Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1997, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997
9
r>v Stuttar fréttir
Einangra bæ
Kínversk yfirvöld hafa ein-
angrað bæ í norðvesturhluta
Xinjang-héraðs eftir að 10
manns létu lífið í óeirðum að-
skilnaðarsinna múslíma í sið-
ustu viku.
Vara viö
Stjómarandstaðan í Serbíu
varaði lýðræðissinna við erfiö-
leikum fram undan, jafnvel þó
kosningasigrar þeirra yrðu við-
urkenndir í dag.
Beint samband
Madeleine Albright, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, hafði
beint sam-
band við
Slobodan Mi-
losevic
Serbíuforseta
oghvattihann
til að virða
kosningasigur
lýðræðissinna
og koma á viöræöum við þá.
Halli til verndar
Demókratar í bandaríska
þinginu sögðu að halli ætti að
vera leyfilegur á fjárlögum til að
koma í veg fyrir kreppu þegar
erfiðleikar væru í efnahagslíf-
inu.
Láta konur lausar
Yasser Arafat, forseti Palest-
ínu, sagði að israelsmenn
mundu láta alla palestínska
kvenfanga lausa á morgun.
Fer hvergl
Rosalita Arteaga, bráða-
birgðaforseti Ekvadors, virðist
ætla að standa
í veginum fyr-
ir áætlunum
rnn að hún
gefi forseta-
embættið eftir
í hendur þing-
forsetans.
Ráðgjafi henn-
ar segir hana aldrei hafa sam-
þykkt slíka ráðagerð.
Löggur myrtar
Skæmliðar Tamíla á Sri
Lanka drápu 15 lögreglumenn I
árásum sínum.
Stríö mögulegt
Malcolm Rifkind, utanríkisráð-
herra Breta, sagði verulega hættu
á að Tyrkir og Grikkir fæm í
stríð vegna deilna um Kýpur.
í heimsókn
Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra ísraels, kemur í
heimsókn til Bandaríkjanna á
morgun þar sem hann mun
ræða við Clinton forseta og fleiri
ráðamenn.
Handtekinn
Baráttumaðurinn Jesse
Jackson var handtekinn í mót-
mælaaðgerðum og bænahaldi
við byggingarlóð í Chicago.
Byggð mun fyrr
Bandarískir vísindamenn
segjast hafa fundið merki rnn
mannabústaði í suðurhluta
Chíle fyrir 12.500 árum sem er
1.300 árum fyrr en talið var.
Reuter
Útlönd
Fjárhagur O.J. Simpsons rústaður með úrskurði kviðdóms:
Miskabætur nema
1.750 milljónum
Kviðdómur í Santa Monica úr-
skurðaði í gær að O.J. Simpson
skyldi greiða 25 milljónir dollara
eða sem svarar til 1,75 milljarða ís-
lenskra króna í miskabætur vegna
morðanna á fymun eiginkonu
sinni, Nicole Brown Simpson, og
unnusta hennar, Ronald Goldman.
Kviðdómurinn úrskurðaði í síðustu
viku að Simpson bæri ábyrgð á
morðunum og bæri að greiða um
600 milljónir í skaðabætur. Því má
segja að kviðdómurinn hafi valið
einu leiðina sem hann taldi færa til
að refsa Simpson fyrir morðin, að
rúa hann inn að skinni.
Upphæðin, sem kviðdómurinn
kom sér saman um í gær, skiptist
jafnt milli foreldra fómarlambanna.
Eiirn kviðdómenda, hvít kona á þrít-
ugsaldri, sagði að það hefði verið
mjög auðvelt að finna Simpson sek-
an um morðin. Flestir kviðdómend-
ur sögðust sannfærðir vun að Simp-
son hefði logið í vitnastúkunni og
að sækjendur í málinu hefðu sann-
að mál sitt rækilega. Því hefði kvið-
dómurinn komist að þeirri niður-
stöðu að Simpson ætti ekki að hagn-
ast á morðunum.
Simpson var á golfvellinum þegar
úrskurður kviðdómsins var lesinn
upp, var að háma í sig pulsu á bar
golfskálans meðan hann fylgdist
með í sjónvarpi. Síðar um daginn
sást hann koma frá fundi með lög-
mönnum sínum. Þeir tóku úrskurði
kviðdómsins afar illa og sögðu ör-
uggt að honum yrði áfrýjað. Kröfð-
ust þeir tíu daga frests til að skoða
málið en á meðan geta sækjendur
ekki gengið að Simpson til að fá
greiðslur inntar af hendi. En til að
fá málinu áfrýjað þarf að reiða fram
tryggingu sem er nær helmingi
hærri en miskabnætumar.
Þá er hugsanlegt að lögmenn
Simpsons fari fram á lækkun
miskabótanna. Á lokastigi réttar-
haldanna fullyrtu verjendur Simp-
sons að hann ætti enga peninga
þrátt fyrir að hann búi í stórri villu,
aki um á Bentley og hafi lífvörð í
vinnu. En sækjendurnir kölluðu
fram vitni sem staðhæfðu að auðæfi
Simpsons væru metin á um einn
milljarð króna og að hann mundi
hafa yfir 200 milljóna tekjur á ári
næstu árin.
Reuter
Skæruliðar í
Perú ræða við
stjórnvöld
Samningaviðræður hefjast í
dag milli næstæðsta manns Tupac
Amaru skæruliða í Perú, Roli
Rojas, og menntamálaráðherra
Perú, Domingo Palermo, um
lausn gíslamálsins. Viðræöumar
fara fram í húsi gegnt japanska
sendiherrabústaðnum í Lima þar
sem 72 gíslar era í haldi skæra-
liða.
Starfsmenn Rauöa krossins
vora í gær önnum kafnir við und-
irbúning viðræðnanna og gerðu
meðal annars ráðstafanir til að
Rojas kæmist óséður á fund
menntamálaráðherrans. Fulltrúar
Rauöa krossins verða viðstaddir
auk eftirlitsmanna frá Kanada og
Japan.
Morð á Spáni
talin hefndar-
aðgerð ETA
Aðskilnaðarhreyfing Baska á
Spáni, ETA, er talin hafa myrt
hæstaréttardómara og flugvallar-
starfsmann í gær í hefndarskyni
fyrir handtökur leiðtoga ETA.
Dómarinn var skotinn fyrir utan
heimili sitt í Madrid nokkrum
klukkustundum eftir að öflug
bílasprengja sprakk í Granada
með þeim afleiðingum að flugvall-
arstarfsmaður lést og sjö særðust.
Innanríkisráöherra Spánar,
Jaime Mayor Oreja, hélt heim á
leið frá ísrael þar sem hann var í
heimsókn og sagöi að atburðimir
sýndu aö enn væri ekki kominn
tími til friðarviðræöna við skæra-
liða. „Það er mjög erfitt á tíma
eins og þessum að jafnvel minnast
á orðið samningaviðræður," sagði
ráðherrann í útvarpsviðtali.
Morðin i gær fylgdu í kjölfar
óeirða i Baskahéruðum um helg-
ina. Þá efndu þúsundir til mót-
mæla vegna dauða meints ETA
skæruliða sem var í fangelsi.
Hann fannst með snöra um háls-
inn og bundinn á höndum og fót-
um. Reuter
Foreldrar og systir Ronalds Goldmans yfirgefa réttarbygginguna I Santa Monlca eftir ab
kviödómur haföi úrskuröaö þeim tæpar 900 milljónlr króna í miskabætur. Aöstandendur
Nicole Brown, fyrrum eiginkonu O.J. Simpsons, fá sömu miskabætur. Sfmamynd Reuter
Frakkar hliðhollari
Le Pen en áður
Fyrsta skoðanakönn-
unin, sem gerð var eftir
sigur Þjóðfylkingar
Jeans-Maries Le Pens í
borgarstj órakosningun-
um í Vitrolles i S-
Frakklandi á sunnudag,
sýnir að almenningur er
ekki jaöi andvígur hon-
um og áður.
Samkvæmt niðurstöð-
um skoðanakönnunar-
innar, sem birt verður í
dag, vilja 18 prósent
Frakka annað hvort
hjálpa Le Pen eða era
ánægðir með þann
áfanga sem hann hefúr náð. 18 pró-
sentum stóð á sama um árangur
hans en fjöldi þeirra sem óttast hann
Nýkjörinn
stjóri í
Catherine
fagnar
asigrinum.
Sfmamynd Reuter
eða er andvígur honum er
56 prósent. Jafhframt kem-
ur fram að 64 prósent
Frakka líta á Þjóðfylking-
una sem hættu fýrir lýð-
ræðið en 70 prósent era
þeirrar skoðunar að flokk-
urinn eigi að hafa fulltrúa
á þingi. Þar til fýrir ári
vora yfir 85 prósent
Frakka andvíg Le Pen.
Sigur Catherine Megr-
et, sem er eiginkona vara-
formanns Þjóðfýlkingar-
innar, í kosningunum í
Vitrolles er sagður vís-
bending fyrir þingkosn-
ingamar í mars á næsta ári. Le Pen
hefur nú náð völdum í fjórum ráð-
húsum í S-Frakklandi. Reuter
borgar-
Vitrolles,
Megret,
kosning-
r Langarþig..............
að lyfta þér upp eitt kvöld í viku eða
eitt laugardagssíðdegi í viku...
í skemmtilegum skóla og fræðast um allt sem vitaö er um
dulræn mál og samband við framliðna og hvar og hvernig þessir
handanheimar líklegast eru?
Og langar þig ef til vill að setjast í mjúkan og svo sannarlega
spennandi skóla innanum glaðværa og jákvæða nemendur fyrir hófleg
skólagjöld? Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og yfir 500
ánægðum nemendum Sálarrannsóknarskólans sl. 3 ár. Hringdu og fáðu
allar nánari upplýsingar um langskemmtilegasta skólann í bænum
sem í boði er í dag. Yfir skráningardagana er svarað í síma
Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar kl. 14-19.
Kynningarfundlr eru í skólanum (kvöld,
kl. 20.30 og á sunnudaginn kl. 14.
Allir velkomnir.
A\ Sálarrannsóknarskólinn
ÆL—\ - Mest spennandi skólinn i bænum -
I spennandi i
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050
Handhöfum Eurocard og Visa
býðst nú að greiða fyrir öll
flugfargjöld og pakkaferðir
með raðgreiðslum til allt að
24mánaða.
Leiðin
út í heim
Flugleiða
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi