Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1996, Page 19
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996
27
I
Fréttir
Búferlaflutningar starfsmanna utanríkisþjónustunnar:
Það vantar faglegar, heiðar-
legar og gegnsæjar reglur
- segir Svavar Gestsson alþingismaður
„Það liggur fyrir að kostnaður við
þetta er gríðarlegur og það sem ég
vil er að settar verði reglur. Það
vantar faglegar, heiðarlegar og
gegnsæjar reglur. Eins og nú háttar
ráða geðþótti og dyntir ráðherranna
framkvæmdinni. Það eru dæmi um
að menn hafl verið fluttir allt að
fjórum sinnum á fimm árum og það
sjá allir að slíkt gengur ekki,“ segir
Svavar Gestson alþingismaður sem
spurði utanríkisráðherra um kostn-
að ráðuneytis hans vegna búferla-
flutninga starfsmanna utanríkis-
þjónustunnar.
í svari ráðherrans kemur fram að
kostnaður utanríkisráðuneytisins
er mjög mismunandi milli ára. Á
árabilinu 1991 til 1996 er kostnaður-
inn langmestur á síðasta ári eða
Ellefta röðin í lottóinu:
Gildir ekki um
kerfisseðla
„Við erum með ákveðið tilboð í
gangi um að kaupi fólk tíu raða seðil
í lottóinu þá fær það elleftu röðina
fría. Þetta á ekki við um kerfisseðlana
en það er aldrei að vita nema við ger-
um eitthvað fyrir þá sem kaupa kerf-
isseðla síðar,“ segir Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, framkvæmdastjóri Is-
lenskrar getspár.
Haft var samband við DV og bent á
að auglýsingar lottósins um elleftu
röðina fría stæðust ekki. Hringjand-
inn keypti fimm vikna kerfisseðil en
fékk aðeins elleftu röðina fría af
fyrstu vikunni. Þetta þótti honum
ekki eðlilegt.
„Við reynum að hafa þetta eins ein-
falt og ffekast er unnt til þess að lág-
marka hættuna á misskilningi. Ég er
þó ánægður með að maðurinn skuli
þó hafa fengið elleftu röðina fría af
fyrstu vikunni því í raun hefði um-
boðsmaður okkar ekki þurft að gefa
hana fyrst um kerfisseðil var að ræða.
Okkur þykir leitt ef upp kemur mis-
skilningur en þar eð ekki var ákveðið
hversu lengi þetta tOboð gilti voru
kerfisseðlarnir ekki teknir inn nú,“
segir Vilhjálmur. -sv
sem nemur rúmum 35 milljónum
króna. Á móti kemur að nú stefnir í
að kostnaður verði minnstur árið
1996 eða innan við helmingur þess
sem var árið á undan eða rúmar 16
milljónir króna og í svari ráðherra
segir að ekki sé gert ráð fyrir frek-
ari kostnaði á árinu.
Það vekur nokkra athygli hversu
mikil útgjöld hlutust af búferlaflutn-
ingum á síðasta ári þegar fram fóru
ríkisstjórnarskipti og Halldór Ás-
grímsson tók við af Jóni Baldvini
Hannibalssyni sem setið hafði sem
ráðherra utanríkismála um árabil.
Það er mikið til á valdi ráðherra að
hafa stjóm á þessum útgjöldum.
Ráðherrann verður þó að fylgja
þeim reglum sem í gildi eru þar sem
ekki er talið æskilegt að starfsmenn
séu skemur en 3 til 4 ár á sama stað
og ekki lengur en 7 til 8 ár. -rt
Búferlaflutningar
sendiráðsstarfsmanna
kostnaöur ríkissjóös -
1991 1992 1993
*Ekki er gert ráö fyrir frekari kostnaöi é árinu
1994
1995 1996
=4STO1=
Bindindisdagur
allra hagur!
Á Bindindisdegi fjölskyldunnar 1996 vekjum við
athygli á því, að áfengið er óvinur skynseminnar.
Við fjölmennum í blysförina og gönguna, sem farin verður til að minnast fórnarlamba
slvsa og harmleikja, sem eiga rætur að rekja til neyslu áfengis og annarra fíkniefna.
Blysförin hefst á Hlemmi klukkan 17:30 og lýkur með ávarpi Helga Seljan á Ingólfstorgi.
Lúðrasveit leikur fyrir göngunni og hópur fermingarbarna eru meðal þeirra sem taka þátt
í henni. Bregðum blysum á loft og látum ljós samúðar og kærleika lýsa okkur leiðina.
Laugardaginn 23. nóvember klukkan 14:00 - 16:00 fjölmennum við á fjölskylduhátíðina í
Vinabæ, Skipholti 33. Þar verður á dagskrá söngur, leikþáttur, töframaður og fleira
skemmtilegt. Aðgangur er ókeypis. Þangað ferð þú með fjölskylduna, auðvitað !
Verið velkomin.
► Gerum Bindindisdaginn 1996 að áfengislausum degi.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Láttu senda þér heim
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Komdu og sœktu
12" pizza m. 3 áleggsteg.
kr.1000,-
16" pizza m. 2 áleggsteg.
kr.1000.-
18" pizza m. 1 áleggsteg.
kr.1000.-
:k568 4848
. I fv I 0 18"pizza m. 3 áleggsteg.
w/ CkyL liQnO 12" hvítlauksbrauð,
‘‘T hvítlauksolía &
acoke
\ösVVav)9" ».1790.-
12" pizza m. 2 áleggsteg.
Kr. 690.-
16" pizza m. 2 áleggsteg.
Kr.790.-
18" pizza m.2áleggsteg.
Kr. 890.-
‘ssasw
y 'W-Ofoo
vvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvv
I
NONNOH9 ONlWSnH