Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1996, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1996, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 Fréttir Embætti aðstoðarprests á ísafirði í uppnámi: Kirkjan getur varla farið svona með starfsmenn sína „Ég vil aö biskup beri ábyrgð á að hafa vakið upp tvö embætti aðstoð- arpresta og það sé óeðlilegt að bara sex mánuðum síðar segi kirkjan að því miður Sé embættið hér í upp- námi af því að fjárveitingunni hefur verið skipt. Það tíðkast í fiskvinnsl- unni að fólki sé sagt upp vegna hrá- efnisskorts en mér finnst að kirkjan geti varla farið þannig með starfs- menn sína og söfnuði," segir Magn- ús Erlingsson, sóknarprestur á ísa- firði, í samtali við DV. - segir sr. Á fjárlögum þessa árs er fjárveit- ing til eins embættis aðstoðarprests, en biskup ákvað að skipta henni þannig að hún stæði undir tveimur hálfum aðstoðarprestsstööum, ann- ars vegar á ísafirði en hins vegar í Hafnarfirði. Sr. Magnús telur að hún hafi átt að renna óskipt til ísa- fjarðar, en aðstoðarprestur hefrn- verið í starfi hjá sr. Magnúsi á ísa- firði síðan í vor, en hann er nú i veikindaorlofi og fjárveiting til starfs hans útrunnin um áramót Magnús Erlingsson þannig aö staðan er í uppnámi. Biskup segir að það hafi verið mikil vonbrigði að aðeins hafi reynst fjárveiting fyrir einu emb- ætti á fjárlögum þessa árs, en hann hafi í framhaldinu brugðið á það ráð að skipta því á milli Hafnar- fjarðar og ísafjaröar í þeirri von og vissu að gert yrði ráð fyrir einu til tveimur nýjum aðstoðarprestsemb- ættum á næstu fjárlögum. „Málið stendur þannig að þegar ég fór til viðræðu við fjárlaganefnd á ísafiröi var áframhaldandi fiárveiting til embættisins á ísafirði inni í mynd- inni og ég vona að það gangi eftir, enda hefur þetta verið mikið bar- áttumál ísfirðinga og Vestfirðinga," segir biskup. Hann átti í gær fund með forseta Alþingis þar sem þetta mál bar á góma og í dag á hann fund með samstarfsnefnd Þjóðkirkjunnar og Alþingis þar sem þetta verður einnig rætt. „Við höfum lengi óskað eftir ein- hverri lagfæringu hér þar sem óeðli- lega mikið starfsálag er á prestinum hér á ísafirði,“ segir sr. Magnús Erl- ingsson. Magnús hefur verið einn um nokkurt skeið vegna veikinda aðstoð- arprests síns, en undanfamar vikur hefur hann verið með nýútskrifaðan guðfræðing og prest í þriggja mánaöa starfsþjálfun, en sá heitir Skúli Ólafs- son og er sonur herra Ólafs Skúlason- ar. Skúli og fiölskylda hans eru ný- flutt til ísafiarðar og kennir hann við Grunnskólann á ísafirði en kona hans er skattstjóri. -SÁ Dagfari Rokkminjasafn í buröarlið í Keflavík: Safnið á hvergi heima nema í bítlabænum - segir Rúnar Júlíusson DV, Suðurnesjum: „Við erum að tala rnn að opna rokkminjasafn sem verður tengt tónlistarsögunni eins og hún gerð- ist i Keflavík um 1955 eða þegar rokkið byrjaði. Þetta er mjög snið- ugt dæmi og safnið á hvergi annars staðar að vera staðsett en hér í bitlabænum," sagði Keflvíkingur- inn og stórpopparinn Rúnar Júlíus- son við DV. Hann hefur lengi haft áhuga á að koma upp rokkminjasafni í bítla- bænum og líkur eru á að sá draum- ur sé að rætast. í tengslum við sýn- inguna Keflavíkumætur II, sem verið hefur í veitingahúsinu Stap- anum í Njarðvík þar sem margir þekktir tónlistarmenn keflviskir taka þátt, blossaði þessi hugmynd upp að nýju. „Við erum búnir að auglýsa eftir gömlum minjum víða og erum þeg- ar komnir með nokkrar. Héðan hef- ur komið þekkt tónlistarfólk og hljómsveitir sem hafa gert garðinn frægan. Ég er ekki í nokkrmn vafa um að til er fullt af gömlum munum og ótrúlegt hvað kemur í ljós þegar fólk fer að leita - ótrúlegustu hlutir sem fólk er löngu búið að gleyma. Það eru ekki einungis þessir þekktu popparar sem eiga minjar. Það er mikið til af áhugafólki um rokk frá þessum tíma sem átti ýmsa muni og hefur kannski varðveitt þá vel. Þaö er von okkar að með tíman- um verði hér alvöru rokkminja- safn,“ sagði Kristján Ingi Helgason sem vinnur hörðum höndrnn við að nálgast þessa muni og halda þeim saman í væntanlegt rokkminjasafn. -ÆMK Rúnar og Kristján Ingi. Rúnar er með gítar frá 1967 sem enn er notaður og Kristján heldur á mynd frá því Rúnar kom fyrst fram. Það var á skólaballi þegar hann var 14 ára og með honum er Erlingur Björnsson. Vestið sem Rúnar klæö- ist saumaöi móðir hans, eins og á alla strákana í Hljómum. DV-mynd ÆMK Dansinn og Ný iðngrein er að þróast í skemmtanaiðnaðinum. Það er nektardansinn. Fróðir menn og ófróðir um nektardans hafa fiallað nokkuð um þessa iðn að undan- fornu og hefur sitt sýnst hverjum. Bæði hafa þau sjónarmið heyrst að nektardans sé siðlaus og eins hitt að ófært sé að heimila innflutning á erlendum dansmeyjum sem taki atvinnu frá íslenskum stallsystr- um. Alþingismenn og ráðherrar hafa verið spurðir um siðsemina í dans- inum og fram hefur komið að þing- menn færast undan því að svara, á þeirri forsendu að þeir hafi ekki kynnt sér iðngreinina. Þeir þykjst ekki hafa séö nektardans! Nú er það svo að nektardans er með vinsælustu skemmtiatriðum á ýmsum skemmtistöðum og það er orðinn fastur liður í vel þekktum karlaklúbbum að bjóða upp á nekt- ardans í eftirrétt á samkomum þessara klúbba. Það atriði hefur tryggt mikla og góða aðsókn. Með vísan til þessarar útbreiðslu og vinsælda nektardansins vaknar sú spuming hvort alþingismenn sinni skyldum sínum og störfum eins og vera ber ef þeir vita ekki hvemig nektardans fer fram. Eru þessir al- þingismenn svo utanveltu í þjóðlíf- inu og fiarri heimsins gleðskap og mannamótum að þeir hafi ekki vit á þvi sem karlmenn hafa nú á tím- um sér helst til skemmtunar? Eða eru þeir svo vinum snauðir að þeim sé aldrei boðið í karlaklúbb? Hvers konar fólk er eiginlega sam- ankomið á Alþingi? Hitt er svo rétt sem félagsmála- ráðherra segir að hann getur auð- vitað ekki tekið afstöðu gegn at- vinnuleyfi fyrir þessar dansmeyjar fyrr en hann veit hvort þær em að taka störf frá íslenskum stúlkum. Þetta kann að varða við lög um stéttarfélög og vísar ráðherrann í því sambandi til verkakvennafé- lagsins Sóknar sem hugsanlega kann að hafa hagsmuna að gæta. Verkakonur eru ófaglærðar og nektardansmeyjarnar eru sagðar ófaglærö náttúmbörn sem sýni meiri nekt heldur en dans. For- maður Sóknar fyrtist við þegar stéttarfélag hennar var bendlað við þessa nýju og ört vaxandi iðngrein. En Sóknarkonur eiga að fara sér hægt að móðgast því það er aldrei að vita nema hér sé fundin lausn á launa- og kjaramálum stéttarinnar. Nektardansmeyjamar em nefhi- lega sagðar á tiltölulega lágiun launum en því hærri þjónustu- gjöldum og því fleiri spjörum sem nektin þær afklæðast því meira fá þær fyrir sinn snúð. Það yrði ekki ónýtt fyrir Sóknar- konur og raunar fleiri kvennastétt- ir ef bæta mætti kjör þeirra með þeim hætti að því fáklæddari sem þær séu við störf sín því meira fái þær borgað. Ekki geta karlar búist við slíkri launauppbót þegar þeir ganga naktir til vinnu sinnar. Miklir fordómar em í gangi vegna nektardansins sem nú ríður húsum og ríður jafnvel fleirum að fullu. Menn halda jafnvel að það sé dónalegt að stúlka fækki fotum og hreyfi sig í leiðinni. Þekktur list- dansstjóri heldur því meira að segja fram að slíkt veki ekki upp hughrif í sama mæli og listdans- inn. Þessi þröngsýni hefur ekki við rök að styðjast enda fer ekki á milli mála að nektardansinn hefur jafn- vel í för með sér meiri hughrif í karlaklúbbum vítt og breitt en flest annað þannig að segja má að nekt- ardansinn sé bæði fagiðn með hlut- lægum hætti og listgrein meö hug- lægum hætti. Dansinn snýr að list- inni en nektin að iöninni. Þetta er þar að auki blómlegur atvinnuveg- ur sem íslenskar konur eiga að færa sér í nyt. Við eigum að taka nektardansinn upp sem valgrein í grunnskólunum. Við viljum ís- lenskt, já takk. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.