Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1997, Qupperneq 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997
útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjérnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Fólkið segir pass
Fólk kvartar um lág laun, litlar tryggingabætur, hátt
verðlag og segir ekki hægt að lifa í þessu landi. Það tel-
ur sig hafa verið svikið rnn eins konar rétt til aðgangs
að velferðarríki, sem sjái því borgið frá vöggu til grafar.
Það spyr síður um sínar eigin skyldur við þjóðfélagið.
Að baki kröfu fólks um velferð er misskilningur á eðli
lýðræðisríkja. Þjóðskipulag okkar hefur ekki og á ekki
að hafa réttindi að homsteini, heldur skyldur. Lýðræði
felur í sér, að ahnenningur tekur sjálfur ábyrgð af
rekstri þjóðfélagsins úr höndum aðals eða einveldis.
í reynd hafnar mikill fjöldi fólks að taka þátt í þessari
ábyrgð. Það kvartar yfir stjómmálamönnum og heldur
samt áfram að kjósa þá. Það telur, að einhverjir aðrir en
það sjálft eigi að reka þjóðfélagið og sjá um að halda uppi
almennri velferð. Það segir pass í lífinu.
Fólk tekur ekki einu sinni ábyrgð á eigin heilsu. Það
hegðar sér á heilsuspiílandi hátt. Það reykir og drekkur
og étur sykur. Það hreyfir sig ekki. Svo ætlast það til, að
til skjalanna komi velferðarkerfi og hirði upp hræið til
lyfjameðferðar og uppskurðar á sjúkrahúsum.
Að sjálfsögðu tekur þetta fólk ekki heldur neina
ábyrgð á uppeldi bama sinna. Það heldur, að þjóðfélag-
ið hafi sett upp skóla til að taka að sér bamauppeldi. Af-
skiptaleysið leiðir af sér agaleysi og körfúhörku nýrra
kynslóða, sem láta teymast af síbylju og sápuóperum.
Ranghugmyndir um eðli lýðræðis og stöðu almenn-
ings í því þjóðskipulagi komu skýrt fram í Austur-Evr-
ópu, þegar ríkin þar losnuðu undan oki kommúnismans.
Almenningur stóð á gangstéttunum og klappaði fyrir
komu vörubíla með sykurblönduðum koffindrykkjum.
Þetta fólk hafði fengið þær ranghugmyndir úr vest-
rænu sjónvarpi, að vestrænt lýðræði fælist í gosdrykkj-
um og hamborgurum handa öllum, poppkomi og síbylju-
poppi. Svo þegar ímyndin úr sjónvarpinu brást, fór fólk
í fýlu og kaus aftur yfir sig gamla kommúnista.
Lýðræði er allt annað en sýndarveruleiki auglýsinga,
vörukynninga og sápuþátta í sjónvarpi. Lýðræði er fýr-
irhöfn. Það krefst þátttöku fólks í að ákveða, hvemig
þjóðfélagið sé rekið, svo að unnt sé að gera það að betri
íverustað. Sumir taka þátt, en fleiri gera það ekki.
Margir detta alveg úr raunveruleikanum og lifa sig inn
í sýndarveruleika sjónvarps, þar sem ofbeldi og kynórar
ráða ríkjum í samfloti við auglýsingar og kynningar á
meira eða minna óþarfri neyzlu. Vörumerki úr sjónvarpi
koma í stað stjómmálaflokka raunveruleikans.
Disneylöndum Qölgar og fólk skiptist í fylkingar eftir
gosdrykkjum eða boltaliðum. Á meðan reyna einstak-
lingar og dagblöð að halda uppi vitagagnslausri umræðu
um fiskveiðistjómun, ríkisrekstur landbúnaðar og önn-
ur atriði, sem geta ráðið úrslitum um velferð fólks.
Því fleiri sem segja pass, þeim mun meiri líkur em á,
að þjóðskipulag lýðræðis grotni að innan. Valdir em lak-
ari stjómmálamenn en ella, pólitísk umræða verður
minni, rekstur þjóðfélagsins óskynsamlegri og velferð
fólks að sjálfsögðu langtum minni en ella væri.
Napurt er, að þetta skuli gerast um leið og vestrænt
lýðræði hefúr unnið sigur á kommúnisma og ógnar
stöðu annarra menningarheima á borð við íslam. Sigr-
um út á við fýlgja ósigrar inn á við. Menn eru að breyt-
ast úr borgurum í neyzludýr, sem búa í sýndarveruleika.
Neyzlu- og sjónvarpsþrælar og fylgismenn vörumerkja
verða svo að taka því sem hverju öðm hundsbiti, að lífs-
kjör þeirra geta ekki fylgt sýndarveruleikanum.
Jónas Kristjánsson
Fátæktin hefur hrakiö marga Rússa til aö leita sér framfæris af ruslahaugum stórborga. - Myndin er frá Kemerovo.
Harðlmumenn og
umbótasinnar
verjalandi var hægri-
stjóm sem lenti í þeim
ógöngum að talið er að
lífskjör hafi versnað um
20% meðan hún var við
völd - síðan tók við eins
konar sósíalistastjóm
og imdir henni versna
lífskjörin líka að mun.
Skrýtnast verður dæm-
ið þegar risamir tveir
era skoðaðir, Kina og
Rússland. í Kína er
Kommúnistaflokkurinn
enn einráður á hinu
pólitíska sviði og notar
völd sín bæði til að
bæla niður hvers kyns
andóf og til að innleiða
harðsnúinn kapítalisma
„Og Rússar eru sem vonlegt er
orðnir langþreyttlr. Þeir taka hvorki
mark á harðlínutali nó umbótalof■
oröum lengur. Ef þeir fengju aö
kjósa sór nýjan forseta þá myndu
þeir flykkja sór um Lóbód..."
Kjallarinn
Árni Bergmann
rithöfundur
Fjölmiðlamenn
vilja hafa allt sem
einfaldast. Þegar
þeir segja frá
stjórnmálum í ríkj-
um, sem alráðir
kommúnistaflokk-
ar áður stjórnuðu,
skipta þeir mönn-
um og flokkum í
tvennt: harðlínu-
menn og umbóta-
sinna. Harðlínu-
menn eru oftast
nefndir þeir menn
og flokkar sem
taldir eru arftakar
fyrrverandi valda-
flokka, og fylgir
með að þeir séu á
móti breytingum
og ófærir um að
stjóma löndum.
Umbótasinnar eru
svo þeir sem taldir
eru stefna sem
hraðast á vestræn-
ar fyrirmyndir í
markaðsbúskap og
lýðræði og sýnist
augljóst að stjóm-
sýsla þeirra sé
mun betri en
hinna. - Veruleik-
inn er hins vegar svo meinfýsinn
aö hann er sífellt að trufla þessa
mynd.
Ekkert er sem sýnist
Ríkjum í Austur-Evrópu tekst
misvel að breyta um búskapar-
háttu hjá sér en það sýnist ekki
fara eftir því hvaða litur er á ríkj-
andi flokkum. Pólverjum og Tékk-
um gengur á næstliðnum áram
nokkuð vel að auka hjá sér þjóðar-
framleiðslu - í Póllandi stjóma
arftakar kommúnistaflokks, en í
Tékklandi er hægristjóm. í Ung-
í nokkram áfóngum. Árangurinn
er hagvöxtur svo gífúrlegur að
gestir af Vesturlöndum mega vart
vatni halda, Helmut Kohl og Jón
Baldvin lofa hástöfum kínverska
framkvæmdagleði og Göran Pers-
son bendir á Kínveija Rússum til
fyrirmyndar mn „stöðugleika" í
stjómmálum.
Rússlandsdæmiö
í Rússlandi situr valdamikill
forseti (þarf ekki að hafa veruleg-
ar áhyggjur af því þótt hans menn
séu í minnihluta á þingi). Jeltsín
var eins og allir vita kosinn í
nafni umbóta og gegn „harðlínu-
mönnum" í flokkum þjóðemis-
sinna og kommúnista - og ekkert
til sparað í aðstoð og ráðgjöf frá
Vesturlöndum, auk þess sem ríkis-
sjóður var þurrausinn til að borga
beinar og óbeinar kosningamútur
til áhrifamanna og einstakra hér-
aða og lýðvelda Rússlands.
En þessi umbótastjóm fær því
miður einna hraklegasta einkunn
af öllum stjómum á því svæði sem
um ræðir. Allir kannast við gífur-
lega spillingu sem hefur geflð ný-
ríkri stétt þjóðareigur og auðlind-
ir, auk þess sem glæpastarfsemi
stendur með skelfilegum blóma,
örbirgð er mikil og munur á kjör-
um fátækra og ríkra margfaldur á
við það sem Rússar áður þekktu.
Ekki nóg með það: framleiðslan
minnkaði við kerfisbreytingar,
eins og búast mátti við - en hún
hefúr haldið áfram að skreppa
saman. Á sl. fjórum áram (segir
Íllaríonov frá Haggreiningarstofn-
uninni í Moskvu) hefur þjóðar-
framleiðsla minnkað um 28% sem
er meira en á árum heimsstyrjald-
arinnar síðari, en þá er talið að
hún hafi minnkað um 21 %!
Sá sami Íllaríonov segir, að
ráðamenn geti ekki kennt hinni
kommúnísku fortíð um hvemig
komið er: flestir sem hafa tekið
við svipuðum verkeflium í öðrum
löndmn hafl staðið sig betur en
þeir. Og Rússar era sem vonlegt er
orðnir langþreyttir. Þeir taka
hvorki mark á harðlínutali né um-
bótaloforðum lengur. Ef þeir
fengju að kjósa sér nýjan forseta
þá myndu þeir flykkja sér um Lé-
béd, þótt hann viti sjálfsagt fátt
um hagstjóm - af þeirri ástæðu
einni að margir halda að hann sé
að minnsta kosti heiðarlegur.
Ámi Bergmann
Skoðanir annarra
Rétt fiskveiðistjórnun
„Það hlýtur að vera markmið við stjómun fisk-
veiða Islendinga að hafa sem hagkvæmast fiskveiði-
sfjómunarkerfi. ... Mér finnst að margir þeirra sem
gagnrýna kvótakerfið hafi ekki á takteinum neinar
nothæfar tillögur. Ég tel að núverandi kerfi hafi skil-
að góðum árangri. Ég fullyrði að þrátt fyrir að ýmis-
legt megi að kerfinu fmna hafi það skilað okkur
fram á við. Við erum hægt og rólega að rétta úr
kútnum. Það getum við þakkað skynsamlegu fisk-
veiðistjórnunarkerfi."
Sigurður Einarsson í Mbl. 8. febr.
Sjálfkeyrandi bákn
„Munurinn á verkefnum og bótum er sá að verk-
in skila einhveiju til baka en bætumar engu. Helm-
ings heimtur eru hálfu betra veganesti en engar
heimtur. ... Era bætur til atvinnulausra orðnar að
sjálfkeyrandi bákni sem atvinnumenn lifa á að reka?
En peningamir eru reyndar ekki kjarni málsins. At-
vinnulaust fólk fær þama verðug verkefni og leggur
sig vafalaust í framkróka við að láta verkin tala.
Annars flokks þegnar landsins verða aftur lifandi
hluti af samfélaginu og leggja sitt af mörkum eins og
allt fyrsta flokks fólkið.“
Ásgeir Hannes f Degi-Tímanum 8. febr.
Krókurinn makaður
„Þótt allir virðist sammála um nauðsyn aðgerða
er sjaldnast annað gert en að greiða sérfræðingum
laun fyrir athuganir og kannanir og prenturum fýr-
ir skýrslur. Auðvitað fá hönnuðir og auglýsinga-
skrifstofur einnig nokkuð í sinn hlut og segja má að
það út af fýrir sig, að einhverjir fái makaö krókinn,
sé þó alltént af hinu góða. Að minnsta kosti skapar
það atvinnu fyrir einhveija enda þótt það leysi ekki
hin aðsteðjandi vandamál. ... Dæmi um þetta er hið
síendurtekna kjaravandamál."
Hrafn A. Harðarson í Lesbók Mbl. 8. febr.