Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1997, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997
Neytendur
Mismunandi Qármögnunarleiðir í bílakaupum:
Spurning um hvað
hentar hverjum
- segir Þórhildur Hansdóttir Jetzek hagfræöingur
Kaupleiga*
- lán til 36 mánaöa, 7,8% vextir-
Nýr bíll 1.350.000 kr.
Greltt út 350.000 kr.
Ekkert stlmpilglald, annar kostnaöur 32.400 kr.
Mánaöargreiöslur 14.936 kr.
Lokagreiösla 700.000 kr.
Bílalán*
- lán til 36 mánaða, 7,8% vextir-
Nýr bíll 1.350.000 kr.
Greltt út 350.000 kr.
Kostnaöur meö stimpilgjaldi 49.100 kr.
Mánaöargreiöslur 32.778 kr.
Lokagreiösla 0 kr.
*Ef miðað er við jafnar afborganir er hagstæöara, miðað við núvirt
greiösluflæði og gefnar forsendur, að taka bílalán ef ávöxtunarkrafan
er 5.6% eða lægri, annars er hagstæðara að taka kaupleigu, it
Bílaumboðin keppast þessa dag-
aa við að bjóða viðskiptavinum
sinum „hagstæö" greiðslukjör af
bilalánum og eru i raun aö bjóða
fólki að velja hversu háa afborgun
það vilji greiða af bílnum sínum
og í hve langan tíma.
Flest eru umboðin þó aö bjóða
það sama, þ.e. bílalán í gegnum
Tryggingamiðstöðina, Sjóvá-Al-
mennar, Vátryggingafélagið,
Glitni, Lýsingu, Sparisjóðina eða
SP-fjármögnun. Lánakjörin eru
því keimlík hjá öllum umboðun-
um en eitthvað mismunandi hjá
tryggingafélögunum. VÍB og
Tryggingamiðstöðin bjóða t.d. hag-
stæðari tilboð ef viðkomandi
tryggir hjá þeim, annars er mun-
urinn mjög lítill. Svo er til í dæm-
inu að umboðin bjóði alls kyns af-
slátt, tilboðsdaga á uppítökum eða
100 þúsund króna pakkaafslátt af
bílum.
Kaupleiga vs. bílalán
„Kaupleiga og hin venjulegu,
frjálsu bílalán, sem tryggingafélög-
in eru að bjóða upp á, virðast vera
ósköp líkur kostur samkvæmt
venjulegum núvirðisreikningi,"
sagði Þórhildur Hansdóttir Jetzek,
hagfræðingur hjá Ráðgjöf og efna-
hagsspám ehf. „Glitnir og Lýsing
bjóða upp á kaupleigu á mjög svip-
uðum kjörum en þá er kaupand-
inn ekki skráður eigandi að bíln-
um fyrr en hann hefur lokið loka-
greiðslunni. Kaupandinn sleppur
þá við þinglýsingu og stimpilgjald
sem sparar honum t.d. 15-16 þús-
und krónur af milljón króna láni.
Hann greiðir í staðinn hærri vexti
á leigutímanum því bifreiðin er
greidd hægar niður (eftirstöðvarn-
ar eru alltaf hærri) en greiðslu-
byrðin er að sama skapi miklu
léttari. Ef fólk tekur bilalán trygg-
ingafélaganna er það aftur á móti
orðið eigandi að bílnum um leið,“
sagði Þórhildur.
Tímaviröi peninga
„Málið snýst um það hvað þú
leggur mikið timavirði á peninga,
þ.e. hversu mikils virði það er fyr-
ir þig að greiða bílinn seinna eða
jafnvel ekki. Leggir þú hátt virði á
það að geta frestað greiðslunum er
kaupleigan betri en ef það skiptir
þig ekki svo miklu máli hvort þú
borgar krónuna núna eða eftir 3 ár
þá er betra að taka bílalán," sagði
Þórhildur. Hún nefndi á hinn bóg-
inn að ef viðkomandi væri í námi
og ætlaði út á vinnumarkaðinn eft-
ir rúmt ár væri kaupleigan ágætur
kostur til að fleyta sér áfram þar
til tekjurnar færu að skila sér. „Ef
fólk hins vegar sér ekki fram á að
eiga meiri pening seinna og vill
eignast bílinn myndi ég ráðleggja
því að taka venjulegt lán því það
getur verið erfitt að þurfa að borga
700 þúsund krónur eftir 3 ár,“
sagði Þórhildur. Hún sagði ávöxt-
unarkröfuna í núvirðisreikning-
unum vera það eina sem gæti
breytt því hvort væri hagstæðara.
Með ávöxtunarkröfu er átt við
tímavirði peninga. Eftir því sem
virði krónu í dag er hlutfallslega
meira miðað við virði hennar á
morgun því hærri er ávöxtunar-
krafan.
Hvaö hentar þér?
Þórhildur sagðist því ekki mæla
með neinu sérstöku. „Þetta er í
raun spurning um það hvernig þú
vilt hafa hlutina. Ef þú átt ekki
peninga núna og ert tilbúinn til að
leigja þér afnot af bíl á þessu tíma-
bili, hvort sem þú svo greiðir hann
upp í lokin eða framlengir kaup-
leiguna, velur þú kaupleiguna.
Annars velur þú bilalánin." Valið
stendur því annars vegar um að
kaupa bíl, borga hann hratt niður
og eignast hann fljótt eða kaupa
bíl, borga lítið og eignast hann
hægt (eða jafnvel ekki).
-ingo
Óhress með bílaviðskipti við Brimborg:
Eignin rýrnaði um tæpan þriðjung á árinu
„Ég keypti tveggja ára gamlan bil
af Brimborg árið 1995, Daihatsu
Charade ’93, og ætlaði svo að selja
hann rúmu ári seinna. Þá komst ég
að því að bíllinn hafði lækkað úr
810 þúsundum í 550 þúsund krónur
á einu ári og tveimur mánuðum,
eða um 260 þúsund krónur," sagði
Lúðvík Þórisson, sem er heldur
óhress með viðskipti við Brimborg.
„Brimborg hafði m.ö.o. selt mér
bílinn á langt yfir raunvirði því síð-
an hef ég komist að því að aðrar
bílasölur voru á þessum tíma að
selja sams konar bíla á tæplega 700
þúsund krónur. Ég kynnti mér það
hins vegar ekkert þá því ég treysti
því að ég fengi traustan bíl á sann-
gjörnu verði hjá umboðinu. Strax 2
mánuðum eftir kaupin var hann
- Crtu með
hundalcyfi.'
- jíhvcrju
spyrðu?
umboðið sagði honum
kominn niður í 700 þúsund og þegar
ég svo ætlaði að selja bílinn í ágúst
í fyrra hafði hann lækkað í verði
um 260 þúsund krónur samkvæmt
verðlista frá Brimborg," sagði Lúð-
vík.
Hann krafði umboðið skýringa á
þessari miklu lækkun en sagðist
engin haldbær svör hafa fengið önn-
ur en þau að hann hefði verið
óheppinn. Hann hefur fengið sér
lögfræðing og hyggst stefna Brim-
borg og krefjast þess að þeir taki bíl-
inn til baka með áhvílandi láni og
greiði lögfræðikostnað þessu sam-
fara. Þórður Sveinsson lögmaður,
sem fer með mál Lúðvíks, segist
vera með annað ssimbærilegt mál á
sinni könnu sem einnig varði Brim-
borg. „Það er bifreið sem keypt var
í október 1995 á 870 þúsund krónur
en er nú metin á 620 þúsund rétt
rúmu ári síðar. Þar hefur því orðið
25-28% verðfall,” sagði Þórður.
Lúðvík á bílinn enn þá og segist
engan áhuga hafa á þvi að borga
með honum. „Ég á allt eins von á
því að hann verði kominn niður í
400 þúsund í september og orðinn
verðlaus á næsta ári. Það eina sem
ég get gert er að láta almenning vita
og vara fólk við að skipta við Brim-
borg.“
Vill endurgreiða 30 þúsund
„Það lækka allir bílar í verði og
til eru mörg dæmi um enn meiri
lækkanir. Þegar hann keypti var
verðið búið að vera mjög hátt lengi
svo bílar lækkuðu talsvert 1 kjölfar-
iö. Hann keypti því á mjög óheppi-
legum tíma,“ sagði EgiÚ Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri hjá Brim-
borg.
„Það eina sem ég get tekið undir
að hann væri óheppinn
Verögildi bílsins sem Lúövík keypti lækkaöi um tæpan þriöjung á einungis
einu ári. Hann er óhress meö viðskiptin og hefur fengiö sér lögfræöing.
er að bíllinn var verðlagður 30 þús-
und krónum hærra en leiðbeining-
arlistinn okkar sagði til um á þeim
tíma. Það er ekkert óeðlilegt við
það, því við reynum að fá eins mik-
ið út úr bílunum okkar og við get-
um, og hann hafði alla möguleika á
að fara í önnur bílaumboð eða í aðr-
ar bílasölur og kaupa það sem hon-
um fannst hagstæðast. Ég er þó til-
búinn að endurgreiða honum þessar
30 þúsund krónur og hef sagt lög-
fræðingnum það,“ sagði Egill.
Áður útbjuggu umboðin svokall-
aða markaðslista einu sinni á ári en
því fyrirkomulagi hefur verið breytt
að sögn Egils þannig að listinn er
nú endurnýjaður 3-4 sinnum á ári
(1. janúar, 1. apríl og 1. ágúst). „Þá
deilast verðlækkanir jafnt yfir árið
og verðið á bílunum okkar er alltaf
í samræmi við verðið á listanum,"
sagði Egill. Það borgar sig því að
fylgjast vel með því hvenær nýir
markaðslistar eru væntanlegir.
-ingo
DV
Lasagna frá Pizzalandi.
Grænmetis-
lasagna
Pizzaland í Kópavogi hefur haf-
ið framleiðslu á grænmetisla-
sagna, frosnum grænmetisrétti
sem er tilbúinn beint í ofninn.
Áður var á markaðinum Fyrir-
takslasagna en fyrirtækið fram-
leiðir einnig pitsur (frosnar og
ferskar) og hvítlauksolíu.
Innihaldið í grænmetislasagna
er blómkál, laukur, hvítkál, gul-
rætur, maískom, sellerí og tómat-
ar og rifnum osti er stráð yfir. Ef
rétturinn er frosinn tekur 45-50
min. að hita hann upp í ofni en
10-15 mín. í örbylgjuofni. I hveij-
um 100 g eru einungis 4 g af fitu
og rétturinn hefur 10 mánaða
geymsluþol.
Energizer rafhlööurnar.
Nýjung í
rafhlöðum
Energizer rafhlöðurnar, sem
Olíufélagið hf. flytur inn frá
stærsta rafhlöðuframleiðanda
heims, Ralston, eru nú fáanlegar
með útbúnaði sem gerir kleift að
mæla virkni þeirra með einu
handtaki.
Rafhlöðurnar fást á öllum bens-
ínstöðvum ESSO og verða á sér-
stöku tilboði í Hraðbúðum ESSO á
næstunni. Þá kosta LR14 114 kr.
(áður 251 kr.), LR6135 kr. (áður 296
kr.) og LR20 165 kr. (áður 362 kr.).
Duracell rafhlööurnar.
Innbyggður
orkumælir
Einnig er komin á markað ný
gerð af Duracell rafhlöðum,
Duracell PowerCheck, með inn-
byggðum orkumæli. Einungis
þarf að þrýsta þéttingsfast á 2
punkta á rafhlöðunni í u.þ.b. 10
sek. og þá sést hvort orkan er lít-
il eða mikil.
Þetta kemur í veg fyrir að nýj-
um og notuðum rafhlöðum sé
ruglað saman en það fer t.d. illa
með viðkomandi tæki. Grænt ljós
á rafhlöðunum merkir næga orku
en rautt ljós merkir litla orku.
Best er að mæla rafhlöðumar við
stofuhita því of hátt eða og lágt
hitastig getur valdið röngum af-
lestri. Umboðsaðili fyrir Duracell
rafhlöðurnar er Heildverslunin
Hrísnes ehf.
Lífræn
mjólkurvara
Mjólkurbú Flóamanna hefur
fengið vottun Túnis ehf. og er fyrst
mjólkurbúa til að hefja framleiðslu
á lífrænni mjólkurvöru fyrir al-
mennan markað. Aðeins örfáir
bændur hafa fengið slíka vottun og
því verður framleiðslan mjög tak-
mörkuð fyrst í stað. Eftirspumin
ræður svo framhaldinu en ef mið er
tekið af nágrannaþjóðum okkar
eykst hún jafnt og þétt. -ingo