíkar gegn Cleveland
síðasta vetur.
Setti met í úrslitakeppni NBA
þegar hann stal boltanum 7 sinn-
um i leik gegn Orlando 1995.
Valinn í B-úrvalslið nýliða í
f-T
•t.
NBA 1992-1993.
Valinn leikmaöur ársins í Nai-
smith-menntaskólanum á síðasta
ári sínu þar.
Þykir mjög fjölhæfur fram-
herji því hann er góð skytta,
tekur mikið af fráköstum og
spilar í heild mjög vel fyrir liðið.
Notar skó númer 15.
-VS
S
BIKARKEPPNIN
Bikarkeppni kvenna:
Fylkir-Haukar......(7-15) 15-33
Fvlkir: Helga Brynjólfsdóttir 5, Stein-
unn Þorkelsdóttir 4, Helga Helgadótt-
ir 3, Anna Halldórsdóttir 2, Ágústa
Sigurðardóttir 1.
Haukar: Harpa Melsteö 6, Thelma
Ámadóttir 4, Judith Ezstergal 4,
Kristín Konráðsdóttir 4, Auður Her-
mannsdóttir 4, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir 3, Hulda Bjamadóttir 3,
Hanna G. Stefánsdóttir 3, Heiðrún
Karlsdóttir 2.
Bikarkeppni karia:
Fylkir-Breiöablik .......23-33